Skessuhorn - 24.03.2004, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2004
^nlðSUIlu^
Til minnis
Hið stórskemmtilega fjölskyldu-
leikrit Kardemommubærinn í
uppsetningu leiklistarklúbbs
FVA verður sýndur um helgina í
Bíóhöllinni á Akranesi. Að
vanda er margt á döfinni áVest-
urlandi, Njótið vel.
Brostir þú í gegnum
tárin Ragnheiður?
Það voru
r e y n d a r
engin tár en
ég heid að
ég hafi bros-
að hringinn,
var svo
rosalega
hissa.
Eins og kunnugt er var
Ragnheiður Björnsdóttir kos-
in Ungfrú Vesturland um
síðustu helgi.
Veðivrhorfnr
A fimmtudag er gert ráð fyrir
suðvestanátt með rigningu og
hlýindum. Heldur fer kólnandi
á föstudaginn og dregur úr rign-
ingunni. A laugardaginn má bú-
ast við að eitthvað birti til.Vind-
ur verði hægur að vestan með
einhverjum éljum. Ný vika
heilsar svo með sunnanátt og
rigningu eða slyddu.
SpMrnin| vikivnnar
í síðustu viku gerðu Vestlend-
ingar grein fyrir áliti sínu á feg-
urðarsamkeppnum en spurt
var: „Eru fegurðarsamkeppnir
úrelt fyrirbrigði"? Já-alvegger-
samlega, sögðu flestir eða
48,6%. Nei - alls ekki, sögðu
heldur færri eða 32,4% og
18,9% höfðu ekki nokkra skoð-
un á þessu.
I þessari viku spyrjum við::
Skilaðir þú skattskýrslunni á
réttum tíma?
Takið afstöðu á
skessuhorn.is
Vestlendiníjivr
viKnnnar
Er Ingi Hans
Jónsson for-
stöðumaður
s ögu mið -
stöðvarinn-
ar, Eyr-
byggju, i
Grundar-
firði. Ingi Hans er helsti for-
sprakki myndvefsins Bærings-
stofu sem opnaður er nú í dag
og geymir 800 Ijósmyndir úr
safni Bærings heitins Cecilsson-
ar, fréttaritara í Grundarfirði.
Ahugi á virkjun Hvítár
Stjórn Orkuveitu Reykjavík-
ur hefur Iýst yfir áhuga á að
kanna möguleika á virkjun
Hvítár í Borgarfirði.
Eins og fram kom í Skessu-
horni fyrir stuttu hefur Sigurð-
ur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri í Borgarnesi gert
frumathuganir á virkjun Kljá-
foss í Hvítá og hefur hann leit-
að eftir samstarfi við Orkuveitu
Reykjavíkur sem hefur leyfi til
virkjunar Kljáfoss. A síðasta
fundi stjórnar Orkuveitu
Reykjavíkur var samþykkt að
sækja um leyfi stjórnvalda til að
rannsaka frekar en gert hefur
verið hagkvæmni vatnsaflsvirkj-
unar í Skjálfandafljóti og fyrir-
heit um forgang að nýtingar-
leyfi reynist virkjun þar hag-
kvæm. Jafnframt samþykkti
stjórnin að leita eftír samvinnu
við sveitarfélög í Borgarfirði
um skoðun á vatnasviði Hvítár
með mögulega virkjunarkosti í
huga.
Bandamkst álfyrirtæki
kaupir í Norðuráli
Enn frekari tækifæri fyrir Norðurál
Það voru ffekar óvænt
tíðindi sem bárust frá
Norðurál s.l. miðvikudag
um að nýr eigandi Cent-
ury Aluminum Company
væri komin að helmings-
hlut í Norðuráli og til
stæði að selja allan hlut-
inn. Kaupverð á Norður-
áli öllu er um 150 millj-
ónir dollara eða rúmir 10
miljarðar króna. A
heimasíðu Norðuráls seg-
ir Kenneth Peterson að
stækkunarmöguleikar
Norðuráls og hversu vel hafi
tekist til í rekstrinum hafi verið
ein helsta ástæða fyrir áhuga
Century sem er bandarískt álfyr-
irtæki. Fyrir rekur Century þrjú
álver í Bandaríkjunum sem
framleiða þar 535.000 tonn af
áli. Fyrirtækið hefur frá árinu
1999 haft hug á að kaupa Norð-
urál. Ragnar Guðmundsson,
framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Norðuráls, segir að engin
stefnubreyting sé boðuð í kjölfar
kaupanna og telur að í kaup-
unum felist enn ffekari tækifæri
fyrir Norðurál. „Þarna er aðili
sem er eingöngu í áliðnaðinum
og við ættum að geta notíð góðs
í samstarfi við önnur álver í
þeirra eigu.“ Ragnar sagði að í
athugun væri að skoða enn frek-
ari stækkun í framtíðinni. Það
er því gert ráð fyrir að hægt
verði að lengja þá tvo nýju
kerskála sem til stendur að reisa.
Að sögn Ragnars hafa eigenda-
skiptin engin áhrif á þær samn-
ingaviðræður sem nú standa yfir
og tengjast stækkun álversins, en
eins og áður hefur komið ffam
er reiknað með að öll kurl verði
komin til grafar í maímánuði. I
sama mánuði á að liggja fyrir
hvort Century Aluminum
Company kaupi allan hlutínn í
Norðuráli. -háp
Afinæli
Bæjarstjórn Borgarbyggð-
ar hefur ákveðið að minnast
10. ára afmælis sveitarfélags-
ins Borgarbyggðar þann 11.
júní. Ekki hefur verið end-
anlega ákveðið með hvaða
hætti afmælisins verður
minnst, en meðal annars er
stefnt að því að opna pakk-
húsið undir Búðakletti eftir
endurgerð og setja þar upp
sýningu með ágripi af versl-
unarsögu Borgarness.
Það var létt yfir þeim Ólafi Rögnvatdssyni bæjarstjórnarmanni og Þorkeli Cýrussyni kennara á árshátíð
Snæfellsbæjar í félagsheimilinu Klifi á Laugardagskvöldið.
Mikið byggt í
Hólminum
„Það hefur verið sótt urn
mikið af lóðum hér að undan-
förnu og steffúr í umtalsverð-
ar byggingaframkvæmdir hér í
bænurn í surnar" segir Oli Jón
Gunnarsson bæjarstjóri
Stykkishólms. „Þetta er meira
en hefur verið í mjög langan
tíma og útlit fyrir meiri ffam-
kvæmdir en bjartsýnustu
menn vonuðu. Það er búið að
úthluta lóðum fyrir níu íbúðir
nú á skömmu tíma og útlit fyr-
ir jafhvel meira.“
Lenti á gang-
stéttarbrún
Maður slasaðist á höfði þeg-
ar hann féll og lenti á gang-
stéttarbrún utan við Hótel
Borgames á föstudagskvöldið.
Maðurinn var fluttur með
sjúkrabifreið til Reykjavíkur
en meiðsli hans reyndust ekki
alvarleg samkvæmt upplýsing-
um Skessuhoms.
Á laugardag urðu tvö um-
ferðaróhöpp í umdænn Borg-
arnesslögreglu. Harður
árekstur varð á Borgarbraut í
Borgarnesi, á móts við Vega-
gerð ríkisins. Enginn slasaðist
en bifreiðarnar vora báðar
mikið skemindar. Þá lenti
fólksbifreið út af veginum á
Hálsasveitarvegi á móts við
Hýrumel. Engan sakaði og
skemmdist biffeiðin lítið.
Endurbætur á
Akurshúsinu
Það hefur vakið athygli
Skagamanna að framkvæmdir
við Akurshúsið svokallaða eru
hafnar að nýju. Húsið hefur
verið mörgum til ama og litið
út eins og það hafi orðið fyrir
sprengjuárás eftir að þeir
byggingarverktakar sem hófu
leikinn lögðu niður vinnu.
Það er byggingarverktakinn
Agúst Friðriksson sem leysti
til sín húsið og nú em ffam-
kvæmdir hafnar á hans vegurn.
Búið er að leggja á hilluna á-
forrn um að hækka húsið en á
sínum tíma var sú ákvörðun að
hækka húsið tílefni tíl and-
stöðu nágranna. Afo'rm verk-
takans ern að klára húsið að
innan sem utan á sex mánuð-
um.
-hdp
Vilja tvöföldun
Sveitarstjóm Dalasýslu hef-
ur samþykkt að skora á dóms-
málaráðherra og ríkislög-
reglustjóra að fjölga um einn
lögreglumann í lögregluliði
Dalasýslu. Aðeins einn lög-
reglumaður er nú starfandi í
sýslunni.