Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2004, Blaðsíða 38

Skessuhorn - 30.09.2004, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004 Knattrak í roki og rigningu Knattrakinu lauk um klukkan 13.30 við Olís Nesti, en það voru krakkar íyngstu tlokkunum sem hlupu síðasta spölinn. Hér fagna nokkrir körfu- boltamenn í lok fjáröflunarinnar, Örnólfur er annar frá hægri. Hið árlega knattrak körfu- boltafélags ÍA fór fram í rign- ingu og roki sl. laugardag. Þetta er aðalfjáröflunarleið fé- lagsins og áætlar Borghildur Jósúadóttir, formaður, að um sjöhundruð þúsund krónur hafi safnast, þrjúhundruð þús- und meðal fyrirtækja og stofn- ana en áheit einstaklinga skili um fjögurhundruð þúsundum í kassann. Þetta er í fimmta sinn sem þessi leið er farin í fjáröfl- un og afraksturinn hefur aldrei verið betri. Örnólfur Þorleifsson hljóp meðal þeirra fyrstu. Hann lagði af stað með boltann klukkan sjö og hljóp í tuttugu mínútur, en lagt var upp frá Hvalfjarðar- afleggjara á Kjalarnesi klukkan 6 á laugardagsmorgun og þeir sem röktu boltann síðasta spölinn skiluðu sér inn í bæinn klukkan 13.30. Þorleifur segir aðstæður ekki hafa verið mjög góðar, mjög hvasst var á þess- um slóðum og mikil rigning. Það breytti því þó ekki að hug- ur var í mannskapnum og eng- inn lét sér detta í hug að sitja heima vegna veðurs. ALS Hallbera í landsliðið Einn leikmaður kvennaliðs ÍA var valin í landslið íslands U - 19 ára sem leikur þessa dag- ana á Evrópumótinu í Dublin á írlandi. Það var hin efnilega Hallbera Guðný Gísladóttir en hún hefur staðið sig með prýði í sumar með Skagaliðinu og skoraði 9 mörk í fyrstu deild- inni. GE Fjórir Skagamenn í landslið Fjórir leikmenn ÍA voru valdir í 25 manna úrtakshóp U - 19 ára landsliðs karla sem var í æf- ingabúðum helgina 18. - 19. september síðastliðinn. Leik- mennirnir eru Kristinn Darri Röðulsson, Hafþór Þ Vilhjálms- son, Heimir Einarsson og Jón Vilhelm Ákason. Þess má geta að sömu helgi var síðasta um- ferð íslandsmótsins í knatt- spyrnu og því voru leikmenn sem leika með meistaraflokki ekki í úrtakshópnum en tveir Skagamenn þeirÁgúst Örlygur Magnússon og Arnar Már Guð- jónsson hefðu án efa annars verið þeirra á meðal. GE Gervigrasvöllur vígöur í Grundarfirði Stórlið bæjarstjórnar Grundarfjarðar og Ungmennafélags Grundarfjarðar hlíða á grundfirska þjóðsönginn. Oft hafa menn heyrt íslenska knattspyrnuþjálfa kvarta yfir því að lið þeirra hafi ekki næga breidd til að byggja á. Það var hinsvegar Ijóst að ekkert skorti upp á breiddina þegar vörpu- legir bæjarfulltrúar Grundar- fjarðar voru búnir að skrýðast keppnisbúningum tilbúnir í vígsluleik á nýjum sparkvelli í Grundarfirði síðastliðinn fimmtudag. Mótherjinn var Ungmennafélag Grundarfjarð- ar og þótt engum sögum fari af úrslitum leiksins er Ijóst að hann var verðug prófraun fyrir gervigrasvöllinn sem stóð sig með mikilli prýði. Völlurinn í Grundarfirði er annar sparkvöllurinn sem tekinn er í notkun á Vesturlandi í ár og fleiri verða væntanlega vígðir á næstu dögum og vikum. GE Ný líkamsræktarstöð í Hólminum Starfsfólk íþróttahússins brá á leik fyrir Ijósmyndara Skessuhorns og spretti úr spori á þeim tækjum sem þeg- ar eru komin í nýju líkamsræktarstöðina. Það er Berglind, annar eigandanna, sem er lengst til vinstri á mynd- inni. Mynd: GE Um mánaðamótin hyggjast stöllurnar íris Símonardóttir og Berglind Þorbergsdóttir í Stykkishólmi opna nýja og fullbúna líkamsræktarstöð á jarðhæð íþróttamiðstöðvar- innar í Stykkishólmi. Opnun stöðvarinnar hefur verið í und- irbúningi í allt sumar og þegar blaðamaður Skessuhorns ræddi við þær írisi og Berg- lindi var aðeins verið að bíða eftir hluta af tækjunum sem koma ný frá Ítalíu en að öðru leyti var ekkert að vanbúnaði að opna. „Við ákváðum að fara út í þetta í vor og ástæðan var einfaldlega sú að við höfum báðar mikinn áhuga á líkams- rækt og fannst vanta góða þjónustu á þessu sviði hér í bæjarfélagið," segir íris og vísar til þess að eina líkams- ræktaraðstaðan í Stykkis- hólmi fram til þessa hefur ver- ið í litlu herbergi í kjallara í- þróttamiðstöðvarinnar. „Við ætlum að opna hérna alvöru líkamsræktarstöð og lofum því að hún verður í það minnsta ein sú flottasta á Vesturlandi og þótt víðar væri leitað." Þær íris og Berglind vildu ekki upplýsa blaðamann Skessuhorns um nafn líkams- ræktarstöðvarinnar nýju en því verður haldið leyndu þartil fyrsta opnunardaginn. Þá geta Hólmarar og nærsveit- ungar svitnað ærlega í hús- næði þar sem menn hafa kannski svitnað áður yfir próf- blöðum en þar var útibú frá Fjölbrautaskóla Vesturlands til húsa þar til í vor en útibúið var lagt niður við stofnun Fjöl- brautaskóla Snæfellinga. íris og Berglind hafa í sumar unn- ið hörðum höndum við breyt- ingar á húsnæðinu og meðal annars þurft að rífa niður veggi og reisa nýja í staðinni. í líkamsrætktarstöðinni verða öll möguleg líkamsræktartæki og auk þess aerobicsalur og teygjuaðstaða. Þá ætla eig- endurnir að bjóða upp á þjálf- un fyrir þá sem vilja en þær hafa að undanförnu verið að afla sér réttinda sem einka- þjálfarar. GE

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.