Skessuhorn


Skessuhorn - 06.07.2005, Page 18

Skessuhorn - 06.07.2005, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 6. JULI 2005 §KlSSl]íli©í°$g * * # l/iuiAhe’tftié Líkt og þegar folaldsfeður - fara upp á gráa meri í tilefhi af nýaf- stöðnu Fjórðungsmóti hestamanna á Kaldár- melum sem stendur reyndar enn yfir þegar þessar línur eru ritaðar og einnig því að Skessuhorn hefur nú fest kaup á vefmiðlin- um 847 sem er frábær ffétta- og upplýsinga- miðill hestamanna, verður þessi þáttur að mesm helgaður hestavísum og hestamanna- mótum. A fjórðungsmóti á Faxaborg ein- hvemtfman kringum 1970 orti Valdimar Sig- urjónsson: Þó alltaf hljótist einhver sorg ástarsódinn bcetir. A fjórbungsmóti á Faxaborg fögur snótin mætir. Sjaldan hefur skort fagrar konur á hesta- mannamótum og dregur mig minni til þess að kona ein var stödd á fjórðungsmóti á Faxa- borg, þó líklega ekki því sama og Valdimar kvað um, í síðum prjónakjól bráðfallegum. Líklega hefur þó konan flýtt sér heldur mikið við fráganginn því einhver hirðusamur náungi náði í lausan enda í faldinum og byrjaði að vinda sér hnykil þannig að kjóllinn styttist enda stutta tískan þá í algleymingi og að end- ingu var blessuð konan orðin íklædd bolero- jakka einum ytri klæða, enda voru þeir einmitt að komast í tísku um þær mundir. Já, það era þægilegar flíkur þessir prjónakjólar, fljótlegt að breyta þeim eftir tískunni. Hvað um það, einhvemtíman kvað Dala Jói staddur á Faxaborg: Oft ég flakka œöi djarft, yfir hlakka sprettum. Hvítárbakkann hleypi ég hart hófarakka léttum. Stundum bar það við á hestamótum hér áður fýrr að menn höfðu hestakaup og voru sumir frægari fýrir þá iðju en aðrir. Erlingur Jóhannesson kvað um Ingvar Magnússon sem bjó á Hofsstöðum í Stafholtstungum og víðar: Ingvar kannast allir viö, oft viö staupiö snjallt hann syngur. Heldri manna hefur siö hestakaupasérfrœöingur. TíÖum hann meö hesta sést, hlaupaglanna úrvals merka, ríöur manna mest og best, margt hann kann til þeirra verka. Ekki voru þó allir í hestakaupahugleiðing- um og Dala Jói hafði þetta að segja um Brún frá Bæ í Miðdölum: Einn ég vaskan á hér hest, ei sem braska nenni, viö hann taska vel er fest, víst er flaska íhenni. Ekki voru það allt gæðagripir sem gengu manna milli í hestakaupum. Um einn grip sem ekki er ólíklegt að einhvemtíman hafi verið höfð hestakaup á kvað Birgir Hart- mannsson: Ætíö skaltu iöka streö, eöliö kalt ég nefni. Þér er allt svo þvert um geö, þú ert saltkjötsefni. Ég held að Sveinn Sveinsson í Álftanesi sé höfúndur að eftirfarandi stökum sem oft hafa verið raulaðar bæði á hestamannamótum og víðar: Cleöi raskast vanta vín verö því brask aö gera. Ef aö taskan opnast mín á þar flaska aö vera. Er mín taskan opin senn uppúr flaska dregin, gleöi raska eg vil enn öls í braskiö þeginn. Á einhverju stórmótd hestamanna, líklega á Skógarhólum 1962 var kveðið og er mér ekki grunlaust að Böðvar Guðlaugsson sé höfúnd- ur en ekki er ég viss: Þunga bossa bera hross, bjóöa kossa fýsur. Renna ífossum yfir oss ásta og hrossa vísur. Það hefur lengi tíðkast á hestamannamót- um og fleiri samkomum að menn gefi hver öðrum örlítið bragð af vasagleri sínu. Ekld veit ég hver eða hverjh ortu eftirfarandi en vel má hugsa sér að einhver hafi rétt vini sínum glervöru með heimilisiðnaði, því alltaf er hollur heimafenginn baggi og sagt um leið: Veit ég landinn göfgar geö og gleöur andann rekka Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til að sjá fýrir sér þann sem boðið var að hnusa af drykkmnn og lítast ekki á: En þetta hland sem þú ert meö þaö má fjandinn drekka. Auðvitað em þessi tildrög aðeins tilbúning- ur minn en ef einhver kannaðist við tildrög og höfúnd eða höfúnda þessarar vísu væri mér þægð í að fá upplýsingar þar um. Lengi var það siður manna og er kannske enn á hestamannamótum að taka sér hest að kvöldlagi og ríða eitthvað um nágrennið. Ein- hvemtíman vom þeir að taka hesta sína á Faxaborg, Júlíus í Hítarnesi ogjóhann Krist- jánsson frá Bugðustöðum (Dala Jói) og segh þá Júhus um leið og hann setur fótin í ístaðið: Ætli viö förum ekki á bak upp á gamla móöinn. Jói svaraði um leið og hann vatt sér í hnakk- inn: Eftir svona andartak œttu aö koma Ijóöin. Það er oft deilt um það hvað sé góður hest- ur en raunverulega er hver hestur góður sem er eiganda sínum góður og ef eigandinn er á- nægður skipth litlu hvað öðrum finnst. Ekki veit ég hver er höfundur eftirfarandi vísu en hann virðist hafa verið ánægðtn með sitt: Cráni minn er gæöahross, gammur á víxli og hoppi. Meö fæturna hann fer í kross, fallega kastar toppi. Sá er orti eftdrfarandi virðist ekki hafa verið eins ánægður með sinn færleik: Gráni minn ergutlari, góöur handa konum. Ergilegur andskoti er aö ríöa honum. En það er nú bara hægt að líta fram hjá göllunum: Þessi bleiki beislaknör best mér eykur kæti, tekur brokkiö taumskakkör og töltir á einum fœti. Það er nú svo með veðrið og hrossaræktina að hvort tveggja er óútreiknanlegt enda ber ekki öllum saman um gæðin. Geir í Hlíð kvað tun þessi tvö fýrirbrigði: Ef ég fer aö yrkja um veöur, ekki veit ég hvaö ég geri. Líkt og þegar folaldsfeöur fara upp á gráa meri. Með jiökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Refystöðum 320 Reykholt S 435 1367 og 849 2715 dd@bvippinn.is Borgarnes grillkjöt fæst í

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.