Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2004, Page 2

Skessuhorn - 30.09.2004, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004 jntsaunu.- Til minnis Við minnum á að mánu- daginn 4. október kl. 20 hefur Briddsfélag Borgar- fjarðar vetrarstarfsemi sína. Spilað er í Logalandi öll mánudagskvöld og hefst spilamennskan stundvís- lega klukkan 20:01. Byrjað verður á eins kvölds tví- menningi. Léttur andi svíf- ur yfir vötnunum. Við minnum ennfrekar á allt annað sem er á döfinni á Vesturlandi. Sjá bls. 37 eða www.skessuhorn.is Veðúrhorfwr Sumarblíðan er búin og hið íslenska haustveður tekið við. Um helgina fáum við Vestlendingar að kynnast því . Það verður rigning en frekar stillt. Hiti á bilinu 4-8 stig. Heldurðu að Bartdaríkja- menn óttist ekki að þú sért úlfur í sauðagceru Sindri í Ijósi allra örygg- isráðstafana sem þar hafa verið gerðar vegna hryðjuverkamanna? Ég held að þeir sjái það strax, Bush og félagar að ég er sauðmeinlaus með öllu. Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, sauðfjár- bóndi er á leiðinni til Ameríku tii að taka þátt í matvœlaráðstefnu og kynn- ingu á íslensku lambaketi í Bandaríkjahreppi. Spnrnin^ viknnnar í þessari viku er spurt á www.skessuhorn.is: „Hvert er þitt uppáhaldsliö í ensku knattspyrnunni?" Láttu ekki standa á svari! www.skessuhorn.is Vestlendincjivr viNnnar Er Jón Odd- ur Halldórs- son frjálsí- þróttamað- ur frá Hell- issandi sem vann tvenn silfurverðlaun á Ólympíuleikum fatlaðra í Aþenu. Tollhöfii í Grundarfirði? Hafnarstjóm Gmndarfjarð- ar hefur ákveðið að óska eftír því við fjármálaráðherra að Gmndarfjarðarhöfn verði gerð að aðaltollhöfn. „Það breytir því að við getum tekið inn er- lend skip sem hefðu þá Grand- arfjarðarhöfn sem fyrsta eða síðasta viðkomustað hér á landi,“ segir Björg Agústsdótt- ir bæjarstjóri Grundarfjarðar. „Helstu rökin eru stóraukin umferð skemmtiferðaskipa og aukning á skipakomum al- mennt. Þá er mikið um löndun iðnaðarrækju tíl vinnslu hér á staðnum og einnig eru áform um byggingu frystihótels í tengslum við starfsemi hafnar- innar. Því teljum við að það geti styrkt höfnina og atvinnu- lífið á staðnum ef þetta gengur eftir,“ segir Björg. GE Teikning Aihönnunar af framhlið hússins, séð frá Kirkjubraut. Brátt byggt á Hvítan esrei tn u m Gert er ráð fyrir að ffam- kvæmdir við nýtt fjögurra hæða verslunar- og fjölbýlishús á Hvítanesreiti á Akranesi, hefjist í byrjun október. Nú hafa alls fjögur eldri hús vikið af væntan- legu byggingarstæði, þ.e. húsin við Kirkjubraut 12, 14, 16 og 18. Auk þess mun akstursleið um Akurgerði ffá Kirkjubraut lokast þar sem húsið nær yfir enda götunnar. Það er fýrirtækið Sveinbjörn Sigurðsson hf. sem stendur fyr- ir framkvæmdinni. „Við mun- um væntanlega fara af stað strax og lögbundnu skipulagsferli lýkur, líklega uppúr næstu mán- aðamótum,“ sagði Sveinbjörn Sveinbjörnsson, framkvæmda- stjóri í samtali við Skessuhorn. Hann segir að grenndarkynn- ing verði í næstu viku fyrir íbúa í nærliggjandi húsum og að hönnun hússins sé á lokastig- um. Samstarfsaðili SS verktaka um hönnunina er Runólfur Þ Sigurðsson hjá Alhönnun, en hann hannaði einnig skrifstofu- og íbúðarhús að Garðabraut 2a auk fjöleignahúss við Eyrarflöt 6 sem SS verktakar byggðu. Húsið á Hvítanesreitnum verður 4 hæðir. A jarðhæð verð- ur rúmlega 700 fermetra versl- unarrými. Fyrir framan og und- ir húsinu verður bílgeymsla og aðrar geymslur. A þremur efstu hæðunum verða alls 20 íbúðir og segir Sveinbjörn að vandað sé til hönnunar og gæða þeirra en lögð verði áhersla á að verð íbúðanna verði samkeppnis- hæft. Fyrsta hæð hússins verður staðsteypt en hinar þrjár verða reistar úr Smellinn húseining- um frá Þorgeiri og Helga hf. á Akranesi. Aðspurður um hvort búið sé að ráðstafa verslunar- rýminu á jarðhæðinni segir Sveinbjörn að þegar sé búið að eyrnamerkja ákveðnum kaup- mönnum stærstan hluta versl- unarrýmisins, eða um 70-80% þess. Gert er ráð fyrir að fram- kvæmdum við húsið ljúki fyrir sumarið 2006. MM Þvottaskjóður útrýma stöku sokkapörunum Það er ýmislegt í gangi í Saur- bæ í Dölum en nýjum fyrirtækj- um fjölgar þar með degi hverj- um. Fyrir voru Saumastofan Saumur, Fóðuriðjan Olafsdal og Trésmiðja Kára Lárussonar. Ný- lega var eyrnapinnafyrirtækið „Skarp“ keypt og flutt þangað frá Hvammstanga og svo fyrir fáum dögum bættist fyrirtækið Nytjasaumar við starfsemina í Saurbæ, en það fyrirtæki var áður á Reykhólum. ,Já það er rétt að við emm að bæta við okkur fyrirtækjum og reyna að auka fjölbreytnina. Svava Hjartardóttir, Ingveldur Guðmundsdóttir, Herdís Matthíasdóttir, Núna em þetta orðin þrjú fýrir- Erla Karlsdóttir og Svanhildur Sigurðardóttir við störf. Ljósm. GB tæki undir sama þaki í húsnæði Saumastofunnar Saums,“ segir Ingveldur Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Saumi í samtali við Skessuhorn. „Við keypmm fýrirtækið Nytjasauma ehf. frá Reykhólum fýrir skömmu en þar hafa tvær dugnaðar konur rekið fýrirtækið í nokkur ár og gengið vel. Nytjasaumar framleiðir skjóður til að setja í þvott sem fólk vill hafa flokkaðan í þvottavélinni. Það kannast allar húsmæður við vandamálið með sokkapörin, en ef allir á heimilinu hafa sína þvottaskjóðu verður ekkert vandamál með þvottinn og stöku sokkapörin. Þvottaskjóð- urnar em sérhannaðar fýrir við- kvæman þvott, svo sem brjósta- haldara og blúndunærbuxur,“ segir Ingveldur. Auk þess ffam- leiðir Saumur mámnarhetmr sem notaðar em í öllum betri tískuvöruverslunum landsins,“ sagði Inga um leið og hún sýndi blaðamanni húsakynnin sem framleiðslan fer fram í. Hjá Saumi era auk þess ffamleiddar sængur, koddar, hlífðardýnur, eyrnapinnar og nú þvottaskjóð- ur, svo eitthvað sé talið. „Við vonum að með þessum kaupum gemm við gert Sauma- stofuna Saum sterkara fýrirtæki og um leið fjölgað störfum fýrir konur hér í Saurbænum,“ sagði Ingveldur að lokum. G.Bender Fiðlarinn á þakinu Leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi er að hefja vetrarstarfið um þessar mundir. Nokkur leynd hvílir reyndar yfir fýrirætlunutn Grímnismanna í vemr. Sam- kvæmt heimildum Skessu- horns er þó ekki ætlunin að liggja í hýði heldur mun leikfélagið ætla að ráðast í það stórvirki að setja upp Fiðlarann á þakinu. Leikstjóri verður væntan- lega Ingunn Jensdóttir sem er með reynslumeiri leik- stjómm landsins og hefur sett upp fjölda viðamikilla og vel heppnaðra sýninga. GE Héðinn verð- launaður Borgnesingurinn Héðinn Unnsteinsson hlaut fyrir smtm viðurkenningu frá Al- þjóða geðheilbrigðissamtök- unum sem úmefndu verk- efnið Geðrækt sérstaklega sem fýrirmyndarverkefni á sviði geðræktar. Viðurkenn- ingin og peningaverðlaun vora veitt á alþjóðlegri ráð- stefnu sem haldin var á Nýja - Sjálandi. Héðinn var verkefnisstjóri Geðræktar og aðalhvata- maður að stofnun verkefnis- ins en hann starfar nú á skrifstofu Alþjóða heil- brigðismálastofnunarinnar í Kaupmannahöfn. GE Veiðiminja- safii Á síðasta fundi bæjarráðs Borgarbyggðar var rætt um hugsanlega stofnun veiði- minjasafns í Borgarbyggð. „Það hefur lengi legið fýrir að í Ferjukoti væri tíl vísir að slíku safni og hefur Þorkell Fjeldsted unnið gott starf við að halda því sem þar er að finna til haga,“ segir Páll Brynjarsson bæjarstjóri Borgarbyggðar. „Það er á- hugi fýrir því að kanna möguleika á að gera þetta að alvöra safni en það er ljóst að það þarf að leggja í vinnu og kostnað við skráningu og einnig að afla muna annars- staðar frá. Það liggur ekki fýrir hvort af þessu verður en þetta væri vissulega spennandi verkefni og liggur býsna beint við hér í mekka laxveiðinnar,“ segir Páll.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.