Skessuhorn - 07.01.2004, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 7. JANUAR 2004
Bæði spennandi
og ögmndi
Nýstofnaður Fjölbrautaskóli Snæ-
fellinga hefur verið nokkuð í umræð-
unni að undanfornu. Búið er að ráða
skólastjóra, ákveða að byggja og allt
til reiðu íyrir næsta skólaár. Nýráð-
inn skólameistari Guðbjörg Aðal-
bergsdóttur frá Keflavík er gestur
skráargatsins að þessu sinni.
Nafn: Guðbjörg Aðalbergsdóttir
Fæðingadagur og ár: 07.06.57
Starf: Nýráðinn skólameistari
Fjölskylduhagir: A eina tvítuga dóttir.
TJvemig bíl áttu: Toyota Avensis
Uppáhalds.matur: Italskur ogþýskur matur.
Uppáhalds drykkur: Vatn.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Breskir ley?iilögregluþcettir ogfréttir.
Uppáhalds sjónvarpsmaður: Ami Snævarr, sá sem var rekinn af
Stöð 2.
Uppáhalds leikari innlendur: Hihnir Snær.
Uppáhalds leikari erlendur: Colin Firth.
Besta bíómyndin: Eg man ekki eftir neinni sérstakri þær eru svo
margar.
Uppáhalds tþróttamaður: Enginn sérstakur.
Uppáhalds íþróttafélag: No comment, það er í íhugun efsvo má
segja.
Uppáhalds stjómmálamaður: Engin sérstakur..
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Enginn sérstakm:
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Enginn sérstakm:
Uppáhalds rithöfiindur: Laxnes og Einar Már.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórninni: Eiginlega hvorugt.
Hvað meturðu mest ífari annarra: Heiðarleika.
Hvaðfer mest í taugarnar á þér ífari annarra: Undirferli.
Hver þinn helsti kostur: Það er vandi að svara þessu, Jákvæðni.
Hver erþinn helsti ókostur: Oþolinmæði.
Hvemig lýst þér á nýja staifið: Mjög vel, það er bæði spennandi og
ögi'andi.
Hvernig skóli verður Fjölbrautaskóli Snæfellinga: Góður skóli.
Skólinn byggir á nýiri hugmyndafræði þannig að aðaláherslan er að
geta veitt góða þjónustu og mikið námsframboð þó að skólinn sé lítill.
Finna nýjar leiðir í upplýsingatækni til að ná þessum markmiðum.
Hvernig lýst þér á Snæfellsnesið: Mjög vel. Eg hef ekki heyrt ann-
að en að á Snæfellsnesi séu góð samfélög.
Ertu ekkett smeyk um að það verði of fáir nemendur: Alls ekki það
hafa komið það margar vtsbendingar um annað ogþað eru allar lík-
ur til að stofnun framhaldsskóla á Snæfellsnesi hafi jákvæði áhrif á í-
búaþróun.
Eitthvað að lokum: Ég hlakka til að fara að stafa á Snæfellsnes-
inu.
Frá námskeiði í stafiigöngu í Snæfellsbæ
Námskeið í
Á laugardaginn þann 17.
janúar kl. 11:00-13:00 verður
grunnnámskeið í stafagöngu
haldið á Skallagrímsvelli í
Borgarnesi.
Námskeiðið felst í því að
beita göngustöfum rétt.
Iþróttakennarinn Ásdís Sigurð-
ardóttir, sem er einnig Master
stafagöngu
coach í greininni mun koma og
kenna fólki réttu tökin.
Nauðsynlegt er á skrá sig hjá
UMSB sem fyrst í síma 437
1411 eða 699 3315. Einnig er
hægt að senda skráningar á
netfangið umsb@mmedia.is
Námskeiðið kostar 1000 kr.
(jréttatilkynning)
Borgfirðingar hvetja til
lækkunar gangagjalds
Á fundi sveitastjórnar Borg-
arfjarðarsveitar þann 11. des-
ember sl. var fjallað um
veggjaldaskýrslu sem sam-
gönguráðuneytið sendi nýlega
frá sér og fjallað hefur verið um
í Skessuhorni. Sveitarstjórnar-
menn voru alls ekki ánægðir
með afstöðu samgönguráðu-
neytisins og var eftirfarandi
bókun gerð:
„Sveitarstjórn Borgarfjarðar-
sveitar þakkar fýrir þá vinnu
sem lögð hefur verið í að kanna
niðurfellingu/lækkun veggjalda
í Hvalfjarðargöngin. Ljóst er að
höfundar hafa lagt töluverða
vinnu í gerð hennar og má
glöggt greina í henni að þeim
er ljóst hversu letjandi þessi
gjaldtaka er fýrir aukna umferð
um Vesturland. Einmitt þess
vegna harmar sveitarstjórn þá
niðurstöðu að ekki sé ástæða
fyrir ríkisvaldið að koma að
málinu með beinum hætti.
Meðan ekki er til formleg
stefna stjórnvalda um einka-
framkvæmdir í gerð og rekstri
samgöngumannvirkja er ólíð-
andi að einn landshluti umfram
aðra líði fyrir það stefnuleysi.
Ollum landsmönnum er frjáls
för um samgöngumannvirki á
landinu nema um Hvalfjarðar-
göng. Hagrænt gildi þeirra er
þó augljóst og langt umfram
ýmsar aðrar framkvæmdir sem
þó er ekki verið að öfundast út
af. Sveitarstjórn Borgarfjarðar-
sveitar lýsir yfir miklum von-
brigðum með niðurstöðuna og
hvetur samgönguráðherra og
stjórnvöld til að endurskoða
hana hið fýrsta.“
Nú hafa fulltrúar allra stærstu
sveitarfélaganna í Borgarfjarð-
arhéraði mótmælt niðurstöðu
skýrslunnar og skorað á sam-
gönguráðherra að grípa til ein-
hverra aðgerða til lækkunar á
gangagjaldinu. Ummæli Sturlu
Böðvarssonar hafa ekki gefið
sérstakt tilefni til bjartsýni um
að ríkið taka þátt í að lækka
gangagaldið. Á því gæti hins
vegar verið breyting ef marka
má frétt á heimasíðu Spalar.
Samkvæmt þeirri frétt lét sam-
gönguráðherra þau orð falla í
utandagskrárumræðu á Alþingi
að ríkisstjórnin stefndi að því að
lækka 14% virðisaukaskatt á
veggjald í Hvalfjarðargöngum
og að til greina komi að ríkið
taki á sig hluta af tryggingum
ganganna. Þess konar aðgerðir
eru mjög í takt við þær ábend-
ingar sem sveitarstjórnarfull-
trúar á Akranesi, Borgarbyggð
og nú síðast Borgarfjarðarsveit
hafa hvatt til.
Undirbúningur hafinn að
byggingu leikskóla
Á fundi bæjarstjórnar
Stykkishólms þann 25.
nóvember sl. var kosin
þriggja manna undir-
búningsnefnd vegna
byggingar leikskóla. I
nefndina voru kosin El-
ísabet L. Björgvinsdótt-
ir, Magnús I. Bærings-
son og Berglind Axels-
dóttir.
Fyrsta verkefni nefnd-
arinnar er að finna
nýjum leikskóla stað en
meðal annars kemur til
greina að hann verði
staðsettur við Grunn-
skólann við Borgar- Leikskólinn í Stykkishólmi sem leystur verður afhólmi með nýrri byggingu.
jólaball Verkalýðfélags Akraness var haldið 21. desember. Jólaballið þótti vel heppnað í alla staði.