Skessuhorn


Skessuhorn - 10.11.2004, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 10.11.2004, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 10. NOVEMBER 2004 ^atsaunu... Dreifingarsvæði íslandsmiðils, sem markaðssetur útsending- ar þessar undir heitinu Vat+. Stafrænt sjónvarp Um síðustu mánaðamót hóf fjarskiptafyrirtækið Is- landsmiðill ehf., sem er í eigu Landsvirkjunar, formlega út- sendingu fyrsta þráðlausa, stafræna sjónvarpsdreifikerf- isins hér á landi. Utsending- arsvæðið er í fyrstu einskorð- að við suðvesturhorn lands- ins og nást útsendingar eink- um á höfuðborgarsvæðinu á sendi sem staðsettur er á Blá- fjallasvæðinu. Utsendingar frá honum nást þó einnig á Akranesi og vestast á sunnan- verðu Snæfellsnesi auk hluta Suðurlands. Samtals er þannig áædað að um 65% heimila sé í þeim geisla frá Bláþöllum sem um ræðir. I tilkynningu frá fyrirtækinu segir m.a. að boðið verði upp á 9 erlendar sjónvarpsstöðvar ásamt 3 íslenskum stöðvum; Rúv, Skjá einum og Popp TV Sú útsendingatækni sem íslandsmiðill nýtir sér er að grunni til sama tækni og nýtt er til stafrænna útsendinga frá gervihnöttum sem er mest notaða stafræna útsend- ingartæknin í dag. MM Hótel Ólafs- vík enn lokað Enginn kaupandi er enn kominn að Hótel Olafsvík sem lokað var um mánaða- mótin ágúst-september. Byggðastofnun á húsið og hefur til sölu en áhugi virðist vera lítill, heimamönnum til lítillar gleði. GE Skákmótí fíólminum Um mánaðamótin var haldið aðlþjóðlegt skákmót í Stykkishólmi þar sem öttu kappi skákmenn á ýmsum aldri frá Snæfellsbæ, Reykja- vík og Stykkishólmi. Þá mætti til leiks hinn þekkti danski stórmeistari Henrik Larsen sem tefldi m.a. fjöltefli við gesti og gang- andi. Henrik tefldi síðan með Hólmurum í sveitakeppninni enda eðlilegt þar sem Stykk- ishólmur er hálfdanskur bær. GE Vmnumarkaðurinn annar ekki auknum umsvifum Loftorku Fyrirtækið hefnr sótt um atvinnuleyfi fyrir 47 Pólverja Bílar Loftorku hafa ekið sem nemur 20 sinnum í kringum jörðina á þessu ári. 138 í dag og hafa aldrei verið Gríðarlegur uppgangur er í byggingarfyrir- tækinu Loftorku í Borgarnesi ehf. en vöntun á vinnuafli er hins- vegar að byrja að há fyrirtækinu. Að sögn Konráðs Andréssonar í Loftorku hefur verið auglýst eftir vinnuafli vikum saman en ekki gengið sem skildi að ráða. „Við höf- um tekið við öllum sem hafa komið en þessi vinna hentar mönnum misjafnlega þannig að starfsmannaveltan hefur verið nokkuð hröð.“ Sextán erlendir verkamenn starfa nú hjá Loftorku en alls hefur fyrirtækið sótt um 47 at- vinnuleyfi fyrir Pólverja þannig að væntanlega mun eitthvað rætast úr á næstunni. Starfsmenn hjá Loftorku eru fleiri. „Það hefur aldrei verið jafn ntikið að gera og pantanir hrúgast inn. Við erum að byggja á Bifröst, steypa eining- ar fyrir álverið, parhús í Mos- fellsbæ og skóla í Grundarfirði. Síðan erum við að steypa undir- stöður og stagfestur fyrir línuna frá Grundartanga á Brennimel. Þetta er í raun orðið að stórum hluta verksmiðja sem ffamleiðir bygginarefhi sem aðrir vina úr. Við erum meðal annars að steypa einingar í blokkir, stiga, holplötur og allt mögulegt að ógleymdum rörunum sem er mikil sala í,“ segir Konráð. Hann segir til marks um um- svifin að undanförnu að frá ára- mótum hafi fyrirtækið framleitt á annað hundrað kílómetra af rörum og bílar fyrirtækisins hafi ekið sem nemur 20 sinnum í kringum jörðina. GE Undirbúningi að ljúka Undirbúningi Snæfellsness fyrir vottun Green Globe 21 er formlega lokið en í síðustu viku skiluðu fyrirtækin sem séð hafa um ráðgjöf og verkefnis- stjórn formlega af sér. Það eru Leiðarljós ehf og Umís ehf sem hafa annast þá vinnu. Sagði Stefán Gíslason frarn- kvæmdastjóri Umís við þetta tækifæri að sveitarfélögin á Snæfellsnesi væru komin á undan öllum öðrum í sinni vinnu og að augu annarra myndu beinast að þeirri vinnu sem verið væri að vinna á Snæ- fellsnesi. GE Stefán Gíslason afhendir Kristni Jónassyni bæjarstjóra Snæfellsbæjar eintak af skýrslu um vottun Green Globe 21 fyrir Snæfellsnes. Fundur viðbragðsaðila eftir rútuslysið Það er samdóma álit lög- reglu, björgunaraðila og ann- arra sem hlut eiga að máli að starfsmenn Sjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi hafi staðið af fag- mennsku og hnökralítið að móttöku slasaðra þegar rúta með 45 starfsmönnum Norð- uráls fór útaf í aftakaveðri við Akrafjall 19. október sl. Þetta kom fram á fundi í Borgarnesi sem haldinn var með fulltrúum frá SHA, Neyðarlínunni, full- trúa Almannavarnaskrifstofu ríkislögreglustjóra, sýslu- mönnunum á Akranesi og í Borgarnesi og yfirlögreglu- þjónum á þessum stöðum í lok síðasta mánaðar. A fundinum var farið yfir atburðarás frá upphafi til enda og staldrað við einstaka þætti. „Aðilar voru sammála um að vinnubrögð hafi verið markviss og björg- unaraðilar sýnt rétt viðbrögð við erfiðar kringumstæður. Það kom fram í máli flestra þeirra sem í hlut áttu að fjarskipti og samskipti voru veikir hlekkir í hjálparstarfinu. Þetta leiddi til þess að upplýsingamiðlun var af skornum skammti, einkum til SHA. Vegna eðli slyssins og aðstæðna töldu menn þó að þessir agnúar hefðu ekki kom- ið að sök eða haft umtalsverð áhrif á björgunarstarfið," sagði Guðjón Brjánsson, fram- kvæmdastjóri SHA í samtali við Skessuhorn. MM Nafharáð verði skipað A fundi samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélag- anna sunnan Skarðsheiðar sem haldinn var í Miðgarði 19. október sl. var samþykkt að skipa þriggja manna sam- starfsnefnd í svokallað Nafnaráð. Nafnaráð skal bjóða öllum sem áhuga hafa að skila inn tillögu um nafn á nýju sveitarfélagi ef samein- ing verður samþykkt í at- kvæðagreiðslu þann 20. nóv- ember nk. Nafiiaráð getur sjálft einnig komið með til- lögur að nafni. Einnig var samþykkt að Nafnaráð skuli hafa samráð við Ornefna- nefnd, eins og áskilið er í sveitarstjómarlögum og að öll framkvæmd tillagna um nafn á nýtt sveitarfélag verði í höndum nefndarinnar. Nafnaráðið skal velja úr framkomnum tillögum 3-5 nöfn á hið nýja sveitarfélag og skal kosið um þau sam- hliða sveitarstjórnarkosn- ingum 2006. A vefnum hvalfjordur.is kemur ffam að tillaga þessi hafi verið send til afgreiðslu til sveitarstjórnanna á svæð- inu og hafi hún þegar verið samþykkt í Skilmanna- hreppi. MM Kvöld- opnun Nokkrar verslanir í Stykk- ishólmi hafa komið til móts við óskir viðskiptavinanna með því að hafa opið á fimmtudagskvöldum. GE Matur og saga Það er oft rætt um það hér á landi að gera sér mat úr sögunni. Það eru samt ekki margir sem hafa gert það á eins bókstaflegan hátt og Borgameskjötvörur sem em reyndar með söguna á matn- um ef svo má segja. A nýjum umbúðum utan tun álegg og fleiri kjötvömr er nefiiilega að finna ýmsa fróðleiksmola úr sögu héraðsins. Meðal annars þetta á hangiketinu: „I Skallagrímsgarði er mjög fal- leg lágmynd eftir danska listakonu sem sýnir Egil Skallagrímsson reiða lík Böðvars sonar síns til hinstu hvílu.“ GE

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.