Skessuhorn


Skessuhorn - 24.03.2004, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 24.03.2004, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2004 6 Legg metnað í allt Ragnheiður Björnsdóttir, 19 ára Skagamær varð um helgina Ungfrú Vesturland 2004. Fegurðarsam- keppnin var haldin síðasdiðið laug- ardagskvöld fyrir fullum sal í Bíó- höllinni á Akranesi. Keppnin þóttí í alla staði mjög vel heppnuð og er sigurvegarinn hennar gestur skrár- gatsins að þessu sinni. Fullt nafn? Ragnheiöur Björnsdóttir Fœðingard. og ár? 10. febrúar 1985 Starf? Ég er ískóla, FVA. Fjölskylduhagir? Ég bý heima hjá foreldrum mínum og á kœrasta. Hvemig bíl áttu? Ég á ekki btl, keyri bílforeldra minna. Uppáhalds matur? Pottþétt hamborgarahryggur! Uppáhalds drykkur? Eg er kókfíkill, en auðvitað er íslenska vatnið líka gott. Uppáhalds sjónvarpsefii? Friends og svo er ég líka alveg dottin í þetta IdoFæði. Uppáhalds sjónvarpsmaður? Ég á mér svo sem engan uppáhalds sjón- varpsmann, en samt fannst mér Simmi og Jói mjög góðir saman í ldol- stjömuleitinni. Uppáhalds leikari innlendur? Enginn sérstakur held ég. Uppáhalds leikari erlendur? Adam Sandler er alltaf sniðugur. Besta bíómyndin? Allar Lord of the Rings myndimar. Uppáhalds íþróttamaður? Pabbi! Fyrrverandi fótboltagarpur. Uppáhalds tþróttafélag? ÍA auðvitað! Uppáhalds stjómmálamaður? A mér engan uppáhalds stjórnmálamann. Uppáhalds tónlistarmaður innlendur? Páll Oskar, hann er alvegfrábœr á böllum. Uppáhalds tónlistarmaður erlendur? Ætliþað sé bara ekki Norah Jones um þessar mundir. Uppáhalds rithöfundur? Mérfinnst Harry Potter bækumar svofrábærar aðJ.K Rmvling, höfimdur þeirra, er í uppáhaldi núna, Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjóminni? Hlynnt. Hvað meturðu mest ífari annarra? Jákvæðni, hreinskilni og metnað. Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra? Mérfinnst leiðinlegt fólk sem er etidalaust að baktala aðra og gagnrýna. Líka fólk sem er ekki samkvæmt sjálfu sér. Hver þinn helsti kostur? Égstend á mínu og reyni að leggja metnað í allt sem ég geri. Hver erþinn helsti ókostur? Ég er alveg hryllilega gleymin og gleymi oft bíllyklunum, veskinu eða símanum mínum út í búð eða upp í skóla. En sem betur fer finn ég hlutina oftast aftur. Kom sigurinn þér á óvart? Já, alveg rosalega! Hvað tekur nú við? Það er nóg að gera í skólanum þessa daganna en það er nú bráðum að koma páskafrí og þá ætla ég bara að slappa afog borða yfir mig af páskaeggjum og nammi. Bílás og B&L styðja ÍA Síðastliðinn mánu- dag var undirritað sam- komulag til tveggja ára um að Bílasalan Bílás og B&L gerðust einir af aðalstyrktaraðilum Meistaraflokks karla IA í knattspyrnu. Saming- urinn felur það í sér að fyrir hvern nýjan og notaðan bíl frá B&L sem Bílás selur rennur ákveðin upphæð til stuðnings knattspyrnu- félaginu. MM Frá undirritun samningsins. F.v. Magnús Óskarsson hjá Bílás, Heiðar Sveinsson sölustjóri hjá B&L og Heiðar Sveinsson varaformaður meistarafiokks og 2. flokks ÍA. Upplestrarkeppni á Varmalandi Upplestrarhátíð grunnskóla á Mið- Vesturlandi fór fram í Þinghamri / Varmalandsskóla 10. mars s.l. Þetta er í áttunda skiptí sem hátíð þessi er haldin, en í fjórða skipti sem hún er haldin í þessari mynd. Aður voru það nemendur úr 6. og 8. bekk sem leiddu sam- an hesta sína en síðustu fjögur ár eru það nemendur úr 7. bekk sem komu saman og lesa upp. Keppendur komu úr Grunn- skóla Borgarness, Heiðarskóla, Kleppjárnsreykjaskóla, Laugar- gerðisskóla og Varmalandsskóla. Að þessu sinni lásu nemendur úr sögunni um Hjalta litla eftir Stefán Jónsson og valin ljóð eft- ir Þuríði Guðmundsdóttur. Bæði þessi skáld eru fædd og uppalin í Hvítársíðu. I fyrsta sæti varð: Sigurður Páll Guttormsson úr Lauga- gerðisskóla í öðru sæti: Aðal- heiður Karlotta Guðlaugsdóttir úr Kleppjárnsreykjaskóla og í þriðja sæti varð: Unnur Þor- steinsdóttir úr Varmalandsskóla. Sparisjóður Mýrasýslu gaf þeim sem urðu í fýrstu þremur sætunum peningaverðlaun og Edda-miðlun gaf öllum þátttak- endum bókarverðlaun. Nemendur Varmalandsskóla sáu um tónlistaratriði. Samspil á gítar: Sævar Orn Einarsson 6. bekk, Þorleifúr Gaukur Davíðs- son 7. bekk, Ingi Gunnar Krist- bergsson 6. bekk. Samspil á fiðlu og píanó: Ásta Þorsteins- dóttir 8. bekk og Eva Dögg Davíðsdóttir 10. bekk Undirbúningur og fram- kvæmd upplestrarhátíðarinnar að þessu sinni var í höndum Varmalandsskóla sem einnig bauð þátttakendum og gestum kaffi og meðlæti. • ¥7rfj//tr/ /'//,■///t/trtr Umsjón: Iris Arthúrsdóttir. Marsípanterta fyrir 35 manns Nú nálgast óðfluga ferming- amar með öllum þeim undirbún- ingi sem þeim fylgir, hér kemur uppskrift að tertu sem hentar vel í fermingu, brúðkaup eða aðrar stórveislur. Það er jafhvel hægt að flýta fyrir sér, baka kökuna tím- anlega og frysta, marsipanið og skrautið er svo sett á daginn áður eða sama dag og hún er borin ffam. Það er hægt að kaupa út- flatt tílbúið marsipan út í bakaríi sem gerir alla svona tertugerð mun einfaldari. Botnar: lOegg 350 gr sykur 350 gr hveiti 2 1/2 tsk lyftiduft Stífþeytíð egg og sykur. Sigtið hveiti og lyftíduft og blandið var- lega samanvið. Búið tíl þrjú bréf- mót úr smjörpappír ( heftíð þau saman). Bakið bomana við 200°C í 10 - 12 mín. Hvolfið þeim á syk- urstráðan pappír. Jarðaberjafylling: 350 gr ferskjarðaber 71/2 dl rjómi 4 mskjarðaberjasulta 4 msk rifsberjahlaup 5 blöð matarlím 2 msk vatn Þeytið rjómann. Hreinsið jarðaberin og skerið í bita. Hrær- ið saman sultunni og rifsberja- hlaupinu og blandið varlega út í rjómann. Leysið upp matarlímið, þynnið með vatninu og blandið saman við sulturjómann, hrærið rösklega. Bætíð jarðaberjunum saman við síðast. Látíð fyllinguna stífha um stund í kæli. Sérrífylling : 2egg 65 grsykur 15 gr púðtisykur 3 dl rjómi Hálfdós blandaðir ávextir 5 blöð matarlím 3 1/2 msk sérrí Stífþeytið egg og sykur. Sigtíð safann af ávöxtunum og notið hann til að væta kökubotnana. Þeytið rjómann. Leysið upp matar- límið og þynnið með sérríinu. Blandið púðursykri saman við eggjahræruna og síðan matarlíminu, hrærið vel í. Bætíð á- vöxtunum og þeytt- um rjóma út í og látið fyllinguna stífna um stund í kæli. Kakan sett saman : Takið botn nr. 1 og setjið jarða- berjafyllinguna á hann, leggið botn nr. 2 þar ofaná, vætíð aðeins með safa og setjið sérrífyllinguna á hann. Leggið botn nr. 3 að lok- um efst og athugið engann safa á hann. Geymið á köldum stað í 6- 8 tíma áður en marsipanið er lagt á. Smyrjið tertuna með þunnu lagi af þeyttum rjóma til að slétta hana og til að marsipanið falli þéttar að. Það fer ca 1 kíló á kök- una og gott að hafa um 200 gr í skreytingar. Fletjið út marsipanið milli arka af smjörpappír ef þið kaupið það ekki tílbúið. Síðan er gott að rúlla því varlega upp á keflið og rúlla því út yfir kökuna, það best að vera tveir við þessa ffamkvæmd ef þið eruð óvön. Þið getið hnoðað matarlit sam- an við afganginn af marsipaninu og gert snúrur og blóm tíl að gera kökuna skrautlegri. Einnig er er hægt að fletja þunnt út annað lag af marsipani og leggja ofan á kök- una eins og blaðsíður ef þetta á að vera bókarkaka. Ef það á að skrifa á hana með súkkulaði mæli ég með að æfa sig aðeins í að sprauta stafi á smjörpappír til að fá tilfinn- inguna fyrir því, eins er hjálplegt að strjúka stafina laust í marsipan- ið með tannstöngli til að þeir komi á réttan stað. Síðan er bara að skreyta tertuna eins og hver vill, ferskir ávextír eru alltaf fal- legir, einnig er gaman að nota lif- andi blóm í tertuskraut, vefja bara plastfilmu um stöngulinn áður en honum er stungið í tertuna, það er auðveldara en að búa til marsipan rósir fyrir þá sem eru ó- vanir. Það er líka engin skylda að vera með þessar hefðbundnu plaststyttur á kökunum. í blóma- og gjafavöruverslunum er fjöl- breytt úrval af fallegum styttum sem viðkomandi getur átt til minningar um daginn. Einnig eru föndurbúðir óendanleg upp- spretta fermingaskrauts. Sleppið bara hugmyndafluginu lausu og hafið gaman af. HÚSRAÐ Til að hreinsa hitabnísa og kafji- kömmr er gott að setja í nokkrar skeiðar afmatarsóda ogfylla svo með sjóðandi vatni. Látið standa ogþvoið vel og skníbbið úr þeim með upp- þvottabursta. Þetta er líka gott ráð á kajji og tebolla sem hafa tekið lit.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.