Skessuhorn - 07.09.2005, Blaðsíða 13
cátaaoiiö^S
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005
13
ÞórSur Magnússon skipstjóri á Engeynni á tali vi5 Sturlaug Sturlaugsson, jv. forstjóra HB Granda.
Brevtingar í skipstjórahópi
HBGranda
Marteinn Einarsson sem verið til landsins. Gunnlaugur Jónsson valdsson. Magnús hefur undanfarið
hefur skipstjóri á Ingunni AK-150 sem verið hefur skipstjóri á Ingunni verið skipstjóri á Sunnubergi NS-
hefur verið ráðinn skipstjóri á með Marteini verður einn með 70, sem einnig er í eigu HB
flaggskipi HB Granda, Engey RE- skipið í framtíðinni. Þá hefur Granda. Lárus Grímsson, sem ver-
1. Marteinn verður skipstjóri ásamt Sveinn Isaksson skipstjóri á Víkingi ið hefur skipstjóri á Stmnuberginu
Þórði Magnússyni sem verið hefur AK-100 látið af störfum og við með Magnúsi, verður einn með
með skipið ífá því að það var keypt skipstjóm hefur tekið Magnús Þor- skipið. HJ
Stærsta skemmtiferðaskip sumarsins
væntanlegt í Grundarfjörð í dag
I dag var væntanlegt skemmti-
ferðaskipið World til Grundar-
fjarðar. Skipið er 43.188 brúttó-
tonn að stærð og er stærsta skip
sem til Grundarfjarðar hefur kom-
ið. Skipið mun djúpristu sinnar
vegna ekki geta lagst að bryggju en
farþegar verða ferjaðir í land.
Skipið er óvenjulegt að því leyti að
hér er um að ræða nokkurs konar
íbúðaskip því einungis eru um
borð 154 farþegar en áhöfnina
skipa 250 manns. Starfsmaður
Grandarfjarðarhafhar sem rætt var
hafði á orði að hér væri um að
ræða litla fjótandi Hollywood.
Reiknað var með að skipið kæmi á
fjörðinn kl. 8 í morgun og áætlað
var að það staldraði við í 10 tíma.
Ættu því farþegar að hafa getað
skoðað fegurð Grundarfjarðar og
nærsveita vandlega. Vonandi hafa
þeir einnig staldrað við í þjónustu-
fyrirtækjum og farið um borð með
léttari pyngju.
HJ
Stefiit að lagningu slidags við
Grafarkot um næstu mánaðamót
Starfsmenn verktakafyrirtækisins
KNH eru þessa dagana að hefja
vinnu við vegagerð í Borgarfirði af
þunga eftír hlé sem gert var á með-
an fyrirtækið vann við vegagerð í
Svínahrauni í sumar. Að sögn Sig-
urðar Oskarssonar, ffamkvæmda-
stjóra fyrirtækisins er stefnt að því
að leggja slitlag á nýjan veg ffá
Kolási að Grafarkoti um eða eftir
næstu mánaðamót. Er þar um að
ræða rúmlega tveggja kílómetra
langan kafla. Þá verður á næstu vik-
um unnið að gerð um þriggja kíló-
metra langs vegar ásamt því að fjar-
lægja gamla veginn á svæðinu og
bráðabirgðavegi sem gerðir hafa
verið vegna ffamkvæmdanna. Sam-
kvæmt útboði skal verkinu lokið
haustið 2006 og er verkið að sögn
Sigurðar langt á undan áætltm. Ekki
var áætlað að hcfja störf að nýju í
Borgarfirði fyrr en í október en þar
sem framkvæmdum í Svínahrauni
lauk töluvert á undan áætlirn mættu
starfsmenn fyrirtækisins fyrr en ætl-
að var í Borgarfjörðinn. HJ
Islenska sjávarútvegssýningin hafin
Að minnsta kosti fjögur fyrir-
tæki af Vesturlandi eru meðal
sýnenda á Islensku sjávarútvegs-
sýningunni sem hófst í Smáranum
í Kópavogi í morgun. Skaginn hf.
og Spútnik bátar ehf. ffá Akranesi
kynna framleiðslu sýna og Faxa-
flóahafnir sf. og Grundarfjarðar-
höfn kynna þjónustu sýna og að-
stöðu. Með Grundarfjarðarhöfn á
bás eru nokkrir þjónustuaðilar úr
Grundarfirði sem kynna þjónustu
sína. Þeir eru Ragnar og Asgeir
ehf., Guðmundur Runólfsson ehf.,
Snæís hf., Fiskmarkaður Islands,
Vélsmiðjan Berg og Djúpiklettur
ehf. Þá verður Hagfiskur einnig
með kynningu á vörum sínum.
Sýningunni lýkur á laugardag.
HJ
Bílstjóri óskast
íslandspóstur óskar eftir aðráða bílstjóra til
starfa viðPósthúsið í Borganesi. Starfið felst
í útkeyrslu á sendingum ásamt öðrum
póststörfum.
Hæfniskröfur: Rík þjónustulund, jákvætt
hugarfar, árvekni og stundvísi.
Vinnutími er frá kl. 9.00-17:15.
Starfið er laust nú þegar.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún
Harðardóttir stöðvarstjóri á Pósthúsinu
l f Borganesi S - 437-1100.
íslandspóstur hf
Haustið nálgast!
Er að fá:
• Stígvél
• Regnsett
• Húfur
• Vettlinga
• Sokka
• Kuldaskó
Kartöflupokar, garöverkfæri og annað tengt
kartöfluupptökunni svo sem kaffibrúsar,
hlífðarföt og annað.
Verið velkomin á nýja staðinn okkar að
Smiðjuvöllum 7.
Verslun Axels Sveinbjörnssonar
AXEL SVEINBJÖRNSSON
SMIÐJUVÖLLUM 7 - AKRANESI
Sími 4311979
J
Rúm í úrvali