Skessuhorn - 23.11.2000, Qupperneq 7
iu£33Unu... 3
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2000
7
..
Megas fékk um daginn verðlaun Jónasar
Hallgrímssonar og þó ég geti ómögulega
munað hvaða apparat það er sem veitir þessi
verðlaun, þá er ekki annað sæmandi en taka
ofan fyrir því vegna þess að hafi einhver átt
skilið verðlaun og viðurkenningu í þessu landi,
og síðast en ekki síst peningastyrk eins og
hann benti víst á sjálfur, þá var það Magnús
Þór Jónsson. Það er alkunn þjóðsaga að allir
þeir sem voru á besta aldri árið 1963 muni
nákvæmlega hvar þeir voru staddir þegar þeir
fréttu lát John F. Kennedys Bandaríkjaforseta.
Þá var ég ekki nema þriggja ára og man ekki
neitt. Aftur á móti man ég nákvæmlega hvar ég
var staddur og við hvaða aðstæður þegar ég
hlustaði í fyrsta sinn á þær hljómplötur
Megasar sem mestu máli skiptu mig hér í eina
tíð. Platan þar sem hann situr undir
fangelsisveggnum með blómunum - ég keypti
hana niðri í bæ og fór með hana heim á
Drafnarstíg 3 og setti hana á fóninn; ég man
nákvæmlega hvernig var útlits í herberginu
þegar fyrstu tónar Ragnheiðar biskupsdóttur
fóru að hljóma. "Fram og aftur blindgötuna" -
dittó, nema ég var búinn að skipta um herbergi
á Drafnarstígnum. "Á bleikum náttkjólum" -
ég var að þvælast í sjoppunni í
Menntaskólanum í Reykjavík og fékk að setja
plötuna á fóninn þar, ég var að stinga upp í
mig fyrsta bitanum af langloku með eggjum
þegar "Orfeus og Evridís” byrjaði. Þessar
plötur, og sú allra fyrsta sem ég uppgötvaði
reyndar á eftir hinum, urðu síðan tryggustu
vinir mínir öll táningsárin og með fullri
virðingu fyrir öðrum ágætum kunningjum þá
skildi mig enginn betur og sagði mér enginn
meira um lífið og tilveruna en röddin á
plötunni - og hvílík rödd! Lífssýn Megasar var
vissulega og er kaldhæðnisleg, hráslagaleg,
stundum dimm og drungaleg, en þess meira
virði eru demantarnir í drafinu og fegurðin
sem spratt fram á óvæntum augnablikum á
plötum Megasar var engu ómarkverðari en
sjálf fegurð himinsins. Síðan skal ég fúslega
játa - ungur sem ég var - að vitaskuld varð
sjálft líferni meistarans ekki til að draga úr
dimmleitum ljómanum kringum hann, og ég
get ómögulega verið að skammast mín að ráði
fyrir að hafa haft ógn gaman af þegar ég fór að
stunda skemmtanalífið og sækja böll í
Tjarnarbúð og maður rak fótinn í eitthvað
undir borði og vissi þá að Megas var á staðnum.
Hversu mikið skáld Megas er? Hann er eitt það
allra mesta á öldinni, Sum mkvæða hans þurfa
vissulega á lögunum að halda til að virka
fullkomlega og virðast ekki öll mikil fyrir
mann að sjá ein á blaði en það dregur ekkert úr
gildi þeirra - lög og ljóð eru óaðskiljanlegir
hlutar verksins sem Megas mbýður okkur upp
á. Um tíma rofnuðu tengsl okkar Megasar - og
þá meina ég ekki persónulegsl tengsl, því þau
hafa lítil verið, heldur bara tengsl mín við ljóð
hans og lög - lögin af plötunum sem ég nefndi
áðan virtust nægja mér alveg og ekki nema
einstaka lög síðan hittu mig fullkomlega í
hjartastað. Þá fór Megas út á nýjar brautir sem
mér féllu ekki allskostar; allmörg ljóð um litla
stráka létu mig alveg ósnortinn og ég skal
viðurkenna að mér þótti óþægilegt að horfast í
augu við að vinur minn frá táningsárunum
væri farinn að daðra svo mjög við
pedófilismann. Enda virðist hann sem betur
fer bara hafa verið að stríða okkur og notað
þetta til að koma sér aftur út úr húsi eftir að
hafa verið farinn að falla óþægilega vel í kramið
hjá smáborgarastéttinni. í staðinn var eins og
dálítið tilgangslaus hryllingur kæmi í stað þess
ískyggilega andrúmslofts sem áður hafði nægt
til að kveikja ugg í brjósti hlustanda um að lífið
væri ekki allt þar sem það væri séð. En einnig
fannst mér tilraunastarfsemi hans í tónlist
með allskonar aðilum skyggja á það sem
sterkast er í verkum hans, ljóðin sjálf. Nokkrar
af síðustu plötunum Megas lét ég því meira og
minna framhjá mér fara. Svo var það í vor - á
héiðbjörtum páskadegi uppí Hyalfirði - að ég
setti í geislaspilara nokkurra missera gamlan
disk með Megasi sém ég hafði aldrei hlýtt á og
ákvað að vita hvað hann væri að bardúsa, og sjá
þarna var Megas líkt og endurborinn - lög og
útsetningar einfaldleikinn uppmálaður og þótt
ísköld kaldhæðni ljóðanna væri kunnugleg
voru þó slegnar nýjar nótur. Ég á eftir að muna
alla tíð þá stund þegar ég hlustaði á diskinn
fyrst - brakandi logn, eilítið andkalt, sjórinn
dimmblár og Megas var enn á meðal vor.
'
íí-
; . ■ ’*
ucttingalius
Brákarbraut 13*310 Borgames • simi 437 2313 * fax 437 2213
13oU0F\esÍF\gau - Sougfiuðiiagau - VestleK\dih\gau
Hljómsveitin Þotullðið leikur fyrir dansi
irá kl. 23:00 til 03:00, frítt inn
Verðum með glæsilegt jólahlaðborð að hætti Jóns Kr. Jakobssonar
matreiðslumeistara, hlaðið kræsingum við allra hæfi, tilvalið fyrir hópa, saumaklúbba,
mig og þig að gera okkur glaðan dag.
Borðapantanir og nánari upplýsingar í símum 437 2313 eða 8617340