Skessuhorn - 30.10.2002, Side 15
SKgSSUIiöBRI
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002
f
p if?nuníný'
Nœr Sements-
verksmiðjan
að rétta úr
kútnum?
Spurt í
Sementsverksmiðjunni
Guðjón V. Guðjónsson
Alveg örugglega. Þ.e.a.s. ef
Valgerður Sverris lofar
Jens Ragnarsson
Já, tvímælalaust
Knútur Knútsson
Við vonum það besta
Bára Guðmundsdóttir
Ég hef trú á því
Hörður Hallgrímsson
Já, hún hlýtur að gera það
15
ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR -
Klaufaskapur í
Vesturbænum
KR - Snæfell: 80-72
Snæfellingar voru ekki langt
frá sigri gegn sterkum KR ingum
síðastliðið sunnudagskvöld
Hólmararnir byrjuðu mun betur
og leiddu með tíu stigum strax
eftir fyrsta leikhluta. Heimamenn
náðu þó að vinna upp muninn
um miðjan 2. leikhluta og upp úr
því var jafnræði með liðunum.
Snæfellingar fengu tækifæri til
að gera út um leikinn í síðasta
leikhlutanum þegar besti maður
KR inga, Darrel Flake þurfti að
fara af velli með 5 villur. Þetta
tækifæri nýttu Snæfellingar sér
ekki og misstu tökin á sóknar-
leiknum á síðustu mínútunum.
Lokatölur urðu 80 - 72 en Snæ-
fellingar geta samt
sem áður verið
vongóðir því liðið
hefur til að bera
þann baráttuanda
sem þarf og hefur
marga góða leik-
menn innan sinna
raða. Samt sem
áður þyrfti hópur-
inn að vera stærri
Tölurnar - Snæfell
Nr Nafn Mín HF STO STIG
5 Andrés M. Heiðarsson 9 0 0 1
7 Jón Ó. Jónsson 27 5 2 14
8 Helgi R: Guðmundsson 32 3 8 6
10 Sigurbjörn 1. Þórðarson 11 2 1 0
11 Clifton Bush 40 4 3 13
12 Lýður Vignisson 37 2 3 10
13 Daði H. Sigþórsson 9 1 0 0
14 Hlynur Bæringsson 35 17 1 26
Hlynur Bæringsson
og jafnari ef vel ætti að vera.
Þeir Lýður og Hlynur voru öfl-
ugastir sem fyrr og einnig átti
Helgi Guðmundsson góðan leik.
Rassskellur í Keflavík
Keflavík - Skallagrímur: 119-84
Skallagrímsmenn höfðu ekki
roð við sterkum Keflvíkingum
síðasliðið mánudagskvöld og er
ekki of djúpt í árini tekið að
segja að botnlið Borgnesinga
hafi verið gjörsamlega kjöldreg-
ið. í hálfleik var munurinn 34 stig
og Skallarnir sáu aldrei til sólar í
þessum leik þrátt fyrir að ein-
stakir leikmenn, ekki síst Pétur
Sigurðsson, hafi barist vel allan
tímann. Öðru gengdi hinsvegar
um Isaac Newton sem skoraði
ekki nema 10 stig og komst
Stig Skallagríms
Pétur Sigurðsson 30
Hafþór 1 Gunnarsson 17
Egill Egilsson 13
Isaac Hawkins 10
Pálmi Þ Sævarsson 7
Finnur Jónsson 4
Ari Gunnarsson 3
aldrei í gang. Spurning hvort
nýta hefði átt ferðina og skutla
honum á flugvöllinn miðað við
frammistöðu hans það sem af
er.
Frábær árangur
á Akureyri
Badmintonfélag Akraness keppti
á Unglingameistaramóti TBA á Ak-
ureyri helgina 19. og 20. Október
og má segja að sú ferð hafi verið
eintaklega vel heppnuð þar sem
stúlknaflokkur félagsins nánast ein-
okaði verðlaunasæti mótsins.
Harpa Jónsdóttir og Hólmsteinn
Þór Valdimarsson náðu þeim frá-
bæra árangri að vinna 3 gullverð-
laun í a flokki á mótinu. 20 kepp-
endur frá félaginu kepptu á mótinu
og eru verðlaunasæti félagsins sem
hér segir.
U-13 ÚRSLIT.
Einliðaleikur Hnokkar.
2. sæti. Hagnar Gunnarsson IA.
Einliðaleikur Tátur.
1. sæti. Harpa Jónsdóttir IA.
2. sæti. Aníta Sif Elídóttir IA.
Tvíliöaleikur Tátur.
1. sæti. Harpa Jónsdóttir IA.
Líf Lárusdóttir UMSB.
2. sæti. Aníta Sif Elídóttir IA.
Oddný Björg Hjálmarsdóttir IA.
Tvenndaleikur Hnokkar/Tátur.
1. sæti. Harpa Jónsdóttir IA.
Ragnar Gunnarsson IA.
Slök byrjun einu
sinni enn
Tindastóll - Skallagrímur: 95-86
Skallagrímsmenn sóttu ekki
gull í greipar Sauðkrækinga síð-
astliðinn fimmtudag. Enn einu
sinni voru Skallarnir seinir í gang
og en og aftur sýndu þeir að
þegar þeir komast f gang eru þeir
verðugir andstæðingar flestra lið-
anna í úrvalsdeildinni að minnsta
kosti. Stólarnir byrjuðu mun betur
og leiddu eftir fyrsta leikhluta 28 -
19. Sá munur hélst nánast ó-
breyttur út leikinn og lokatölur
urðu 95 - 86 fyrir heimamenn.
Það er virkilegt áhyggjuefni fyr-
ir Borgnesingana að erlendi leik-
maðurinn, Isaak
Hawkins ,er ekki að
skila meiru en með-
al íslenskur leikmað-
ur þrátt fyrir að hafa
alla burði til að geta
verið allsráðandi inni
í teignum. Þó var
eftirtekjan með
skásta móti í þetta
sinn því hann skor-
aði 19 stig en tók
ekki nema fjögur fráköst. Ljóst er
að ef hann fer ekki að hrökkva í
gang þurfa Skallarnir að fara enn
eina ferðina að skoða videospól-
ur með erlendum leikmönnum ef
þeir ætla sér að hafa möguleika á
að tolla uppi. Þess ber hinsvegar
að geta að liðið í heild á alla
möguleika með auknu sjálfs-
trausti og erlendum leikmanni
sem skilar sínu. Þeir Hafþór og
Pétur voru bestu mennirnir á
Króknum en þeir hafa báðir verið
að koma sterkir inn að undan-
förnu.
Tölurnar - Skallagrímur
Nr Nafn Mín HF STO STIG
4 Finnur Jónsson 23 4 3 3
5 Hafþór 1. Gunnarsson 28 3 5 28
6 Ari Gunnarsson 14 2 1 3
7 Pálmi Þ. Sævarsson 20 8 1 5
8 Egill Ö. Egilsson 13 1 0 6
9 Eriendur Þ. Ottesen 9 3 1 0
10 PéturM. Sigurðsson 25 3 3 19
14 Isaac Hawkins 37 14 4 17
15 Sigmar P. Egilsson 29 2 2 5
Erfiðir Grindvíkingar
Snæfell - Grindavík: 66-68
Snæfellingar fengu feyki-
sterkt lið Grindvíkinga í heim-
sókn í Hólminn síðastliðinn
fimmtudag. Leikurinn var jafn
lengst af en á loka-
sprettinum náðu
Grindvíkingar að
komast fram úr
heimamönnum,
þrátt fyrir að Snæ-
fellingar ættu á-
gætan dag, og
landa tólf stiga
sigri.
Clifton Bush var
að vanda sterkur
og einnig átti Hlynur Bærings
fínan leik og Ijóst að hann á eft-
ir að reynast Snæfellingum betri
en enginn í baráttunni í vetur.
Tölurnar - Snæfell
Nr Nafn Mín HF STO STIG
4 Baldur Þorleifsson 8 1 0 0
5 Andrés M. Heiðarsson 13 1 0 0
6 Atli R. Sigþórsson 2 1 0 0
7 Jón Ó. Jónsson 12 1 0 2
8 Helgi R: Guðmundsson 35 6 6 17
9 Hlynur E. Bæringsson 39 13 1 15
10 Sigurbjörn 1. Þórðarson 20 4 0 5
11 Clifton Bush 38 13 1 19
12 Lýður Vignisson 28 0 1 8
13 Daði H. Sigþórsson 5 0 0 0
V
f-
U-15 ÚRSLIT.
Einliðaleikur Meyjar.
1. sæti. Hanna María Guðbjartsd. IA.
2. sæti Líney Harðardóttir IA.
Einliðaleikur Meyjar aukaflokkur.
1. Hulda Einarsdóttir IA.
Tvíliðaleikur Meyja.
1. sæti. Líney Harðardóttir IA.
Marianne Sigurðardóttir IA.
2. sæti. Una Harðardóttir IA.
Hulda Einarsdóttir IA.
Tvenndarleikur.
1. sæti. Hanna María Guðbjarísd. IA.
Heiðar Karlsson UMSB.
U-17 ÚRSLIT.
Einliðaleikur Drengir.
1. sæti. Hólmsteinn Þór Valdimars.lA.
Einliðaleikur Telpur.
1. sæti. Karitas Ósk Ólafsdóttir IA.
2. sæti. Birgitta Rán Ásgeirsdóttir IA.
Tvíliðaleikur Telpur.
2. sæti. Birna Björk Sigurgeirsdóttir IA.
Birgitta Rán Ásgeirsdóttir IA.
Hólmsteinn Valdimarsson ásamt
Dipu Gosh þálfara félagsins.
Tvíliðaleikur Telpur aukaflokkur.
1. sæti. Karitas Ósk Óskarsdóttir IA.
Hanna María Guðbjarísd. IA.
Tvíliðaleikur Drengir.
1. sæti. Hólmsteinn Þór Valdimars.lA.
Ólafur Jónsson IBK.
Tvenndaleikur.
1. sæti. Hólmsteinn Þór Valdimars.lA.
Karitas Ósk Ólafsdóttir IA.
U-19 ÚRSLIT.
Lítið að gerast í leikmannamálum hjá ÍA
Meistaraflokkur ÍA í knattspyrnu
hefur æfingar á nýjan leik eftir stutt
frí á föstudaginn. Eins og undan-
farin ár hefst undirbúningur fyrir
komandi tímabil einum sjö mán-
uðum áður en fyrsti leikur íslands-
mótsins er flautaður á.
Á meðan flest önnur lið í úrvals-
deildinni hafa verið að fá til sín
leikmenn, einn eða fleiri, hefur
stjórn ÍA haldið að sér höndum.
Enn hefur enginn nýr leikmaður
skrifað undir hjá ÍA þrátt fyrir að
einhverjar þreifingar hafi átt sér
stað.
Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA,
sagði í samtali við Skessuhorn að
verið væri að vinna í málunum.
„Það er ennþá okkar markmið að
styrkja leikmannahópinn með 1-3
leikmönnum. Við erum enn að
skoða hvaða leikmenn á íslandi
eru á lausu en ef það gengur ekki
munum við leita að útlendingi, það
yrði þó ekki fyrr en á næsta ári.“ (s-
landsmeistarar KR hafa fengið til
sína fjóra leikmenn á undanförnum
dögum þrátt fyrir að vera með ó-
umdeilanlega breiðasta hópinn á
síðasta tímabili. „KR-ingar virðast
eiga nóg af peningum og við get-
um ekki og munum ekki keppa við
þá um leikmenn. (A á einhverja
peninga til leikmannakaupa, þó
þeir sjóðir séu langt frá því að vera
eins digrir og KR-inga.“
Töluverð umræða hefur verið í
gangi um að bræðurnir Stefán og
Þórður Þórðarsynir væru á leið í ÍA
en enn hefur ekkert gerst í þeim
málum. Ólafur staðfesti hinsvegar
við Skessuhorn að báðir hefðu
sýnt því áhuga að ganga til liðs við
Skagamenn.
HJH
Einliðaleikur Stútkur.
2. sæti. írena Jónsdóttir IA.
Staöan í
úrvalsdeildinni í
körfuknattleik
Félag L U T Stig
1. UMFG 4 4 0 382:288 8
2. ÍR 4 3 1 360:367 6
3. Keflavík 4 3 1 382:317 6
4. KR 4 3 1 347:322 6
5. Haukar 4 2 2 343:338 4
6. Tindastóll 4 2 2 336:346 4
7. Breiðablik 4 2 2 374:360 4
8. UMFN 4 2 2 317:332 4
9. Snæfell 4 1 3 287:307 2
10. Hamar 4 1 3 395:420 2
11. Valur 4 1 3 266:341 2
12. Skallagr. 4 0 4 314:365 0