Skessuhorn - 30.09.2004, Page 20
20
FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004
Til fróðleiks fyrir lesendur kynnum
við hér nokkrar staðreyndir um Skessuhom:
H|
Skessuhom er þessa vikuna sent til allra
heimila og fyrirtækja á Vesturlandi, allt
frá Hvalfirði til Reykhóla, í um 6000
eintökum. Blaðið er stærra í síðum talið
en venjulega, en öllu jafna er það 16 til 20
síður en nokkrum sinnum á ári stærra.
Skessuhorn hefur nú sem fyrr það
aðalmarkmið að sinna fréttaflutningi
af öllu Vesturlandi. Ekkert innan
svæðisins er blaðinu óviðkomandi, hvort
sem þallað er um mannlíf, menningu,
viðburði, íþróttir, félagsstarf eða starfsemi
sveitarfélaga. Blaðið kemur út 50 sinnum
/ / •
a an.
Skessuhom ehf. er útgefandi blaðsins.
Hjá fyrirtækinu eru 6 starfsmenn í um 4
stöðugildum auk 10 blaðburðabarna á
stærstu þéttbýlisstöðum Vesturlands.
Einnig eru nokkrir fréttaritarar og
ljósmyndarar sem senda myndir og fréttir
frá sínum heimabyggðum. Auk þeirra er
ótölulegur fjöldi fólks sem gaukar jaínt og
þétt að starfsmönnum blaðsins
ábendingum um fréttir, myndir og ýmsum
fróðleik og emm við þakklát þessu ágæta
fólki - án þess væri einfaldlega ekki hægt
að gefa blaðið út.
Mælingar sýna að um 80-85% íbúa í
Borgarfirði, Borgarnesi, Dölum og á
Akranesi lesa Skessuhorn í viku hverri. A
Snæfellsnesi er hlutfallið heldur lægra,
eða 60-70%, mismunandi eftir
byggðarlögum. Þannig þjónar blaðið best
allra fjölmiðla miðlun upplýsinga um
daglegt líf og störf íbúa á Vesturlandi.
Skessuhorn er tvímælalaust eitt
útbreiddasta héraðsfréttablað landsins -
blað sem allir taka eftir og vitna til.
Gegnumsneitt er rekstur héraðsfréttablaða
á hinu litla Islandi erfiður. Við kvörtum
þó ekki og fögnum því að rekstrarlega er
útgáfan á þessu ári komin í viðunandi
jafnvægi og þökkum við það vaxandi
lesendahópi. Við fögnum þó hverjum
nýjum áskrifanda því vissulega munar
okkur um hvem og einn nýjan
kaupanda sem við bætist. Því sendum
við út þetta kynningarblað með
upplýsingum um hvernig þú;
Vestlendingur góður, getur sótt um áskrift
að blaðinu. Nýjum áskrifendum býðst
nú að panti þeir áskrift á næstu dögum,
eða fyrir 15. október nk. verða
októberblöðin send þeim að
kostnaðarlausu.
Blaðið hefur skrifstofur sínar í Borgarnesi
og á Akranesi. Síminn er 433-5500,
faxnúmer 433-5501, tölvupóstfang
skessuhorn@skessuhorn.is og veffang
www.skessuhorn.is
Askriftarverð Skessuhorns er þannig: Elli-
og örorkulífeyrisþegar fá mánaðaráskrift
af blaðinu fyrir 650 krónur. Almennt
áskriftarverð er 750 krónur á mánuði, sé
greitt með greiðslukorti, en 850 krónur
sé greitt með greiðsluseðlum sem sendir
eru út annan hvern mánuð. Blaðið er selt
í lausasölu á öllum helstu
þéttbýlisstöðum á Vesturlandi og á
fimm sölustöðum á
höfuðborgarsvæðinu. Lausasöluverð er
300 krónur.
Hægt er að gerast áskrifendur næstu daga með að hringja í aðalnúmer blaðsins
433-5500. Tekið verður við pöntunum firá klukkan 9-22 alla daga til 15. október
nk. en eftir það á almennum skrifstofutíma. Einnig bendum við á að hægt er að
panta áskrifi: á heimasíðu blaðsins: www.skessuhom.is
Verið velkomin í hópinní
r
Skessubom ehf.