Skessuhorn

Tölublað

Skessuhorn - 28.06.2001, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 28.06.2001, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 28. JUNI 2001 jntaíunu.^ j Hörður Helgason ráðinn skólameistari Búinn að vinna í FVA í hundrað ár Hörður Helgason, skólameistari FVA. Hörður Óskar Helgason var ráð- inn skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi síðastliðinn föstudag úr hópi tveggja umsækj- enda. Eftirmaður Harðar sem að- stoðarskólameistara hefur ekki ver- ið ráðinn, en starfið hefúr verið auglýst og umsóknarfrestur er til 10. júlí. Hörður hefur starfað við skólann meira og minna frá stofnun hans og segist aðspurður hafa unn- ið þar í hundrað ár. „Eg byrjaði að kenna hér við gagnfræðaskólann og var að kenna við grunnskóladeild- irnar þegar skólinn var stofnaður 1977. Árið 1980 var ég svo form- lega ráðinn framhaldsskólakennari og hef gegnt stöðu aðstoðarskóla- meistara frá 1. júní 1996. Að vísu gegndi ég stöðu skólameistara hér mitt fyrsta ár í starfi þar sem Þórir var í leyfi.“ Starfsheitin skólameistari og að- stoðarskólameistari hljóma ekki ó- svipað en Hörður segir að eðlilega sé töluverður munur á störfunum. „Skólameistari er sá sem á að stjórna batteríinu og er með á- byrgðina á sínum höndum. Ef illa fer er hann látinn axla ábyrgðina og hægt er að reka hann. En þetta er áhugavert og krefjandi starf. Margt spennandi er framundan en einnig erfiðleikar sem þarf að sigr- ast á.“ Af spennandi verkefnum á döfinni nefnir Hörður m.a. bygg- ingaframkvæmdir við skólann og fartölvuvæðingu hans. „Eg vona að byggingaframkvæmdum við skól- ann geti lokið innan fárra ára. Okkur vantar fleiri kennslustofur og næsti áfangi í því er að byggja við þá hlið skólans sem snýr að Vallholti. Það sem er að gerast hér í upplýsingatækni og fartölvuvæð- ingu er mjög spennandi. Við erum með stóran hóp af fólki sem hefur mikinn áhuga og mikla færni á því sviði.“ Skessuhorn hefur ítrekað fjallað um þá áætlun skólans að koma upp þráðlausu tölvuneti í skólanum. „Það verkefni hefur ekki verið klárað en þó eru víða komin loft- net. Nemendur geta því verið í þráðlausu tölvusambandi sums staðar í skólanum en áætlað er að ljúka uppsetningu þess fyrir haust- ið.“ Nemendum skólans var boðið upp á að kaupa eða leigja fartölvur á góðum kjörum en ekki er enn komið í ljós hversu margir nýta sér það. „Fólk er að svara bréfum sem það hefur fengið en það er ómögu- legt að segja til um hversu margir verða með tölvu, Við skyldum nemendur ekki til þess að eigá far- tölvu en við mælum með því. Ef nemendur sem eru í þessum tölvu- studdu áföngum eiga ekki tölvu verða þeir að hafa góðan aðgang að tölvum heima hjá sér eða nýta sér aðstöðuna í skólanum." Með nýjum stjórnanda koma nýj- ar hugmyndir og aðferðir. Hörður segist þó að hann ætli sér ekki að koma af stað byltingu. „Það verða engar verulegar breytingar í starf- semi skólans en auðvitað einhverjar. Fyrst og fremst mun skólinn þróast áfram í jákvæða átt og verða betri eins og hann hefur gert allt frá stofnun. Hann hefur breyst mikið á þeim tíma og er alltaf að verða stærri, betri og fjölbreyttari.“ Eins og Skagamenn vita er Hörður einnig formaður knatt- spyrnufélags IA og einhverjir höfðu áhyggjur af því að for- mennskan myndi sitja á hakanum nú þegar hann er orðinn skóla- meistari. „Nýja starfið hefur nátt- úrulega algjöran forgang. For- mennskan er aðallega fólgin í því að hafa yfirsýn yfir heildarrekstur- inn. Mesta starfið á knattspyrnu- vettvanginum er hjá stjórnum rekstrarfélaganna þriggja. Þetta er nú ekki eins mikil vinna og maður skyldi ætla miðað við hvað nafnið er stórt og rnikið." Fyrirrennari Harðar, Þórir O- lafsson, gegndi starfi skólameistara í sextán ár. Ætlar Hörður að end- ast svo lengi? „Nei, ég sé það nú ekki fýrir mér. Eg er skipaður til fimm ára og hugsa ekki lengra en það. Hins vegar er gott að vinna hér í skólanum, hér vinnur gott fólk og það er skólanum mikill styrkur." SÓK Stykkishólmur Ársreikningnr Stykkishólmsbæjar Félagslega íbúðakerfið þungur baggi Arsreikningur Stykkishólmsbæjar og undirfyrirtækja fyrir árið 2000 var samþykktur við síðari umræðu á bæjarstjómarfundi þann 21. júní sl. Helstu niðurstöður em þær að skatttekjur bæjarsjóðs voru 261 milljón króna en rekstrargjöld 206 milljónir króna eða 78,9 % af skatt- tekjum. Fjárfest var hjá bæjarsjóði fýrir 28 milljónir. Veltufjárhlutfall er 1,12 og vora nettóskuldir lækkaðar um 35 m.lcr. Eru þær nú 216 þúsund á íbúa eða svipaðar og skatttekjur. Helstu framkvæmdir voru þær að áfram var unnið að uppbyggingu Hitaveitu Stykkishólms auk þess sem vatnsveitan var sameinuð í Hita- og vatnsveitu Stykkishólms. Kemurfram í ársreikningnum að vegna mikillar aukningar á notkun á köldu vatni varð að ráðast í ffam- kvæmdir við nýja dælustöð á að- veituæð vatnsveitunnar. Aðalffam- kvæmdakostnaður hitaveitunnar var við frágang á yfirborði efrir lagn- ingu dreifikerfis og tengingar í hús- um. Heildarffamkvæmdakostnaður á veitunum varð um 61 m.kr. Skuld- ir hitaveitunnar eru um 375 m.kr. og eigið fé um 123 m.kr. I Stykkishólmi sem víða annars staðar er félagslega íbúðakerfið þungur baggi þar sem bæjarsjóður hefur lánað félagslegu íbúðunum 22 m.kr. auk þeirra ábyrgða sem á bæj- arsjóði hvíla. Þetta er staðan þrátt fýrir að mikil ásókn sé að komast í leigu í þessum íbúðum. Er skortur á íbúðarhúsnæði í Stykkishólmi talinn ein aðal hindrunin í frekari íbúa- fjölgun, en töluverður fjöldi íbúða hefur verið keyptur til sumardvalar. Ibúar vora 1228 þann 1. des. s.l. og hafði fjölgað um 1% á árinu. smh Sveitarstjóm Dalabyggðar fundar með Goðamönnum Eins og fram hefur komið í Skessuhorni hafa áform Goða hf. um að leggja niður starfsemi sína í Búðaradal vakið hörð viðbrögð heimamanna. A fundi sveitarstjórn- ar Dalabyggðar í síðustu viku var málið til umfjöllunar og þar var m.a. samþykkt eftirfarandi bókun: „Sveitarstjórn Dalabyggðar átel- ur harðlega þau vinnubrögð sem stjórn Goða hf. hefur viðhaft við á- kvörðun sína um að loka slárarhús- inu í Búðardal og kjötvinnslu. Það er mat sveitarstjórnar að forsvars- menn Goða hf. hafi ekki hirt um að líta til mikilvægi byggðarinnar og þeirra möguleika sem hún býður uppá í framleiðslu á kjöti þegar á- kvörðunin var tekin. Sveitarstjórn hefur allt frá árinu 1988 tekið þátt í uppbyggingu slát- urhússins í Búðardal með það að markmiði að treysta innviði þess með hagsmuni byggðarinnar að leiðarljósi. Fyrst sem stór hluthafi í Afurðastöðinni í Búðardal hf. og síðan sem eignaraðili að Norðvest- urbandalaginu hf. í gegnum eignar- hlut sinn í Afurðastöðinni.“ Að sögn Einars Mathiesen sveit- arstjóra Dalabyggðar stóð til að sveitarstjórn Dalabyggðar og full- trúar Goða ætra fund í gær, mið- vikudag, þar sem Dalamenn ætluðu að fylgja eftir þeim tilmælum sem þeir hafa beint til forsvarsmanna Goða að ákvörðun um lokun í Búð- ardal verði endurskoðuð. GE Veiði á úthafskarfa góð Mikill kraftur færðist í úthafskarfaveiði á Reykjaneshrygg nýlega en veiðin fór rólega af stað eftir sjómannadaginn. I síðustu viku voru svo skip Haraldar Böðvarssonar hf. að vinna 40-50 tonn af karfa upp úr sjó á sólarhring. Áhöfn frystitogarans Helgu Maríu AK 16 hafði lokið við að fylla lestar skipsins á sunnudag og var því landað á mánudag. Höfrungur III AK 250 er með nokkuð stærri frystilest og verður afla hans því ekki landað fyrr en síðar. Aflaverðmæti veiðiferðar Helgu Maríu var yfir 50 milljónir króna. SÓK Handverksmenn vilja gallerí Hópur handverksfólks á Akranesi hefur sent bæjaryfirvöldum bréf þar sem farið er fram á styrk eða afnot af húsnæði gamla iðnskólans við Skólabraut þar sem Vátryggingafé- lag íslands var áður til húsa. Eins og komið hefur fram í Skessuhorni hefur verið skipuð nefnd sem er um þessar mundir að skoða hvort unnt sé að reka starf- semi fýrir ungt fólk í umræddu hús- næði og sá bæjarráð sér því ekki fært að vera við erindinu að svo stöddu. Ætlun handverksfólksins var að stofna nokkurs konar gallerí í hús- inu og vísuðu til nokkurra annarra sveitarfélaga sem hafa aðstoðað handverksfólk við að koma sér upp slíku húsnæði. Bæjaryfirvöld telja sig ekki hafa henragt húsnæði laust í augnablikinu en segja að ef ekkert verði úr þeirri hugmynd að gamli iðnskólinn verði nokkurs konar æskulýðsmiðstöð, þá sé hægt að skoða málið að nýju. SÓK Mótor- hjólaslys við Borgar- íjarðarbrú Alvarlegt mótorhjólasiys varð við Brúartorg í Borgarnesi um ellefuleytið að morgni síðastlið- ins sunnudags. Tvennt var á hjólinu, ökumaðurinn, fullorð- inn karlmaður og níu ára gamall drengur. Ökumaðurinn er mik- ið slasaður samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglunni í Borgar- nesi, með brotinn hálslið og tví- Iærbrotinn. Drengurinn slapp hinsvegar lítið meiddur. Slysið varð með þeim hætti að ökumaður mótorhjólsins, missti stjórn á hjólinu á móts við Shellstöðina. Hjólið lenti utan í vegriði og síðan á rörstólpa sem stóð innan við vegriðið. Við höggið köstuðust ökumaður og farþegi af hjólinu og svífa u.þ.b. með fýrrgreindum afleiðingum. GE Ennum nýttnafii Eyrarsveitar Eins og Skessuhorn greindi frá fýrir skemmstu stóð sveitarstjórn Eyrarsveitar fýrir könnun á við- horíúm íbúa á nokkrutn tillögum um sijórnsýsluheiti sveitarfélags- ins. Á bæjarráðsfundi þann 14. júní sl. spunnust nokkrar umræð- ur um niðurstöðu könnunarinnar en ljóst er þó að meirihlutinn kýs breytingu á stjórnsýsluheitinu. Frekari umræðu var vísað til sveitarstjórnar. smb

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.