Skessuhorn


Skessuhorn - 06.07.2005, Side 19

Skessuhorn - 06.07.2005, Side 19
»KU3inubji MIÐVIKUDAGUR 6 JULI 2005 19 Séríramleiðsla fyrir Kárahnjúkavirkjun Sementsverksmiðjan hf á Akra- nesi hefur tekið að sér að fram- leiða sérsement fyrir ákveðinn verkþátt Kárahnjúkavirkjunar. Um er að ræða sement sem notað er til að þétta berg í grunni stíflunnar. Eins og kunnugt er mun Kara- hnjúkastífla við Hálslón verða ein stærsta stífla í Evrópu, um 198 metra há og 730 metra löng. Stíflan er byggð þvert yfir syðsta hluta Haffahvammagljúfra vestan í Fremri-Kárahnjúk og er hún gerð úr grjóti og þjöppuðu malar- efni, en á vatnshliðinni verður steypt kápa sem meðal annars tryggir þéttleika stíflunnar. Þar sem stíflan leggst upp að berginu eru gerðar kröfur til þéttleika bergsins. Það er einkum gert til þess að koma í veg fyrir vatnsleka í stíflugrunni. Til að tryggja þetta eru boraðar allt að 100 m langar holur í bergið og sérstakri sem- entseðju dælt í holurnar. Miklar kröfur eru gerðar til þess sements sem notað er til eðjugerðarinnar. Þannig þarf það að uppfylla strangar gæðakröfur varðandi fín- leika en slíkt sement er almennt ekki ffamleitt sem lagervara og því þarf að sérffamleiða um 4000 tonn í verksmiðjunni á Akranesi til þessa verkefnis. Efhið verður sent með tankbílum á Kárahnjúka- svæðið þar sem fulltrúi kaupanda sem er Impregilo tekur á móti hverjum bíl og yfirfer gæðavottorð sem fylgir hverjum farmi. MM Getum við aðstoðað þig? L Hönnun Prentun Ljósritun Frágangur Pappír Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Borgarbraut 55-310 Borgarnes Sími: 437 2360 Fax: 437 2361 EMAIL: olgeirhelgi@islandia.is Auglýsing um deiliskipulag í Helgafellssveit Snæfellsnesi. Samkvæmt ákvæðum 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi fyrir rennslisvirkjun fyrir raforku í Bakkaá á jörðinni Gríshóli Helgafellssveit. Gert er ráð fyrir að vatn verði tekið úr Giljaá, Lindá og Drangá, rennsli verði um 5001/sek. Ekki verði byggt uppistöðulón, byggt verði stöðvarhús að hámarki 90 m2. Aðrennslisrör verða grafin í jörð að stöðvarhúsi. Tillagan, ásamt byggingar- og skipulagsskilmálum, liggur frammi hjá oddvita Saurum frá 06.07.05 til 03.08 05 á venjulegum skrifstofutíma. . Athugasemdum skal skila til oddvita Saurumfyrir 17.08.05 og skulu l þœr vera skriflegar. i Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds frests teljast samþykkir I tillögunni. Skipulags- og byggingarfulltrúi. Akraneskaupstaður Samkeppni um deiliskipulag Akratorgs Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar í samvinnu við Arkitektafélag íslands efnir til samkeppni um deiliskipulag Akratorgs á Akranesi Almenn keppnislýsing verður afhent án endurgjalds f.o.m. 4. júlí n.k. á skrifstofu Arkitektafélags Islands og hjá trúnaðarmanni. Einnig verður unnt að nálgast keppnislýsinguna á heimasíðu Akraneskaupstaðar (www.akranes.is) frá og með sama degi. Önnur samkeppnisgögn verða afhent gegn skilatryggingu að fjárhæð kr. 5.000,- á skrifstofu Arkitektafélags Islands, Engjateigi 9, 2. hæð, Reykjavík f.o.m. 4. júlí n.k. svo og hjá trúnaðarmanni, Haraldi Helgasyni arkitekt gsm sími 897-6874. Trúnaðarmaður endurgreiðir skilatryggingu gegn framvísun kvittunar þegar tillögum eða keppnisgögnum er skilað til hans innan skilafrests. Trúnaðarmaður tekur á móti tillögum á skrifstofu Arkitektafélags íslands, Engjateigi 9 (2. hæð), 4. okt. 2005,kl. 15:00 - 18:00. Sé óskað eftir að skila á öðrum tíma en hér er greint skal haft samband við trúnaðarmann. Sviðsstjóri tœkni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar. www.skessuhorn.is Vissir þú SKESSUHORN sœæmSm kriliMíi w .stykkiAolmur.ií. M sf. Wli giWI ný ajafAfkrt Í.HÍIfWkflilW w»lurr.9^SrrwrtMmdum-..0 kristinn.is VAKANDI AUGA Hefur þu :$bendingu Að á vefmiðlinum skessuhorn.is getur þú skráð smáauglýsinguna þína ókeypis og hún birtist einnig í næstu prentútgáfu Skessuhorns - þér að kostnaðarlausu? Þar fylgist þú jafnframt með því nýjasta sem aðrir eru að selja - eða óska eftir. Með því að fylgjast með nýjustu skráningum ertu ávallt skrefi framar. Að á vefnum er hægt að skrá viðburði og hvers kyns mannamót á Vesturlandi og þær upplýsingar birtast jafnframt í prentútgáfu Skessuhorns - þérað kostnaðarlausu? Að á skessuhorn.is birtast sjálfkrafa nýjustu fréttir sem starfsfólk allra stærstu sveitarfélaganna á Vesturlandi skrá? Fylgstu með, það borgar sig! Skessuhorn ehf.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.