Skessuhorn - 06.11.2002, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 6. NOVEMBER 2002
^Pk
’rnwjui
* *
Arsskýrsla KIA
6,5 milljóna króna hagnaður
Megum samt ekki soíha á verðinum segir Gunnar Sigurðsson
Aðalfundur Rnattspyrnufélags
IA var haldinn 31 .október síðastlið-
inn í salarkynnum félagsins að Jað-
arsbökkum. I ársskýrslu félagsins
kom ffam að hagnaður rekstrarfé-
lags mfl. og 2.flokks nam tæplega
6,4 milljónum fyrir tímabilið ffá
október 2001 til september 2002.
Arið á undan var hagnaðurinn 4,6
milljónir.
Það er ótrúlegt til þess að vita að
fyrir um 18 mánuðum eða svo var
Knattspymufélag IA svo gott sem
gjaldþrota með hátt í 70 milljóna
króna skuld á bakinu. Með sam-
stilltu átaki bæjarbúa og annara vel-
unnara félagsins hefur viðsnúning-
urinn í rekstrinum verið lyginni lík-
astur. Síðan hafist var handa við að
koma félaginu á réttan kjöl hafa all-
ar skuldir verið hreinsaðar upp og
gott betur en það, því hagnaður
tveggja síðustu tímabila nemur rétt
tæpum 12 milljónum.
Áfiramhaldandi aðhald
Fram kom í rekstrarreikningnum
á aðalfundinum að heildartekjur fé-
lagsins á tímbilinu námu tæpum 46
milljónum á móti 27 milljónum
árið 2001. Stærstur hluti þessara
tekna eru tekjur af mótum eða 21
milljón, þar af var innkoma af leikj-
um 7,4 milljónir sem er nokkurn
veginn það sama og árið á undan.
Einnig vega styrkir og framlög
þungt en tekjumar af þessum lið
námu rúmum 15 milljónum.
Stærsti útgjaldaliðurinn fyrir árið
2002 er kostnaður vegna iðkunar
og þátttöku í mótum, rúmar 27
milljónir. Þessi kostnaðarliður tek-
ur til ferðakostnaðar, kostnaðar
vegna UEFA keppninnar, móta-
gjöld og allur búnaður, s.s. boltar,
búningar o.s.frv. svo eitthvað sé
nefnt.
Eigið fé rekstrarfélags mfl. og
2.flokks karla 30.september er rétt
rúmar 11 milljónir.
Gunnar Sigurðsson, formaður
rekstrarfélagsins, sagði í samtali við
Skessuhorn að þó staðan væri góð
þá mætti ekki sofna á verðinum.
Aðhald í rekstri og Islandsmeistara-
titill í fyrra og bikarmeistaratitill í
hitteðfyrra og þa raf leiðandi þátt-
taka í Evrópukeppninni undanfarin
ár væri grunnurinn að þessum
hagnaði. Eins gaf rekstrarfélagið út
veglegt affnælisblað sl. vetur sem
fylgdi Morgunblaðinu í tilefni af
því að 50 ár vom liðin frá fyrsta Is-
landsmeistaratitli IA og fengust
miklar tekjur af þeirri útgáfu. Enn-
fremur sagði Gunnar að félagið
væri nú komið með þann höfuðstól
sem í raun væri nauðsynlegur til að
mæta þeim skakkaföllum sem á vegi
þess gæti orðið.
Hagnaður af
öllum deildum
Kvennanefnd og unglingarráð IA
lögðu einnig fram ársreikninga sína
á fúndinum og skiluðu bæði rekstr-
arfélögin hagnaði á tímabilinu.
Hagnaður kvennanefndar var
mun minni nú en í fyrra eða 211
þúsund samanborið við 2 milljónir í
fyrra. Rekstur kvennaknattspym-
unnar á Akranesi er þó í góðum far-
vegi. Skuldir nefndarinnar em litlar
sem engar og eigið fé er rúmar 2
milljónir.
Umfang barna- og unglinga-
knattspyrnunnar á Akranesi eykst
ffá ári til árs. Rekstrartekjur ung-
lingaráðs jukust um rúmar átta
milljónir á milli ára og er hagnað-
urinn í ár um 2,3 milljónir en var í
fyrra tæplega 600 þúsund.
Mestar tekjur unglingaráðs hljót-
ast af knattspyrnumótunum tveim-
ur sem haldin em ár hvert, Lottó-
Búnaðarbankamótið og Cokemót-
ið. Tekjurnar af þessum tveimur
mótum að frádregnum kostnaði
námu ríflega 4,3 milljónum. Eigið
fé unglingaráðs nemur nú 2,7 millj-
ónum. HJH
Ný þrektæki í Borgamesi
Bœjarstjóm og tómstundanefnd hita upp.
Vegna vaxandi áhuga á almenn-
ingsíþróttum hefur hluti tækjakosts
í þreksals íþróttamiðstöðvarinnar í
Borgarnesi verið endurnýjaður.
Keypt vom notuð tæki sem sérstak-
lega era með þarfir almennings í
huga. Um er að ræða 10 stöðva
þrekhring sem tekur á stærstu
vöðvahópum líkamans. Tækin era
tveggja ára og kostuðu tvær millj-
ónir króna en hefðu kostað ný um
fimm milljónir.
Kemur þetta sér vel fyrir fólk
sem stundar almenningsíþróttir á
svæðinu, en þar sem íþróttahúsið er
löngu orðið of lítið kemst almenn-
ingur lítið sem ekkert að í salnum
og því nauðsynlegt að byggja upp
góðan líkamsræktarsal með þarfir
almennings í huga.
A annað hundrað iðkendur em í
skipulögðum æfingum í þreksaln-
um hjá íþróttafræðingi og fer fjölg-
andi.
Mynd: Guðrún vala
Bæjarstjórn og tómstundanefnd
Borgarbyggðar var boðið í heim-
sókn til að skoða tækin og fóm í
þrekhring hjá Irisi Grönfeld
íþróttafræðingi sem sér um skipu-
lag og þjálfun almenningsíþrótta
við íþróttamiðstöðina í Borgarnesi.
Var ekki annað að sjá að menn
væra hrifhir af nýju tækjunum og
nokkrir strengdu þegar áramóta-
heitið.
u
Sturla ífyrsta sæti
Undanfarin 5 ár hef ég starfað
að sveitarstjómarmálum í Borgar-
byggð. Gott samstarf þingmanna
og sveitarstjómarmanna er gríðar-
lega mikilvægt. Síðustu 4 ár hefur
Sturla Böðvarsson
verið fyrsti þingmaður
Vesturlands. A þess-
um ámm hef ég sann-
færst um það að Sturla
er sá maður sem best
er til þess fallinn að
vera í fylkingarbrjósti
fyrir sjálfstæðismenn í
nýju kjördæmi. Hann
hefur góða framtíðar-
sýn á uppbyggingu í
þeim málaflokkum
sem heyra undir hans
ráðuneyti. Samgöngur, ferðaþjón-
usta, fjarskipti, allir þessir mála-
flokkar hafa eflst með Smrla sem
samgönguráðherra.
Sem samgönguráðherra hefur
Sturla unnið gríðarlega gott starf
þó gustað hafi um embættið.
Maður sem stendur af sér jafn
óvægnar pólitískar árásir og Sturla
hefúr gert í sínu starfi, er foringi.
Það þarf sterk bein til að þola góða
daga en að standa af sér gagnrýni
og sleggjudóma, eins og þá sem
samgönguráðherra stóð af sér á
síðasta ári, sýnir mikinn styrk.
Sturla ber ekki störf sín á torg.
Hógværð og heiðarleiki em, að ég
tel, hans aðalsmerki.
Framundan er kosningavetur
með tilheyrandi
pólitískum spenn-
ingi. Sjálfstæðis-
menn í Norðvestur
kjördæmi mtmu nú
á laugardaginn
greiða atkvæði í
prófkjöri. Eg vil
hvetja sjálfstæðis-
menn og þá sem
áhuga hafa á, að
taka virkan þátt í
prófkjörinu. Þeir
fimm þingmenn
sjálfstæðismanna sem bjóða sig
ffam til áframhaldandi starfa þekki
ég einungis að góðu. Breyting á
kjördæmaskipan leiðir til þess að
fækka mun í þingmannaliðinu að
öllu óbreyttu, því miður.
Setjum Sturla Böðvarsson í
fyrsta sæti á laugardaginn og
tryggjum okkur sterkan leiðtoga í
kjördæminu.
Helga Halldórsdóttir
Borgamesi
*
R • UPenninn
Guðjón á þing - okkar vegna
Næstkomandi laugardag fer
ffarn prófkjör sjálfstæðismanna í
Norðvesturkjördæmi. Alls hafa tíu
einstaklingar gefið kost á sér í próf-
kjörið, þar af fimm sitjandi þing-
menn. Vegna breyttrar kjördæma-
skipanar verður um-
talsverð fækkun
þingmanna frá því
sem áður var og því
augljós þörfin á að
velja þá hæfustu til
starfans.
Einn þeirra sem
gefið hafa kost á sér í
prófkjörið er Guð-
jón Guðmundsson,
alþingismaður af
Akranesi. Hann er
einn af okkar aldug-
legustu þingmönnum og því lykil-
atriði fyrir okkar nýja kjördæmi að
honum verði tryggt ömggt sæti í
prófkjörinu. Sjálfur er ég búinn að
þekkja Guðjón og starfa með hon-
um á pólitískum vettvangi í mörg ár
og þekki því vel til hans sem per-
sónu og veit hvers hann er megn-
ugur. Því get ég lofað ykkur kjós-
endur góðir, að vandfúndnir em
menn sem fylgja sínum málum eft-
ir af jafn mikilli festu, áræðni og
heilindum og Guðjón Guðmunds-
son.
Fremstur í flokki
Sjálfur starfa ég hjá Norðuráli og
þekki nokkuð vel til innanbúðamála
þess fyrirtælds. Þar er risið fyrirtæki
í mjög örri þróun sem hyggst færa
út kvíamar svo fljótt sem auðið er.
Ekki hefur það farið fram hjá nein-
um að fast er togast á um hvar eigi
næst að leggja í álversframkvæmdir
og er það að stærstu leyti í höndum
stjómvalda að kveða úr um hvar
verði fyrst hafist handa. Við sem
búum á suðvesturhominu, höfúm
fylgst með þeim jákvæðu breyting-
um sem hafa orðið á samfélaginu
vegna uppbyggingar á Grandar-
tangasvæðinu. Hagurinn sem því
felst í að styðja við bakið á áffam-
haldandi uppbyggingu á svæðinu er
augljós fyrir svæðið í kringum okk-
ur og jákvæðra áhrifa gætir í mun
stærri radíus frá Grandartanga-
svæðinu en flesta grunar. Til að
þoka þessum málum sem hraðast
fram veginn hefúr Guðjón Guð-
mundsson farið
ffemstur í flokki og
verið einn ötulasti
talsmaður þess að
Norðuráli verði
tryggð orka, og að
stækkun verksmiðj-
unnar verði að vera-
leika sem fyrst. Fyrir
því hefur hann fært
gild rök, jafnt í rituðu
máli á síðum dagblað-
anna sem og í ræðu-
stól Alþingis. Ef að
líkum lætur munu þau mál verða í
höfú áður en langt um líður.
Loksins hvalveiðar á ný
Ekki má heldur gleyma ffam-
göngu Guðjóns í svokölluðu hval-
veiðimáli. Þar hefur hann loksins,
eftir áralanga baráttu og með ótrú-
lega þolinmæði, fengið samþykkt
að nú geta íslendingar aftur hafið
hvalveiðar í vísindaskyni og von-
andi munu aftur fara að sjást
gufustrókar stíga upp ffá Hvalstöð-
inni í Hvalfirði. Eitt er víst að ef
ekki hefði komið til framlag Guð-
jóns Guðmundssonar í því máli,
væri það mál ekki á dagskrá á næstu
misserum. Það eru ekki þeir sem
gapa mest sem koma flestu í verk,
heldur oftar þeir sem vinna verk sín
af auðmýkt og hollustu við og fyrir
umbjóðendur sína.
Því skora ég á alla að mæta á
kjörstaði í prófkjöri Sjálfstæðis-
manna í Norðvesturkjördæmi laug-
ardaginn 9. nóvember og tryggja
Guðjóni Guðmundssyni öruggt
sæti til áffamhaldandi þingsetu.
Pétur Ottesen
starfsmaður Noróuráls
ogfyrrv.bæjarfulltr. á Akranesi