Skessuhorn - 06.07.2005, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 6. JULI 2005
..mim...
Taktu þátt í
Lukkuleik
*
Irskra daga
Frábært úrval af:
Undirfötum
náttfötum
snyrtivörum
skartgripum
30 % afsláttur
af völdum vörum
á írskum dögum
GÖTU 147 * AKRANESI
131 1753 & 861 1599
Opin gata á
Víðignmd 8.júlí
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi verður fímmtugur
þann 9. júlí n.k. Vinir og velunnarar eru velkomnir
| í Víðigrundina fostudaginn 8. júlí írá kl. 17:00 - 19:00,
I en þar verður með dyggri aðstoð nágranna í götunni
i slegið á létta strengi í tilefni dagsins.
Klœðaburður verði með hliðsjón af veðurlagL
\__________Gísli Gíslason_________y
Oroú|
roup
Glöggar systur kynna:
Samsýninguna „Tengsl“, 8. - 17.júlí 2005.
Sýningin verður haldin í stofunni í
Bakkatúni 20, Akranesi,
milli Bióhallarinnar og Slippsins.
Opið: kl 13-18.
Til sýnis og sölu verða leirmunir, dúkar, veski og
vatnslitamyndir. Sýnendur eru frænkumar:
Ólöf Björk Oddsdóttir leirkerasmiður, Unnur G.
Kristjánsdóttir fatahönnuður, Margrét O.
Leópoldsdóttir textíllistakona og Jóhanna
Leópoldsdóttir ástríðumálari.
Allir velkomnir og heitt á
j könnunni.
\ Sjá nánar
s www.leopold.is/gloggarsystur
Beðið eftir aurum í endurbætur
á heilsugæslunni
Enn hyllir ekki undir að hægt
verði að ráðast í endurbætur á
heilsugæslustöðinni í Borgarnesi
þrátt fyrir að þær séu orðnar veru-
lega aðkallandi. „Við vitum ekki
hvenær verður hægt að ráðast í
nauðsynlegar lagfæringar. Það er
hinsvegar beðið eftir grænu ljósi til
að hefja byggingu bílskúrs fyrir
sjúkrabifreiðar en það vantar aðeins
staðfestingu ffá samstarfsnefind um
framkvæmdir á vegum ríkisins,"
segir Guðrún Kristjánsdóttir, ffam-
kvæmdastjóri Heilsugæslustöðvar-
innar í Borgamesi. Hún segir hins-
vegar að það þurfi að lagfæra hús-
næði stöðvarinnar fyrir um 60
milljónir króna. Meðal annars þarf
að bæta aðgengi fyrir fatlaða, skipta
um glugga og gera gagngerar end-
urbætur innan dyra. „Eg hef sótt
um fjárveitingu síðan ég byrjaði
Heilsugœslustöðin í Borgamesi.
hérna árið 2000 og röðin hlýtur að
koma að okkur einhvemtíman í ná-
inni framtíð. Það er skilningur fyr-
ir hendi hjá heilbrigðisráðuneytinu
en peningarnir hafa ekki verið til
staðar. Kannski era líka aðrir ver
staddir en við en engu að síður fer
þetta að verða aðkallandi,“ segir
Guðrún.
GE
Mikill viðbúnaður lögreglu
á Snæfellsnesi
Mikill viðbúnaður var á vegum
lögreglunnar á Snæfellsnesi fyrir
síðustu helgi enda tvær stórar sam-
komur á svæðinu; Færeyskir dagar
í Olafsvík og Fjórðungsmót hesta-
manna á Kaldármelum. Meðal
annars var bragðið á það ráð að
setja upp eftirlitsstöð í Lyng-
brekku við Snæfellsnesveg og var
það gert í samvinnu við lögregluna
í Borgarnesi, ríkislögreglustjóra og
tollgæsluna í Keflavík sem lagði til
fíkniefnahund. Þrjú fíknefnamál
komu upp við eftirlit í Lyngbrekku
og vora þau nokkuð stór á mæli-
kvarða Snæfellsneslögreglunnar.
Hald var lagt á 19 e-tölfur, 10
grömm af amfetamíni og sex
grömm af kannabisefnum. Að
sögn lögreglu var hægt að ganga
frá þessum málum á vettvangi og
era þau öll upplýst.
I Olafsvík var tilkynnt um kyn-
ferðisbrot á tjaldsvæðinu en að
sögn lögreglu hefur ekki verið
lögð fram kæra vegna þess. Þá var
ölvun umtalsverð þar um helgina
og mikið magn áfengis tekið af
unglingum sem ekki höfðu aldur
til að hafa slíkt um hönd. Að öðra
leyti fóru hátíðahöldin þar vel
fram að sögn lögreglu en veðrið
setti strik í reikninginn og höfðu
lögreglumenn og björgunarsveitir
í nógu að snúast við að aðstoða
hrakta útilegumenn á föstudags-
kvöldið.
A Fjórðungsmóti hestamanna á
Kaldármelum var brotist inn í
sölutjald á laugardagskvöldið en að
öðra leyti þurftí lögregla ekki að
hafa afskipti af gestum þar.
Allt tiltækt lögreglulið á Snæ-
fellsnesi var á vakt um helgina og
auk þess vora fengnir til aðstoðar
lögregluþjónar frá Akranesi og
Borgarnesi.
GE
Leitin að íslenska draumaprínsinum
Þáttasljámandinn í Bachelors þáttum Skjás eins verðurjón Ingi Hjálmarsson.
Nú getur einhleypt fólk sett sig í
stellingar og látíð sig hlakka til því
sjónvarpsstöðin Skjár einn og
Sagafilm hafa byrjað leit að 25 kon-
um og einum eftírsóttum pipar-
sveini tíl að taka þátt í sjónvarps-
þættinum „Islenska Bachelornum,"
sem fer í loftið í haust. Leit að á-
hugasömum einstaklingum til að
taka þátt í þættínum berst á Akra-
nes um næstu helgi.
Að sögn Sjafnar Olafsdóttur hjá
Skjá einum er hér um að ræða
fyrsta alvöra raunveraleikaþáttinn á
Islandi þar sem 25 stúlkur verða
leiddar fyrir draumaprinsinn í von
um að standa uppi sem sú eina
rétta. „Við munum ekkert til spara
til að gera upplifunina ævintýralega
og skemmtílega og þáttínn eins
glæsilegan og kostur er. Hér er því
komið ffábært tækifæri fyrir ungt
fólk til að lifa hinu ljúfa lífi og njóta
lífsins á sama tíma og það freistar
gæfunnar og leitar að ást og ham-
ingju. Hví ekki að láta á það
reyna?“ spyr Sjöfn. Hún segir að
allir sem era einhleypir og á aldrin-
um 21 til 3 5 ára geti nú sótt um að
taka þátt í stórkostlegu ævintýri
sem gæti endað með ást og róman-
tík, bónorði og demantshring!
Ahugasömum er bent á að hægt
er að skrá sig á heimasíðu Skjá eins;
www.sl.is eða sækja skráningar-
eyðublöð í Símabúðimar. I kjölfar-
ið tekur Sagafilm viðtal við þátttak-
endtir sem á endanum sker úr um
hvaða 25 úrvalsstúlkur og stál-
heppni herramaður verða fyrir val-
inu. Aðstandendur þáttarins verða á
Akranesi nk. laugardag, 9. júlí og
verða í Sjálfsstæðissalnum, 3. hæð
við Stillholt 16-18 klukkan 13:00.
Hvetja þeir áhugasama einstaklinga
til að skrá sig og kíkja við í viðtöl.
MM
LATTU 0KKUR
FÁÞAÐ
ÓÞVEGIÐ
Efnalaugin Múlakot ehf.
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
Sími 437 1930