Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2004, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 30.09.2004, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004 jntsaunu... ✓ Nýr yfirbyggður 15 tonna bátur smíðaður á Akranesi fer til Olafsvíkur Bætír vinnuaðstöðuna á sió Framleiðendurnir; Finnbogi Rafn Guðmundsson og Gunnar Leifur Stefánsson með Hjörleif Guðmundsson á milli sín. A þriðja tug kvenna sat fundinn. Konur tíl áhrifa Á þriðja tug kvenna sótti fund Landssambands fram- sóknarkvenna (LFK) í Fram- sóknarhúsinu á Akranesi sem fram fór sl. fimmtudag. Yfir- skrift fundarins var „Konur til áhrifa" og var umræðuefnið staða kvenna innan Framsókn- arflokksins og í atvinnulífinu almennt. Rætt var um sam- þættingu kynja- og jafnréttis- sjónarmiða og mikilvægi þess að konur kæmu að ákvarðana- töku um hin ýmsu málefni sem varða samfélagið almennt en á brattann væri að sækja þar sem karlmenn færu oftar en ekki með völd sem margir eru ragir við að deila með konum. Fundarmenn ræddu leiðir sem líklegar eru til að bera ár- angur í baráttu kvenna til auk- inna áhrifa og þótti mörgum gott að heyra í stjórnmálakon- unum Ingibjörgu Pálmadóttur, Sigrúnu Magnúsdóttur og Ás- laugu Brynjólfsdóttur sem sátu fundinn og deildu reynslu sinni með öðrum konum. Stjórn LFK bauð upp á hálfa marsipantertu, þann helming sem ekki var skilinn eftir í Stjórnarráðinu fyrr um daginn, en kakan táknaði félagsmenn í Framsóknarflokknum og þau völd sem þar liggja. Ftalldór Ásgrímsson, forsætisráðherra veitti hinum helmingnum við- töku í Stjórnarráðinu og vildu LFK konur þannig minna for- ingja sinn á jafnan rétt kynj- anna. HSH/MM Utgerðarfyrirtækið Smyrill ehf. í Olafsvík fær á næstu vik- um afhentan nýjan 14,99 brt. bát af gerðinni Knörr 1500 Sputnik. Það er bátastöðin Knörr á Akranesi sem smíðar bátinn sem er fyrsti báturinn af þessari gerð og stærð frá fyrir- tækinu. Knörr kynnti bát svip- aðrar gerðar á atvinnuvegasýn- ingunni Þeir fiska sem róa, sem fram fór á Akranesi fyrir réttu ári, en sá bátur var smíðaður í Bretlandi. I kjölfar sýningar- innar var farið í að smíða mót eftir skrokk bátsins og er af- raksturinn nú að koma í ljós. Samstarf um hönnun Að sögn Finnboga Rafns Guðmundssonar, fram- kvæmdastjóra Knarrar er bát- urinn hannaður með þarfir og velferð sjómanna í huga. Sjó- menn sem eru í samskiptum við Knörr hafa átt þátt í hönn- un nýja bátsins og lagt til fjölda góðra hugmynda. „Fríða Sveinsdóttir og Hjörleifur Guðmundsson, eigendur Ut- gerðarfélagsins Smyrils ehf. hafa einnig unnið mjög óeigin- gjarnt starf í hönnuninni,“ sagði Finnbogi Rafn í samtali við Skessuhorn. Hann segir eina af nýjungunum sem boðið er upp á í bátnum vera að eld- unaraðstaðan og borðstofa er í brúnni í stað þess að vera stað- sett í lúkarnum. Þar verður hægt að hafa örbylgjuofn, ker- amikeldavél, kaffivél og ísskáp. T lúkar verður svefnaðstaða fyr- ir þrjá til fjóra. Brúin er rúm- góð og gott rými fyrir allan þann búnað sem nauðsynlegur þykir í nútíma fiskibátum. Yfirbygging kostur Finnbogi segir að báturinn verði til að byrja með boðinn í tveimur útfærslum, þ.e. opinn eða yfirbyggður. „Mikill áhugi hefur verið á yfirbyggða bátn- Línuívilnun ókostur? Hjörleifur Guðmundsson hefur fram til þessa gert út tvo báta frá Olafsvík annan á kvóta en hinn í sóknardagakerfinu. Hann hefur nú selt annan bát- inn og hyggst flytja kvóta Nýi báturinn er óðum að taka á sig endaniega mynd. Gert er ráð fyrir að báturinn verði afhentur fullbúinn í lok október. Mynd: Guðni H. um enda er það mat flestra að framtíðin sé að sjálfvirkar línu- beitingarvélar verði um borð í bátum af þessari stærð. Vinnu- aðstaða á dekki verður ágæt með góðum lúgum og miklu rými enda er dekkið um 25 fer- metrar að stærð,“ segir Finn- bogi. I bátnum verður salernis- aðstaða og búnaður til þess að þurrka og hita hlífðarfatnað. Vél fyrsta bátsins er af gerðinni Yanmar og er 650 hestöfl. Þá er á bátnum bógskrúfa af gerðinni Sleipner og rafkerfi bátsins er 220 volta. Olíutankur er 1500 ltr., neysluvatnstankur 100 ltr. og vatnstankur fyrir háþrýsti- þvott um 300 ltr. Knarrarmenn segja söluverð báts af þessari gerð vera um 27 milljónir króna, en fari nokkuð eftir þeim búnaði sem menn velji að hafa um borð. þeirra yfir á nýja bátinn þegar hann fær hann afhentan. „Eg er orðinn nokkuð spenntur og hef verið að taka þátt í ýmissi hönnun á bátnum með þeim hjá Knörr,“ sagði hann í sam- tali við Skessuhorn. Hjörleifur telur meðal kosta yfirbyggðra báta vera mun betri vinnuað- staða en hann þekki til á smærri bátum. „Eg stefni auk þess á að fá mér línubeitingar- vél um borð en vissulega dreg- ur línuívilnunin úr manni hvað það snertir því þar er verið að endurgreiða mönnum að hluta fyrir að láta beita í landi,“ sagði Hjörleifur Guðmundsson, sem segir að gæði beitunnar myndu aukast með því að beita um borð og þurfa ekki að marg- frysta beituna. MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.