Skessuhorn - 24.03.2004, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2004
»n£aaLitiu*..
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi:
Skessuhorn ehf
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson
Blaðamaður: Hrafnkell Proppé
Auglýsingar: íris Arthúrsdóttir
Umbrot:
Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677
Framkvæmdastjóri: Magnús Magnússon
Prentun: Prentmet ehf.
433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
899 4098 ritstjori@skessuhorn.is
892 2698 hrofnkell@skessuhorn.is
696 7139 iris@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
894 8998 mognus@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilofrestur auglýsinga er kl. 14:00 ó
þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oq í lausasölu
Askriftarverð er 850 krónurmeð vsk. á mánuði en krónur 750 sé
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
sé greitt með
433 5500
Frétta-
tílkynning
Það tilkynnist hér með að ég hef ákveðið að að gefa út
ritstjórasögu Skessuhorns frá upphafi. Vegna yfirgripsmik-
illar þekkingar á málinu hef ég valist í ritnefnd bókarinnar.
Er mér ljúft og skilt að greina frá því að ritnefnd hefur rit-
að mér bréf þar sem þess er farið á leit við ég riti einn kafla
í bókina. Kaflinn sem um ræðir fjallar einmitt um ritstjóra
Skessuhorns frá upphafi. Ég myndi gera það með mikilli á-
nægju enda tel ég verkið afar áhugavert fyrir mig og ætlast
ég einnig til að lesendum líki bókin hvort sem þeim Iíkar
betur eða verr.
Annars er það aukaatriði í sjálfu sér hvort bókin verður
lesin eður ei og þaðan af síður skiptir það nokkru hvort
hún verður einhverjum til ánægju eða yndisauka, gagns eða
fróðleiks. Enda hef ég alls ekki hugsað mér að kosta sjálf-
ur útgáfu bókarinnar heldur ætlast ég til að hún verði gef-
in út af ríkissjóði eða jöfnunarsjóði athyglissjúklinga enda
hljóta allir sem sem langar að lesa bók um sjálfan sig að
hafa jafnan aðgang að ríkissjóði til að kosta verkið. Varðar
mig því litlu hvort þessi ágæta bók mun skapa einhverjar
tekjur. Jafnvel væri best að bókin seldist sem minnst til að
fleiri eintök væru eftir handa mér.
Bókin verður þrjúhundruð síður, jafnvel fjögur hundruð
og prýdd fjölda ljósmynda af mér og þeim sem mér eru
þóknanlegir. Reyndar hefur ekki verið ákveðið hversu stór
hluti bókarinnar verður skrifaður og hversu mikið ekki.
Það er með öðrum orðum enn óskrifað blað hversum mik-
ið verður af óskrifuðum blöðum í bókinni. Aðurgreindur
síðufjöldi tekur ekki mið af efnistökum heldur því, sein
meira máli skiptir, að bókin fari vel í hillu og líti út fyrir að
vera hlaðin vísdómi. Sérstök áhersla verður því lögð á að
gera kjölinn sem best úr garði og til að koma á móts við
hugsanlega kaupendur verður væntanlega boðið upp á
þann möguleika að kaupa kjölinn sér. Það er heldur ekki
ætlast til að þetta ritverk verði skoðað ofan í kjölinn.
Það hafði svosem hvarflað að mér að einhverjum smásál-
um þætti þessi bókaútgáfa vera bruðl. Samt trúi ég því
ekki að hér sé neinn kall svo lítill að hann hafi áhyggjur af
því.
Gísli Einarsson, ritstjóri ritstjórabókarinnar.
Hraustir starfemenn
Starfsmenn Islandspósts í Borg-
arnesi stóðu sig best í heilsuátaki
fyrirtækisns sem staðið hefur ffá í
september. Markmið átaksins var
að fá starfsmenn Islandspósts til að
tileinka sér hollt mataræði og
stunda markvissa hreyfingu. Um
1000 manns starfa hjá íslandspósti
og þar af tóku um 450 þátt í átak-
inu. Til að hvetja fólk til dáða var
heitið verðlaunum fyrir þá ein-
staklinga sem næðu af sér mestum
fitumassa og byggðu upp mestan
vöðvamassa, eins og það var kallað
í átakinu, og auk þess þann vinnu-
stað sem næði bestum heildarár-
angri.
Það voru starfsmenn Islands-
pósts í Borgarnesi sem stóðu sig
Wt * j
3SL ;í
Starfsmenn Islandpóst í Borgarnesi sem tóku þátt í heilsuátakinu með
verðlaunagripinn. F.v. Vigdís Sigvaldadóttir, Ragnheiður Stefánsdóttir,
Ásta Pétursdóttir, Herdís Jónasdóttir, Ragna Sverrisdóttir, Bjarney
ingadóttir og Jórunn Guðsteinsdóttir.
best í að fækka kílóum og byggja inu. Þá hlaut Vigdís Sigvaldadótt-
upp eigin hreysti og einn þeirra, ir í Borganesi einnig verðlaun fyr-
Ragnheiður Stefánsdóttir, náði ir að losa sig við mesta fitumass-
bestum árangri einstaklinga í átak- ann.
Magnús B. Jónsson rektor LBH (lengst til vinstri) var sl. þriðjudag að
kenna nemendum bændadeiidar 2, kúadóma í gamla fjósinu, en það
hefur verið kennslufjós á Hvanneyri allar götur síðan 1929.
Glæsilegt fjós rísið
á Hvanneyri
Síðastliðinn mánudag skilaði
byggingafyrirtækið Sólfell ehf. af
sér nýrri fjósbyggingu á Hvann-
eyri. Verkinu skilar fyrirtækið til-
búnu fyrir innréttingar og lokafrá-
gang, en gert er ráð fyrir að stað-
arkýmar flytji þangað á fardögum
í vor.
Nýja fjósið er hið glæsilegasta,
stálgrindahús á 1600 fermetra
grunnfleti. Fjósið er fyrir lausa-
göngu og er mjaltabás, kennslu-
og sýningaraðstaða, mjólkurhús,
fóðurgeymsla og snyrtingar hluti
af húsinu. Boðið verður upp á nú-
tímalega aðstöðu fyrir gripi og
fólk; kýr og uppeldi verður á legu-
básum, en kálfar í hálmstíum með
sjálfvirkri mjólkurfóðrun. Kýrnar
verða mjólkaðar í 2x6 mjaltabás,
sem um leið mun þjóna sem
kennsluaðstaða fyrir bændaefni og
endurmenntunaraðstaða fyrir
starfandi bændur. Fjósið verður
rúmgott og bjart og sérstaklega
hefur verið hugað að móttöku
hópa. Loftræsting verður náttúru-
leg, þannig að hvinur frá viftum
mun ekki trufla kennslu eða leið-
sögn.
Að sögn Sigurðar Guðmunds-
sonar framkvæmdastjóra Sólfells
er kostnaður við bygginguna
kominn hátt í 100 milljónir króna
en eftir er að setja upp milligerðir,
innréttingar og tæki í mjaltabás.
Á sama tíma og Sólfellsmenn
voru að sópa og ganga ffá í nýja
fjósinu var Magnús B. Jónsson
rektor að kenna nemendum á
öðru ári í bændadeild skólans kúa-
dóma en það mun vera síðasta,
eða með síðustu kennslustundum
sem fram fara í gamla fjósinu sem
svo sannarlega hefur þjónað hlut-
verki sínu vel í 75 ár.
Nýr
verkefiiisstjóri
Aðalsteinn Kristjánsson
byggingartæknifræðingur hjá
Loftorku í Borgamesi hefur
verið ráðinn verkefiússtjóri hjá
Tækni- og umhverfissviði
Akraneskaupstaðar Aðalsteinn
mun hefja vinnu nú í sumar og
starfa sjálftætt að ýmsum verk-
efnum s.s. framkvæmdaeftirlit,
tilteknum skipulagsmálum,
verkefni við eignasjóð auk þess
að hafa umsjón með landupp-
lýsingakerfinu Akraneskaup-
staðar. -ha'p
Leiðréttíng
I frétt í síðasta blaði um
spurningakeppni UMSB var
frjálslega farið með stað-
reyndir varðandi úrslit í
keppni íiumar og Alafélagsins
og Borgarfjarðarsveitar. Rétt
úrslit voru 17 - 13, Humar og
Alafélaginu í vil en ekki 20 -
11. Beðist er þó nokkuð mik-
illar velvirðingar á þessum
mistökum.
Hollvinasam-
tök Stykkis-
hóíms
Sunnudaginn 21. mars var
haldinn stoffifundur hollvina-
samtaka Stykkishóhns. Nafn
samtakanna er Hólmarar-
Hollvinasamtök Stykkis-
hólms. Á stofnfundinn mættu
yfir 80 manns og voru miklir
fagnaðarfundir meðal fólksins
og gaman að sjá hvað brott-
fluttir Hólmarar sýna bænum
sínum mikla hollustu.
Fyrstu stjórn félagsins skipa
Guðbjörg Rut Pálmadóttir,
Ásgerður Pálsdóttir, Haraldur
Lárusson, Steinþór Sigurðs-
son og Gunnar Sturluson og
munu þau skipta með sér
verkum.
Mikill áhugi kom fram hjá
hollvinum á fundinum að
vinna að verkefnum sem
snerta Stykkishólm og hlúa að
bænum í framtíðinni.
Lögreglan á Akranesi fékk nú á dögunum nýjan lögreglubíl að gerð-
inni Volvo S80. Nýi bíllinn er mjög vel útbúinn til hraðamælinga og
gerir allt umferðareftirlit markvissara. Bíllinn leysir af hólmi Subarubif-
reið þá sem þjónað hefur lögreglunni dyggilega frá 1999 og ekið hefur
yfir 380.000 km um götur bæjarins. Á myndinni eru þeir Gunnar Haf-
steinsson og Þórir Björgvinsson við nýja Volvoinn.