Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2005, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 07.09.2005, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 >itt£3avnu^t Fyrstu réttir afstaðnar Um liðna helgi voru fyrstu réttir í landshlutanum. Meðal annars var rétt- að í Ljárskógarétt í Dölum, þar sem þessar myndir voru teknar, og í Nesmelsrétt í Hvítársíðu. Mikil sala er nú á lambakjöti og eftirspum eftir kjötinu góð. Bjóða sumir sláturleyfis- hafar yfirverð og nánast staðgreiðslu fyrir þau lömb sem lögð em inn í þess- ari viku og þeirri næstu a.m.k. Það er því um að gera fyrir bændur að senda sem fyrst væn lömb til slátrunar hafi þau heimst af fjalli. MM/ Ljósm. SJök Svanborg á Gillastöðum með vœna gimbur Mœðgumar Jóhanna og Kolbrún hjálpast að. Ferðast alla daga nota títnann, hann kemur ekki aftur -segir Jón Pétursson, göngugarpur og listamaður með meiru Grjótregn af flutningabílum BORGARFJÖRÐUR: Tölu- vert hefúr verið um það í sumar að möl og grjót hafi fallið af malarflutningabílum og lent á öðmm ökutækjum við mætingu eða í framúrakstri, að sögn lög- reglunnar í Borgarnesi. Theo- dór Þórðarson, yfirlögreglu- þjónn segir strangar reglur gilda um ffágang á farmi. Gæta verði að því að ekki sé sett of mikið hlass á hverja biffeið og þá eiga vörabílspallar að vera lokaðir að aftan og með yfirbreiðslu yfir farmi ef hætta er á foki. „Lögreglan á sunnanverðu Vestulandi hefur verið að herða tökin í þessum málum og við höfúm sektað nokkra aðila fyrir slakan ffágang á farmi,“ segir Theodór. Hann segir dæmi um að svo stórir steinar hafi fallið af flutningabílum að það hafi vald- ið veralegum skemmdum. -ge Sigríður og Gísli saman í nefnd VESTURLAND: Gísli Gísla- son, bæjarstjóri á Akranesi hefur verið skipaður í nefiid á vegum samgönguráðuneytisins til þess að endurskoða núgildandi hafnalög sem tóku gildi 1. júh' 2003. Lögin höfðu mikil áhrif á rekstaramhverfi hafha og skal nefndin meðal annars meta hvernig til hafi tekist með fram- kvæmdina og bera tillögur um breytingar til Sturlu Böðvars- sonar, samgönguráðherra. Með- al þeirra atriða sem nefndin skal kanna er hvort og þá að hvaða marki raunveraleg samkeppni ríki á milli hafha. I frétt frá sam- gönguráðuneytinu segir að með endurskoðuninni sé markmiðið að stuðla að öflugu atvinnulífi og samgöngum. Með nefhdinni er gert ráð fyrir að starfi, meðal annarra, Sigríður Finsen, for- maður hafnaráðs og forseti bæj- arstjórnar Grundarfjarðar. -hj Rauða torginu úthlutað BORGARNES: Fjögur tilboð bárast í byggingaland á svoköll- uðu Rauðatorgi við Brákarsund í Borgarnesi, þar sem eitt sinn var m.a. timburplan KB, en tilboðin vora nýlega opnuð. Fyrirtækið Stafna á milli ehf. er á bak við öll tilboðin og verður væntanlega samið við það á næstu dögum. Miðað er við að ffamkvæmdir á Rauða torginu geti hafist strax í haust. -ge Útboð á ræst- ingu Garðasels AKRANES: Bæjarráð Akraness hefur ákveðið að bjóða út ræst- ingu leikskólans Garðasels ffá og með næstu áramótum. Nú- verandi verktaki hefur sagt upp samningi sínum. I bréfi sem Jón Pálmi Pálmason bæjarritari lagði fyrir bæjarráð kemur fram að útboð á ræstingum leikskóla bæjarins hafi að hans mati verið kaupstaðnum hagkvæm, verk- takar hafi almennt skilað góðum verkum og því sé skynsamlegt að halda áffam á sömu braut að því gefriu að verðtilboð séu viðun- andi. -hj Hann Jón Pétursson, vélvirki á Akranesi, verður sjötugur 4. október næstkomandi og tollir aldrei í húsi nema til að éta og sofa, eins og hann segir sjálfur. Það var því snúið að ná honum í stutt spjall um lífið og til- veruna en, tókst þó. Útiveran í blóðinu „Hún langamma mín bjó á Jaðri sem var hér niður við Langasandinn og ef hún væri hfandi í dag, væri hún sögð spilafíkill. Hún spilaði allan daginn, alla daga, við karlana hér í kring. Það var feikna fjör, alltaf. Hér, þar sem við eram núna á Jaðars- brautinni var ekki nokkurt hús, þá náði fjaran alveg ffá strompinum á Sementinu og eins langt inneffir og augað eygði og engir grjótgarðar Eitt af listaverkum Jóns sem hann hefur gripið í acf smíia þegar tími gefst. vora á þeirri leið. Þar var maður alltaf að leika sér, allan daginn þegar maður var smákvikindi,“ segir Jón Pétursson, innfæddur Skagamaður sem og allir hans forfeður í marga ættliði. „Eg hef eiginlega alltaf viljað vera úti. Eg fæddist á Skagabraut 28, hús- ið stendur enn, en það var stundum nefnt Kaldidalur, efhr Jóni Kalda. Við voram sjö systkinin. Fyrir neðan húsið í áttina að bakkanum var fjós, fjárhús og hlaða, á milli þeirra var stór garður, þar sem við vorum alltaf úti og þar líður mér best, enn þann dag í dag.“ Jón segir að á stríðsárunum hafi Bretinn verið með aðsetur hinumeg- in við götuna, við leikskólann og síð- an æfðu þeir sig á alskyns tækjum í fjörunni fyrir neðan. „Það kom fyrir að þeir kæmu of nálægt görðunum og kellingamar bara stugguðu þeim burtu. Ég man eftir Gunnu stóra, hún réðst á brynvagnana og sló þá með handklæði. Þær vora sko ekki bangnar kerlingarnar á Skaganum í þá tíð.“ Sjórinn, fjaran og fjallið „Hér fyrr á áram vora grá- sleppukarlarnir með úthaldið í Kalmansvíkinni hér norðan við bæ- inn, þá var ekkert hús þar fyrir ofán og ég byrjaði að hjálpa pabba við grásleppuna þegar ég var á áttunda ári. Þá var mok í tólf net hér rétt undan landi. Þetta er ekkert núna, þykir gott ef það er ein grásleppa í neti. Helvítis þorskurinn étur hrognin, hann liggur alveg upp í þara. Það er fullt af þorski allsstaðar, hér vestur um og inn í Hvalfjörð.“ Jón á trilluna Pétur AK 92, í félagi við bróður sinn Guðjón. „Við eigum 15 tonna kvóta á bátinn. Ég fer stundum í róður og þá einhver með, nú bíð ég eftir því að hann Jón firá Hvítárbakka láti vita af sér, eitthvað skrítinn karhnn sá.“ Og Jón heldur áffarn: „Ég held ég þekki flest eða öll örnefnin hér um fjörurnar, ffá Innsta Vogi og inn að merkjum að sunnanverðu. Ég hef hjálpað þeim hjá bænum að ná saman á kort þess- um ömefhum, sumt hef ég merkt. Þeir Þórður Amason ffá Sólmund- arhöfða og Guðni Eyjólfsson í Bræðraborg aðstoðuðu mig við þetta svona til að staðfesta nöfnin.“ Aðspurður um aflabrögð á sjónum hér á áram áður svarar Jón: ,Já, það veiddist oft vel hér áður. Ég man eitt sinn þegar ég var á honum Sigursæfi. Við fengum 800 kíló í rikk hér fyrir ffaman elliheimilið. Nú er Sigursæll kominn upp að Görðum - við end- um þar víst allir," svarar hann og glottir. Jón segist hafa það fyrir hobbý að telja fuglana í fjörunni. ,Já, þar er margt að sjá í fjörunni, ég tel fuglana í byrjun janúar fyrir þá fyrir sunnan, frá Blautósi og inn að Hvítanesi. Ég hef alltaf haft áhuga fyrir fuglalífinu og skoða það vand- lega á gönguferðum mínum.“ En Jón Pétursson gengur meira en eftir sléttri fjörunni. „Ég er búinn að ganga í 45- 50 ár. Þá var enginn á ferðinni, það héldu allir að ég væri einhver vitleysingur að vera á þessu labbi. Nú er fullt af fólki sem nýtur útivistar og ég hitti á ferðum mínum og er þá sennilega ekkert vidausari en aðrir! Það er gott að ganga hér um slóðir, mér leiðist logn, logn fer illa í mig. Annars er ákaflega veðra- gott hér á Akranesi og hægt að stunda gönguferðir alla daga, allan ársins hring. Kunnugt er að Jón Pét- ursson gengur stundum á Akrafjall- ið, spurt er um fleiri fjöll. „Ég geng bara á Akrafjallið, oft á ári. Ofitast hef ég farið 50 sinnum eitt árið, á þessu ári er ég búinn að fara 15 sinn- um. Það þarf að ganga þetta rösk- lega, svona á 45 mínútum til klukku- tíma. Það er eitthvað sérstakt við Akrafjallið. Veism - að ef farið er með áttavita upp þá verður hann kolvitlaus upp við klettabeltið, snýst í hringi, það gerir segulsviðið. Mað- ur verður bull,- löður sveittur á hraðri göngunni og hreinsast and- lega. Konan segir stundum að ég sé að sækja þangað orku.“ Jón kom fyrir gestabók í kassa upp á Háahnjúk 4. janúar 1967, ásamt fleira fólki og hefur síðan séð um að endumýja hana reglulega um leið og þær fyllast og eru bækurnar orðnar margar. I hvalnum og hjá Þ&E „Ég kynntist konunni minni, Steinunni Döllu Ólafsdóttir frá Hurðabaki þegar ég vann sumar- vinnu í Hvalstöðinni og hún líka. Ég var þar í 9 sumur. Ég lærði vél- virkjun hjá Þorgeiri og Ellert og vann þar í 45 ár. Þorgeir var ein- stakur maður. Hann var gull af manni. Svo fór ég í sumarffí eitt sinn um miðjan júní, kom aftur í fyrirtækið í ágúst og sagði þeim að ég væri hættur, ég varð 68 ára þá um haustið. Ég hafði ekki lengur á- huga á að vinna þama. Mórallinn var ekki lengur eins góður og sam- heldni starfsmanna, fullt af Pólverj- um, allt einhvemvegirm sundur- tætt.“ Spurður um vinnuslys og heilsufar eftir að hafa unnið frekar erfiða vinnu ber Jón sig vel. Segist einu sinni hafa tábrotnað og finni hvergi til í skrokknum. Eftir smá umhugs- un sagðist hann þó stundtun fá í hægri öxlina, „Sennilega eftir ham- arinn í vinnunni. Ég syndi á hverjum degi, a.rn.k. 500 metra í senn, það hálpar til að halda skrokknum í lagi, mér hefur ekki orðið misdægurt." Jón segist alltaf hafa eitthvað að dunda við þegar laus stund er: „Ef hinir geta það, þá get ég það líka. Smíða eitt og annað úr jámi mér til gamans.“ A ýmsum stöðum á Akra- nesi og hjá syni þeirra hjóna f Innri Akraneshreppi, má sjá ýmiskonar listaverk Jóns. Hann gefur þau stundum frá sér, líka þau sem opin- berir aðilar hafa fengið eins og t.d. grásleppukarlana sem era talsvert áberandi við innkomuna til Akra- ness við Kalmansvíkina. Nú er kunnugt að Jón Pétursson hefúr látið frá sér bundið mál, nefna má ljóðið „Síðasti siglarinn á Skaga“ og „Hugrenning um Akra- fyall“. „Það er engin hætta á að það sem ég set saman sé stolið, ég lít aldrei í bók“ sagði þessi glaðbeitti, ákafi Skagamaður að lokum. Jón við eitt þekktasta verk sitt; Grásleppukarlana við Kalmansvik. „Égfieddist á Skagabraut 28, húsið stendur enn, en það var stundum nefnt Kaldidalur, eftirjóni Kalda“.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.