Skessuhorn - 07.09.2005, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005
Aukinn áhugi og aðsókn í
íþróttamiðstöð Akraneskaupstaðar
Akraneskaupstaður hefur löngum
verið talinn mikill íþróttabær og
metnaður verið lagður í alla starf-
semi og iðkun íþrótta og uppbygg-
ingu mannvirkja þeim tengdum. Því
ætti engan að furða að aukin umföll-
un og vaxandi áhugi almennings á
heilsurækt skih sér í aukinni aðsókn í
íþróttaaðstöðu bæjarins. Jón Þór
Þórðarson, íþróttafulltrúi Iþrótta-
bandalags Akraness (ÍA), og Hörður
Kári Jóhannesson, rekstrarstjóri í-
þróttamannvirkja Akraneskaupstað-
ar voru fyrr í vikunni teknir tali og
spurðir um stöðu mála innan veggja
íþróttamannvirkjanna, um aðsókn
og aðstöðu tdl íþróttaiðkunar og
hvers sé að vænta á næsm árum. Jón
Þór segir þá sprengingu sem hefur
átt sér stað meðal fólks í heilstnækt
vera mikið gleðiefrú. „Við viljtnn
hvetja sem flesta til þátttöku og
halda sem flestum sem lengst, það er
skemmtilegast“ segir hann.
Er engin íþróttafirík
Það eru vafalaust einhverjir sem
hika við þegar taka á fyrstu skrefin í
áttina að markvissri líkamsrækt. Að-
spurður hvað væri í boði og hvemig
væri tekið á móti nýjum áhugasöm-
um iðkendum, segir Jón Þór að
reynt sé að bjóða uppá eins mikla
fjölbreytni og hægt er svo að hver og
einn geti fundið áhuga sínum farveg
í einhverri íþróttagrein eða bara í
markvissri líkamsrækt af einhverju
tagi. Box, línudans og frjálsar eru t.d.
hratt vaxandi greinar og gott dæmi
um fjölbreytileika íþrótta á Akranesi.
„Lokuð átaksnámskeið hafa verið
sérlega vinsæl að tmdanförnu þar
sem boðið er upp á einn heildar-
pakka. Þú færð þínar 3 til 4 æfingar í
viku, færð ráðgjöf um næringu og
matardagbók og þess háttar," segir
Jón Þór. „IA Trimm bíður einnig,
auk þessara lokuðu tíma, uppá afar
fjölbreytt úrval leikfimitíma, stund-
artaflan er hreinlega full,“ bætir
hann við. „Hægt er að leita til einka-
þjálfara, sem er til staðar í þrekað-
stöðunni alla virka daga milli 16 og
19 og getur leiðbeint með æfingar
og æfingaprógram sniðið að þörfum
hvers og eins. Hugmyndir um að
fleira sérmenntað fólk verði til stað-
ar ásamt einkaþjálfaranum, til að-
stoðar öllum þeim sem óska, eru
einnig í býgerð. Svo má ekki gleyma
sundlauginni. Því getur hver og einn
púslað saman fjölbreyttu og
skemmtilegu prógrammi.“ Jón Þór
bætir við: „Við erum alltaf í ein-
hverri nýjungaleit og fara möguleik-
amir eftir því hvaða kennarar eru í
boði hverju sinni. Hinn fasti kjarni
fólks telur hinsvegar 200-250 manns
sem taka þátt í „IA Trimm“ á hverju
ári og em allir sem óska meira en
velkomnir til þátttöku í því.“
Aðstaðan nýtt í botn
En samhliða auknum áhuga og
breyttu hugarfari meðal fólks á
markvissri hreyfingu og matarræði,
hefur aðsókn í íþróttamiðstöðvar
Akraneskaupstaðar aukist verulega.
Það húsnæði sem þegar er til staðar
er án efa fullnýtt og nefnir Jón Þór
að í miðri viku á álagstímum er öll
aðstaðan smekkfull og iðar allt af lífi
hvert sem litið er. Hörður Jóhannes-
son, rekstrarstjóri tekur undir þetta
og segir að aukningin sjáist best í
aukinni áskriftarsölu irmí aðstöðuna
og aukinn fjölda innan íþróttafélag-
arma, sem fara ört stækkandi. „Oll í-
þróttafélögin hafa aðgang að aðstöð-
unni og því ekki auðvelt að púsla
saman stundatöflu íþróttahússins,
oft standa æfingar yfir ffam undir
miðnætti," segir hann. í dag era um
1600 einstaklingar skráðir iðkendur
hjá IA. Þá er almenningur sem nýtir
aðstöðurnar ekki talinn með og telst
það ff ekar hátt hlutfall í samanburði
við önnur sveitarfélög. Framkvæmd-
ir hafa þegar hafist á nýju íþróttahúsi
á Jaðarsbökkum en vænst er að það
hús taki við stóram hluta knatt-
spyrnu- og ffjálsíþróttaæfinga bæði
fyrir Akurnesinga, Borgnesinga og
aðra nærsveitunga. Hvað hugmynd-
ir að áframhaldandi uppbyggingu að
Jaðarsbökkum varðar stóð ekki á
svöram hjá þeim Herði og Jóni Þór:
„Mikil ffamtíðarplön era uppi um
stækkun íþróttaaðstöðunnar,“ nefna
þeir Jón Þór og Hörður og segja að
drög að fyrstu hugmynd um stækkun
hafi verið lögð ffam og er vonast til
að stækkunin verði komin á lokastig
innan 5 ára. „Þá er um að ræða nýja
viðbyggingu sem mun tengja núver-
andi aðstöðu við fjölnota íþróttahús-
ið sem verið er að byggja. Þar er gert
ráð fyrir 35 fermetra þreksal, 11 bún-
ingsklefum, litlum íþróttasölum,
veitingastað svo fátt eitt sé nefht og
þar fyrir utan er 8 brauta yfirbyggð
sundlaug á teikniborðinu" segir
Hörður og bætdr við að markmiðið
er að ganga hratt og vel til verks í
ffamkvæmdum. „Byrjunin er þetta
nýja íþróttahús, sem er um 8 sinnum
stærra en íþróttahúsið sem nú þegar
er tdl staðar á Jaðarsbökkum og halda
svo áfram með stækkunina í ffam-
haldi af því.“ Mikil þörf sé nú þegar
fyrir þessari nýju viðbyggingu þar
sem almenningsíþróttaaðstaðan er
ekki síður þétt setin en íþróttahúsið
sjálft. „Þetta er ekki auðveld staða,
við eram að keyra góð námskeið og
reynum að halda uppi góðri þjónustu
en í of litlum íþróttasölum, alls ekki
hönnuðum fyrir þrek og púl og í
þeim myndast t.d. þungt loft sem
loftræstingin nær engan veginn að
sinna. Aðstaðan er í bókstaflegri
merkingu nýtt alveg í bom,“ segir
Jón Þór með áherslu. ,JVIiðað við þá
aðstöðu sem við höfiun í dag erum
við í raun komnir í strand með að hér
sé hægt að bæta við iðkendum hinna
ýmsu íþrótta og þjóna þeirri auknu
ásókn sem á sér stað,“ bætir Hörður
við.
Vesturgatan betur nýtt
Að sögn Harðar mun IA brátt taka
yfir reksmr íþróttaaðstöðunnar á
Vesturgöm og ráðgert er að bæta þar
einnig við tækjum til þrekiðkunar.
Þar er stóri salurinn fullnýtmr allan
daginn en þar fyrir utan, á neðri hæð
hússins, er svo lítill salur fyrir hópí-
þróttir svo sem aerobik og karate. A
neðri hæðinni má einnig finna þrek-
sal, golfþúttaðstöðu og keiluaðstöðu
og um miðjan september er gert ráð
fyrir að taka þar í notkun nýtt hljóm-
sveitaræfingaherbergi.
Samvinna mikilvæg
Að sögn Jóns Þórs er nú þegar
markvisst stefnt að þvi að samtengja
skóla og íþróttaæfingar. „Það eru
bara kröfur samfélagsins í dag að
barnið geti verið í skólanum allan
daginn á meðan báðir foreldrar eru
að vinna. Þar sem skóla lýkur um
klukkan 14 tdl 15 á daginn er vel við
hæfi ef íþróttir gæm fylgt þar fast á
eftir og brúað þetta bil til klukkan 16
eða 17 á daginn," segir Jón Þór. Þeir
Hörður og Jón Þór telja einnig mik-
ilvægt að nefiia að nálægðin á milli
skóla og íþróttaaðstöðu á Akranesi
sé mikill kosmr og hefur oft verið
öðram bæjarfélögum fyrirmynd.
„Það er líka skemmtilegt og spenn-
andi framtíðarverkefni að byggja
upp góða starfsemi í umhverfi sem
býður uppá þvílíka möguleika eins
og hér á Akranesi. Ekki síst þar sem
bærinn er þekktur sem íþróttabær
og því er á traustum granni að
byggja. Að geta bætt þjónustu og
gæði í því sem við eram að gera,
þjónusm við almenning og íþrótta-
félög og tengt skólana betur við í-
þróttastarfið er okkar markmið sem
gaman verður að vinna að,“ segir
Jón Þór að lokum. BG
Hörihtr Kári Jóhannesstm, rekstrarstjóri tjrróttamannvirkja Akraneskaupstaðar ogjón Þór
Þórðarson, íjrróttafulltrúi IA.
Litiðyfir íjrróttaaðstöðuna að Jaðarsbökkum, með vœntanlegt fiölnota íjrróttahús jýrir
miðju.
Viltu vera
með?
Fulltrúar frá hverju félagi innan Iþrótta-
bandalags Akraness komu saman síðastlið-
inn laugardag í íþróttahúsinu við Vesmr-
göm og tóku á móti skráningu í félögin fyr-
ir vetrarstarfið sem nú fer í hönd. Að sögn
Jón Þórs Þórðarsonar, íþróttafulltrúi IA var
aðsókn bara nokkuð góð. Skráning milli fé-
laga var þónokkuð misjöfn og átti FIMA
mestra vinsælda að fagna meðal ungmenna
á Akranesi, en þar fyllmst allir listar og
biðlistar einnig.
Gesmm var boðið að gæða sér á ávöxtum
og grænmeti, sem réttilega era líka nefnd
„íþróttanammi" og era vel við hæfi á sam-
komu sem þessari. Fótaliprar dömur í
danshópnum „Og útlagarnir" sýndu nokk-
ur vel valin spor í línudansi, rétt til að fá
fiðring í fóta þeirra sem á horfðu. Blaða-
maður Skessuhorns tók nokkra í-
þróttagarpa að tali til að forvimast um á-
huga og ástæðu fyrir íþróttaiðkun þeirra.
Svo virðist vera sem unga kynslóðin sé ekki
síður meðvimð um hollusm hreyfingar og
tilgang hennar, en þeir fullorðnu.
BG
Ragnheiður Guðmundsdóttir,
9 ára
Ætlar þú að taka þátt í íþróttum í vetur?
Já, sundi og fótbolta, kannski líka í skámnum,
það er svo spennandi.
Af hverju ætti maður að æfa íþróttir? Til
að verða betri.
Hvemig mat er ráðlegast að borða? Bara
ávexti og grænmeti, ekki nammi, nema bara
pínulítið á laugardögum.
Ætla systkini þín að taka þátt í íþróttum
líka? Já, Maron ætlar að prófa að æfa box og
Steindór vill æfa fótbolta þegar hann verður
eldri.
Hvað gerir maður á fótboltaæfingum?
Maður heldur bolta á lofti og svoleiðis og fer
á mót líka.
Sindri Már Fannarsson,
8 ára
Munt þú æfa íþróttir í vetur? Já, æfi karate
og fótbolta, æfi karate 2svar sinnumí viku.
Af hverju heldurðu að gott sé að æfa í-
þróttir? Til að æfa líkamann.
Eru einhverjar reglur á karateæfingum?
Það má ekki geispa!
Hvað er hollt að borða? Það er hollt að
borða kjöt og vatn og mjólk.
En hvað er óhollt að borða? Það er óhollt
að borða kakósúpu og kók.
Karen Rut Finnbogadóttir,
4 ára
Varstu að skrá þig í einhverjar íþróttir? Já,
íþróttaskólann og sundskólann.
Hvað gerir maður í íþróttaskólanum?
Maður hoppar og hleypur í íþrótmm.
Hvað er skemmtilegast að gera í sund-
skólanum? Synda og leika í dótinu í sund-
lauginni.
Af hverju ætti maður að stunda íþróttir?
Svo að maður æfir sig.
Hvað á maður að borða svo maður verði
duglegur í íþróttum? Hollan og góðan mat.
Hvað er hollt að drekka? Hollt að drekka
vam, mjólk og eplasafa.
Hvað er óhollt að borða? Má ekki borða
mikið nammi.