Skessuhorn


Skessuhorn - 10.11.2004, Side 13

Skessuhorn - 10.11.2004, Side 13
 MIÐVIKUDAGUR 10. NOVEMBER 2004 13 Bormenn voru komnir 10 metra niður án þess að mæta föstu undiriagi þegar þessi mynd var tekin sl. laugardag á Skagaverstúninu. Gárung- ar á Skaganum hafa gert því skóna að svo djúpt gæti verið niður á fast að umræddar íbúðablokkir verði níu kjallarhæðir og ris. Þessar upplýsingar eru þó ekki seldar dýrar en þær voru keyptar. Skagaverstúninu eða Miðbæjar- reitnum á Akranesi, þar sem fyr- irhugað er að reisa tvær 9 hæða íbúðablokkir og verslunarmið- stöð. I síðustu viku, þegar grafa var fengin til að kanna jarðlög, kom í ljós að dýpra var niður á fast en grafan náði og því þurfti að kalla til tæld sem næðu enn neðar. Að sögn Björns S Lárus- sonar, talsmanns verktaka á fyr- irhuguðu byggingarsvæði, var verið að kanna jarðlög og vatns- gang til að vita til hvaða ráðstaf- ana þarf að grípa til að koma í veg fyrir hugsanlegt sig á lóðun- um í kringum túnið, en það er gert samkvæmt kröfum í deiliskipulaginu. „Það liggur fyrir að það er djúpt niður á fast og þar við bætist að þarna er falskt leirlag eða móhella með blautum jarðvegi undir. Þetta þýðir að jarðvegsskipti undir þessum húsum verða kostnaðar- söm en óhjákvæmileg m.a. þar sem háhýsin verða mikið farg og því nauðsynlegt að gera allar viðeigandi ráðstafanir áður en ffamkvæmdir hefjast.“ Framkvæmdir við byggingu og utanhússfrágang á fyrri í- búðablokkinni voru boðnar út um síðustu helgi og gert ráð fyr- ir að þær hefjist í vetur og þeim ljúki upp úr áramótum 2005/2006. „Verslunarmiðstöð- in fer síðan í alútboð um miðjan nóvember en í því felst allt frá hönnun miðstöðvarinnar til fullnaðarfrágangs,“ sagði Björn. MM Níu hæða kjallaii og ris? Um síðustu helgi var unnið við að taka tilraunaborholur á ÚTBOÐ l Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. byggir nýjar höfuðstöðvar fyrir Sparisjóð Mýrasýslu í Borgarnesi. Oskað er eftir tilboðum í 2. áfanga verksins, innanhússfrágang, lagnir, loftræsikerfi og raflagnir. Utboðsgögn verða afhent frá og með miðvikudeginum 3. nóvember á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. Armúla 4, 108 Reykjavík og Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnesi. Tilboðum skal skilað á skrifstofu VST í Borgarnesi miðvikudaginn 24. nóvember kl. 14:00 og verða þau opnuð þar. E F F Fasteign H F vsr IrS Lidar breytingar á gjöldum Á síðasta fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar var gjald- skrá þjónustu á vegum bæjar- félagsins ákveðin fyrir árið 2005. Flestar álögur haldast óbreyttar frá yfirstandandi ári en fyrir því eru gild rök, svo sem að útsvarsprósenta hefur verið í hámarki, 13,03% og því ekki mikið hægt að hreyfa við henni. Gert er ráð fyrir óbreyttri á- lagningu fasteignagjalda, þ.e. að álagningarprósenta íbúð- arhúsnæðis verði 0,431% af álagningarstofni og 1,275% af öðru húsnæði þ.m.t. at- vinnuhúsnæði. Lóðarleiga verði 1,0% af lóðarmati í- búðarhúsnæðis og 1,5% vegna atvinnuhúsalóða. Hol- ræsagjald verði 0,20% af fast- eignamati fasteigna. Þjónustugjöld leikskóla hækka um 5% frá 1. janúar og gjald fyrir skóladagvist yngstu barna í grunnskólun- um hækkar einnig um 5%. „Við erum þarna að mæta hækkun á launaliðum og til að koma til móts við almenn- ar verðlagshækkanir sem orðið hafa,“ sagði Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari, aðspurð- ur um ástæður hækkunarinn- ar. Hann segir að einnig verði hækkun á gjaldi fyrir þjónustu sorpmóttökustöðv- ar Gámu. Aðrar álögur og skattar af hálfu Akraneskaup- staðar breytast ekki milli ára. MM Stykkishólmsbær hélt sína fyrstu árshátfð fyrír starfsfólk sitt um síð- ustu helgi. Árshátíðin þótti heppnast afar vel en hún var haldin á Hót- el Stykkishólmi. SamkauD fwrval Samskaupsmerkingar eru nú komnar á verslanir Kaupfélags Borgfirð- inga í Borgarnesi og á Akranesi. Mynd: MM Tilkynning frá samstarfsnefnd um sameiningu Hvalfjarðarstrandarhrepps, Innri Akraneshrepps, Leirár- og Melahrepps og Skilmannahrepps um framlagningu kjörskrár Kjörskrá vegna kosninga um sameiningu Hvalfjarðarstrandarhrepps, Innri-Akraneshrepps, Leirár- og Melahrepps og Skilmannahrepps, sem ffam fer 20. nóvember 2004, mun liggja frammi almenningi til sýnis á skrifstofu sveitarfélaganna á opnunartíma skrifstofú, eða eftir nánara samkomulagi, frá og með miðvikudeginum 10. nóvember til og með föstudagsins 19. nóvember. Oskum um leiðréttingar á kjörskrá skal komið á framfæri við oddvita viðkomandi sveitarfélags eins fljótt og unnt er. 1 Tekið skal fram að óheimilt er að breyta kjörskrá ef ! tilkynning um nýtt lögheimili hafði ekki borist þjóðskrá j fyrir 30. október 2004. jjj 5. nóvember 2004 Samstarfsnefnd um sameiningu hreppanna sunnan Skarðsheiðar. HauÉnótlmndanwa í Miðgarði, Akranesi 13. nóvember 0ú Óli Geir sér um danskennsluna ( » frá 12:00-18:00 Kvöldverður kl 20:00 Glæsilegt happdrætti Og svo verður dansað fram á rauða nótt YEEEEHHAAA MótsgiaU3-900kr.ra, Skráning í síma 899-2228 eða á eygloto@simnet.is ALLIR velkoiimir

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.