Skessuhorn

Eksemplar

Skessuhorn - 28.06.2001, Side 3

Skessuhorn - 28.06.2001, Side 3
^.iLðaunu.- FLMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2001 3 Asthildur Magnúsdóttir Fræðslu- og menningarsvið Asthildur for- stöðumaður Borgarbyggð hefur ráðið Ast- hildi Magnúsdóttur rekstrar- fræðing sem forstöðumann fræðslu- og menningarsviðs Borgarbyggðar frá 1. september n.k. Alls bárust tíu umsóknir um stöðuna. Ásthildur er fædd árið 1966. Flún lauk prófi í rekstrarfræðum ffá Viðskiptaháskólanum á Bif- röst í vor, kennaraprófi frá Kenn- araháskóla Islands árið 1993 og stúdentsprófi frá Menntaskólan- um á Akureyri árið 1986. Ást- hildur hefur starfað sem kennari í sex ár í Borgamesi og á Seltjam- arnesi og við veitingarekstur á ár- unum 1986 - 1991. Samhliða námi hefur Asthildur starfað við prófarkalestur, textagerð og þýð- ingar, auk þess að hafa umsjón með bóksölu nemenda á Bifröst. Staða forstöðumanns ffæðslu- og menningarsviðs er ný hjá sveitarfélaginu. Forstöðumaður hefur yfimmsjón með og ber á- byrgð á fræðslumálum, æsku- lýðs- og íþróttamálum og menn- ingarmálum hjá Borgarbyggð. Hann ber ábyrgð á rekstrarleg- um markmiðum og forsendum þeirra stofnana sem undir hann heyra og leitar leiða í samráði við einstaka yfirmenn þeirra um að ná ffam hagkvæmni og veita um leið góða þjónusm. Forstöðu- maður fer með verkefni sveitar- félagsins í menningarmálum, er tengiliður við menningarstofn- anir og hefur umsjón með ffam- kvæmd samstarfssamninga. Vilja ISDN samband 1 sumar er fyrirhugað að leggja ljósleiðara í Borgarfirði frá Hvanneyri að Reykholti. Ljós- leiðarinn verður lagður Hálsa- sveitarmegin, þ.e.a.s frá Hvann- eyri að Kljáfossi og þaðan upp Hálsasveit að Norðurreykjum og þar yfir hálsinn að Reykholti. íbúar í Hvítársíðu og Hálsa- sveit hafa sent samgönguráð- herra bréf og óskað eftir að hald- ið verði áffam með ljósleiðarann að Stóra - Asi. „Verði það gert er hægt að bjóða meirihluta íbúa í Hálsasveit og Hvítársíðu upp á ISDN samband ef sett verður upp lítil símstöð við Stóra-As,“ segir Bjarni Johansen ferðaþjón- ustubóndi í Fljótstungu. „Það er mikill áhugi hér á að fá þessa þjónustu sem fyrst enda skrifuðu flestir íbúanna á þessu svæði und- ir áskorun til samgönguráðherra. Þá óskuðum við einnig eftir úr- bótum á farsímasendum fyrir GSM og NMT kerfin hér uppfrá en sambandið er verulega glopp- ótt. Þar er um verulegt hags- munamál að ræða fyrir ferða- þjónustuna því ferðafólk virðist í æ ríkari mæli setja það fyrir sig að dvelja á stöðum þar sem ekki er GSM samband. GE BYGGDVGAVÖRUR Boraamesi ^Et 430 5544 Veriö velkomin ! Stærsta byggingavöruverslun á Vesturlandi

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.