Skessuhorn - 06.11.2002, Side 14
14
MIÐVIKUDAGUR 6. NOVEMBER 2002
^_________________
Trausta forystn tilframtíðar
Nú þegar líður að alþingiskosn-
ingum velja stjórnmálaflokkar fólk
á lista til að leiða baráttuna sem
framundan er. Það gerir sjálfstæð-
isfólk í Norðvesturkjördæmi laug-
ardaginn 9. nóvember nk. Menn
takast nú á við breytta mynd þegar
kjördæmin á landsbyggðinni hafa
stækkað til muna og ljóst, a.m.k. í
hinu nýja Norðvesturkjördæmi, að
ekki munu allir núverandi alþingis-
menn Sjálfstæðisflokksins geta
vænst þess að fá sæti á þingi eftir
næstu kosningar. Því miðað við
svipað fylgi og í síðustu kosningum
mun flokkurinn ekki fá nema þrjá
þingmenn en þeir eru nú fimm
sem sækjast eftir sæti á lista flokks-
ins. Forystusveit flokksins verður
valin í komandi prófkjöri og það
skiptir miklu máli að sjálfstæðisfólk
og stuðningsmenn flokksins taki
þátt í prófkjörinu og hafi þannig
áhrif á það hverjir verða forystu-
menn flokksins á næsta kjörtíma-
bili. Með góðri þátttöku í próf-
kjörinu gefur sjálfstæðisfólk tóninn
í baráttunni sem framundan er.
Það skiptir miklu fyrir ffambjóð-
endur flokksins að hljóta góðan
byr allt frá byrjun.
Allir núverandi þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins í Norðvesturkjör-
dæmi væru vel að því komnir að
sitja áfram á Alþingi. Þeir hafa
unnið vel og látdð að sér kveða í
mismunandi málum á þingi. Einn
þeirra, Sturla Böðvarsson, hefur
verið ráðherra samgöngu- og
ferðamála á yfirstandandi kjör-
tímabili. Sturla hefur m.a. beitt sér
mikið í málefnum ferðaþjónust-
unnar en sá málaflokkur skiptir
íbúa á landsbyggðinni miklu.
Landsbyggðin þarf á því að halda
að vel sé stutt við ferðaþjónustuna
og allar nýjar atvinnugreinar nú
þegar hinar hefðbundnu atvinnu-
greinar landbúnaður og sjávarút-
vegur eiga undir högg að sækja í
hinu nýja kjördæmi.
Eg hvet allt sjálfstæðisfólk í
Norðvesturkjördæmi til að íhuga
vel hvernig það ráðstafar atkvæði
sínu í væntanlegu prófkjöri og tel
mjög mikilvægt að ráðherra flokks-
ins í kjördæminu fái góða kosningu
og tækifæri til að leiða lista flokks-
ins í komandi kosningum.
Ef sjálfstæðisfólk stillir upp góð-
um lista og verður samstíga allt þar
til kjörstöðum verður lokað á kom-
andi vori er raunhæft að stefna að
því að flokkurinn fái fjóra menn
kjörna á Alþingi í Norðvesturkjör-
dæmi og verði því áfram leiðandi
afl í kjördæminu.
Ingi Trygguason
form. fulltráaráðs sjálfstæðisfl.
í Mýrasýslu.
'táuiíitte Wud
Um fátt er
meira rætt
þessa dagana en
pólitík og próf-
kjör ásamt öðr-
um aðferðum
við uppstillingu
á lista. Þing-
menn og aðrir
framboðsfíklar sem menn mundu
varla nafnið á heilsa nú hæstvirt-
um atkvæðum eins og aldavinum
og allar líkur virðast á að komandi
vetur sem er þó 25% af starfstíma
kjörtímabilsins glatist í einhverja
vitleysu (eða kannske bjargar
kosningaundirbúningurinn þing-
mönnum frá því að gera eitthvað
ennþá vitlausara). Þessi staða
kemur raunar reglulega upp á
fjögra ára fresti og við þessar að-
stæður er alltaf freistandi að rifja
upp sögur sem gætu komið keppi-
nautunum óþægilega. A tímum
gömlu sýslukjördæmanna gaus
eitt sinn upp sá kvittur um einn
frambjóðandann að hann væri
kvennamaður mikill og virtist
þetta draga nokkuð úr fylgi hans
um skeið og bar hann sig upp
undan þessu við séra Einar Frið-
geirsson sem gaf honum eftirfar-
andi heilræði:
Heldur réna fylgið fer,
flestir gegn þér rísa
en efþú skœrir undan þér
attirðu kosning vísa.
Ekki er mér kunnugt um hvort
maðurinn fylgdi þessu ágæta og
vel meinta heilræði en kosningu
mun hann hafa hlotið ágæta og
hugsi nú hver sitt. Hins vegar
finnst mér persónulega óþarfi af
kjósendum að geta ekki unnt
manninum þess að líta aðeins í
kringum sig. Nú eru mér ekki
ljósar allar skoðanir Séra Einars
en ekki virtist hann fyrirlíta allar
lífsins lystisemdir að minnsta
kosti ekki í orði samanber efdrfar-
andi:
Náttúran öll og eðli manns
er í kvartélinu.
Saurug hugsun syndugs manns
sveimar að sponsgatinu.
Burtséð frá viðhorfum manna til
lífsins lystisemda hefur það alltaf
verið kostur á hverjum þingmanni
frá sjónarhóli flokksforystunnar að
hann rekist vel í flokki sem kallað
er þó kjósendur hafi stundum haft
aðra skoðun á málum og jafnvel
kosið þvert á öll flokksbönd í slík-
um tilfellum. Sigurður Ivarsson
orti mikið í Spegilinn sáluga á
tímabili undir dulnefninu Z og tók
stundum óvægilega á pólitík þeirra
tíma. Grun hef ég um að til þess
dulnefnis sé að nokkru vísað í
næstu vísu:
Þeir sem eiga á þingi sess
og þurfa að éta.
Verða að beygjast eins og ess
en ekki Z.
Orðið heybrók hefur aldrei haft
sérstaklega jákvæða merkingu enda
frekar notað um kjarklitla menn
sem láta ekki mikið til sín taka.
Mig minnir að það hafi verið Ei-
ríkur Einarsson frá Hæli sem orti,
væntanlega um einhverja þing-
menn sem honum þótti ekki mikið
til koma:
Man ég svona brækur best
blásnar í rjáfri hanga.
Nú hafa þær á þingi sést
-þóst vera menn - og ganga!
Oll pólitík og kannske raunar
lífið allt er á einn eða annan hátt
eftirsókn eftir valdi en hinsvegar er
misjafnt hvernig menn nota sitt
vald. Sú útdauða stétt hreppsstjór-
ar hafði á sínum tíma ákveðin völd
og að sjálfsögðu einnig embættis-
skyldur og einhverntíma þegar
þeir hreppsstjórarnir Hákon Aðal-
steinsson og Snorri Jóhannesson í
Augastöðum voru að ræða starf sitt
og skyldur þess gaf Hákon kollega
sínum eftirfarandi heilræði:
Hirði ég ei um heiðursmet
Þú skalt beita visku og valdi,
vægðarlausan nota kraft.
Taka menn og hafa í haldi.
Hengja þá sem rífa kjaft!
Séra Hjálmar Jónsson sat eitt
sinn á nefndar eða þingflokksfundi
og virti fyrir sér flokksbróður sinn
Guðjón Guðmundsson sem sat
niðursokkinn í einhver skjöl
brúnaþungur og alvörugefinn á
svip. Eftir augnablik stakk hann
þessari vísu að Guðjóni:
Svipurinn er ristur rún.
Reynslunni afþó lærist
að undir þeirri yglibrún
öðlingshjarta bærist.
Séra Einar Friðgeirsson sem
áður var áminnst orti einhvemtíma
þegar hann var að reyna að nudda
áfiram einhverju þarfamáli, líklega í
sveitarstjórn:
Hirði ég ei um heiðursmet
né hæstu valda starfa,
heppnist mér um hænufet
að hrindafram tilþarfa.
Heilræðavísur séra Hallgríms
Péturssonar kunni hvert manns-
bam á Islandi fyrir ekki svo löngu
síðan en nú em breyttir tímar og
aðrar heilræðavísur í gangi á tölvu-
póstlistunum sem maður heyrðist
hafa yfir við annan í stjórnarráðs-
húsinu við Lækjartorg og birtist
hér útdráttur úr þeim kveðskap,
ríkisstjórninni til dýrðar en ung-
pólitíkusum vomm til framvegis
eftirbreytni:
Ungum erþað allra best
að óttast stjómarherra,
þeim mun velferð veitast mest
og virðing aldrei þverra
Hafðu hvorki háð né spott,
huga að ræðu minni,
hinum æðsta gerðu gott,
gleymdu æru þinni
Ráðherrum þínum þéna af dyggð
það má gæfu veita,
varastu þeim að veita styggð,
viljirðu gott bam heita
Hugsa um það helst ogfremst,
sem hægristjóm má næra;
aldrei sá til æru kemst
sem ekkert gott vill læra
Oft er sá í orðum nýtur
sem iðkar rétta boðun,
en þursinn heimskur þegja hlýtur
sem þrykkir ranga skoðun.
Svo mörg vom þau orð og nú
ætti enginn ungpólitíkus að vera í
vafa um hvernig hann á að lifa líf-
inu þó það hafi nú vafist fyrir
mörgum en Hjálmar Freysteinsson
orti í sumar:
Ég var alltaf klaufi við kvon-
bænir - svo borin er von
það stríð muni vinnast
en ég stefni að að kynnast
stofnfjáreiganda í SPRON.
Ekki fylgdi sögunni nafn um-
rædds stofnfjáreiganda en fyrir
stuttu bárast mér eftirfarandi vísur
um hana Osk og þætti mér vænt
um ef einhver gæti frætt mig um
höfund eða höfunda þeirra og
einnig hvort þær em alveg réttar
því ekki er þessi útgáfa með öllu
gallalaus:
Þess ég óska þig að ýá,
þér er ósk mín bundin,
þegar Osk égþig máfá
þá verður óskastundin.
Nú er Osk þér nær í nátt,
nú er óskin fundin,
nú þú Oskar njóta mátt
nú er óskastundin.
Með þökkfyrir lesturinn
Dagbjartur Dagbjartsson
Refsstöðum 320 Reykholt
S435 1367
Þriðjudaginn 12. nóvember kl. 20:00 verður Bingó
á Hótel Borgarnesi til styrktar barna- og
unglingastarfi körfuknattleiksdeildar Skallagríms
KB-Borgarnesi gefur fyrsta vinning, 14” sjónvarp
með fjarstýringu. Auk þess eru margir frábærir
vinningar
Hvað heitir ieikmaðurinn?
Dregið verður úr réttum svörum
I SOfyG
M
s o
í fangelsinu spurði einn
fanginn fangavörðinn: - Hvers
vegna era rimlar fyrir
gluggunum?
- Það er af öryggisástæðum.
- Ha! Hver væri svo vitlaus að
brjótast hingað inn?
Afi Jónasar dó og lét efrir sig
100 milljón krónur, sem Jónas
fékk næstum óskipt. I vikunni
þar á eftir samþykkti Magga
loks að giftast honum.
Eftir þriggja mánaða
hjónabandssælu tók Jónas eftir
því að nýja konan hans tók
minna og minna eftir honum.
Þau fáu skipti sem þau fóm
saman í rúmið, þá var Magga
alveg áhugalaus, eða í versta
falli kaliaði upp nöfri annarra
karla.
I hvert sinn sem þau fóra út
saman, þá hunsaði Magga hann
algerlega og daðraði linnulaust
við aðra karlmenn. Að lokum
var Jónas búinn að fá nóg og
ákvað að taka á málinu.
„Magga!“ sagði hann
ákveðinn. „Eg vil fa að vita af
hverju í ósköpunum þú giftist
mér. Var það bara vegna þess að
afi minn lét mér eftir þessa
peninga?"
„Láttu ekki eins og asni!“
sagði Magga. „Það hefði ekki
skipt mig neinu máli hver lét
þig hafa peningana.
Jónas fór að vinna hjá
loftferðaeftirlitinu og var
sendur upp á Norðurpól að taka
út sleða Jólasveinsins áður en
hann notaði hann nú um jólin.
Jónas mætir á Norðurpólinn
og skoðar hreindýrin og þau
em í lagi. Hann skoðar aktygin
og gefur þeim toppeinkunn.
Hann skoðar sleðann og finnur
ekkert að honum. Þá segir hann
,Jæja, Sveinki, nú skulum við
fara í reynsluflug, og ef ekkert
kemur uppá, þá skal ég gefa þér
flugfærnisskírteinið þetta árið."
Jólasveinninn spennir
hreindýrin fyrir sleðann og
taxar út á braut. Hann er um
það bil að fara að taka á loft
þegar hann sér að Jónas heldur
á risastórri haglabyssu.
„Heyrðu, hvað ertu að gera við
þessa haglabyssu?”
Jónas segir „Sko, Sveinki, ég
á eiginlega ekki að segja þér frá
þessu, en ég á að kanna
viðbrögð þín við vélarbilun í
flugtaki."
Það vom einu sinni þrír
menn inná klósetti, lögmaður,
viðskiptafræðingur og bóndi.
Fyrst gekk lögmaðurinn út úr
klefanum og þvoði sér rækilega
um hendumar og sagði:" Eg var
í HI og þar var okkur kennt að
vera snyrtileg".
Og síðan labbaði viðskipta-
ffæðingurinn út úr klefanum og
þvoði sér lítdð og þurrkaði lítið
og sagði:" ég fór í Bifröst, þar
var okkur kennt að vera
sparsöm".
En þá kom bóndinn út og
þvoði sér ekkert um hendurnar
og sagði:" Eg gekk í Bænda-
skólann á Hvanneyri og þar var
okkur kennt að pissa ekki á
puttana".
Mætum öll