Skessuhorn - 26.04.2001, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI -17. tbl. 4. árg. 26. apríl 2001 Kr. 250 í lausasölu
^AÍslensk V 1UPH V SINGAIAKNI
t>i mw'
ró'JÖ Tölvuviðgerðir ffifermingargjafir r
[Hyrnutorgi - 430 2200 - verslun@islensk.is
Strandaði
á malar-
bing
Trillan Kló RE 3 3 strandaði í
Grundarfjarðarhöfn laust fyrir
hádegið á þriðjudag. Báturinn
steytti á malarpúða sem verið er
að byggja upp fyrir lengingu
bryggjunnar. Skipstjórinn mun
ekki hafa veitt athygli merking-
um vegna hafnarframkvæmd-
anna og keyrði því í malarbing-
inn sem maraði í hálfu kafi.
Þegar fjaraði út var báturinn
nánast á þurru en hann náðist á
flot um þrjúleytið þegar flæddi
að á nýjan leik.
Báturinn er nánast óskemmd-
ur eftir strandið, aðeins lítils-
háttar skemmdir á skrúfu.
GE
Fjöliðjan í
rekstrar-
erfiðleikum
Hringveginn burt?
Fjöliðjan á Akranesi hefur sent
bæjarráði bréf varðandi rekstrar-
erfiðleika vinnustaðarins og hef-
ur bæjarráð í framhaldi af því
beint þeirri eindregnu áskorun
til félagsmálaráðherra og þing-
manna Vesturlands að fjárhags-
vandi vinnustaðarins verði leyst-
ur. Fjöliðjan er eins og menn
vita verndaður vinnustaður fyrir
fatlaða á Akranesi auk þess sem
starfsemi er einnig í Borgar-
byggð. Gísli Gíslason, bæjar-
stjóri, segir að vandi staðarins sé
meðal annars til kominn vegna
þess hve sú stefna sem stjórnvöld
hafa varðandi starfsemina sé ó-
ljós. „Vernduðum vinnustöðum
er ætlað að afla ákveðinna sér-
tekna og annast 'iendurhæfingu,
en vegna skertrar starfsorku
þeirra sem þar vinna er vand-
meðfarið hvort lagt er kapp á
sértekjurnar eða endurhæfing-
una.“ Akraneskaupstaður kom
Fjöliðjunni á laggirnar ásamt
fleiri aðilum svo sem Sjálfs-
björgu og SSV og að sögn Gísla
hefur ætíð verið kapp lagt á að
starsemin hentaði sem best því
fólki sem þangað hefur þurft að
leita. „Það hefur í gegnum árin
gengið vel en því miður hefur
fjárhagshliðin alltaf verið erfið.
Þar hefur hins vegar verið unnið
frábært starf í gegnum tíðina
þótt stakkurinn hafi verið þröngt
skorinn.“
SÓK
Síðastliðið þriðjudagskvöld
var haldinn kynningarfundur á
Hótel Borgarnesi þar sem fjallað
var um skýrslu sem ber heitið
Þjóðvegur 1 um Borgarnes -
samanburður valkosta. Skýrslan
var unnin af Borgarnesnefnd
sem er samstarfsnefnd bæjar-
stjórnar Borgarbyggðar og
Vegagerðarinnar um athugun
helstu valkosta á framtíðarlegu
Þjóðvegar eitt um Borgarnes.
Fundurinn var mjög vel sóttur
og áhugi bæjarbúa á málefninu
auðsjáanlegur. Fjallað var um
helstu kosti og galla þess að hafa
veginn þar sem hann er annars
vegar og að flytja hann út úr
bænum og niður að sjó hins veg-
ar. Sjá allt um fundinn og það
helsta sem þar kom fram á blað-
síðu 5. SÓK
Afimelis-
blað
Stangaveiðifélag Akraness
er 60 ára þann 1. maí næst-
komandi. Af því tilefni hefur
félagið gefið út afmælisrit sem
fylgir Skessuhorni í dag.