Skessuhorn - 07.01.2004, Síða 14
14
unHaunu...
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004
Kall og kelling á
þrettándagleði
Hjálmur Amason og Snœtyöm Þoiri Amason í hlutuerkum sínum sem séra
Sigvaldi og Hjálmar Tuddi.
Félagar í Orkunni, yngri
deild UMF Dagrenningar í
Lundarreykjadal, héldu sína ár-
legu þrettándaskemmtun síð-
astliðið sunnudagskvöld og var
hún að venju vel sótt. Þrett-
ándabrennan var á sínum stað
og sömuleiðis vegleg flugelda-
sýning í umsjón Björgunar-
sveitarinnar OK. Að því loknu
tók við skemmtidagskrá í um-
sjón krakkanna í Orkunni og
þar bar hæst að þessu sinni
frumsýning á leikritinu Kall og
kelling sem er nútíma útfærsla á
Maður og Kona eftir Jón
Thoroddsen sem leikdeild fé-
lagsins sýndi fyrir áramót.
Baðstofan í Hlíð. Heiðar Ami Baldursson, Snorri Bjamasm, Guðfmna Sif
Guðnadóttir, Harpa Bjamadóttir, Egill Þórsson, Otri Jónsson og Friðrik
Þórsson í hlutverkum sínum.
Jólin kvödd á Skaganum
Það er löng hefð fyrir því að
kveðja jólin með pornpi og
prakt á Akranesi og var engin
undantekning frá því þetta árið
enda veðrið eins og best var á
kosið. Alfakóngur og álfa-
drottning fóru fyrir blysför sem
hófst við Arnardal. Gengið var
fylktu liði uppá Jaðarsbakka þar
sem álfabrennan var tendruð að
viðstöddu fjölmenni. í för með
álfunum voru hjónaleysin Grýla
og Leppalúði og synir þeirra.
Félagsmiðstöðin Arnardalur
hafði umsjón með hátíðarhöld-
unt eins og venja er og tóku uni
90 krakkar þátt í herlegheitun-
um. Hápunktur hátíðarinnar
var svo glæsileg flugeldasýning í
umsjón félaga úr Kiwanis-
klúbbnum Þyrli.
Það vom þau Þór Birgisson og Rakel Pálsdóttir sem voru í hhitverki álfakóngs
og drottningar þetta árið.
Mikill jjöldi Skagamanna kvaddi jólin með álfadansi í kringum brennuna.
Hörkutól - The Movie
Skömmu fyrir jól var frum-
sýnd á Fimm fiskum í Stykkis-
hólmi, jólamyndin í ár, Hörku-
tól the Movie. Myndir er fram-
leidd af margmiðlunardeild
Hörkutólafélagsins sem er fé-
Iagsskapur karlkynskennara við
Grunnskóla Stykkishólms.
Eins og fram hefur komið í
Skessuhorni er það yfirlýst
markmið félagsins að heyja
með öllum tiltækum ráðum
varnarbaráttu fyrir karl-
mennskuna sem er á hröðu
undanhaldi í heiminum í dag.
Umrædd kvikmynd fjallar
um þá skelfingu sem vofir yfir
mannkyninu ef karlmennskan
verður endanlega að lúta í
lægra haldi. Því er lýst á
dramatískan og harmrænan
hátt hvernig færi ef Hörkutólin
Frá frumsýningu myndarinnar á Fimm fiskum.
sjálf yrðu kvenmennskunni að
bráð.
Hörkutól the Movie - var
sem fyrr segir frumsýnd á
Fimm fiskum í árlegri hangi-
ketsveislu Hörkutóla þar sem
starfsstúlkur skólans eru boðs-
gestir. „Myndin var strax frá
fyrstu mínútu „success" og
þarna á frumsýningunni bráðn-
uðu mörg meyjarhjörtun eins
og við var að búast. Við mun-
um síðan fylgja þessu eftir með
þátttöku í helstu kvikmyndahá-
tíðum,“ segir Gunnar Gunn-
arsson stjórnarformaður
Hörkutóla.