Skessuhorn


Skessuhorn - 24.03.2004, Qupperneq 11

Skessuhorn - 24.03.2004, Qupperneq 11
-nvtaaunvj... MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2004 11 Málþing um stóríðju og samfélag á Vesturlandi 350 ný störf gætu skapast á Grundartanga Áhrif stóriðju á samfélagið á Vesturlandi var til tals á fjöl- mennu málþingi sem Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi héldu á Akranesi s.l. föstudag. Greina mátti mikla bjartsýni hjá fundarmönnum enda gera bjartsýnisspár ráð íyrir að allt að 350 ný störf geti myndast á Grundartanga á næstu árum og að fjárfestingar þar muni hlaupa á milljörðum króna. Miðað við að hlutfall búsetu starfsmanna verði með sama hætti og nú er þýðir þetta að um 240 nýrra starfsmanna yrðu búsettir á Vesturlandi. Rétt er að taka það fram að björtustu vonir gera ráð fýrir að stækkun Norðuráls kalli á 150 ný störf, breytingar hjá Is- lenska Jámblendifélaginu leiði af sér 50 ný störf og bygging rafskautaverksmiðju skapi 150 störf. Líklegt verður að teljast að breytingar á hafnarmálum leiði einnig til aukinna umsvifa og nýrra atvinnutækifæra við Grundartanga. Iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir setti ráðsteínuna og notaði tækifærið til að minna á að áhyggjur margra einstak- linga og umhverfissamtaka um áhrif mengunar hefðu verið stórlega ýktar. Valgerður sagði að reglubundnar umhverfis- vaktanir sýndu, svo ekki væri um villst, að hvers kyns mengun í lofti, láði og legi væri minni en gert væri ráð fýrir og langt und- ir viðmiðunarmörkum. Ráð- herra lýsti yfir ánægju sinni með að sameiningarviðræður væra á milli hreppanna sunnan Skarðs- heiðar og að sameinuð stæðu sveitarfélögin betur að vígi við framtíðaruppbyggingu á Grundartanga. Valgerður taldi vel koma til greina að heima- menn keyptu iðnaðarlóðirnar á Grundartanga af ríkissjóði og að slíkt gæti stuðlað að meira Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra setti þingið og blés byr í bjartsýnisseglin. Stóriðjubærinn Akranes „Óhætt er að fullyrða að stóriðja hefur tæplega haft meiri áhrif á nokkurt annað samfélag en Akranes,“ sagði Gísli Gíslason bæjarstjóri á málþinginu. Gísli studdi full- yrðingu sína með mannþölda- tölum bornum saman við komu þriggja verksmiðja í og við Akranes. I sögu Akraness má sjá þrjú áberandi vaxtar- skeið. Akurnesingum fjölgaði um 48%, fóra úr 2.277 í 3.822 á 6. áratugnum efír að Sem- entsverksmiðjan var byggð. Járnblendiverksmiðjan var gangett 1978 en á 8. áratugn- um fjölgaði um 947 manns á Akranesi eða um 22%. Enn á ný urðu straumhvörf eftir nokkurt erfiðleikatímabil árið 1996 þegar hafist var handa við byggingu Norðuráls og hefur fjölgað um 482 manns á Akra- nesi sem gerir 9,4% alls. -háp Fjölmennt var á málþinginu sem Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hélt á Akranesi og fjallaði um áhrif stóriðju á nágrennið. frumkvæði af þeirra hálfu. Nokkuð var rætt um hin margumtöluðu margfeldisáhrif af Grundartangasvæðinu. Vífill Karlsson atvinnuráðgjafi SSV og dósent við Viðskiptaháskól- ann á Bifröst benti á nokkrar leiðir til að leggja mat á þau á- hrif. Rannsóknir sína að fýrir hvert eitt stóriðjustarf verði til 2,5 önnur störf. Vífill vildi þó meina að sá stuðull yrði lægri eða 1,5 ef einblínt er á nærsvæði Grundartanga. Astæðan er ná- lægðin við höfuðborgarsvæðið. Það má því reikna með að fjöldi nýrra starfa fari yfir 500 í ná- grenni við Grundartanga ef björtustu vonir ganga eftir. I máli Gísla Gíslasonar bæjar- stjóra kom fram að æskilegast væri að uppbyggingin væri jöfn en kæmi ekki í of stóram stökk- um sem gæti leitt til ofþenslu í efnahagskerfi svæðisins. Blásið til sóknar íslenska Járnblendifélagið virðist vera að blása til sóknar og boðar nú breytingar á fram- leiðslu sem gætu haft í för með sér 30 - 50 ný störf. Um er að ræða breytingar á hluta fram- leiðslunnar þannig að í stað venjulegs kísiljárns sem fram- leitt er fýrir stálmarkaðinn yrði þar framleitt magnesíumkísil- járn sem er notað sem íblöndun- arefhi hjá málmsteypum. Þessi framleiðsla er mun sérhæfðari og kallar á mannskap við fblönd- un, mölim og pökkun. Fram- leiðslunni er ekki skipað út lausri líkt og kísiljárn heldur flokkuð í stórsekkjum. A hinum hefðbundna járn- blendimarkaði er eitilhörð sam- keppni og miklar sveiflur. Magnesíumkísiljárn er hins veg- ar notað af málmsteypum og sá markaður er mun stöðugri og öruggari. Sigtryggur Bragason, verkefnisstjóri hjá Islenska járn- blendifélaginu, upplýsti gesti málþingsins um að nú væri ver- ið að vinna að þessum hug- myndum. „Við erum fullir bjartsýni að þetta gangi eftir en ein af ástæðum fýrir að þetta er nú í athugun er að verksmiðjan er að standa sig mjög vel. Þetta er elsta stóriðjan á Grandar- tanga en þar gerast einnig hlut- ir,“ sagði Sigtryggur. Akvörðun um ffamleiðslubreytingu verður tekin á þessu ár. Ef allt gengur eftir hefjast framkvæmdir haust- ið 2005 og reiknað er með að framleiðslan hefjist í lok þess árs. -háp Starfið felst í öllum almennum bókhaldsstörfum, þ.e. færslu fylgiskjala, afstemmingum, reikningagerð og vinnslu uppgjöra. Menntunar og hæfniskröfur: • góð reynsla af bókhaldi • stúdentspróf eða viðskiptamenntun • drífandi og skipulögð vinnubrögð • nákvæmni og samviskusemi • þekking á Fjölni eða Navision Viðkomandi þarf að geta hafíð störf sem fyrst. Umsóknir, ásamt ferílsskrá sendist til Skagans hf, Bakkatúni 26, merktar “bókari” eða á netfangið ingaosk@skaginn.is.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.