Skessuhorn


Skessuhorn - 02.05.2003, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 02.05.2003, Blaðsíða 28
28 FOSTUDAGUR 2. MAI 2003 jntMUtu/i.. Anna Kristín Gunnarsdóttir Menntun er málið SamfyUdngin hefur gert efl- ingu menntunar á öllum stigum að einu af aðal stefnumálum flokksins. Fjárfesting í menntun verði aukin verulega á næsta kjörtímabili komumst við til valda. Ffvers vegna? Vegna þess að gott framboð menntunar skapar dýrmætustu auðlindina; mannauðinn. Á honum byggj- urn við allt og möguleikann á að sækja fram, efla byggðarlögin og skapa okkur bjarta framtíð. Það eru einföld sannindi að 1 % hækkun menntunarstigs leiðir til 3% hagvaxtar. Með því er ekki aðeins átt við að fleiri stundi háskólanám, heldur að almenningur bæti við sig menntun, hvort sem um er að ræða grunnnám, framhaldsnám eða háskólanám. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir landsbyggðina að þeir sem hana byggja hafi gott tækifæri til að stunda nám. Bæði með því að eflt verði fjarnám með skipu- lögðum hætti en einnig með því að gera fólki kleift að mennta börnin sín án þess að steypa fjöl- skyldunum í skuldir. Þannig verður menntakerfið gert að raunverulegu jöfnunartæki til að allir íbúar landsins hafi sömu möguleika á að nýta hæfileika sína sem best. Vel menntaður einstaklingur er helsti auður hvers byggðarlags. íbúar sem kunna og geta nýtt þá mögu- leika sem fyrir hendi eru til sóknar fyrir byggðir landsins. Við viljum stórefla framhald- skólastigið og sporna gegn hinu gríðarlega brottfalli úr fram- haldsskólum með fjölgun brauta og raunhæfum tengingum við atvinnulífið. Við viljuin auka símenntun, endurmenntun og starfsmennt- un til hagsbóta fyrir einstakling- ana og fyrirtækin í landinu. Iðn- og tæknimenntun á í miklum vanda. Aðsókn að náminu hefur minnkað, verknámið að hluta færst af landsbyggðinni. Sveins- prófum hefur fækkað um 14% á síðustu árum. Þetta hefur eink- um orðið vegna fjársveltis ffam- haldsskólanna. Þessi fjárhags- vandi verknámsins á rætur sínar í reiknilíkani sem notað er til dreifingar á fjármagni til ffam- haldsskólanna. Líkanið skilar verknámi og minni framhalds- skólum ekki því sem nauðsyn- legt er til að hægt sé að halda úti námi með sómasamlegum hætti. Það er einfaldlega vit- -Pt laust gefið. Samfylkingin leggur mikla áherslu á að bæta fyrir þá vanrækslu sem ríkt hefur í þess- um málaflokki. Við viljum efla rannsóknar- tengt framhaldsnám á háskóla- stigi. Jafnframt verði fram- færslugrunnur Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna hækkaður, endurgreiðslur lána verði frá- dráttarbærar ffá skattd að hluta og ábyrgðarmannakerfi náms- lána verið lagt niður. Við viljum að leikskólavist fimm ára barna verði gjaldffjáls eins og í grunn- skólanum. Samfylkingin hefur sett fram metnaðarfullar tillög- ur í menntamálum. Oflug menntun skilar þjóðarbúinu hagsæld. Þess vegna vill Sam- fylkingin fjárfesta duglega í menntun fyrir fólkið í landinu. Því menntun er málið. Anna Kristín Gunnarsdóttir Skipar 2 sæti Samfylkingar- innar í Norðurlandi vestra e/l/U/l/l^^: Viltu binda enda á valtatíð núverandi ríkisstjómar? Eina raunhæfa leiðin til að fella ríkisstjórn Davíðs Odd- sonar er að Samfylkingin fái meirihluta í kosningunum í vor. Ef atkvæðum þeirra sem ekki vilja áffamhaldandi stjórn Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknar er dreift á fleiri flokka minnka líkurnar á að það tak- ist að fella núverandi ríkis- sjórn. Samfylkingin og Sjálf- stæðisflokkurinn eru stærstu flokkarnir og Samfylkingin ein hefur burði til að mynda almennilegt mótvægi við íhaldið. Samfylkinging býður raun- hæfa leið út úr fátæktargildru lágtekjufólks. Samfylkingin býður bestu leiðina til að binda enda á ó- réttlæti kvótakerfisins. Jafhréttismálin eru í góðum höndurn hjá Samfylkingunni. Samfylkingin hefur sett fram skýr áhersluatriði til að efla menntun þjóðarinnar. Samfylkingin er eini flokk- Itiga Sigurðardóttir urinn sem hefur þorað að gagnrýna valdamisbeitingu Sjálfstæðisflokksins. Þeir sem vilja sterka og rétt- láta ríkisstjórn kjósa Samfylk- inguna. Það er eina leiðin til að fella núverandi ríkisstjórn. Komum íhaldinu burt - kjósum Samfylkinguna!! Inga Sigurðardóttir Móttaka að Þórðargötu 24 Fjölþœtt innrömmunarþjónusta s.s málverk - útsaumur - Ijósmyndir - veggspjöld og fleira Nota aðeins úrvalsefni Sýrufrítt karton Glœrt og matt gler Innrömmun Steina Ben Þórðargötu 24 - Borgarnesi Símar 437 1465 & 862 1365 Netfang steiniben@simnet.is FYRIRTÆKI - HEIMILI SUMARHÚS Þetta fyrirtæki er vaktað ! Háþrýstiþvottur Tek að mér þrif á útihúsum, stéttum og geri hús klár fyrir málun ÆGIR ÁGÚSTSSON - 692 2802 NÆTURSIMI 690 3900,6903901,6903902 Herbalife - heilsunnar vegna www.fanneyxx.topdiet.is Fanney 660 1666 Brynja 660 1668 SKILTAGERÐ- HÚSAMÁLUN Bjarni Steinarsson málaramcistari Borgarnesi Skilfagerðin Borgarnesi ehf. Sími 437 1439 Fax 437 1590 Vesturgötu 14 • Akranesi Sími: 430 3660 • Farsími: 893 6975 Bréfsími: 430 3666 DÆLUBILAR * Einangrunargler dtt Öryggisgler * Speglar Fljót og góð þjónusta Sendum á staðinn É & " GLER 5 ÖLLIN Ægisbraut 30 • Akranesi • Sími 431 2028 • Fax 431 3828 Blóm Búsáhöld Gjafavara Leikföng TAXI BORGARNESI GSM: 892 7029 Sæmundur jónsson Leigubifreiðastjóri Getum við a 4 Fjölritunar- og útgáfuþjónustan ðstoðað þig? Borgarbraut 55 310 Borgarnes Símar: 437 2360 / 893 2361 Fax: 437 2361 Netfang: olgeirheIgi@islandia.is Dælubílaþjónusta Tek að mér að dæla upp úr brunnum, sandgildrum, fitugildrum og rotþróm, stíflulosun og fleira. Er staðsettur í Borgarnesi, en geri verðtilboð um land allt. Upplýsingar veitir Sigurður í síma: 862 4974 HAUKS ^ Sími 437 1125 Viltu léttast hrott og örugglego? WWW.DIET.IS Hringdu núno í símo 699 1060 - Morgrét

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.