Skessuhorn - 14.06.2001, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 14. JUNI 2001
>Penninn
í bína bápu
GOMUL GREIN A
TRAUSTUM GRUNNI
í dag, 2 3. maí, er Sjúkranuddarafélag íslands
20 ára. Sjúkranudd á sér þó miklu lengri sögu
og er meðal elstu meðferðarforma sem vitað er
með vissu að maðurinn hafi beitt í lækningar-
skyni. Kennsla í sjúkranuddi er talin hafa hafist
árið 1813 við hið konunglega Central Institut í
Stokkhólmi og þaðan barst sá vísindalegi
grunnur til lækna sem nútíma sjúkranudd bygg-
ir á. I Evrópu reis upp mikill fjöldi heilbrigðis-
og endurhæfmgarstofhana sem beittu sjúkra-
nuddi í ríkum mæli samhliða öðrum meðferð-
um. Flestar starfa þær samkvæmt sömu grund-
vallar hugmyndum enn þann dag í dag. Víða,
þar á meðal hér á landi, datt sjúkranuddið hins
vegar niður þegar nýjar áherslur komu fram í
meðferðarformi og upp úr sjúkranuddinu spratt
ný stétt sem við þekkjum sem sjúkraþjálfa. Hin
unga grein, sjúkraþjálfun, varð því víðast sam-
nefhari alls þess nýja sem var að gerast í endur-
hæfingu sjúkra á sama tíma og innlend þekking
á möguleikum sjúkranuddsins fjaraði út meðal
læknastéttarinnar. Þessi varð raunin á Islandi
og öðrum Norðurlöndum nema Finnlandi.
Arið 1962 var síðasta (sjúkra)nuddaranum gert
að segja sig úr Félagi íslenskra nuddkvenna og
nafni félagsins breytt í Félag íslenskra sjúkra-
þjálfara. Það er síðan ekki fýrr en með reglu-
gerð 1987 að sjúkranuddarar eru lögformlega
viðurkenndir sem sjálfstæð heilbrigðisstétt á Is-
landi. En í þeim löndum sem nýtt félag sjúkra-
þjálfara var stofnað samhliða sjúkranuddarafé-
lögunum þróuðust báðar þessar stéttir og nutu
stuðnings hvor af annarri jafnframt því að mun-
urinn á venjulegu hressingarnuddi og sjúkra-
nuddi skerptist til mikilla muna.
Sjúkranudd er ekki hægt að læra á Is-
landi og sú staðreynd gerir það m.a. að verkum
að ekki fjölgar hratt í stéttinni. Starfandi
sjúkranuddarar á Islandi í dag eru á milli 40 og
50 sem ekki þykir mikið. En nokkurs misskiln-
ings hefur gætt varðandi þessa stétt. I munni
fólks eru t.d. sjúkraþjálfar oft nefndir nuddarar,
sem er auðvitað rangnefni og eins hafa hinir
ýmsu nuddarar gefið sig út fyrir að vera sjúkra-
nuddarar. Kínverskt nudd og fleira í þeim dúr
er til að mynda ekki sjúkranudd. Fólk ætti að
vera meðvitað hvert það er að fara og hvernig
meðferð það er að sækjast effir. Er það að sækj-
ast eftir beinni meðferð vegna slyss, tognunar,
slits, giktar, svo eitthvað sé nefnt, eða víll það
slökunar- eða ilmolíunudd? Allir sjúkranuddar-
ar eiga að vera með skírteini uppi á vegg á stof-
um sínum, útgefnu af heilbrigðisráðuneytinu,
sem sýnir svart á hvítu hvaða menntun þeir hafa
að baki. Nokkuð hefur einnig verið um það að
fólk álíti, vegna þess að Tryggingastofnun ríkis-
ins hefur ekki niðurgreitt meðferð hjá sjúkra-
nuddara, að sú stétt sé þar með ekki löggild
heilbrigðisstétt. Það er auðvitað alrangt og má
benda á að fram undir hið síðasta hafa hvorki
iðjuþjálfar né sálfræðingar verið inni í niður-
greiðslukerfi TR þótt enginn efist um að þetta
séu löggildar heilbrigðisstéttir.
I þeim löndum þar sem sjúkraþjálfun
og sjúkranudd þróuðust hlið við hlið er áratuga
hefð fýrir samvinnu þessara stétta og sem betur
fer er slíkt einnig að aukast hér á landi, sjúk-
lingnum til hagsbóta. I mínu starfsumhverfi er
ágætis samstarf við sjúkraþjálfann í Borgarnesi
því þótt margt sé líkt með þessum stéttum þá er
áhersla menntunar ólík. Sjúkraþjálfarar eru jú
sérhæfðir í þjálfun en sjúkranuddarar í nuddi.
Báðar stéttir læra dálítið í sérsviði hinnar,
sjúkranuddarar taka kúrsa í þjálfun og æfingum
og sjúkraþjálfar í nuddi. Væri vel ef þessi sam-
vinna ykist enn, því þá væri enn frekar tryggt að
okkar sameiginlega markmið, að reyna að
hjálpa fólki til betri heilsu, næðist betur. En
slíkt getur verið flókið ef ein stétt er inni í TR
Birna G. Konráisdóttir
og hin ekki
og er þá
komið að
áralangri
baráttu
SNFÍ.
Aður en
frú Ingi-
björg
Pálmadótt-
ir fýrrver-
andi heil-
brigðisráð-
herra lét af
störfum
áttum ég og forverar mínir í starfi formanns
SNFÍ í viðræðum við hana um inngöngu
sjúkranuddara í TR. Ekkert hefur verið ákveð-
ið í þeim efnum en von okkar er sú að nýr ráð-
herra heilbrigðismála sýni þessu máli skilning
og heill sjúklinga þannig hafður að leiðarljósi.
Sparnaður yrði í heilbrigðiskerfmu m.a. vegna
lækkunar á lytfjakostnaði og fýrirbyggjandi að-
gerða svo og færri stunda frá vinnu.
Það er markmið Sjúkranuddarafélags Islands
að afla sjúkranuddi sömu virðingar og viður-
kenningar og það nýtur í öðrum löndum innan
vestrænna læknavísinda svo og að auka samstarf
við aðrar heilbrigðisstéttir. Nú þegar eru
sjúkranuddarar starfandi víða t.d. á sjúkrahús-
um, heilsugæslustöðvum, Heilsustofnun NLFI
í Hveragerði og á eigin stofum. Það er því von
okkar að þessi stétt haldi áfram að þróast við
hlið og í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir í
landinu, landsmönnum öllum til hagsbóta.
Bima G. Konráðsdóttir
Löggiltur sjúkranuddari-Borgum Borgarfirði
Formaður SNFI.
^Písnqhornið
nnmrinn mesta þykir hnoss
ívar Björnsson frá Steðja orti einhverntíma:
Svefns og drauma sœluhlýja
seiði mögnuð hrífurþá
sem í vöku verða að flýja
veruleika sínumfrá.
Þannig verður oft veruleikinn töluvert frá-
brugðinn vökudraumunum hverjir sem þeir nú
eru og svo sem hægt að láta sig dreyma hvað
sem er, nú eða bara njóta þess sem býðst eins og
Jóhann Eyjólfsson í Sveinatungu sagði:
Mörgum Víkurmeyjunum
nhetti e'g inn við tjöldin.
Gaman er að þeim greyjunum
í góðu veðri á kvöldin
Reykjavíkurdætur, Reykjavíkurdætur, er
stundum sungið enn í dag og þó vísa Jóhanns sé
orðin gömul er lengi hægt að ylja sér við góðar
minningar samanber vísu Sigurjóns Kristjáns-
sonar:
Þó að skapi skort og nauð
skeytin atvikanna
frá mér tekur enginn auð
endurminninganna.
Stefán Jónsson frá Þorgautsstöðum orti um
seinþroska konu og nefndi kvæðið „Hægfara
þróun“:
Með hlutleysi sjálfsþóttans horfð'ún á allt
- hennar hár var sem sólgullin bára -
en bros sitt lét engum hið fegursta falt
frá fimmtán til tuttugu ára.
Frá tuttugu ogþað upp í tuttugu og sex
á tískumii hafði hún gætur
og brosmildi hennar og blíðlyndi vex.
Hún brosti til hans er var sœtur.
Frá tuttugu og sex upp íþrjátíu ogþtjií,
það þýðir að æskunni lýkur,
við brosmildi sína hún bætti því nú
að brosa til hans sem var ríkur.
- En uppfrá þeim tíma ég hlerað það hef
þó hafi þeir valbrá og skalla
og blásnauðir séu með brennivínsnef
hún brosir framan í alla.
Þetta kvæði má raunar taka saman efnislega í
þessa gömlu vísu:
Meydómurinnn mesta þykir hnoss
meðan hann erþetta kringum tvítugt
en verður ofiast versti kvalakross
efkemst hann eitthvað teljandi yfir þrítugt.
Alltaf hafa þó verið til menn sem hafa sýnt
viðleitni til að hjálpa konum að losna við þessa
etfiðu lífsbyrði og í rímu af Stefáni Péturssyni
segir Stefán Stefánsson frá Móskógum:
Fyrst án efa ífjóshlóðum
fór að þefa af griðkonum.
Daglega hefur djarftækum
drottinn gefið verðugum.
I þeim málum verður víst hver að starfa sjálf-
stætt en afköstin geta verið mæld á ýmsan hátt.
Lítill og pervisinn maður sem var giftur stórri
og holdugri konu hafði orð á því að hann ætti
tíu böm og samstarfskona hans ein sá ástæðu til
að undrast yfir þessari staðreynd. Birgir Hart-
mannsson útskýrði leyndardóma lífsins fýrir
konunni á eftirfarandi hátt:
Mérfinnst ég verða aðfræðayður
fní, um náttúrtmnar lög.
Með litlum hamri laginn smiður
lemur barafleiri slög.
Samkvæmt eðlilegum breytileika tegundar-
innar Homo Sapiens sækja konur misstíft í
smíðar af þessu tagi og Katrín Eiríksdóttir frá
Dagverðargerði gerði grein fýrir sinni skoðun á
þennan hátt:
Það er í einu orði meint
og ort á grænni tóðu.
Ég afsala mér alveg hreint
ást ogfrúarstöðu.
Sú ágæta kona sem næsta vísa er ort um hef-
ur trúlega verið orðin svona tuttuguogníuog-
hálfs þegar ort var:
Eldast tekur Anna greyið,
enginn vill hana.
Margur hefur þymira þegið
- það má gylla hana.
Næsta vísa er greinilega undir áhrifum frá
þeirri fyrri hvort sem hún er nú svarvísa eða
útúrsnúningur:
Eldast tekur Oli greyið,
- enga sponsar hann. -
mörg hefur nú þynnra þegið
- það má bronsa hann.
Sem betur fer gerast þó ennþá ævintýr svona
aðra hvora nótt eins og skáldið sagði og ein-
hvemtíma mun eftirfarandi samtal hafa átt sér
stað milli ungs manns fýrir utan gluggann og
vinkonu hans fýrir innan hann:
Ertu sofimð elskan mín?
Ekkifast minn kæri!
A ég að koma inn til þín?
Efþú sérð þérfæri!
Svo ber þó að meðhöndla þessa hluti sem
fleiri skaðleg vopn að ekki hljótist slys af. Þór-
björg Eiríksdóttir frá Asgeirsstöðum sendi ein-
hverjum maklegum þessa kveðju:
Þökk og heiður þeim sem ber.
Þannig hafafáir unnið.
I hjarta mínu ekkert er
efiir, sem nú getur brunnið.
Svo fýllsta jafnréttis sé gætt er rétt að taka
með vísu eftir Skarphéðinn Einarsson sem fell-
ur hér ágætlega inní:
Margur ástar leikur leik,
leik sem brást þó stundum.
Veður ástin reikul reyk,
raunirfást með sprundum.
Þegar ég var að setja saman þennan þátt var
að brjótast í hausnum á mér vísupartur sem ég
gat ómögulega munað fýrrihlutann við og spyr
því lesendur mína hvort þeir kannist við eftir-
farandi vísuhelming:
Það er eins og kaffilaus kanna
kvetieðlið í pipruðum svanna.
Endilega hafið samband ef eitthvað rifjast
upp og ekki treysta því að hinir geri það.
Með þökkfyrir lesturinn.
Dagbjartur Dagbjartsson
Refsstóðum 320 Reykholt
S 435 1367
yfieygarðshorníð
Nýr prestur í
sókninni
Séra Guðfinnur var nýútskrif-
aður úr prestaskólanum og við
sína fýrstu messu var hann svo
taugaveiklaður að hann kom
varla upp orði. Eftir messuna
spurði hann meðhjálpara sinn
hvað honum hefði fundist um
guðsþjónustuna. „Þetta var allt
í lagi,“ svaraði meðhjálparinn.
„En það gæti hjálpað þér að
setja smá vodka eða ginslettu út
í vatnsglasið þitt. Gamli prest-
urinn gerði það alltaf til þess að
verða afslappaður.11
Guðfinnur ákvað að fara að
ráðum meðhjálparans og setti
vodka í glasið sitt næsta sunnu-
dag. Það kjaftaði á honum hver
tuska og að lokinni messu
spurði hann meðhjálparann
borginmannlega hvernig sér
hefði gengið. Hjálparmaðurinn
veigraði sér við að svara og
sagði að þeir þyrftu að fá nokk-
ur atriði á hreint:
1. Boðorðin eru tíu, ekki tólf.
2. Postulamir eru tólf ekki tíu.
3. Davíð vóg Golíat, en buffaði
hann ekki.
4. Við minnumst ekki á Jesú
Krist sem Jonna heitinn Ká.
5”. Næsta sunnudag verður haldin
karamellukökukeppni hjá Sankti
Péturskirkju. Ekki Péturs kajfi
kýling hjá Sankti Karamellu-
kirkjli.
6. Faðirinn, sonurinn og hinn
heilagi andi eru ekki nefndir kall-
inn, lilli og draugurinn.
Það sem greinir ný-
nema frá eldri nemum
Nýnemar: Skrá nákvæmar fjög-
urra lita glósur t tímum.
Eldri nemar: Vaka stundum út
allan kennslutímann.
Nýnemar: Eru aldrei i rúminu
fram að hádegi.
Eldri nemar: Fara ekkifram úr
rúminu fyrr en eftir hádegi.
Nýnemar: Lesa námsskrána til
þess að sjá hvaða tímum þeir geta
sleppt.
Eldri nemar: Lesa námsskránna
til þess að vita í hvað tíma þeir
verða að mæta.
Nýnemar: Kalla kennarann
„kennarV.
Eldri nemar: Kalla kennarann
„Kidda“.
Nýnemar: Leggja námsefnið á
minnið til þess að fá góða ein-
kimn.
Eldri nemar: Leggja venjur
kennarans á minnið til þess aðfá
góða einkunn.
Nýnemar: Mæta íprófsem hald-
ið er að morgni til, hreinir, hress-
ir og vel nærðir.
Eldri nemar: Mæta í morgun-
próf í íþróttabol, með húfit ogpoka
afnöggum.
Nýnemar: Standa í biðröð í
klukkutíma í upphafi annar til
þess að kaupa námsbækur.
Eldri nemar: Fara að íhuga það í
október hvort þeir ættu að kaupa
námsbækur.
Nýnemar: Eru stoltir aftíunum
sinúm t stærðfræði.
Eldri nemar: Eru stoltir af því
að hafa ekki fallið á miðannar-
prófi í margþættum stærðfræði-
greiningum.