Skessuhorn


Skessuhorn - 10.11.2004, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 10.11.2004, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 10. NQVEMBER 2004 jatSðUtlUi.. Akveðið að stækka Norðurál erm meira Gert er ráð fyrir að 350 manns muni starfa við álver Norðuráls eftir að stækkuninni lýkur Ein af stórfréttum síðustu viku, en sem ótrúlega lítið fór fyrir vegna annarra stórfrétta hér heima og erlendis, var ákvörðun um enn meiri stækkun álverk- smiðju Norðuráls á Grundar- tanga en ráð hafði verið fyrir gert. Nú hefur verið samið um raforkusölu til stækkunar um 32.000 viðbótartonn á ársgrund- velli. Viðbótin gerir það að verk- um að heildarframleiðslugeta verksmiðjunnar verður 212 þús- und tonn haustið 2006. Verður verksmiðja Norðuráls þá stærsta álverksmiðja landsins. Samið hefur verið um að Orkuveita Reykjavíkur og Hita- veita Suðurnesja munu auka raf- orkusölu sína til fyrirtækisins um 54 MW vegna þessa. Jafnframt er stefnt á átta þúsund tonna stækkun að auki seint á árinu 2006 sem eykur þá raforkusöl- una um 15 MW en það er háð samningum um orku og orku- flutninga. Auk þessa hafa Orku- veita Reykjavíkur og Norðurál ákveðið að kanna forsendur fyrir orkuviðskiptum fyrir allt að 40.000 tonna stækkun til viðbót- ar, þannig að þar með næði ál- verið 260.000 tonna stærð. Gert er ráð fyrir að samningar þessa efnis verði endanlega undirritað- ir eftir eina til tvær vikur. Gríðarleg mannaflaþörf Rösklega 800 manns munu starfa að jafnaði við uppbygg- ingu orkuvera og verksmiðju Norðuráls á Grundartanga. Þegar framkvæmdum lýkur munu um 30 - 40 manns vinna við virkjanirnar og rúmlega 350 manns starfa hjá Norðuráli, en þar af bætast við um 160 ný störf vegna stækkunarinnar. Að auki verður um fjölda afleiddra starfa að ræða en reynslan sýnir að fyr- ir hvert nýtt starf í álveri verða til a.m.k. eitt og hálft annað starf í samfélaginu og munar um minna hér á Vesturlandi í ljósi þess að mikill meirihluti starfs- manna mun búa á svæðinu, verði þróunin eins og við fyrri stækk- anir verksmiðjunnar. Gert er ráð fyrir að verðmæti aukningar á útflutningi frá Islandi vegna stækkunar álvers Norðuráls í 212.000 tonn nemi tæpum 4 milljörðum á ári. Jarðvegsframkvæmdir hjá Norðuráli á Grundartanga vegna stækkunar í 180.000 tonn eru langt komnar og verið er að steypa undirstöður undir nýja kerskála. Jarðboranir hafa lokið um helmingi borframkvæmda fyrir Orkuveitu Reykjavíkur og ÚTFLUTNINGSRÁÐ ÍSLANDS TRADE COUNCIL OF ICELAND Hagvöxtur á heimaslóð Ferðaþjónusta á Vesturlandi Þróunarverkefnið Hagvöxtur á heimaslóð (HH) miðar að því að aðstoða íslensk fyrirtæki í ferðaþjónustu við að nýta markaðstækifæri erlendis. Verkefnið hefst í lok nóvember. í fyrsta hluta verkefnisins gefst ferðaþjónustu- fyrirtækjum á Vesturlandi kostur á að taka þátt. HH-verkefnið er ætlað framkvæmdastjórum, stjórnendum og starfsmönnum lítilla og meðal- stórra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Helstu atriði verkefnisins: Verkefnið byggir á fjórum tveggja daga vinnu- fundum sem haldnirverða á tímabilinu nóvember til apríl. Áhersluatriði verkefnisins eru hagnýt útflutningsmarkaðsfræði, vöruþróun og stjórnun. Á milli vinnufundanna vinnur ráðgjafi náið með fyrirtækjunum. Nánari upplýsingar um HH-verkefnið gefa Guðjón Svansson, gudjon@utflutningsrad.is, eða Hermann Ottósson, hermann@utflutningsrad.is. - Útflutningsráð íslands stendur fyrir verkefninu s /' samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar, Impru f nýsköpunarmiðstöð, LandsMennt, Mími- g símenntun, Ferðamálasetur íslands og Byggða- 5 stofnun. FERÐAMÁLASETUR ÍSLANDS <í> impra nýsköpunarmiðstöð Byggðastofnun j2jtU]U! B« LandsMennt III OTFLUTNINCSRÁÐ islands Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 utflutningsrad@utflutningsrad.is • www.utflutningsrad.is — 3, Norðurál á Grundartanga. Myndin var tekin í vor, daginn sem fyrsta skóflustungan var tekin að stækkun verksmiðjunnar. Hitaveitu Suðurnesja og jarð- vegsframkvæmdir vegna mann- virkjagerðar eru hafnar. Með framkvæmdunum skap- ast mörg störf bæði hjá orkufyr- irtækjunum og Norðuráli. Hér á Vesturlandi gætir áhrifanna þó e.t.v. mest þegar stækkunarfram- kvæmdum lýkur og allur sá við- bótar mannafli sem þarf við reglubundna starfsemi verk- smiðjunnar verður byrjaður. Auk þessara áhrifa hér á Vesturlandi má geta þeirrar fjölþættu þekk- ingar og reynsla sem ávinnst með virkjun háhitasvæða á Is- landi en sú þekking mun nýtast á fleiri sviðum verðmætasköpunar þegar ffam í sækir. Þannig munu framkvæmdirnar í heild sinni skapa gríðarlega þekkingu við virkjun svokallaðrar vistvænnar orku og til þess fallnar að lág- marka losun úrgangsefna við framleiðslu áls. MM Mikill hagnaður af J ámblendiverksmiðjunm Langtíma áform Elkem felast í stækkun á Grundartanga náist hagstæðir raforkusamningar Verksmiðjuhús Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga. Forsvarsmenn El- kem, eiganda Járn- blendiverksmiðjunnar á Grundartanga áforma að stækka verksmiðjuna og bæta jafnvel við tveimur nýjum ofnum. Þetta kemur fram í við- tali í norska blaðinu Af- tenposten við Johan Svensson, forstjóra El- kem. I viðtalinu kemur fram að heimsmarkaðs- verð á járnblendi sé nú um 1100 dollarar tonn- ið og hefur meira en tvöfaldast frá árinu 2002. Hagnaður er af rekstri verksmiðjunnar ef verðið á tonni er yfir 600 dollarar og því mali verksmiðjan nú nánast gull. Hagnaður á síðasta ári hafi ver- ið um 50 milljónir norskra króna, rúmar 530 milljónir ís- lenskra króna, og er haft eftir Svensson að búist sé við að hagnaðurinn í ár verði ekki minni. Svensson segir í viðtalinu við Aftenposten að framleiðslu- kostnaður á Islandi sé mun lægri en í Noregi. „Með tilliti til hvernig raforkuverð er að þróast í Noregi er verð fyrir kílówattsstundina 20 aurum [norskum aurumj lægri á Is- landi,“ segir Johan Svensson, forstjóri. Þá segir hann hið póli- tíska umhverfi á Islandi stöðugra en hið norska og þannig jákvæðara í garð stór- iðju. Akvörðun um stækkunina gæti legið fyrir á næstu 1-2 árum. Viðræður fyrirtækisins við orkusölufyrirtækin Lands- virkjun, Orkuveim Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja eru nú á frumstigi en framtíð verkefn- isins ræðst af því að takist að tryggja orkukaup á hagstæðum kjörum. Þá er fyrirtækið einnig að skoða aðra framleiðslu á Grundartanga, sérhæfðari vöru og er þá einkum átt við magnesíumjámblendi. Ef af stækkun Járnblendi- verksmiðjunnar verður er gert ráð fyrir að verksmiðjan gæti skapað um 100 ný störf og þar af 50-60 störf við verksmiðjuna sjálfa. MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.