Skessuhorn

Issue

Skessuhorn - 28.06.2001, Page 7

Skessuhorn - 28.06.2001, Page 7
onC$3unu>.. FIMMTUDAGUR 28. JUNI 2001 7 Surtshellir í Hallmundarhrauni er lengstur og þekktastur íslenskra hella. Arlega kemur mikill fjoldi manna að skoða hellinn og hrífst af. Það er vissulega mikilfengleg reynsla að ganga inn slíka náttúr- unnar kynjahöll og í áranna rás hefur mikill íjöldi fólks heimsótt hellinn. Því miður hefur ágangur ferðamanna og söfnunarárátta valdið því að stórfenglegustu nátt- urufyrirbæri hans, dropasteinarnir, eru að mestu á bak og burt. Þannig er því miður farið með alla þekkta hella á Islandi, utan þá sem hellaáhugamenn hafa fundið og haldið leyndum. En neðar í Hallmundarhrauni, u.þ.b. 2 km suðaustan Fljótstungu í Hvítársíðu er mikill hellir, Víðgelmir. Hann er mikil og stórfengleg smíð, 148.000 rúmmetrar og 1585 m langur. Eini inngangurinn í hann er nærri austurenda hans, en þar er læst hlið fyrir og aðgangur aðeins veittur með fylgd frá ferðaþjónust- unni í Fljótstungu. Síðan það fyr- irkomulag var tekið upp árið 1994 hefur tekist að varðveita töfra hell- isins en áður hafði þó stór hluti fagurra dropasteina verið brotinn og skemmdur, einkum í ysta hlut- anum. Þegar inn er komið þreng- ist hellirinn verulega, þannig að skríða verður um þrönga smugu. Þarna safnast vatn, sem þiðnar ekki alltaf á sumrin, þannig að hellirinn lokast stundum af ís. A árunum 1918-1930 og aftur 1972- 1991 komst enginn maður inn í hellinn sökum ísa. Innar er hellir- inn hár og víður og gólfið slétt á köflum. Hraundropasteinar myndast, þegar hraunið er að kólna og dropar niður úr hellis- lofdnu og víða er einnig að finna svokölluð hraunreipi á veggjum slíkra hraunhella. Þarna eru líka víða mikilfenglegar íssúlur og aðr- ar ísmyndanir. Mannvistarleifar fundust í hell- inum árið 1993 og voru fluttar á Þjóðminjasafhið, sem hefur stað- fest, að þær séu að líkindum frá víkingaöld. Engar sögur eru til um búsetu í Víðgelmi svo lítið er vitað meira um það fólk sem þarna hef- ur hafst við. Þegar maður hefur troðið sér inn um þröngan hellis- munnann, skríðandi ofan á gler- hálu íslagi kemur maður inn í svo algert niðamyrkur að ekki sjást handa skil ef slökkt er á hinum bráðnauðsynlega ferðafélaga, vasa- ljósinu. Sá sem þetta hefur reynt getur vel ímyndað sér þrengingar fólksins á landnámsöld sem sífellt varð að gæta þess að halda eldi lif- andi. Utgangan gæti hafa verið býsna erfið í svarta myrkri. Ferð inn að enda hellisins tekur um 3-4 klst og mikilvægt er að vera vel klæddur í góðum, vatns- heldum skóm og með hanska eða vettlinga, en hjálmar og vasaljós eru innifalin í leiðsögninni hjá ferðaþjónustunni. Einnig er hægt að fara í klukkustundarlanga ferð þótt þá missi maður vissulega af „bestu bitunum“. Hellisfarar nútímans komast ekki hjá því að upplifa aðstæður fornmanna að einhverju leyti þeg- ar þeir feta í fótspor fyrstu íbúa landsins. Einhverju sinni, líklega árið 1011, þegar Grettir Asmundarson reið til þings hafði hann fylgdar- mann þann er Skeggi hét. Hugð- ust þeir gista í landi Fjótstungu, líklega í Víðgelmi. Þar deildu þeir um nestismal og greip Skeggi öxi og hjó til Grettis. En er Grettir sá þetta þreif hann vinstri hendi öxar- skaftið fyrir framan hendur Skeggja og setti þá sömu öxi í höf- uð honum svo að þegar stóð í heila. Féll húskarl þá dauður til jarðar. Var þetta fyrsta víg Grettis en ekki hið síðasta. Um atburð þennan kvað Grettir vísu: Hygg eg at hljóp til Skeggja Hamanröll meðfór rammri. Blóð var á gunnar Gríði gráðr, Jýr stundu áðan. Sú gein ofhaus honum harðmynnt og lítt sparði, var eg hjá viðreign þeira, vígtenn og klaufenni. I lauslegri þýðing á nútímamál myndi þetta útleggjast sem svo: „Skeggi er ekkert smá illa dauður, ég dissaði hann alveg í tætlur svo öxin mín er ekkert smá geðveikt blóðug maður.“ I Hallmundarhrauni, rétt hjá Víðgelmi er gjóta sem heitir Skeggjahola. Þar fundust árið 1923 mannsbein. Averki á haus- kúpu kemur vel heim við lýsinguna á vígi Skeggja. Eg hvet alla sem vilja kynnast náttúru landsins frá alveg nýju sjónarhorni til að veita sér þá á- nægju að skoða Víðgelmi, en bið menn þó að stilla mannvígum í hóf eftir því sem ffekast er unnt. Ræstíneastörf! Okkur hjá Þ.Þ. Hreingerningum vantarfólk í nokkur rœstingastörf. Bœði framtíðarstörf og afleysingar. Við leitum að einstaklingum sem búa yfir: • Vandvirkni • Samviskusemi og heiðarleika • Sjálfstæðum vinnubrögðum • Helst ekki undir 20 ára aldri Umsóknir og frekari upplýsingar hjá Dísu í síma 437 1722, Gunnlaugsgötu 6, Borgamesi Sorpurðun Vesturlands Sorpurðun Vesturlands hf. óskar eftir tilboðum í málun vélageymslu í Fíflholtum og gerð skilta. Útboðsgögn verða seld hjá skrifstofu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Bjamarbraut 8, 310 Borgamesi og kosta 1000 kr. Tilboð verða opnuð á sama stað mánudaginn 9. júlí 2001 kl. 14:00 • Sorpurðun Vesturlands hf ing um ■ ■ ■ ■■ ■■ ■■■ ■ ■■ ■■■■■■ :::: .■■■.■. Samkvæmt ákvæðum 24. gr. reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem aetur haft í för meö sér mengun, er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögur að starfsleyfi fyrir alifuglabú (kjúklingar), allt að 20.000 fuqlum, að Svartagili, Borgarbyggð. Starfsleyfistillögurnar liggja frammi á skrifstofu Borgarbyggðar, frá 28. júní til 27. júlí 2001. Athugasemdum skal skila á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands að Borgarbraut 13, 310 Borgarnes í seinasta lagi 31. júlí 2001, og skulu þær vera skriflegar. Heilbrigðisnefnd Vesturlands Akraneskaupstabur Gjaldskrárhækkun íþróttamannvirkja Akraness 1. júlí 2001 Gjaldskrd í íþróttamannvirkin hækkar l.júlí sem hér segir: Abgangseyrir fyrir sundstaöi. Fullorðnir stakur miði.............................200 kr. Fullorðnir 10 miðar ..........................1.400kr. Fullorðnir 30 miðar...........................3.500kr. Börn sund stakur miði..............................100 kr. Börn 10 miðar......................................600 kr. Eldri borgarar utan Akraness ....................100 kr. Skólakort 30 miðar............................ 2.500 kr. Árskort í sund..................................15.000 kr. Aðgangseyrir fyrir þrek Jaðarsbakkalaug og Vesturgötu. Þrek stakur tími...................................250 kr. Þrek stakur tími með sundi og gufu.................300 kr. Þrek mánaðarkort með sundi og gufu...............3.500 kr. Árskort sund og þrek..............................20.000 kr. A þróttafulltrúi Akraness

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.