Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2004, Síða 1

Skessuhorn - 30.09.2004, Síða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 38. tbl. 7. árg. 30. september 2004 Kr. 300 í lausasölu Fimm bens- ínstöðvar? Svo gæti farið að innan skainms túna verði komnar fimm bensínstöðvar, nánast á sama blettinn í Borgarnesi, þ.e. við Brúartorg. Atlantsolía hefiir sótt um lóð undir bens- ínstöð á Digranesgötu 4 sem er nýtt byggingasvæði við Brúartorg. Þar eru þrjár lóðir skipulagðar og er Sparisjóður Mýrarsýslu að byggja á einni þeirra og Bónus hyggst bráð- um hefja framkvæmdir á ann- ari. Bónus hyggst byggja þar verslunarhús en hefur einnig óskað eftir leyfi til að setja þar niður bensíndælur. Væntan- lega yrðu það þá dælur frá Orkunni. Ef hvorutveggja gengur eft- ir þá verða sem fyrr segir komnar fimm benínstöðvar á saina blettinn en fyrir eru Skeljungur, Essó og Olís. GE ÓU til 2006 Olafur Þórðarson hefur skrifað undir nýjan samning til tveggja ára við Rekstrarfé- lag meistaraflokks og 2. flokks Knattspyrnufélags IA. Samkvæmt samningnum verður hann yfirþjálfari meistaraflokks eins og sagt var frá í síðasta tölublaði Skessuhorns og stýrir hann jafnframt fimm manna „El- ítu“ sem mótar stefnu í þjálf- un flokkanna tveggja. Auk Olafs verða í elítunni Alex- ander Ilögnason sem jafn- framt verður áfram þjálfari 2. flokks og Hafliði Guðjóns- son. Þá er eftir að fá til liðs við Elítuna sálfræðing og trú- lega einn þjálfara í viðbót.^ Á meðan flestir bændur leggja á klárana og ríða á fjöll í leit að fé sínu stökkva eyjabændur úr Stykkishólmi um borð f trillur og sigla eftir fé sinu út í eyjar og hólma á Breiðafirðinum. Þegar Ijósmyndara Skessuhorns bar að garði var verið að skipa upp fé úr Þórishólma og létu eigendurnir vel yfir vænleika fjárins. Það eru hinsvegar aðeins sláturfé og hrútar sem sótt er í eyjarnar, eins og f flestum öðrum fjáreyjum á Breiðafirði, en fé gengur þar úti allan veturinn og hefur það gott, að sögn bændanna. Mynd: GE Reiðarslag fyrir byggðarlagið -segir Haraldur L Haraldsson, sveitarstjóri um synjun á sláturleyfi til Dalalambs Landbúnaðarráðuneytið hef- hafi verið að semja um sölu á og uppfylla ekki að öllu leyti ur endanlega synjað Dalalambi í Búðardal um sláturleyfi en til stóð að slátra 20 þúsund lömb- um í húsinu nú í haust. Harald- ur L Haraldsson, sveitarstjóri segir að búið hafi verið að taka við sláturloforðum ffá sextíu bændum með um 14 þúsund lömb þegar synjunin barst. „Þetta er reiðarslag fyrir okkur og byggðina hér í Dalasýslu,“ segir Haraldur í samtali við Skessuhorn. Hann segir að búið öllu kjötinu og útvega afurðalán vegna þess án ábyrgðar ríkis eða sveitarfélagsins. „Það er alveg ljóst að synjunin felur í sér mis- munun og brot á atvinnurétt- indum og því munurn við ekki una. Okkar mat er að verið sé að brjóta á okkur bæði stjórn- sýslulög og atvinnuréttindi fólks. Hér er auk þess um grófa mismunun að ræða í saman- burði við þrjú önnur sláturhús sem ekki hafa útflutningsleyfi skilyrði reglugerðarinnar. Okk- ur er gert að fullnægja reglu- gerðum 100% á sama tíma og önnur hús gera það ekki. Við höfum farið á staðina og aflað okkur gagna sem munu sanna að verið er að brjóta á rétti okk- ar. Því höfum við ákveðið að skoða það að leita réttar okkar og teljum nær öruggt að ráðu- neytis sé skaðabótaskylt.“ MM Sjd ndnari umjjöllun bls. 32 Glæsilegur árangur Jóns Odds Iþróttamaðurinn knái frá Hellissandi, Jón Oddur Hall- dórsson, vann silfuiverðlaun í 100 m hlaupi á Olympíumóti fatlaðra í Aþenu á fimmmdag. Hann hljóp á 13,36 sekúndum og vrar 6/100 úr sekúndu ffá eigin Xorðurlandameti sem hann setti í undanrásunum á miðvikudag. Jón Oddur var aðeins 31/100 úr sekúndu á eftir Tehobo Mokgalagadi frá Suður Afríku sem kom fyrstur í mark í hlaupinu á nýju heimsmeti, 13,05.1 þriðja sæti varð Kínverjinn Chun Li Wei sem hljóp á 13,38 sekúndum en Jón Oddur þótti sína mikla keppnishörku á endasprettin- um þegar honum tókst að halda þeim kínverska fyrir aft- an sig. Jón Oddur sem varð 22 ára á föstudaginn er að keppa á sínum fyrsm Olympíuleikum og óhætt er að segja að hann hafi slegið í gegn í fyrstu til- raun. 1 hans heimabæ, Hell- issandi kunnu menn greini- lega vel að nteta afrek þessa unga íþróttamanns því þar var flaggað á hverri einusm fána- stöng eftir að kappinn hreppti silfurverðlaunin. GE Súper 29" sjónvarp kr. 29.990 21" sjónvarp kr. sjónuarpstilboð Stórmarkaður Hyrnutorgj S. 430 5533 Opið virka daga frá kl. 09-19 laugardaga frá kl. 10 -19 sunnudaga frá kl. 12-19 www.kb.is BORGARNESIJ Góður kostur...

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.