Skessuhorn


Skessuhorn - 10.11.2004, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 10.11.2004, Blaðsíða 23
^&esaunu.. MIÐVIKUDAGUR 10. NOVEMBER 2004 23 -y isienska járnblendifélagið hf. ■..22.y Gunnar Sigurðsson ÍA, og Johan Svensson forstjóri ÍJ skrifa undir samninginn. Við hlið þeirra stendur Helgi Þórhallsson. Mynd: GE Tímamótasamningur ÍA og íslenska járnblendifélagsins I gær var undirritaður á Grundartanga styrktarsamn- ingur milli Knattspyrnufélags ÍA og íslenska járnblendifé- lagsins á Grundartanga. Samningurinn felur í sér að ís- lenska járnblendifélagið verð- ur einn af stærstu styrktaraðil- um knattspyrnufélagsins árin 2005 og 2006. Það sem hins- vegar er nýjung í samningi af þessu tagi er að í samningn- um er kveðið á um að starfs- mönnu (J og fjölskyldum þeirra berður boðið á einn heimaleik ÍA í Landsbanka- deildinni á ári á samningstím- anum. Gunnar Sigurðsson formað- ur Rekstrarfélags meistara- flokks og 2. flokks ÍA sagði í samtali við Skessuhorn að umrætt ákvæði í samningun- um væri í samræmi við stefnu KSÍ um að sækja knatt- spyrnuvelli og að knattspyrna væri fjölskylduvæn. Hann taldi ennfremur líklegt að sambæri- leg ákvæði yrðu í fleiri styrkt- arsamningum í framtíðinni og að önnur félög ættu eftir að fara að þeirra frumkvæði. Helgi Þórhallsson aðstoðar- framkvæmdastjóri ÍJ sagði að með þessum samningi væri ÍJ í fyrsta sinn að styrkja íþrótta- starf fyrir opnum tjöldum. Vissulega hefði fyrirtækið stutt við félagasamtök á svæðinu frá upphafi en það hefði eiginlega verið í skjóli myrkurs. Hann kvaðst á- nægður með samninginn, sem hefði haft skamman að- draganda, og kvaðst vonast til að hann mæltist vel fyrir hjá sýnum starfsmönnum. GE Snæfell í undanúrslit Pierre Green var stigahæst- ur Snæfellinga í síðari leiknum við KR, skoraði 28 stig, Sig- urður Þorvaldsson skoraði 17 og Magni Hafsteinsson skor- aði 15. GE Akademían fullmönnuð Skallagrímur tapaði báðum leikjum sínum gegn Grindavík í hópbílabikar karla í körfuknattleik eftir að Borg- nesingar höfðu lagt Suður- nesjamennina að velli í deild- inni. í fyrri leiknum sigruðu Grindvíkingar 90-78 eins og fram hefur komið í Skessu- horni. Síðari leikurinn fór fram í Grindavík og þá sigruðu heimamenn 88 - 80 í jöfnum og spennandi leik. Jovan Zdravevski var at- kvæðamestur Skallagríms- manna í leiknum, skoraði 26 stig, Nicholas Anderson skor- aði 14 og Clifton Cook 13. Snæfell er komið í undanúr- slit hópbílabikarsins þrátt fyrir tap í fyrir leik sínum við KR, 74- 78 á útivelli. Snæfellingar unnu sannfærandi sigur 92 - 77 á heimavelli síðastliðinn fimmtudag og mæta Grind- víkingum í undanúrlitaleiknum í Laugardalshöllinni þann 19. nóvember næstkomandi. Þjálfaraakademían sem um var talað við endurnýjun þjálf- arasamnings Ólafs Þórðar- sonar er nú fullmönnuð. Reyndar hefur verið ákveðið að kalla þetta þjálfarateymi en hinsvegar ber mörgum saman um að Akranesakademían sé réttnefni á þjálfaranefndinni. Auk Ólafs Þórðarsonar og Alexanders Högnasonar eru í nefndinni þeir Hafliði Guð- jónsson, Haraldur Sturlaugs- son og Steinar Adólfsson. Hluti akademíunnar er á leiðinni til Englands síðar í mánuðinum og mun dvelja í nokkra daga hjá 1. deildarlið- inu Reading sem ívar Ingi- mundarson leikur með. Fyrir- hugað er að (A og Reading geri með sér samstarfssamn- ing sem meðal annars kveður á um leikmannaskipti. Arnar Már Guðjónsson, leikmaður ÍA í 2. flokki fór til Reading í haust og í kjölfarið kom upp hugmynd um samstarfs- samning milli félaganna. Þess má líka geta að Ólafi Þórðarsyni hefur verið boðið að stýra æfingu hjá Reading í heimsókninni í lok nóvember. GE Full búd af nýjum vörum Sjón er sögu ríkars Opið virka daga frá kl. 1 1:00 - 1 8:00 Laugardaga frá kl. 1 1:00- 14:00 •VERZLUNIN SIMI 431 2507 KALMANSVÖLLUM AKRANESI

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.