Skessuhorn - 11.10.2001, Page 8
FIMMTUDAGUR 11. OKTOBER 2001
Þessa dagana er verið að losa gömlu kirkjuna í Reykholti frá grunnmum áður en hún
verður hífð út fyrir kirkjugarðinn.
Gamla kirkjan í Reyk-
holtí endurbyggð
Endurbætur eru hafnar við
gömlu kirkjuna í Reykholti en hún
hefur ekki verið nýtt síðan nýja
kirkjan var vígð fýrir fjórum árum.
Lengi var óvissa um hvað yrði um
gamla Guðshúsið og m.a. var rætt
um að flytja það burt eða rífa. I vor
samþykkti hinsvegar aðalsafnaðar-
íúndur Reykholtssóknar að taka til-
boði Þjóðminjasafns Islands um að
gamla kirkjuhúsið yrði tekið í húsa-
safn Þjóðminjasafnsins. Heíúr safii-
ið veg og vanda af endurgerð,
vörslu og viðhaldi hússins en í
framtíðinni er ætlunin að þarna
verði nokkurs konar kirkjusýning,
þ.e. hægt verði að skoða kirkjuna í
upprunalegri mynd með fornum
kirkjumunum.
I íyrsta áfanga endurbyggingar-
innar verður grunnurinn endur-
hlaðinn. Til að lágmarka rask í
kirkjugarðinum verður húsið híft út
íyrir garðinn. Ætlunin er að búið
verði að hlaða nýjan grunn fýrir jól
og koma kirkjunni aftur á sinn stað.
Verkinu stjórnar Stefán Olafsson
kirkjusmiður en þess má geta að
hann byggði einnig hina nýju kirkju
í Reykholti og þessa dagana vinnur
hann að endurbótum á kirkjunni að
Borg. GE
Leiðindaveður var um allt Vesturland aðfaranótt síðastliðins þriðjudags ogfram eftir
degi, hvassviðri og rigning. Ekki er vitað um neinar skemmdir á mannvirkjitm vegna
veðurhamsius en flutningabifi'eið fauk útaf véginum skammt frá Ardal í Borgarfiarðar-
sveit. Engin slys urðu áfólki og bifreiðin ske?nmdist lítið en bifreiðinni var komið aftur á
veginn með aðstoð traktorsgröfu. Mynd: GE
Tony Fox og rannsóknarhópur hans dvöldu á Hvanneyrifyrir skemmstu við rannsóknir á blesgœsmn.
Blesgæsin rannsökuð á Hvanneyri
Vilja vita hvernig hún þyngist svo fljótt sem raun ber vitni
Tíu manna hópur líffræðinga, frá
Kanada, Danmörku, Englandi, ír-
landi og Skotlandi, var staddur á
Hvanneyri fyrir skemmstu við
rannsóknir á blesgæsum sem hafa
viðdvöl á Islandi að vori á leið sinni
yfir hafið til vesturstrandar' Græn-
lands og einnig á bakaleiðinni að
hausti. Rannsóknirnar á blesgæsun-
um, sem hófust árið 1979 eru at-
ferlis og vistfræðilegar og starfar
hópurinn meirihluta ársins á áning-
arstöðum gæsarinnar; á Grænlandi,
Islandi, Irlandi og NV-Skotlandi. A
Islandi eru um 3000 blesgæsir
veiddar árlega en vegna skotbanns á
Hvanneyri er ákjósanlegt að gera
þessar rannsóknir þar.
Tony Fox, enskur fuglafræðingur
sem búsettur er í Danmörku,
stjórnar rannsóknunum á Hvann-
eyri. Hann segir að á árunum frá
1950 til 1970 hafi rannsóknir sýnt
umtalsverða fækkun í stofninum.
En eftir að blesgæsin var friðuð á
Bretlandseyjum árið 1981 tók
stofninn við sér og töluverð fjölgun
varð. Á síðustu árum hefur stofninn
verið nokkuð stöðugur eða í kring-
um 35.000 fuglar. Tony segir enn
fremur að rannsóknirnar á Hvann-
eyri beinist að því að skoða hvernig
fuglinn byggi sig upp af orku fyrir
farflugið og hvaða jurtir hann nýti
til beitar. „Fullorðinn karlfugl þarf
svo mikið sem 400 g af fituforða
fyrir flug sitt frá Islandi til þess
staðar sem hann hefur vetursetu á
og því höfum við áhuga á að sjá
hvernig þeir fara að því að þyngja
sig svo snögglega á íslandi,“ segir
Tony. Þeir fanga fuglana með því
að skjóta neti yfir þá en síðan eru
þeir vigtaðir og mældir á alla kanta
áður en þeir eru merktir og þeim
loks sleppt.
Þetta er í þriðja skiptið sem vís-
indamennirnir dvelja á Hvanneyri
en í hin skiptin hafa þeir verið að
vori við rannsóknirnar. Fjöldi
gæsanna er kannaður, hvenær þær
koma og fara og hvar einstakar fjöl-
skyldur halda sig á túnunum. Þá
eru rannsóknirnar einnig beitar-
fræðilegs eðlis en munur er á fæðu-
valinu á vorin og haustin.
Á árunum frá 1997-1999 voru
gervihnattasendar settir á tuttugu
gæsir sem gerði vísindamönnunum
kleift að fylgjast nákvæmlega með
öllum ferðum þeirra. Tony segir að
ýmislegt bendi til þess að stofninn
sé að minnka aftur. Hann segir á-
stæðurnar ekki ljósar en nefnir að á
Grænlandi mæti þær sterkum
Kanadastofni þessarar tegundar,
sem virðist hafa yfirráð þar. Mjög
sterk fjölskyldubönd einkenna bles-
gæsina. Gæsirnar eru yfirleitt
nokkrar saman í hópi en ólíkt öðr-
um gæsategundum má oft sjá ein-
hleypa afkomendur fylgja foreldr-
um sínum og yngri systkinum árum
saman.
smh
/ ffi&Jam', ár ffirifytoóuna- crg hœjmfffó
Pappír, ritföng og
skrifstofuvörur
Tölvur, tölvuviðgerðir
og -þjónusta
Prentarar og blekhylki
Geislaskrifarar og -diskar
Mottur, mýs og fleira
Heimilissímar, faxtæki,
GSM og almenn þjónusta
ZtárcMfrfó úrÝaV
af fftrffctrlw-
oy refcftrarvöruM'
Þjónustuver ÍUT
Hyrnutorgi Borgarnesi © 430 2222
r
. r-~
Borgarnesi
Sími 437 2313
Fihtudayur t£. ojft
Pj. 5fcu<jc[atratdur ffflar frá'
M z?.cc
taujaráajur t?. afct
sjO' mamO' htjðmrveftfn' UPTpA
?j7ftar frás jf. ZP.CC
ára' atdur^tojmarfa