Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2004, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 30.09.2004, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004 jAtJJUtH/,.. Steinar Berg með hljómdiskaútgáfu og ferðaþjónustu í Fossatúni: Stærsti útgefandinn í Andakíl Það er óhætt að segja að í nógu sé að snúast hjá ferðaþjón- ustubóndanum og hljómdiskaút- gefandanum Steinari Berg Is- leifssyni, í Fossatúni. Hann er jöfnum höndum að byggja upp nýjan ferðaþjónustustað á bökk- um Grímsár en stendur auk þess í ströngu við útgáfu tónlistar. „Tónlistarútgáfan er að sjálfs- sögðu öll utan kvóta og óhefð- bundin í þessari sveit sem öðr- um. Guðni Agústsson kallaði mig tónlistarbónda og er ég að reyna að standa undir því starfs- heiti, án þess að ég hafi svo sem hugmynd um hvað það þýðir. En ég er engu að síður voðalega stoltur af þessari útgáfu. 'I'el að hún sýni glöggt hvemig Stein- snar er að skapa sér sérstöðu sem útgáfufyrirtæki," segir Steinar Berg í samtali við Skessuhom. Með söluhærri diskum A síðasta ári hóf Steinsnar í Fossatúni útgáfú á tónlist og náði þá strax fyrsta markmiði sínu; að verða stærsti hljóm- plötuútgefandi í Andakflshreppi. „Allar þrjár útgáfumar gengu vel og sem meira er, þá hafa tvær þeirra, Islenska vísnaplatan og Islensk ástarljóð haldið ágætri sölu á þessu ári. Heildarsala Vísnaplötunnar er komin yfir 5000 eintök og Astarljóðin í 7000 og er því ein mest selda geislaplata þessa árs,“ segir Steinar. Hjá Steinsnar liggur fyr- ir útgáfa fjögurra nýrra platna með landsþekktum listamönn- um á borð við Ellen Kristjáns- dóttur, Ragnheiði Gröndal, Birni Thoroddsen og Helga Péturssyni. I lok síðustu fjall- göngu á vegum UMSB sem far- in var á Varmalækjarmúlann í síðustu viku tengdi Steinar Berg einmitt saman tvö helstu við- fangsefni sín, því hann bauð göngufólki að skoða fram- kvæmdirnar, þjónustuhúsið og veitingahúsið; Tímann og vatn- ið, þar sem það fékk viðurgjörn- ing og Helgi Pétursson kynnti lagið „I Borgarfirði“, af væntan- legum geisladiski sínum við það tilefni. Tímiim og vatnið Eins og vegfarendur sem leið eiga um Andakílinn hafa tekið eftir er nú risið nýtt þjónustu- svæði með ýmsum mannvirkjum í Fossatúni á bökkum Grímsár. Steinar keypti jörðina Fossatún fyrir þremur árum síðan og hef- ur síðan unnið að skipulagningu þjónustufyrirtækis þar sem víða verður komið við. Uppbygging hófct af alvöru sl. vetur og gert er ráð fyrir að opna formlega um næstu Hvítasunnuhelgi. Tíminn og vatnið er í 180 fermetra húsi Steinar Berg og kona hans Ingibjörg ásamt Helga Pétursson, söngv- ara og frú á kynningunni sem göngufólk fékk sl. fimmtudag n SIM6NNTUNARMIÐSTOÐIN Á VSSTURLANDI . % Namskeiö a nœstunni! _ Enska í dreifkennslu fyrir byrjendur Ahersla á aö hver vinni á sínum eigin hraða í samræmi við þann grunn sem hann hefur. Staðbundnar lotur og fjarkennsla - 2. okt. Egilssaga í Reykholti og Borgarnesi 11. okt. ■4^ Klipping myndbanda í tölvu á Hvanneyri 11. okt. ^ Förbun í Borgarnesi 12. okt. Bókhaldsgrunnur í Borgarnesi 21. okt. Línudans í Borgarnesi 26. okt. Flóki í Borgarnesi 6. nóv. Akranes C ítar - Nokkur pláss laus. Tveir saman í tímum. Leöurvinna 6. okt. Skrautskrift 11 .okt. Klipping myndbanda 20. okt. Breytingaskeibiö 21. okt. Tcelensk matargerb 23. okt. Förbun 8. nóv. Búöardalur Thai Chi - leikfimi Skrautskrift Línudans 9. okt. 6. nóv. 16. nóv. Snæfellsbær jólakortagerb 28. okt. Línudans 30. okt. Grundarfjöröur Tœlensk matargerb 16. okt. Stykkishólmur jólakortagerb 21 .okt. Borgarnes og Borgarfj. Málun í Borgarnesi 29. sept. Tölvuleikni á Varmalandi 4.okt „Upplýsingatœkni ídreifbýli" niburgreibir 80% af námskeibsgjaldinu. Upplýsingar og skráning í síma 4372390 og á www.simenntun. is Steinar Berg ferðaþjónustubóndi i garðinum i Fossatúni. sem byggt var við eldra 140 ferm. hús sem flutt var norðan úr Mývatnssveit sl. haust og komið fýrir á grunni gamals slát- urhúss sem fyrir var á þessum fallega útsýnisstað. I Tímanum og vatninú eru m.a. tveir salir til leið og hann Iýsir fyrir blaða- manni hluta af þeim mörgu hug- myndum sem hann hefur um notkunarmöguleika hússins og þjónustusvæðisins í heild. Fimm stjömu aðstaða ýmissa mannfagnaða, setustefg^ í Fossatúni verður mikil á- kaffihús, veitingasala og fleira. hersla logð á fjölskylduvænt um- Húsið er sérstakleg^ hannað til tónleikahalds og nýtist því vel tónhstarútgáfu Steinars. „Þetta er fjölnota salur sem býður upp á fjölþætta notkunarmöguleika. Hann er nútímalega rafvæddur og þar er m.a. gott svið sem hannað er fýrir smærri tónlistar- viðburði nú eða til að þjóna hlut- verki háborðs í brúðkaupi. Auk tæknivædda salarins er innan- gengt á sambyggt útisvið sem vísar beint út á móti náttúrulegu áhorfendasvæði, sem er gróið klettabelti sem afmarkar allt þjónustusvæðið að vestanverðu. Þar getur fólk setið í brekkunni, notið útsýnis um héraðið eða niður á fossana í Grímsá milli þess sem það fýlgist með atrið- um á sviðinu,“ segir Steinar um hverfi og afþreyingú." Staðurinn er miðsvæðis í héraðinu og hægt verður að koma húsbflum eða tjaldvögnum fýrir, njóta þess sem staðurinn hefur upp á að bjóða og ferðast um héraðið þess á milli. Sérstakt þjónusmhús við tjaldstæðin er nú risið en þar er baðaðstaða, heitir pottar, gufú- bað og þvotta- og þurrkaðstaða eins og best gerist á áningarstöð- um af þessu tagi. Auk þess hefur verið reist gríðarmikið mann- virki sem er leiksvæði fýrir börn, enda verður lögð sérstök áhersla á þarfir fjölskyldufólks á Fossa- túni, eins og áður segir. Jafn- framt er í undirbúningi gerð 9 holu golfvallar austan vegarins. MM Tíminn og vatnið á bökkum Grímsár. Fjær eru tjaldstæði, þjónustu- hús og leiksvæði afmarkað af mikilli mön sem veita mun skjól þeim sem þar dvelja.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.