Skessuhorn - 28.06.2001, Blaðsíða 4
a&tssunu.^
4
FIMMTUDAGUR 28.JUNI 2001
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040
Fax: 431 5041
Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Tíðindamenn ehf 431 5040
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 892 4098
Blaðamenn: Sigrún Kristjánsd., Akronesi 862 1310
Sigurður Harðars., Snæfellsn. 865 9589
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjartarson 864 3228
Prófarkalestur: Sigrún Osk Kristjánsdóttir
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir
Prentun: ísafoldarprentsmiðjo hf
ritstjori@skessuhorn.is
sigrun@skessuhorn.is
smh@skessuhorn.is
hjortur@skessuhorn.is
augl@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl.
14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss
tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eíntökum og selt til áskrifenda og i lausasölu.
Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
431 5040
Gamal-
dags
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Ég hef alla tíð legið undir ámæli á mínu heimili fyrir að
vera lengi að tileinka mér nýjungar. Fyrir vikið er ég
stimplaður gamaldags og í hæsta máta púkalegur. Það seg-
ir sig því sjálft að ég næ aldrei að tileinka mér það sem er í
tísku hverju sinni, hvort sem er í fatnaði, tónlist eða atferli
hverskonar. Loksins þegar ég tek við mér er umræddur
hlutur orðin yfirmáta “ómóðins”.
Þess vegna fór ég eins og venjulega í mína þjóðhátíðar-
regnkápu á 17. júní, stillti mér upp með pappafána í annari
hendi og uppblásna gasblöðru í hinni hendinn og kyrjaði
innra með mér hæhójibbíjei eftir forskrift Bjartmars á
Norðurreykjum og hlustaði andaktugur á boðskap fjall-
konunnar. Það er fyrst núna, mörgum dögum síðar, sem ég
geri mér grein fyrir að þarna var ég enn eina ferðina að
tapa af tískunni. A meðan ég stóð þarna eins og álfur út úr
hól voru ungmenni við allt annan hól, sennilega Arnarhól,
að þróa nýja aðferð til að fagna þjóðhátíðardeginum. Nú
þarf sumsé ekki lengur rándýra skemmtikrafa, gasblöðrur
og grillaðar pylsur til að hægt sé að halda daginn hátíðleg-
an. Það eina sem til þarf er einn útlendingur á hverja hund-
rað þjóðhátíðargesti. Athöfnin felst síðan í að elta útlend-
inginn og lumbra á honum, duglega, í tilefhi dagsins.
Ekki að einasta mun þetta vera holl og góð líkamsæfing
sem kemur að sumu leyti í staðinn fyrir dvergakast sem að
einhverjum ástæðum hefur aldrei náð fótfestur hér á landi
heldur hefur það einnig þann göfuga tilganga að vernda
hinn aríska kynstofn með þessu föla og fallega litarafti. Þeir
sem eru öruvísi á litinn og í laginu hafa með öðrum orðum
ekkert hér að gera, nema þá helst að láta berja sig á 17. júní.
Þá kemur aftur að því hvað ég er gamaldags. Ég er enn-
þá fastur í því ómóðins fari að sýna skuli náunganum nokk-
uð umburðarlyndi þótt hann standi manni sjálfúm langt að
baki á öllum sviðum. Það er nú einu sinni þannig að ég bý
yfir fádæma fríðleika hvar sem á mig er litið. Ég er fast að
því fullkominn í útliti og þótt Guð sé vissulega mistækur þá
á hann hrós skilið fyrir hvernig til tókst þegar hann skóp
mig í sínum tíma.
Þrátt fyrir útlitslega yfirburði mína er ég ekki haldinn
fordómum gagnvart öllu því óffíða fólki sem ég þarf að
umgangast á degi hverjum. Ég verð einfaldlega að sætta
mig við þá staðreynd að fæstir eru jafn falllegir og ég. Mér
er því nokkuð sama þótt þeir séu heldur ekki eins á litinn.
Ég held mig því við gamla pappafánann, gasblöðruna og
þjóðhátíðarpylsurnar og sætti mig við að vera bara gamal-
dags.
Gísli Einarsson, dkaflega jríður.
Sameining orkuíyrirtækia:
Kemur til greina að
skoða sameiningu
segir bæjarstjóri Borgarbyggðar
Eins og fram kemur annars staðar
í blaðinu í dag liggur fyrir að Orku-
fyrirtæki í eigu Akraneskaupstaðar
sameinuðust Orkuveitu Reykjavíkur
í árslok. Þar á meðal er 53% eignar-
hlutur í Hitaveitu Akraness og
Borgaríjarðar. Að öðru leyti er HAB
í eigu Borgarbyggðar. Skessuhorn
hafði samband við Stefán Kalmans-
son bæjarstjóra Akraness og innti
hann eftir því hvort fyrirhuguð sam-
eining kæmi til með að hafa áhrif á
samstarfið um HAB. „Eg veit ekki
urn það á þessari stundu. Þarna er
komjnn nýr meirihlutaeigandi að
HAB, sem er nýtt sameinað orku-
fyrirtæki, og ég veit ekki hvernig
þeir vilja stýra HAB í framtíðinni.
Það kemur væntanlega í ijós,“ segir
Stefán.
Aðspurður um hvort Borgar-
byggð hafx komið að sameiningar-
viðræðum orkuveima Reykjavíkur
og Akraness segir Stefán að það hafi
ekki verið. Hann útilokar hinsvegar
ekki að Borgarbyggð feti í fótspor
Stefdn Kalmansson bœjarstjóri Borgar-
byggðar
Akumesinga og leiti samstarfs við
Orkuveitu Reykjavíkur. „Við höfum
ekki rætt við Reykvíkinga en það er
ekki ólíklegt að menn sjái fyrir sér í
framtíðinni að eitthvað líkt mtmi
gerast hér. Það er mikii fjárbinding í
öllum framkvæmdum sem tengjast
orkumálum og í raun óeðlilegt að
sveitarfélög standi að slíku. Það er
ekki nema fyrir öfluga og fjársterka
aðila,“ segir Stefán. GE
Akraneskaupstaður gerir samning við
sýslumannsembættið
Lögregla fylgist með
vínveitingastöðum
Akraneskaupstaður hefur gert
samning við sýslumannsembættið
sem felur það m.a. í sér að lögregl-
an á Akranesi mun hafa eftirlit með
vínveitingastöðum bæjarins til þess
að gæta þess að áfengislög séu ekki
brotin. Effirlit verður með meðferð
áfengis, fjölda gesta á veitingastað,
lokunartíma og svo framvegis.
Lögregla mun svo veita áminning-
ar ef staðirnir verða uppvísir að
brotum og geta þær áininningar
leitt til þess að staðirnir verði svipt-
ir vínveitingaleyfi um ákveðinn
tíma verði brotin ítrekuð.
Auk þess veitir Bæjarráð Akra-
ness áminningar vegna brota sem
varða byggingaleyfi og -skilmála,
auk skilyrða eldvarnareftirlits
Slökkviliðs Akranessvæðis. í samn-
ingnum kemur fram að ef fram
komi ábendingar um ávirðingar
vínveitingaleyfishafa í rekstri skuli
þær kannaðar til hlítar áður en á-
minning er veitt og á sú könnun að
fela í sér mat á alvarleika ávirðinga.
Einnig fá leyfishafar tækifæri til
þess að korna að athugasemdum
áður en áminning er veitt.
SÓK
Gámaþjónustan með
nýja aðstöðu
Gámaþjónusta Akraness hélt
móttöku síðastliðinn föstudag í til-
efni opnunar nýrrar aðstöðu að
Höfðaseli þar sem fyrirtækið hefur
aðsetur sitt. Nýja byggingin er 420
fermetrar en Trésmiðjan Höldur
hófst handa við byggingu hennar í
febrúar síðastliðnuxu. Valdimar
Björnsson, eigandi gámaþjónust-
unnar, segir byggingu þessarar nýju
aðstöðu vera hluta af áframhald-
andi þróun á starfsemi fyrirtækis-
ins. „I húsinu komum við til með
að flokka sorp, umhlaða rusli og
tæta timbur svo eitthvað sé nefnt.
Nú em komin 12 ár síðan ég stofn-
aði fyrirtækið ásamt Selmu Guð-
mundsdóttur, konu minni. Þá vor-
um við bara lítið fyrirtæki eins og
við erum reyndar enn þótt við höf-
um stækkað." I upphafi var Gáma-
þjónusta Akraness aðeins með sex
gáma og þjónustaði þrjú fyrirtæki. f
dag njóta á bilinu 60-70 fyrirtæki
þjónustunnar og ílátin eru í kring-
um 380 talsins. SÓK
Fáir nemendur á
Snæfellsnesi
Skólanefnd Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi hefur á-
kveðið að boðið verði upp á nám
í Snæfellsbæ og Stykkishólmi
næsta skólaár líkt og verið hefur
undanfarin ár. Forsendur fyrir
því eru að nemendafjöldi nái til-
skyldu lágmaríd og að kennarar
fáist þar í vinnu. Algjört lágmark
nemenda er 15 í hvorri deild ;r* á j
síðasta ári vo. um 20 í Snæfei:"- ,
bæ og 30 í Stykkishólmi. Tilsk
inn fjöldi náðisr fyrir næsta skóla
ár en ekki mácri miklu muna því
aðeins 17-13 temendur skráðu
sig a hvoruín stað og er það mun
minn ■ stjúr; endur F\ A áttu
von a. ■ siðas ' ári gekk heldur
erfiðlega að kennara, sérstak-
lega til stærðfi æðikennsiu, en
samkvæmt heimildum Skessu-
homs er staðan á gæt hvað varðar
kemvararáðningar nú. SÓK
/
í liðinni viku var tveimur
ferðasalemum kontið fyrir á
Akranesi, annars vegar við
Langasand og hins vegar niðri á
Breið. Fjarlægð í salemi frá þess-
um stöðum hefúr í gegnum árin
verið töluverð og vora hin nýju
æduð útivistar- og ferðafólki sem
ætti leið um áðumefhd svæði.
Hins vegar vildi ekki betur til en
svo að salemin höfðu ekki verið á
sínum stað nema í um tólf
klukkustundir þegar það þeirra
sem staðsett var á Breiðinni var ó-
nothæft. Einhver hafði lagt leið
sína þangað og gengið örna sinna,
víðast hvar annars staðar en í sal-
ernið og makað hægðunum á
veggina. Þ\'í var aðkoman heldur
nöturleg þegar starfsmenn á-
haldahúss Akraneskaupstaðar
komu til að annast þau og svona
uppákomur verða seint taldar til
framdráttar bæjarfélaginu. At-
burðurinn hefur verið kærður og
þeir sem urðu varir við manna-
ferðir era beðnir um að láta lög-
regluna á Akranesi vita. SÓK
Víkmgur landar
fullfemu af loðnu
Skip Haraldar Böðvarssonar hf.
Víkingur AK 100 hélt til loðnu-
veiða í síðustu viku en veiðar
máttu hefjast á miðnætti 20. júní
og Víkingur var kominn á miðin
morgunínn eftir. Daginn áður
hafði skipið landað rúmum þús-
und tonnum af NI síld á Akranesi.
Menn vora ekki mjög bjartsýn-
ir á að veiðin færi vel af stað þar
sem bræla hafði verið fyrir aust-
norðaustan land þar sem skipið
hugðist byrja að leita og þar var
töluverður sjór.
Ahyggjurnar reyndust þó ó-
þarfar því Víkingur landaði full-
fermi síðastliðinn laugardag og
sumarloðnuveiðin byrjar því vel
líkt og undanfarin ár. Stærstan
hluta loðnunnar veiddi skipið 35
sjómílur aust-norðaustan af
Langanesi en auk þess fékk Vík-
ingur loðnu nokkuð vestar. Torf-
umar sem fúndist hafa fram að
þessu eru þó ekki mjög stórar og
er því mikilvægt að fleiri finnist
svo veiðar geti haldið áfram af
krafti. Ingunn AK 150 hélt á mið-
in í síðustu viku og var hún kom-
in á miðin aðfaranótt laugardags.