Skessuhorn - 24.03.2004, Qupperneq 15
un£S3Unu>..
MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2004
15
Skagamenn
Reykjavíkurmeistarar
Skagamennirnir Karitas Ósk, Friðrik Veigar og Birgitta Rán. Á innfelldu
myndinni er Sigurður Már sem fékk tvenn gullverðlaun á mótinu.
Reykjavíkurmótið í bad- sinni. Reykjavíkurmeistarar í
minton fór fram í TBR húsinu einliðaleik mfl. urðu Helgi
um síðustu helgi. Þetta er Jóhannesson og Ragna Ing-
fullorðinsmót og leikið í ólfsdóttir sem sigraði þrefalt
meistaraflokki og A og B en sem kunnugt er stefnir
flokkum. hún á næstu Ólympíuleika.
Fjórir keppendur fóru frá Það má segja að frammi-
Akranesi og í stuttu máli þá staða Skagamanna lofi góðu
hirtu þau öll gullverðlaun fyrir íslandsmót fullorðinna
sem í boði voru í greinum sem haldið verðuríTBR hús-
sem þau tóku þátt í, nema inu helgina 2. - 4. apríl n.k.
einliðaleik karla mfl. þar sem
Friðrik Veigar náði ekki í úr-
slit.
Sigurður Már Harðarson
sigraði í einliðaleik karla A.
flokki og í tvíliðaleik karla A.
flokki ásamt Friðriki Veigari
Guðjónssyni.
Karitas Ósk Ólafsdóttir
sigraði í einliðaleik í A. flokki
og í tvíliðaleik einnig í A.
flokki ásamt Birgittu Rán Ás-
geirsdóttur. Ekki var tekið
þátt í tvenndarleik að þessu
Meira um
Grunnskóla-
mót í glfmu
í síðasta tölublaði Skessu-
horns var sagt frá góðum ár-
angri Dalamanna á Grunn-
skólamótinu I glímu. Því miður
láðist að birta árangur nokk-
urra af þeim krökkum sem
tóku þátt í mótinu og stóðu sig
með mestu prýði.
Sigurður Bjarni Gilbertsson
var í 3. sæti á Grunnskólamót-
inu í 5. bekk.
Guðlaug Harpa Harðardóttir
var í 2. sæti og 3. sæti á ís-
landsmeistaramótinu. Heiðrún
Harpa Grettisdóttir var í 4.
sæti á Grunnskóiamótinu.
Guðlaug og Heiðrún eru báðar
I 8. bekk. Helga Haraldsdóttir
varð sfðan í 2. sæti í 6. bekk.
Þjátfarar krakkanna eru
Svana Hrönn Jóhannsdóttir og
Eva Lind Lýðsdóttir.
Það fer ekki á milli mála að
það eru fjölmargir efnilegir
krakkar sem stunda þessa
þjóðlegu íþrótt í Dölunum og
örugglega ekki ýkja mörg ár
þar til Grettisbeltið verður flutt
yfir Bröttubrekkuna.
Skallagrímurtryggði sér ís-
landsmeistaratitil í fyrstu
deild karla í körfuknattleik í
ár með stórsigri á Fjölni í úr-
slitaleik deildarinnar í í-
þróttamiðstöðinni í Borgar-
nesi á fimmtudagskvöld.
Bæði þessi lið höfðu tryggt
sér sæti í úrvalsdeildinni
næsta vetur. Fjölnir spilar þá
meðal þeirra bestu í fyrsta
sinn en Skallagrímur hefur
langa reynslu af veru í úrvals-
deild.
Leikurinn á fimmtudag var
leikur kattarins að músinni
og var aldrei spurning um
hvoru megin sigurinn lenti
heldur hversu stór hann yrði.
Skallagrímsmenn fóru á
kostum og skoruðu nánast
þegar þeim sýndist og sönn-
uðu að þeir verðskulda sætið
í úrvalsdeild.
Viljum ekki fara aftur til Njarðvíkur
segir Hlynur Bæringsson sem segir stemninguna í Stykkishólmi vera ótrúlega
„Ég held að það hafi eng-
inn átt von á því að við mynd-
um vinna í Njarðvík og þaðan
af síður að við myndum ná
okkur upp aftur eftir að lenda
tuttugu stigum undir,“ segir
Hlynur Bæringsson sem hef-
ur verið einn sterkasti leik-
maður úrvalsdeildarinnar í
vetur og átt hvern stórleikinn
á fætur öðrum fyrir Snæfell.
„Það var ótrúlegast að áhorf-
endur héldu áfram að hvetja
þó við værum komnir tuttugu
stigum undir og lentir í basli
og áður en við vissum af vor-
um við búnir að jafna og náð-
um að klára dæmið.“
Þriðji leikurinn í viðureign
Snæfells og Njarðvíkur er á
fimmtudag í Stykkishólmi og
með sigri eru Snæfellingar
búnir að tryggja sér sæti í úr-
slitaeinvíginu um íslands-
meistaratitilinn. Hlynur segir
að auðvitað ætli Snæfellingar
sér að klára dæmið á heima-
velli í þeim leik. „Það er þvílík
stemning hér í bænum og
það á eftir að fleyta okkur
langt en við höldum okkur á
jörðinni og erum ekki farnir
að leika til úrslita í huganum.
Við vitum hins vegar að
margir stuðningsmenn eru
búnir að bóka að við förum í
úrslitin en það er fjarri því að
björninn sé unninn. Við vitum
að ef við missum einbeiting-
una er voðinn vís. Njarðvík er
einfaldlega of gott lið til að
hægt sé að leyfa sér ein-
hvern hroka. Við verðum
hins vegar að klára þetta
heima því ég vil ekki fara aft-
urtil Njarðvíkur, það er ekkert
grín að eiga við Njarðvíking-
ana á heimavelli og þótt allt
hafi gengið upp á laugardag-
inn þá er óvíst að við endur-
tökum þann leik.“
Langbesta tímabilið
Sem kunnugt er hefur
Snæfell aldrei náð jafn langt í
úrvalsdeildinni og í vetur en
fyrir þetta tímabil hafði liðið
aldrei unnið leik í úrslita-
keppninni. Því má velta fyrir
sér hvort leikmennirnir séu
ekki búnir að fá nóg eftir að
hafa náð þetta langt og vanti
kannski það hungur sem þarf
til að berjast um sjálfan ís-
landsmeistaratitilinn. „Ef
okkur fatast fiugið þá er það
ekki vegna þess að við séum
saddir,“ segir Hlynur sem
hefur sjálfur blómstrað með
Snæfelli í vetur og þakkar
það einfaldlega því að vera í
góðu liði. „Þetta er langbesta
tímabilið mitt enda jafnast
ekkert á við að vera í þessari
stöðu. Ég þekki ekkert annað
en að vera að berjast í neðri
hluta deildarinnar eða á
botninum og hef þurft að
horfa á úrslitakeppninna.
Eins er það með flesta aðra í
liðinu og þess vegna erum
við staðráðnir í að njóta þess
eins lengi og við getum og
það er fjarri því að við höfum
fengið nóg.“
Lætin ótrúleg
Hlynur segir að allir leik-
menn liðsins verði klárir í
slaginn á fimmtudaginn þótt
ekki sé hægt að segja að all-
ir séu heilir heilsu. „Nei það
er ekki hægt að segja það.
Við vorum sex hjá sjúkra-
þjálfara í dag (þriðjudag) en
það eru engin alvarleg
meiðsli. Það er helst Dondrell
sem er ekki í toppformi eftir
meiðslin um daginn en hann
verður með og vonandi í sem
bestu standi. Við vonum síð-
an að áhorfendur komi með
það sem þarf, enda hefur
stemningin bæði í hópnum
sjálfum og meðal stuðn-
ing§smanna fieytt okkur ansi
langt í vetur. Ég hefði aldrei
trúað því fyrir þennan vetur
hvað salurinn getur skipt
miklu máli.. í jöfnum leikjum
hafa lætin verið það mikil að
hitt liðið hefur ekki náð að
gera mikið af viti.“
Aðspurður kveðst Hlynur
nú þegar staðráðinn í að vera
áfram í Hólminum næsta
keppnistímabil. „Það er á
hreinu. Ég er að fá mér íbúð
hérna og ég er ekkert á för-
um. Við ætlum að vera hérna
áfram allir og prófa að vera
með sama lið tvö ár í röð en
það er eitthvað sem lands-
byggðarliðin hafa átt erfitt
með hingað til. Síðan von-
umst við til að gamlir
Hólmarar snúi til baka en það
er fullt af góðum spilurum úr
Hólminum sem eru að leika
annarsstaðar og vonandi
verður árangurinn í vetur til
að þá langi aftur heim.“
Þriggja stiga sigur
Að lokum, aftur að leiknum
á fimmtudag: „Ég verð að
spá okkur sigri enda höfum
við fulla trú á að við getum
klárað þetta í þremur leikjum.
Það verður kjaftfullt hús, það
er Ijóst nú þegar og með svo-
leiðis stuðningi eigum við
ekki að geta tapað. Við vinn-
um með þriggja stiga mun,“
segir Hlynur.