Skessuhorn - 10.05.2001, Side 1
40-50
böm á
biðlista í
haust?
Á fundi skólanefndar Akraness
þann 3. maí síðastliðinn voru mál-
efhi leikskóla tekin fyrir. Sigrún
Gísladóttir, leikskólafulltrúi, sagði
frá því hvernig biðlistamál litu út í
dag en inntöku fyrir næsta skólaár
hefur ekki enn verið lokið. Reikna
má með að hægt verði að taka inn
33 börn sem fædd eru árið 1998 og
fyrr og 45 börn fædd '99. Vegna
þess hversu margir eru að flytja til
Akraness er ekki hægt að gefa ná-
kvæmar upplýsingar um stöðu
biðlista en reikna með með að um
40-50 börn fædd árið 1999 verði á
biðlista í haust.
Á fundinum var einnig fjallað
urn nýjan kjarasamning og hvernig
ný ákvæði í væntanlegri reglugerð
myndu gera það að verkum að
hægt yrði að fjölga börnum í leik-
skólunum. Skólanefnd lagði til að
fjöldi barna á Garðaseli yrði 73
börn, 72 á Teigaseli og 66 á Vallar-
seli en mældist til þess að ákvörð-
unin um fjölda barna yrði endur-
skoðuð um áramótin 2001-2002.
Einnig að leikskólastjórar leikskól-
anna þriggja myndu kanna hvernig
hægt væri að nýta þá möguleika
sem reglugerð nýrra kjarasamn-
inga mun segja til um. SOK
Tóhanncs Karl
Guðiónsson
Stjamaí
Hollandi
Jóhannes Karl Guðjónsson
knattspyrnumaður frá Akranesi
hefur slegið í gegn í hollensku
knattspyrnunni í vetur. Hollenskir
íþróttafréttamenn keppast við að
bera lof á þennan unga knatt-
spyrnumann og hann er jafnvel
talinn líklegur til að hreppa titil-
inn knattspyrnumaður ársins í
Hollandi.
Sjá viðtal við kappann í miðopnu.
Gott er að baða - btíkinn blessaða
Utvegsmannafélag Snæfellsness:
Standið vörð um
hefðbundna útgerð
Eins og fram kom í síðasta tölu-
blaði Skessuhorns eru skiptar
skoðanir meðal sjómanna á Snæ-
fellsnesi um lög um kvóta á auka-
tegundir á smábátum. Stjórn
útvegsmannafélags Snæfellsness
hefur nú skorað á alþingismenn
kjördæmisins að standa vörð um
hefðbundna útgerð á svæðinu og
tryggja að lög um kvótasetningu
þorskaflahámarksbáta í ýsu, ufsa
og steinbít taki gildi í haust eins
og gert er ráð fyrir. I ályktun frá
Utvegsmannafélagi Snæfellsness
segir m.a.: „Stjórnin mótmælir óá-
byrgum veiðum smábátaflotans
langt umfram ráðgjöf Hafrann-
sóknarstofnunar í ýsu og steinbít.
Þetta mun leiða af sér skerðingu
veiðiheimilda báta innan Utvegs-
mannafélags Snæfellsness í ofan-
greindum tegundum.“
Síðar í ályktuninni segir:
Þessar veiðar munu að óbreyttu
óhjákvæmilega leiða til þess að
veruleg skerðing verður á úthlut-
un kvóta í steinbít og ýsu á bátum
á Snæfellsnesi á næsta ári, þrátt
fyrir yfirlýsingar einstakra þing-
manna um annað.
Innan Utvegsmannafélagsins
eru 45 skip og á þeim starfa um
400 sjómenn.
Taki lögin ekki gildi verður um
verulega tekjuskerðingu sjómanna
og útgerðarmanna að ræða.
Að framansögðu er ljóst að á-
kvörðun ykkar mun hafa veruleg
áhrif á atvinnu- og mannlíf á Snæ-
fellsnesi.“
Vegamál á Vesturlandi til umræðu
Ahersla lögð á end-
urbyggingu í Norð-
urárdal sem fyrst
í síðustu viku hélt samgöngu-
nefnd Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi til Reykjavíkur á
fund þingmanna Vesturlands.
Umræður fundarins voru lífleg-
ar um ýmis verkefni sem
framundan eru í vegafram-
kvæmdum á Vesturlandi. Sam-
göngunefnd lagði meðal annars
áherslu á að endurbyggingu á
þjóðvegi 1 frá Gljúfurá að
Brekku í Norðurárdal verði
hraðað sem kostur er. Bæjarráð
Borgarbyggðar sendi frá sér á-
lyktun sama efnis þann 26. apríl
síðastliðinn en eins og komið
hefur fram í Skessuhorni hafa
umferðaróhöpp verið tíð á þess-
ari leið.
Á fundi sínum með þing-
mönnum lagði samgöngunefnd-
in einnig áherslu á að gerðar
yrðu úrbætur á leiðinni Borgar-
fjarðarbraut-Grafarkot á þeirn
forsendum að þar sé umferð
hröð, vegurinn slæmur og lög-
gæsla lítil. Einnig var rætt um að
breikka slitlag á vegum í dölum,
auka viðhald á malarvegum o.fl.
GE
16" Pizza með 2 áleggstegundum
og 2 lítrar kók kr. 1.200,-
/t/. /tV - 22 ú /aiufiir'i/uy /
05