Skessuhorn - 17.05.2001, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 17. MAI 2001
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Simi: 431 5040
Fox: 431 5041
Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Tíðindamenn ehf 431 5040
Ritstjóri og óbm: Gísli Einorsson 892 4098
Bloðomenn: Sigrún Kristjónsd., Akranesi 862 1310
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjartarson 864 3228
Prófarkalestur: Sigrún Ósk Kristjónsdóttir
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf
ritstjori@skessuhorn.is
sigrun@skessuhorn.is
hjortur@skessuhorn.is
uugl@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl.
14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss
tímanlega.
•Blaöiö ergefiö út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverö er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með
greiðslukorti. Verö í lausasölu er 250 kr.
431 5040
Meðal-
vegurinn
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Eftir margra ára þjark og þref og þras og japl og jamm og
fuður og nöldur, nagg og nuð um hvort vegurinn um Borgar-
nes eigi að liggja um Borgarnes eður ei hefur loksins verið á-
kveðið að vegurinn skuli liggja um Borgarnes þangað til ann-
að verður ákveðið. Það hefur reyndar þegar verið ákveðið að
annað verði ákveðið en bara ekki hvenær. Málið er með öðr-
um orðum afgreitt og hringvegurinn mun áfram liggja yfir
þröskulda og í gegnum forstofur Borgnesinga. Enn hefur
hinsvegar ekki verið ákveðið hvar gullni meðalvegurinn á að
liggja enda þarf hann vega helst að fara í umhverfismat.
„Leyfið ferðamönmmum að koma til mín og bannið þeim
það ekki,“ sagði Axlar-Björn eða einhver annar frumkvöðull í
ferðamannaþjónustu. Vissulega eru það orð að sönnu því eitt
af ffumskilyrðum fyrir því að ferðamannaþjónusta geti hugs-
anlega borið sig er einmitt ferðamenn. Það er því ósköp skilj-
anlegt að þeir sem byggja sína afkomu á ferðamannaþjónustu
reyni ekki að forðast ferðamennina heldur reyni frekar að
beina þeim í áttina til sín. Það þarf samt ekki að vera frumskil-
yrði að hringvegurinn liggi ofan í pylsupottinn.
Mér þykir til dæmis óþolandi að þurfa að þvælast í gegnum
Mosfellsbæ á leiðinni til Reykvíkurhrepps. Þá þjakar það mig
ekki síður að komast ekki með góðu móti á Selfoss öðruvísi en
að fara í gegnurn Reykjavík, eða þá Akureyri ef ég fer hinn
hringinn. „Neiðið ferðamennina til að koma til mín“; er
væntanlega slagorð ferðaþjónuStunnar á þéttbýhsstöðum við -
eða ofan á hringveginum.
Sumir hafa áttað sig á því að ekki er hægt að hafa hringveg-
inn alls staðar og reynt með góðu (sumir með ágætum árangri
meira að segja) að fá ferðamenn í hlaðið. A Snæfellsnesi eru
menn meðal annars að uppgötva að á flestum nýlegum bif-
reiðum a.m.k., er útbúnaður sem gerir ökumanni kleyft að
sveigja út af þjóðvegi eitt. Sennilega hefur það þó verið Hall-
björn Hjartarson kýrrekstraraðili á Skagaströnd sem fyrstur
hérlendra manna uppgötvaði þessa eiginleika ökutækja þótt
hann 'sé að mér vitandi ekki éiriu sinni með ökuréttindi sjálf-
ur. Hann og fleiri sem fylgt hafa í kjölfarið hafa freistað þess
að gefa ökumönnum tilefhi til að nota umræddan útbúnað bif-
reiðanna með því að veifa einhverjum freistingum framan í
ferðamanninn.
Fáir staðir á landinu eru svo aumir að þeir hafi ekki upp á
eitthvað að bjóða sem gæti freistað vegfarenda til að víkja
nokkra metra ffá hringveginum.
Það er í öllu falli fremur óheppilegt ef gestgjafinn er svo
leiðinlegur að hann þurfi að neyða gestina með valdi til að
heimsækja sig.
Gísli Einarsson, vegamálastjórh
Góð afkoma Snæfellsbæjar áríð 2000
Tæpum sextíu
milljónum betri
en áætlað var
Afkoma bæjarsjóðs Snæfellsbæj-
ar var 57 milljónum betri en fjár-
hagsáætlun gerði ráð fyrir sam-
kvæmt ársreikningi sveitarfélags-
ins. Helstu skýringar eru þær að
útsvarstekjur námu 24 milljónum
króna hærri upphæð en áætlað var
og einnig voru greiðslur úr jöfn-
unarsjóði um 11 milljónum króna
hærri en gert hafði verið ráð fyrir.
Tekjur af málaflokkum voru hins-
vegar 25 milljónum króna lægri
en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.
Þá voru ýmisr gjaldaliðir mun
lægri en miðað var við, m.a.
fræðslumál og framkvæmdir við
nýja íþróttahúsið. Gert var ráð
fyrir að verja um 164 milljónum í
byggingu og rekstur hússins á síð-
asta ári en niðurstaðan varð 144
milljónir.
Samkvæmt lykiltöluyfirliti í árs-
reikningi Snæfelfsbæjar hafa
skuldir sem hlutfall af skatttekjum
hækkað á milli ára. Gjöld á hvern
íbúa hafa hinsvegar lækkað úr 170
þúsund króna í 166 þúsund. Hlut-
fall reksturs málaflokka af
skatttekjum er komið niður í 76%
árið 2000 en var 80% árið áður.
Þess má geta að árið 1997 var
rekstur málaflokka 94% af
skatttekjum.
Kristinn Jónasson bæjarstjóri
Snœfellsbajar.
„Tekjur í bæjarfélaginu voru
meiri á árinu en við gerðum ráð
fyrir. Það áraði vel til sjávarins og
fólkið hér er einfaldlega duglegt,"
segir Kristinn Jónasson bæjar-
stjóri. „Þá hefur okkur tekist að
draga úr rekstrarútgjöldum og
hagræða í rekstri bæjarsjóðs.“
Kristinn kveðst ekki búast við að
afkoma þessa árs verði jafn góð og
ársins 2000 og vísar til mikilla
launahækkana opinberra starfs-
manna.
GE
Leitað að
laug að
Laugum
Skýrsla um fornleifaleit að
Laugum í Sælingsdal er nú til urn-
sagnar hjá Þjóðminjasafninu en
eins og komið hefur fram í Skessu-
horni gera heimamenn í Dalasýslu
sér vonir um að þar takist að finna
laug Guðrúnar Osvífursdóttur sem
kemur m.a. við sögu í Laxdælu. Á
síðasta ári voru gerðar jarðsegul-
mælingar á svæðinu þar sem talið
er að laugin sé undir skriðu. Sam-
kvæmt skýrslunni eru ákveðnar
vísbendingar komnar fram um
staðsetningu laugarinnar sem
þarfhast nánari skoðunar.
GE
Dattúr
brunastiga
Lögreglan á Akranesi var kölluð
út aðfaranótt laugardags síðustu
helgar klukkan að ganga fimm að
morgni. Ung kona hafði fallið úr
brunastiga sem liggur upp á þak
H-barsins og hlotið áverka á höfði.
Það var neyðarlínan sem hafði
samband við lögregluna og hafði
þá þegar verið kölluð út sjúkrabif-
reið. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu hafði konan farið upp
brunastigann og bankað á hurð
sem þar var. Hurðin var opnuð og
við það féll konan niður. Hún var
flutt á Sjúkrahúsið á Akranesi til
aðhlynningar.
Geit á beit í Melasveit!