Skessuhorn

Issue

Skessuhorn - 10.05.2001, Page 15

Skessuhorn - 10.05.2001, Page 15
jtttsjunu... FIMMTUDAGUR 10. MAI 2001 15 Það er spuming??? Ætlar þú í Eurovision teiti? Magnús Óskar Þórðarson, nemi - Nei, e'g hefengan áhuga á því. Hákon Magnús Magnússon, nemi í skóla lífsins - Nei. Guðmundur Helgi Vigfússon, nemi - Það er möguleiki. Helga Sæbjömsdóttír, nemi á Bifröst - Efe'g mögulega get. Er boðin en spumingin er hvort e'g kemst. Jón Pétursson, ellilíeyrisþegi - Nei, e'g befekki áhuga. Sandra Dögg Bjömsdóttir, nemi - Kannski. ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - Hjörleifur og Linda sigruöu Firmakeppni Hestamannafé- lagsins Dreyra var haldin þann 1. maí síðastliðinn í Æðarodda. Veð- ur var heldur leiðinlegt en það kom ekki í veg fyrir að 31 keppandi mætti til leiks. Auk þeirra kom fjöldi manns í kaffihlaðborð sem félagið stóð fyrir. Úrslit urðu þau að í karlaflokki sigraði Hjörleifur Jónsson á hesti sínum Berki. Ingibergur Jónsson varð í öðru sæti á Perlu og Ármann R. Ármannsson í því þriðja á Kol- finnu. Linda Reynisdóttir sigraði í kvennaflokki en hestur hennar heitir Ronja. Ragnheiður Helga- dóttir var í öðru sæti á Stimpli og Sigurveig Stefánsdóttir í þriðja á Þokka. Sigurður Ólafsson sigraði í flokki unglinga á aldrinum 16-20 ára á hestinum Seimi. Sigríður Helga Sigurðardóttir varð í öðru sæti á Lottu og Magnús Gylfason vermdi þriðja sætið á hestinum Þór. í flokki barna varð Fríður Krist- Fríður Kristjánsdóttir sigraði í flokki barna í Firmakeppni Dreyra þann 1. maí. jánsdóttir hlutskörpust á Þokka, Arna Snjólaug Birgisdóttir varð í öðru sæti á Sóleyju og Daníela Hafsteinsdóttir fékk bronsið á Toppi. Dreyri vill nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem studdu félagið sem og þeim sem komu í kaffið í Æðarodda. Friðrik spilari ársins Akranesmeistaramót Badmint- onfélags Akraness fór fram nú um helgina. Mótið er lokamót keppnis- tímabilsins hjá félaginu og er dag- urinn endaður með matarveislu og verðlaunaafhendingum. Keppend- ur voru alls 75 og áhorfendur fjöl- menntu í íþróttahúsið við Vestur- götu. Einliðaleikir voru leiknir í flestum flokkum og að auki í flokki trimmara. Friðrik Veigar Guðjóns- son varð Akranesmeistari í eldri flokki karla eftir að hafa sigrað Að- alstein Huldarsson, Stefán Jóns- son í U-17 flokki pilta eftir sigur á Hólmsteini Valdimarssyni, Karitas Ósk Ólafsdóttir í U-17 flokki stúlkna en þar varð Hanna María Guðbjartsdóttir í öðru sæti. Ólafur Björnsson sigraði Ragnar Gunn- arsson í flokki pilta yngri en 13 ára, Helga Aðalsteinsdóttir sigraði Ragnheiði Friðriksdóttur í U-13 flokkis stúlkna og Oddný Björg Hjálmarsdóttir hafði betur í viður- eign sinni við Sóleyju Bergsteins- dóttur í U-11 flokki stúlkna en pilta- flokkar U-11 og U-13 voru samein- aðir. Birgir Birgisson varð hlut- skarpastur í flokki trimmara eftir að hafa sigrað Sigurbjörn Hafsteins- son. Á mótinu var einnig leikið í tví- liðaleik þar sem iðkendur félagsins léku með foreldrum, systkinum eða vinum. Skipt var í tvo flokka A og B. ÍAflokki sigruðu þeir Kristján Aðalsteinsson og Aðalsteinn Huld- arsson þá Ragnar Gunnarsson og Jörgen Nilssen. í B flokki sigruðu Spilari ársins, Friðrik Guðjónsson, ásamt Aðalsteini Huldarssyni. þær Birgitta Rán Asgeirsdóttir og Kristín Birna Fossdal þá feðga Egil Guðlaugsson og Guðlaug Gunn- arsson. Á uppskeruhátíðina, mættu um 100 manns en þar voru verðlaun veitt fyrir afrek dagsins. Einnig voru veitt verðlaun fyrir mestu framfarir vetrarins. Þau fengu Lín- ey Harðardóttir og Ólafur Björns- son í yngri flokknum og þau Karit- as Ósk Olafsdóttir og Stefán Jóns- son af þeim sem eldri voru. Nafn- bótina spilari ársins hlaut ung- lingalandsliðsmaðurinn Friðrik Veigar Guðjónsson sem hefur átt frábært tímabil og tekið stórstígum framförum í vetur. Hann lék með unglingalandsliði íslands nú síðast í Póllandi í apríl og eins og áður sagði vann hann það afrek um helgina að sigra Aðalstein Huld- arsson í flokki eldri spilara en þar þurfti oddalotu til. Aðalsteinn hefur verið ósigrandi í þessum flokki til margra ára. SÓK Birgir Leifur fluttur til Svíþjóðar Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur frá Akranesi flutti þann 6. maí síðastliðinn til Örebro í Svíþjóð. Aðspurður sagðist Birg- ir Leifur flytja aðalega útaf því að þjálfarinn hans, Staffan Johans- son á heima í Svíþjóð. Hann sagði það vera ódýrara fyrir sig að ferðast og betra fyrir Elísa- betu kærustuna hans að komast [ skóla. Óráðið er hvað hann verður lengi úti en hann hélt að það yrði um 4-5 ár. Birgir Leifur sagðist vona að þetta myndi breyta miklu golflega séð því hann getur verið meira með þjálfanum og þarna eru betri að- stæður til að spila golf. Næsta mót er líklegast í Frakklandi en hann sér til hvort hann fer þang- að eftir því hvernig gengur að koma sér fyrir. HÞH Eyrarsveit -UTBOÐ- Sveitarstjórn Eyrarsveitar óskar eftir tilboðum í lóðarframkvæmdir við Grunnskólann í Grundarfírði. Verkið felst m.a. í hellulögn, malbikun, stoðvegg, lýsingu o.fl. og skal lokið 1. ágúst 2001. Afhending útboðsgagna fer fram á skrifstofu Eyrarsveitar, Grundargötu 30, frá föstudeginum 11. maí. Tilboð verða opnuð mánudaginn 21. maí kl. 14.00 á skrifstofu Eyrarsveitar. 1 Nánari upplýsingar fást hjá byggingafulltrúa. I 1 Byggingafulltrúinn í Grundarfirdi \___________________________________________________) Akraneskaupstadur Útbob Yfirborðsfrágangur gatna 2001" I iíS Tækni- og umhverfissvið Akranesbæjar óskar eftir tilboðum í frágang yfirborðs Ásabrautar, og hluta af yfirborði Ægisbrautar, Stillholts, Vallholts og Jörundarholts. Verkið felst m.a. í lagningu holræsa, uppsetningu og frágangi niðurfalla og brunna, hæðarsetningu gatna, jarðvegsskiptum, malbikun, stéttasteypu, kantsteypu og lagningu grasþaka. Verkinu skal lokið fyrir 20. ágúst 2001. Útboðsgögn verða seld á kr. 5.000 hjá Verkfræðiþjónustu Akraness, Kirkjubraut 56, og á skrifstofu Tækni - og umhverfissviðs, Dalbraut 8 frá föstudeginum 11. maí 2001. Opnun tilboða verður þriðjudaginn 22. maí, kl. 13.00 á skrifstofu Tœkni- og umhverfissviðs, Dalbraut 8, Akranesi. Sviðsstjóri tœkni- og umhverfissviðs

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.