Skessuhorn - 24.03.2004, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI - 12. tbl. 7. árg. 24. mars 2004
Kr. 250 í lausasölu
Karfa góð
Snæfell er í góðum málum
í undanúrslitaeinvíginu gegn
Njarðvík en Hólmarar hafa
unnið tvo fyrstu leikina og
tryggt sér sæti í úrslitum í
þriðja leiknum sem fram fer í
Stykkishólmi á fimmtudag.
Skallagrímur lék sinn síð-
asta leik í 1. deildinni í bili
a.m.k. á fimmtudag þegar
þeir tryggðu sér Islands-
meistaratitilinn í deildinni.
Þá hefur Grundarfjörður/
Reynir, ásamt Skagamönn-
um, unnið sér inn rétt til að
taka þátt í úrslitakeppninni í
2. deild þar sem leikið er um
tvö laus sæti í 1. deild.
Sjá bls. 12, 14 og 15 þar
se?n m.a. er rætt við Hlyn
Bæringsson einn af sterkustu
leikmönnum lslandsmótsins í
körfuknattleik.
Varað við
sinueldum
Litlu mátti muna að eldur
kæmist í annað gömlu pakk-
húsanna í Englendingavík í
Borgarnesi þegar kveikt var í
sinu þar skammt frá. „Það var
ofurnæmu nefi varaslökkvi-
liðsstjórans að þakka að húsið
varð ekki eldi að bráð. Það
náðist að slökkva eldinn áður
en hann náði að læsa sig í
húsið en það mátti ekki miklu
muna,“ segir Bjarni Þor-
steinsson slökkviliðisstjóri í
Borgamesi.
Bjami segir að þurrkatíð,
líkt og verið hefur að undan-
fömu, bjóði hættunni heim
og vill beina því til foreldra að
þau brýni fyrir börnum sín-
um að leika sér ekki eldinum,
í orðsins fyllstu merkingu.
Fegurðarsamkeppni Vesturlands var haldin á Akranesi s.l. laugardag með viðeigandi pompi og prakt. Nítján ára Skagamær, Flagnheiður Björns-
dóttir var krýnd Ungfrú Vesturland en Sjöfn Sæmundsdóttir úr Dölunum varð í öðru sæti. Mynd: G. Bender Sjá bls. 8 og 9.
350 ný störf gætu skapast á
Grundartanga á næstu árum
Mikillar bjartsýni gætti á málþingi SSV um stóriðju og samfélag á Vesturlandi
Bjartsýnisspár gera ráð fyrir
að allt að 350 ný störf geti
myndast á Grundartanga á
næstu árum og að fjárfestingar
þar muni hlaupa á milljörðum. I
þessum spám er gert ráð fyrir
stækkun Norðuráls, breyting-
um á framleiðslu í járnblendi-
verksmiðjunni og nýrri raf-
skautaverkmiðju við Katanes.
Þetta kom fram á málþingi sem
Samtök sveitarfélaga á Vestur-
landi stóðu fyrir s.l. föstudag
með yfirskriftinni „Stóriðja og
samfélag á Vesturlandi“. Mál-
þingið var vel sótt og var boðið
uppá mörg forvitnileg fram-
söguerindi. Meðal þess sem
kom fram var að hlutfall starfs-
manna Norðuráls sem búsettur
er á Vesturlandi er 84% og hef-
ur farið vaxandi. Þar af eru 63 %
á Akranesi, 9% frá Borgar-
byggð og 12% ffá hreppunum
sunnan heiðar. Einnig var gert
uppiskátt að útlit er fyrir að 30-
50 ný störf gætu skapast hjá
Járnblendifélaginu í lok næsta
árs. Hugmyndir eru uppi um
að breyta ffamleiðsluferlinu við
einn af þremur ofnunum og
ffamleiða dýrari vöru sém seld
er á öruggari og stöðugari
markað. Nánar er greint ffá
framtíðaráformum á Grundar-
tanga á blaðsíðu 11.
-hdp
j
Tilboðin gilda frá 25. mars til 30. mars eða á meðan birgá'r endast.
Góð Kaup! Verð áður
Goða vínarpylsur 10 stk. 25% afsl. 868 kg.
BK pepperoni búðingur 499 kg. 636 kg.
BK bacon búðingur 499 kg. 636 kg.
BK brauðskinka 949 kg. 1237 kg.
MiMdaVg/
' GrundarfirSi^ HymUtOrgi
a k r a n e s i borgarnesi
Góð Kaup! Verð áður
Ora grænar baunir 1/2 dós 69,-
Campbells cr.mushroom 295 gr. 138,-
Campbells cr.chicken 295 gr. 129,-
Vmí) vBUwmín