Skessuhorn - 15.11.2001, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 15. NOVEMBER 2001
W W W. SKESSU HORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040
Fax: 431 5041
Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi:
Ritstjóri og óbm:
Bloðamenn:
Auglýsingar:
Prófarkalestur:
Umbrot:
Prentun:
Tíðindamenn ehf 431 5040
Gisli Einarsson 892 4098
Sigrún Kristjónsd., Akronesi 862 1310
Sigurður Mór, Snæfellsn. 865 9589
Hjörtur J. Hjortorson 864 3228
Sigrún Ósk Kristjónsdóttir
Guðrún Björk Friðriksdótfir
Prentsmiðjo Morgunblaðsins
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
sigrun@skessuhorn.is
smh@skessuhorn.is
hjortur@skessuhorn.is
ougl@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út olla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 ó þriðjudögum.
Augiýsendum er bent ú að panta auglýsingaplóss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til úskrifendo oq í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. ú mónuði en krónur/50 sé greitt með greiðslukorti. Verð
í lausasölu er 250 kr.
431 5040
Hið veikara
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Þótt hvergi hafi verið um það fjallað í fjölmiðlum landsins
þá lá við að yrðu stórkostlegar hamfarir og hörmungar í síð-
ustu viku með tilheyrandi eignatjóni og manntjóni. Kann að
vera að fféttanef fjölmiðlamanna í heild sinni hafi verið stífl-
að að kvefþest sem herjar á landið og miðin allsvakalega eða
meintum mistilsbrandstilfellum. Astæðan fyrir því að mér er
kunnugt um málið er að atburður þessi átti sér stað við eld-
húsborðið á mínu einkaheimili. Mun þetta hafa verið um
klukkan 07.45 að staðartíma föstudaginn 9. nóvember.
Þannig vildi til að yfir margréttuðum morgunverði varð
mér litrið í virt dagblað, að vísu nokkurra daga gamalt en þó
í ágætu ásigkomulagi. Allt gekk áfallalaust fyrir sig, bæði
morgunverðurinn og lesturinn, allt þar til ég var kominn á
bls. 23. Þ.e.s. aftanffá séð þar sem ég hef þann sið við lestur
dagblaða að byrja alltaf á baksíðunni. Eg veit ekki hvernig á
því stendur enda hef ég ekki ennþá komið því í verk að leita
til sálfræðings vegna þessa máls.
Þetta kemur málinu að vísu ekki við en það var einmitt á
bls 23 sem áfallið dundi yfir. Þar var að finna ffétt sem olli
uppþoti við eldhúsborðið. Mér varð það mikið um að ég
sullaði úr heilum kaffibolla yfir hægra lærið á mér. Við það
rak ég upp óp all mikið sem varð þess valdandi að, konan
missti púðurdósina á gólfið með þeim afleiðingum að bað-
herbergið leit út eins og eftir mistilsbrands árás af svæsnasta
tagi, köttur nágrannans fékk aðkenningu af slagi og yngsti
sonurinn sullaði súrmjólkinni yfir síðasta tölublað Skessu-
homs. Vissulega má segja að við höfum sloppið með skrekk-
inn en ég ítreka að það hefði getað farið ver miðað við að-
stæður.
Fréttin sem olli þessu uppnámi lét að vísu ekki mikið yfir
sér í fyrstu en þegar að var gáð boðaði hún endalok mann-
kyns í núverandi mynd. Þar var upplýst að karlmenn væm í
útrýmingarhættu og að ekki myndi líða á löngu þar til þeir
fetuðu í fótspor geirfuglsins.
Haft var fyrir satt að viðvarandi heilsufar karlmanna al-
mennt yrði þess valdandi áður en langt um liði að þeir þurk-
uðust út af jörðinni líkt og risaeðlur og mammútar. Hingað
til hafa konurnar verið taldar hið veikara kyn en nú er sum-
sé komið upp úr dúrnum að karlamir em fárveikara kynið.
Ofan á allt annað var klykkt út með því í fréttinni að þetta
gerði svosem ekkert til þar sem gervifrjóvganir og aðrar
tækninnýjungar gerðu það að verkum að karlmenn væm
hvort eð er að verða óþarfir.
Því kveð ég með trega í þetta sinn,og hugsanlega í síðasta
sinn því allar líkur em á að ég verði útdauður að viku liðinni.
Gtsli Einarsson, nær útdauður og með öllu óþarfur.
Málþing um hlutverk menntunar í
búsetuskilyrðum á landsbyggðmni
Fosshótel
hættir rekstri
Stykkishólms-
hótels
Stykkishólmsbær hefar sagt
upp samningi sínum við Foss-
hótelkeðjuna. Þetta kemur ffam í
Stykkishólms-Póstinum frá 1.
nóvember sl. Þar er vimað til
orða Ola Jóns Gunnarssonar,
bæjarstjóra, sem segir að bærinn
hafi sagt upp samningi sínum við
Fosshótel í ágúsdok sl. og gert
Fosshóteli það ljóst að uppsögn-
in gengi eftir nema Fosshótel
uppfylltí tilteknar kröfur. Þær
hafi ekki verið uppfylltar og því
hætti Fosshótel rekstri Stykkis-
hólmshótels 15. desember nk.
Óli Jón segir aukinheldur að
samskiptin við Fosshótel hafi í
gegnum tíðina verið erfið en gat
þess sérstaklega að með því væri
ekki verið að vísa til nýs starfs-
fólks. Ný hótelstýra og starfsfólk
hennar hafi gert góða hluti þann
stutta tíma sem þau hafi starfað
þar. Þá er haft eftír Óla Jóni að á-
fram standi til að reka hótelið en
ekki sé enn ljóst með hvaða hætti
það verði gert. smh
Umferðar-
ljósin óvirk
Það hefur ekki farið ffamhjá
ökumönnum á Akranesi að
undafarna daga hafa umferðar-
ljósin á mótum Stillholts og
Kirkjubrautar verið óvirk. Fyrir
rétt rúmri viku varð umferðar-
óhapp er ökumaður missti stjórn
á bíl sínum með þeim afleiðing-
um að hann hafhaði á kassa sem
hýsir stjórnbúnað umferðar-
ljósanna. Stjórnbúnaðurinn
gjöreyðilagðist og sagði Þor-
valdur Vestmann hjá tækni- og
umhverfissviði Akraness að enn
gætu liðið 2-3 vikur áður við-
gerð á umferðarljósunum lyki.
„Þetta er mjög sérhæfður bún-
aður sem skemmdist og væntan-
lega þurfum við að panta hluta
af honum erlendis ffá. Það eru
menn frá Reykjavíkurborg að
aðstoða okkur við viðgerðina og
þeir eru að fara yfir hvaða hluti
þeir eiga hjá sér í kassann“ Að
sögn Þorvaldar er kostnaðurinn
við þessa viðgerð mjög mikill og
hleypur líklega á nokkur hund-
ruðum þúsunda króna. HjfH
Þann 9. nóvember síðastliðinn
var haldið málþing þar sem um-
ræðuefnið var hlutverk menntunar
í búsetuskilyrðum á landsbyggð-
inni.
Margir kváðu sér hljóðs á mál-
þinginu og meðal þeirra var Björn
Bjarnason, menntamálaráðherra,
sem nefndi áform um að stofna
framhaldsskóla á norðanverðu
Snæfellsnesi. Einnig lýsti hann því
yfir að reiknilíkanið sem notað hef-
ur verið til að skipta fé milli frarn-
haldsskóla skammtaði framlög til
iðnmáms of naumt, en eins og fram
hefur komið í Skessuhomi hefúr
það m.a. komið niður á FVA.
Sigríður Finsen, oddviti sveitar-
stjórnar í Grundarfirði, gerði grein
fyrir hugmyndum manna á Snæ-
fellsnesi um stofnun sjálfstæðs
framhaldsskóla sem byði upp á
fjögurra ára nám og Magnús B.
Jónsson rektor á Hvanneyri talaði
um möguleika á að kennarar við
FVA taki þátt í rannsóknarvinnu
sem fram fer á vegum Landbúnað-
arháskólans. Loks má geta þess að
Kristján Sturluson, framkvæmda-
stjóri starfsmannasviðs Norðuráls,
fjallaði um viðræður sem farið hafa
fram milli Fjölbrautaskólans og
stóriðjuveranna á Grundartanga
um stofnun stóriðjubrautar við
skólann.
SÓK
Eldingavari sprakk í tengivirkinu á Vatnshömrum á mánudagskvöld ogfór rafmagn af
Borgarfirði og Snafellsnesi. Mynd: smh
Raírnagnstruflanir um allt Vesturland
Saltið gerir raforku-
notendum lífið leitt
Rafmagnstxuflanir og viðvarandi
rafmagnsleysi settu svip sinn á dag-
legt líf Vestlendinga um helgina og
fyrri part vikunnar.
Aðfararnótt laugardags fór raf-
magn af í Grundarfirði er línan frá
Stykkishólmi slitnaði í veðurofsan-
um sem geysaði hvað harðast á
Snæfellslesi. Rafmagnslaust var í
Grundarfirði til klukkan 9.00 á
laugardagsmorgun og einnig var
rafmagnslaust um tíma í Stykkis-
hólmi. Þá fór rafmagn af Lauga-
gerðislínu um kl. 5.00 á laugar-
dagsmorgun en þar náðist að koma
rafmagni aftur á alla bæi fyrir há-
degi. Ver gekk hinsvegar að finna
bilun á Staðarsveitarlínu í Breiðu-
vík vegna illviðris og var viðgerð
þar ekki lokið fyrr en um kl. 15.00.
A sunnudag og mánudag urðu
miklar rafmagnstruflanir í Borgar-
firði og víðar á Vesturlandi vegna
seltu á línum. Af þeim sökum var
rafmagnslaust um tíma í Saurbæ í
Dölum og Hvammsveit og aðfara-
nótt þriðjudags var rafmagnslaust í
um þrjár klst. I Borgarfirði og á
Snæfellsnesi þar sem eldingarvari í
tengivirkinu á Vatnshömrum
sprakk. Samkvæmt tilkynning frá
Rarik á Vesturlandi minnast starfs-
menn stofnunarinnar ekki jafnmik-
illar seltu á línum og fylgdi í kjölfar
óveðursins aðfaranótt s.l. laugar-
dags. Hinsvegar var lítið hægt að
gera til að losna við saltið og í sam-
tali við Skessuhorn á þriðjudag
sögðu rafveitumenn að ekki væri
um annað að ræða en að leggjast á
bæn og biðja um góða rigningu.
I nótt og í morgun varð þeim
síðan að ósk sinni því þá var úr-
koma umtalsverð á öllu Vesturlandi
og ætti að hafa nægt til að hreinsa
mesta saltið af línunum. GE