Skessuhorn - 07.09.2005, Blaðsíða 22
22
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005
ukusunu^'
Lokahóf knattspyrnudeildar Skallagríms
Laugardagskvöldið 2. septem-
ber sl. brugðu leikmenn og þjálf-
arar Skallagríms sér á Búðarklett í
Borgarnesi til að fagna lokum
tímabilsins. Voru Skallagríms-
menn sáttir við sinn hlut þrátt fyr-
ir misjafnt gengi í sumar. Leik-
maður ársins var valinn mark-
maðurinn Ingólfur Hólmar Val-
geirsson en hann er tvítugur
Borgnesingur. Markahæsti leik-
maðurinn var Sveinbjörn Geir
Hlöðversson og Sölvi Gylfason
var valinn efnilegasti leikmaður-
inn. Þjálfararnir Hilmar Þór Há-
konarson og Sigurjón Jónsson
voru ánægðir með sína menn og
vildu nefna að á hverri uppskeru-
hátíð er búningasamkeppni þar
sem leikmenn koma í sem
flottasta og sjaldgæfasta bún-
ingnum. Björn Sólmar Valgeirs-
son sigraði búningakeppnina í ár
með yfirburðum.
HSS
Leikmaður ársins er Ingólfur Hólmar Valgeirsson.
Þjálfararnir Hilmar Þór og Sigurjón.
Góðgerðamót í golfi á Garðavelli
Sigurveigarar í keppninni um Nýliðaskjöldinn.
[ samvinnu við Golfklúbbinn
Leyni og Heimsferðir mun
Microsoft á íslandi standa fyrir
styrktargolfmóti á Garðavelli á
Akranesi föstudaginn 9. septem-
ber. Markmiðið með mótinu er að
safna fé til góðgerðamála, sem
Barnadeild Hringsins mun njóta
góðs af.
Fyrirtækjum er boðið að taka
þátt í þessu glæsilega styrktarmóti
fyrir 30.000 kr. eða hærra framlag.
Innifalið er þátttökuréttur fyri tvo
kylfinga auk veitinga að móti
loknu. Glæsilegir ferðavinningar
með Heimsferðum að heildarand-
virði 450.000 kr. eru í vinning fyrir
þrjú fyrstu sætin í mótinu, auk
teiggjafa og nándarverðlauna frá
Microsoft. Þátttökuskráning er í
síma 510-6907 eða á netfangið
iceevent@microsoft.com eigi síðar
en 7. september. Þetta er (fyrsta
sinn sem Garðavöllur er vetvangur
góðgerðarmóts af þessu tagi og er
það mikill heiður fyrir Golfklúbbinn
Leyni að geta boðið uppá aðstöðu
til góðgerðamála á þennan hátt.
Tvö unglingalið í
Sveitakeppni GSÍ
Golfklúbburinn Leynir sendi tvö
unglingalið til þátttöku í sveita-
keppni unglinga dagana 2.-28. á-
gúst. Sveit 15 ára og yngri skip-
uðu þau Andrés Már Harðarson,
Ármann Örn Bjarnarson, Bjarki Þór
Jóhannsson, Kristján Huldar Aðal-
steinsson, Rúnar Freyr Ágústsson
og Sigurbjörn Hauksson. Leikið
var á Strandarvelli á Hellu.
Sveit 16-18 ára skipuðu þau
Axel Már Karlsson, Guðfinnur
Gústavsson, Guðmundur Páll
Bergþórsson, Sigurður Már Þor-
leifsson og Valdís Þóra Jónsdóttir.
Leikið var á Hólmsvelli á Suður-
nesjum.
Róbert vann
Nýliðaskjöldinn
Nýliðaskjöldurinn fór fram á
Garðavelli sunnudaginn 4. sept-
ember. Mótið er haldið fyrir nýliða í
Golfklúbbnum Leyni sem er á sínu
fyrsta og öðru ári í klúbbnum.
Leikin var punktakeppni með fullri
forgjöf og urðu úrslit þau að Ró-
bert Sigurjónsson sigraði með 44
punkta, í öðru sæti var Kristinn Á-
gúst Þórsson með 42 punkta og
Bjarni Sveinsson þriðji með 40
punkta.
Síðustu stigamót
sumarsins
Helgina 3.-4. september fóru
síðustu stigamót sumarsins fram.
Toyota mótaröðin í flokki fullorð-
inna og KB bankamótaröðin í
flokki unglinga. Fimm unglingar
kepptu á Vífilstaðavelli; Bjarki Þór
Jóhannsson, Alex Kári Kristjáns-
son, Sigurbjörn Hauksson og Rún-
ar Freyr Ágústson í flokki stráka 13
ára og yngri og Valdís Þóra Jóns-
dóttir í flokki 16-18 ára stúlkna.
Bjarki Þór varð hlutskarpastur af
strákunum en hann hafnaði í 8.
sæti. Valdís Þóra var jöfn tveimur
öðrum stelpum í 3.-5. sæti og
þurfti að leika bráðabana til að
Tapí
síðasta leik
ÍA lauk keppni í úrvalsdeild kvenna
í bili síðastliðinn sunnudag.
Skagastúikur sóttu stöllur sínar úr
Keflavík heim og töpuðu 0-2.
Uppskera ÍA í sumar varð því að-
eins eitt stig og hafnaði liðið í
neðsta sæti deildarinnar. Marka-
talan var 10 - 63.
Skagastúlkur leika í 1. deild að ári
en dvölin í úrvalsdeild var styttri að
þessu sinni en þær hefðu sjálfsagt
kosið. Bjarta hliðin er hinsvegar sú
að uppistaða liðsins er ungar og
bráðefnilegar stelpur sem ættu að
verða betur tilbúnar í slaginn að
ári liðnu. GE
TitiHinn í
sjónmáli
Skagamenn unnu góðan sigur á
Fram á íslandsmótinu í knatt-
spyrnu í 2. flokki, 5 - 1, í síðustu
viku. Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson
skoraði fyrsta mark Skagamanna
en síðan bættu þeir Jón Vilhelm
Ákason og Kristinn Aron Hjartar-
son við tveimur hvor.
ÍA er enn í efsta sæti A deildar 2.
flokks þegar ein umferð er eftir og
eiga því góða möguleika á að
verja íslandsmeistaratitilinn. Það
er hinsvegar engan veginn öruggt
því FH, KR og Valur eiga öll fræði-
legan möguleika á að ná efsta
sætinu. ÍA mætir Val í síðasta
leiknum á fimmtudag íþessari viku
og dugar jafntefli til að tryggja sér
titilinn. GE
skera úr um úrslit og féll 5. sætið í
hennar hlut.
Toyota mótaröðin fór fram á
Korpúlfstaðavelli í Grafarvogi.
Stefán Orri Ólafsson og Kristvin
Bjarnason kepptu fyrir hönd GL.
Þeir léku vel fyrri daginn en náðu
ekki að fylgja því nógu vel eftir síð-
ari daginn. Stefán hafnaði í 15.
sæti og Kristvin í því 23.
Valdís Þóra í landslið
unglinga
Valdís Þóra Jónsdóttir hefur ver-
ið valin til þátttöku fyrir hönd GSÍ í
Norðurlandamóti unglinga sem
fram fer í Noregi í september. Val-
dís Þóra hefur æft að kappi í sum-
ar og tekið þátt í öllum mótunum í
KB bankamótaröðinni auk þess
sem hún keppti [ tveimur mótum í
Toyota mótaröðinni með góðum
árangri. Þetta er fyrsta keppnisferð
Valdísar erlendis en hún fór til æf-
inga til Danmerkur síðastliðið
haust á vegum GSÍ og svo aftur til
Orlando í janúar s.l.
MM/BS
Vel heppnað Islandsmót í KUBB í Borgarnesi
Skemmtiiegasta liðið: Hringhorni, af Akranesi, Siggi, Jonni og Jón Ingi.
Glyðrur mótsins, Katrín, Fríða og Jóhanna.
íslandsmótið í fjölskylduspilinu
Kubb var haldið í Skallagríms-
garði í Borgarnesi síðastliðinn
laugardag. Alls tók 21 lið þátt og
var keppnin hörku spennandi og
afar skemmtileg að sögn að-
standenda mótsins.
Reykjavíkurliðið Bling Bling fóru
með sigur að hólmi og voru þeir
vel að sigrinum komnir. Ekki var
eingöngu eftir Islandsmeistaratitli
að slægjast heldur voru í boði titl-
ar sem þóttu ekki síður eftirsókn-
arverðir, s.s. skemmtilegasta liðið,
langóheppnasta liðið, efnilegasta
liðið, flottustu búningarnir, mest
ísiandsmeistararnir: Bling, bling.
Páimi og Adam en þeir voru líka
valdir mest 101 liðið.
101 liðið og síðast en ekki síst
glyðrur mótsins.
Fyrir þá sem ekki vita er Kubb
sænskur víkingaleikur sem leikinn
er utandyra á sléttum fleti. Fjöldi
liðsmanna í hverju liði er frjáls en
venjulega eru 2 til 6 í hverju liði og
hentar leikurinn aldrinum frá 7 ára
og uppúr. Leikurinn gengur út á
að fella alla riddara (kubba) and-
stæðingsins og þar á eftir kóng-
inn. Vallarstærð er venjulega 5x8
metrar, en getur verið stærri eða
minni allt eftir getu leikmanna.
Venjulega er spilað á grasi en
stundum á möl/sandi/snjó.
íslandsmót í Kubb hefur verið
haldið frá árinu 2001 og var þetta
í fyrsta skipti sem það er utan
Reykjavíkur. Þátttakendur í ís-
landsmótinu voru á einu máli um
að Skallagrímsgarður væri eitt
besta Kubbsvæði landsins. GE