Skessuhorn - 07.09.2005, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005
Styttíst í nýja
sundlaug á
Akranesi?
Simdfélag Akraness er sátt við
fyrirhugaða nýbyggingu inni-
sundlaugar á Jaðarsbökkum.
Þetta kom fram á fundi starfs-
hóps um framtíðarskipulag laug-
arsvæðisins á Jaðarsbökkum með
fulltrúum félagsins á dögunum.
Stefnt er að því að vestan núver-
andi laugarsvæðis rísi yfirbyggð
laug með átta brautum. Fram
kom á fundinum að skjól verði
aukið í núverandi laug og það
svæði verði tengt við „fjölskyldu-
vænt umhverfi með pottum og
rennibrautum," eins og segir
orðrétt í fundargerðinni. A fund-
inum var einnig rætt tun ffarn-
kvæmdaröð og tíma. Þá kemur
fram að í framhaldi af viðræðum
við Stmdfélagið muni sundlaug-
amefndin hittast og leggja ffarn
tillögu til bæjarráðs og bæjar-
stjórnar um meginforsendur fyr-
irhugaðra ffamkvæmda og óska
heimildar tdl að semja um gerð
aðalteikninga mannvirkisins. HJ
Til minnis
Vib minnum ab á nk. laugar-
dag verður hægt að upplifa
ekta sveitarómantík á Safna-
svæbinu ab Görbum á Akra-
nesi. Störf til sveita verba
kynnt ásamt fleiri uppákom-
um. Botninn verbur sleginn í
góban dag og síbasta dag-
skrárlib Vibburbaveislu sumars-
ins meb gamaldags sveitaballi
á Safnasvæbinu.
Vetfyrhorfw
Þab verbur norblæg átt í dag;
mibvikudag og fimmtudag og
víba léttskýjab en fremur svalt
í vebri. Á föstudag, laugardag
og sunnudag veröur hinsvegar
hlýrra meb sublægum áttum
og úrkomu.
SpRrntruj viHfjnnar
í framhaldi skrifa okkar í liö-
inni viku og þessari um heilsu-
rækt var spurning vikunnar á
vef Skessuhorns: „Stundar þú
heilsurækt reglulega?" Flestir,
eba 42,4% sögbust aldrei
gera þab. 23,7% sögbust
stunda líkamsrækt 1-3 sinnum
í viku, 16,1 % 4-7 sinnum í
viku, 9,3% svörubu 1-11 sinn-
um á ári og 8,5% 1-3 sinnum
í viku.
í næstu viku spyrjum vib:
Hefuröu fordóma
gagnvart útlendingum
(ertu rasisti)?
Svarabu skýrt og skorinort og
án allra undanbragöa á
fréttavefnum:
www.skessuhorn.is
Vestlendiníjwr
viKijnnar
Eru Dalamenn - allir sem einn-
sem af harbfylgi hafa barist
fyrir áframhaldandi rekstri slát-
urhúss í Búöardal og vibhalda
þar meb sauöfjárslátrun í
landshlutanum.
Slæmt hvað það er gott
„Það hefúr aldrei verið verra að
fá fólk í vinnu en nú og það kald-
hæðnislega er það að ástandið er
slæmt vegna þess hvað það er gott,“
segir Rristinn Jónasson, bæjarstjóri
Snæfellsbæjar og á þar við að sam-
félagið gjaldi þess að hluta til
hversu gott atvinnuástandið sé um
þessar mundir.
„Oft hefur það verið þannig að
sjómenn hætta í júní og hafa komið
þá inn á vinnumarkaðinn með
skólakrökkunum en nú hafa þeir
haft nóg fyrir sig.“ Kristinn segir
það sama hvar borið sé niður, hjá
verktökum í jarðvinnu, byggingar-
iðnaði, fiskvinnslunni eða hvar sem
er. Allsstaðar vanti fólk. „Aðspurð-
ur um hvort manneklan skapi
vandamál segir Kristinn að það hafi
ekki myndast neitt neyðarástand.
„Samfélagið lifir þetta vissulega af
en verkefni hafa þurft að bíða vegna
þess að verktakar hafa ekki fengið
starfsfólk. Það eru m.a. dæmi um
verk sem áttu að hefjast í júní en
eru ekki enn farin af stað. Menn
reyna hinsvegar að leysa málin með
tilteknum ráðum. Verktaki sem er
að endurbyggja trébryggjuna í
Olafsvík hefur m.a. brugðið á það
ráð að fá smiði ffá Færeyjum. Það
er atvinnuleysi á Suðurey og þess-
vegna kemur þetta sér vel. Færey-
ingar hafa líka lengi haft sterk ítök í
þessu samfélagi þannig að við erum
mjög ánægð með þessa lausn,“ seg-
ir Kristinn.
GE
Netum hent á víðavangi
Menn eiga það til að henda rusli
á víðavangi, stundum í hugsunar-
leysi en stundum er það vafalítið
gert af ásetningi. Fyrir utan um-
hverfisspjöll og sóðaskap af versta
tagi geta af ýmsu rusli á víðavangi
skapast hættur eins og meðfylgj-
andi mynd ber með sér. Einhverju
sinni sl. vetur eða í vor hefur plast-
pokum með talsverðu magni
þorskaneta verið hent skammt frá
veginum sem liggur að Akrafjalli
meðfram Berjadalsá. Pokarnir hafa
síðan gefið sig og búfénaður sem
þarna er flækst í netunum og dreift
þeim um stórt svæði. Þetta lamb
hefur fyrr í sumar ánetjast í einu
netanna og drepist, enda haus þess
kyrfilega flæktur í möskvunum.
Kristín Armannsdóttir, bóndi á
Ytra Hólmi I og landeigandi þar
sem þetta átti sér stað harmar
hugsunarleysi hlutaðeigandi og
vítaverðan sóðaskap. „Sá eða þeir
sem hlut eiga að máli hafa greini-
lega ekki sérlega hreina samvisku
þar sem það kostar ekkert að farga
netum sem þessum í Gámu, sem
þar að auki er einungis í nokkur
hundruð metra fjarlægð. Þetta er
svosem ekki í fyrsta skipti sem
menn losa alls konar drasl í landar-
eign okkar og með ólíkindum að
menn skuli geri svona lagað,“
sagði Kristín.
MM
Um 40% samdráttur í lönduðum
afla og aflaverðmætum á milli ára
Mikill samdrátmr hefur orðið í
lönduðu sjávarfangi og verðmæti
þess á Vesturlandi fyrstu fimm
mánuði ársins, ef marka má tölur
frá Hagstofú Islands. I lok maí
hafði verið landað 43.814 tonnum
af sjávarfangi á Vesturlandi á þessu
ári sem er ríflega 40% samdráttur
frá sama tíma í fyrra þegar landað
hafði verið 73.480 tonnum. Verð-
mæti sjávarfangs sem landað var á
Vesturlandi fyrstu fimm mánuði
ársins er rúmar 1.388 milljónir
króna en á sama tíma í fyrra var
verðmætið tæpar 2.297 milljónir
króna. Samdrátturinn í verðmætum
er því einnig um 40%.
Af einstökum fisktegundum má
nefúa að samdráttur í þorskafla er
fyrstu fimm mánuði ársins rúm
15% í magni og rúm 17% í verð-
mætum talið. Ennþá meiri er sam-
drátmrinn í ýsuafla. Fyrstu fimm
mánuði ársins var landað 553 tonn-
um af ýsu að verðmæti rúmar 29
milljónir króna. A sama tíma í fyrra
var ýsuaflinn 1.635 tonn að verð-
mæti rúma 123 milljónir króna.
Samdrátturinn í magni er rúm 66%
og í verðmætum rúm 76%. I fyrra
varlandað 1.574 tonnum af grálúðu
á Vesturlandi að verðmæti tæpar
351 milljón króna. I ár hefur hins-
vegar engri grálúðu verið landað á
Vesturlandi. Einnig er mikill sam-
dráttur í loðnuafla á milli ára. A
þessu ári var landað rúmum 30 þús-
und tonnum af loðnu að verðmæti
rúmar 170 milljónir króna en á
sama tíma í fyrra hafði verið landað
rúmum 44 þúsund tonnum að
verðmæti rúmar 299 milljónir
króna. Þá var rúmum 10 þúsund
tonnum af kolmunna að verðmæd
tæpar 69 milljónir króna landað á
Vesturlandi en engum kolmunna
hafði verið landað fyrstu fimm
mánuði þessa árs. HSS
Rausnarlegur arfur
Jóhannes Gunnarsson, bifvéla-
virki sem bjó á Dvalarheimilinu
Höfða ffá l.desember 2001 til dán-
ardags 13. júlí sl. arfleiddi Höfða að
öllum sínum fjármunum, alls
tæplga 5,7 milljónum króna. Hafa
peningarnir verið lagðir í gjafasjóð
Höfða og munu verða notaðir til
kaupa á nauðsynlegum tækjum og
búnaði sem koma íbúum heimilis-
ins til góða. Jóhannes hafði áður
gefið Höfða stórgjafir, alls 8 millj-
ónir króna á árunum 2000 og 2002.
„Þessar höfðinglegu gjafir hafa nýst
mjög vel og eiga stóran þátt í því að
Höfði er eitt best búna dvalarheim-
ili landsins,“ sagði Guðjón Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Höfða í samtali við Skessuhorn.
Jóhannes Gunnarsson fæddist að
Kistufelli í Lundarreykjadal árið
1913 og var lengst af kenndur við
þann stað. Hann bjó á Akranesi frá
árinu 1933, lengst á Laugarbraut
14 (Kistufelli) og Heiðargerði 15.
Hann starfaði lengi hjá Sements-
verksmiðjunni, einnig var hann að-
stoðarmaður í Bíóhöllinni. Hann
átti sæti í stjórnum Iðnaðarmanna-
félags Akraness, Bindindisfélags
ökumanna og Leikfélags Akraness.
Auk þess starfaði hann í Skátafélagi
Akraness og Góðtemplarareglunni
um árabil.
„Stjórn Höfða, starfsfólk og íbú-
ar minnast Jóhannesar með hlýhug
og þakklæti fyrir einstakan höfð-
ingsskap,“ segir Guðjón. MM
Jóhannes Gunnarsson.
Umhverfis-
viðurkenningar
AKRANES: Skipulags- og um-
hverfisnefiid Akraneskaupstaðar,
í samráði við Irisi Reynisdóttur
garðyrkjuffæðing, ákvað á fundi
sínum sl. mánudag að veita um-
hverfisviðurkenningar árið 2005
til eftirfarandi lóða í bæjarfélag-
inu: Fyrir sérbýfi hlýtur 1. verð-
launjörundarholt 160 en þar búa
þau Ingimar Magnússon og
Brynja Helgadóttir. Fyrir fjölbýfi
hlýtur Tindaflöt 1,3 og 5 viðtn-
kenningu að þessu sinni og sem
fyrirtæki/stofriun hlýtur viður-
kenningu Dvalarheimilið Höfði
fyrir snyrtimennsku og fallega
lóð. Viðurkenningarnar til þess-
ara aðila verða afhentar við at-
höfn í Kirkjuhvoli 20. september
nk. -mm
Skipulagi
frestað vegna
fomminja
BORGARNES: Nokkrar at-
hugasemdir bárust við auglýst
deiliskipulag á Granastöðum í
Borgarnesi en þar var ætlunin að
úthluta Búmönnum lóðum fyrir
15 íbúðir. Meðal annars komu
athugasemdir frá Minjaverði
Vesmrlands. Hann gerði laus-
lega athugun á svæðinu og
komst að þeirri niðurstöðu að
þar væri að finna hugsanlegar
minjar sem athuga þyrfti nánar.
Að sögn Finnboga Rögnvalds-
sonar, formanns bæjarráðs
Borgarbyggðar hefur verið á-
kveðið að fresta deiliskipulags-
ferlinu um óákveðinn tíma en
ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hvort farið verður í fom-
leifarannsóknir á svæðinu á veg-
um Borgarbyggðar. -ge
STAK greiðir
atkvæði um
verkfall
AKRANES: Starfsmannafélag
Akraness samþykkti á fundi í
síðustu viku að efna til atkvæða-
greiðslu um verkfall starfsmanna
bæjarins og átti hún að fara fram
í þessari viku. A fréttavef BSRB
er haft eftir Valdimar Þorvalds-
syni, formanni félagsins, að met-
þátttaka hafi verið á fundinum
og var tillagan samþykkt sam-
hljóða. Verði niðurstaðan úr at-
kvæðagreiðslunni að boðað skuli
til verkfalls tekur það 15 daga frá
boðun að það taki gildi.
-mm
Biskup auglýsir
laust brauð
ÓLAFSVÍK; Biskup íslands
hefur auglýst laust til umsóknar
embætti sóknarprests í Ólafsvík-
urprestakalli í Snæfellsness- og
Dalaprófastsdæmi frá 1. nóvem-
ber. Það er dóms- og kirkju-
málaráðherra sem skipa mun í
embættið til fimm ára. Sérstök
valnefnd velur prest en biskup á-
kveður með hvaða umsækjanda
hann mælir náist ekki samstaða í
valnefnd. Þá er einnig heimilt að
óska eftir því að almenn kosning
fari fram en þá þarf minnst
þriðjungur sóknarbama að óska
eftir því skriflega. Umsóknar-
ffestur er til 4. október. Séra
Óskar H. Óskarsson sem verið
hefur sóknarprestur í Ólafsvík
hefur verið veitt starf prests við
Akureyrarkirkju. -hj