Skessuhorn


Skessuhorn - 21.09.2005, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 21.09.2005, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 KB kaupir FBí Borgar- nesi Kaupfélag Borgfirðinga keypti sl. mánudag rekstur Fóð- urblöndunnar í Borgarnesi og yfirtók félagið reksturinn frá og með deginum í gær og er hann því undir merkjum KB Bú- rekstrardeildar. Rekstur KB Bú- rekstrardeildar verður fyrst um sinn til húsa að Sólbakka 8, en þess er vænst að innan tveggja mánað verði hann fluttur í ný- byggingu að Egilsholti 1 við hlið Húsasmiðjunnar. „Með þessu er verið að efla mjög þjónustu KB við bændur og er þess vænst að þegar í ný húsakynni verður komið verði vöruúrval aukið til mikilla muna,“ sagði Guðsteinn Einarsson, stjórnarformaður fyrirtækisins í samtali við Skessuhorn. MM Til minnis Vi& minnum á Borgarfjarbar- hlaup UMSB sem hlaupib ver&- ur á Hvanneyri klukkan 14 á föstudaginn kemur. Hlaupiö hefst vi& kirkjuna. Vegalengdir sem hlaupnar verða eru: 25 km, 10 km og 4 km skemmtiskokk. Hlaupið er aldursflokkaskipt. Skráning í hlaupið er hjá skrif- stofu UMSB sími 437 1411 Net- fang: umsb@umsb.is. Vechvrhorfiir Þa& er komið haust, bæ&i á almanakinu og á veðurstofu Skessuhorns. Við spáum norð- austlægri átt alla næstu daga með rigningu og slyddu til fjalla. SpMrninj viKfynnar í síðustu viku var spurt: „Ertu fylgjandi því að gjald verði tek- i& fyrir akstur um væntanlega Sundabraut?" Niðurstaðan var afdráttarlaus. 87% svarenda á Skessuhornsvefnum sögðust vera andsnúnir því að gjald verði tekið fyrir akstur um Sundabraut ver&i hún byggð. 9,8% voru því fylgjandi en 3,2% hlutlaus. í næstu viku spyrjum við: Ertu ánœgö/ur meö ab ákœrum gegn forsvarsm. Baugs var vísab frá dómi? Svaraöu skýrt og skorinort og án allra undanbragba á fréttavefn- um: www.skessuhorn.is Vestlendinj^r vikfynnar Er Óli Þórðar, knattspyrnuþjálf- ari sem í li&inni viku lauk leik- tíðinni með sigri sinna manna gegn KR, hann tryggði sér þriggja ára samning við þjálfun meistaraflokks um leið og skrif- að var undir samning við heilt knattspyrnulið ungra og efni- legra boltastráka. Framtíðin er björt hjá Óla og gaman verður að fylgjast með gengi liðsins næsta vor. Hrefiia í netin Hann var í þyngra lagi aflinn hjá þeim félögum Eymari og Garðari á Ebba AK þegar þeir vitjuðu um netin sl. mánudag. Tæplega 8 metra löng hrefna hafði fest í netunum hjá þeim og drepist þar og var henni að sjálfsögðu landað og gert að á bryggjunni. Eymar segir þetta vera í fyrsta skipti sem hann fái hrefhu í netin en beinhákarl hafi hann t.d. fengið áður. Hrefnan veidd- ist í Rennuhálsinum sem er um 8 mílur vestur af Skag- anum. Eymar Einarsson, sem er vanur hvalskurðar- maður frá tímum Hval- stöðvarinnar, bar sig fag- mannlega að við úrbeining- una. Kjötið fór allt á mark- að þar sem það hefur vænt- anlega verið selt í gær. MM Hefst umfangsmikiU vatnsútflutningur £rá Rifi? Bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur gert samning við Islind ehf. um nýt- ingarrétt á ákveðnum vamslindum í landi sveitarfélagsins í Rifi. Samn- ingurinn er til 95 ára og tryggir fyr- irtækinu einkarétt á nýtingu vatns úr umræddum vamslindum. Islind ehf. mun vera í samstarfi við nokkra er- lenda aðila um markaðssetningu vamsins og er ætlunin að setja upp átöppunarverksmiðju í Rifi og einnig er reiknað með útflutningi með tankskipum. Samningurinn mtm, að sögn Kristdns Jónassonar bæjarstjóra Snæfellsbæjar, fela í sér nokkrar tekjur fyrir sveitarfélagið en mesm tekjumöguleikarnir vegna væntanlegrar nýtingar vamslind- anna eru þau atvinnutækifæri sem væntanleg verksmiðja mun veita í sveitarfélaginu. Ekki náðist í forsvarsmenn íslind- ar ehf. við vinnslu þessarar fréttar. HJ Tilboð í sérleyfi á Vestur- og Norðurlandi Hópferðamiðstöðin og Vest- fjarðaleið buðu lægst í sérleyfi vegna fólksfluminga á leiðum á Vestur- og Norðurlandi en tilboð í sérleyfi á landinu öllu voru opnuð í síðusm viku. Fyrir aksmr í þessum landshlutum þarf að greiða fyrir- tækjunum rúmar 230 milljónir króna. Bílar og fólk ehf. bauðst til að sinna akstrinum fyrir rúmar 261 milljón króna og SBA Norðurleið bauð rúmar 309 milljónir króna. Kostnaðaráætlun Ríkiskaupa var 211 milljónir króna. I þessum hluta útboðsins er aksmr frá Reykjavík um Vesmrland og Snæfellsnes, um Dali í Króksfjarðames, um Strand- ir á Hólmavík og Drangsnes, um helsm staði á Norðurlandi allt til Raufarhainar og Þórshafnar. Þá var einnig boðinn út skóla- aksmr á nokkmm stöðum, m.a. á Snæfellsnesi. I skólaakstur milli Gmndarfjarðar og Snæfellsbæjar bámst fjögur tilboð. Lægsta tilboð- ið var frá Hópferðamiðstöðinni og Vestfjarðaleið að upphæð tæpar 16 milljónir króna. Önnur tilboð í þá leið vom frá Bílum og fólki ehf. að upphæð rúmar 16,7 milljónir króna, Dodds ehf. bauð tæpar 20,2 milljónir króna og Hópferðabílar Svans Kristófers ehf. buðu tæpar 19 milljónir króna. I skólaaksmr Grundarfjarðar og Snæfellsbæjar bauð Hópferðamiðstöðin og Vest- fjarðaleið einnig lægst eða rúmar 16,2 milljónir króna. Bílar og fólk ehf. bauð rúmar 17 milljónir króna, Dodds ehf. bauð rúmar 19,3 millj- ónir króna eins og SBA Norður- leið, Sæmtmdur Sigmundsson ehf. bauð tæpar 18,5 milljónir króna og Hópferðabílar Svans Kristófers ehf. bauð tæpar 19 milljónir króna. HJ Laun hækkuðu mest hjá íbúrnn í Skilmannahreppi Launagreiðslur á Vesmrlandi hækkuðu mest fyrstu sex mánuði ársins til íbúa í Skilmannahreppi ef miðað er við sama tíma í fyrra. Nemur hækkunin tæpum 36,6%. Aðeins í einu sveitarfélagi á landinu hækka launagreiðsltu' meira á þess- um tíma en það er í Fljótsdalshreppi þar sem hækkunin er 61,6% á milli ára. A landinu öllu hækkuðu launa- greiðslur um 10% á þessum tíma. Af einstökum landshlutum má nefna að mest er hækkunin á Ausmrlandi eða tæp 17,2%. A Vesmrlandi nemur hækkunin rúmum 7,8%. Af einstök- um sveitarfélögum á Vesmrlandi má nefna auk Skilmannahrepps að þá hækkuðu launagreiðslur í Eyja- og Miklaholtshreppi um 24,5%, í Skorradalshreppi um tæp 16,4% og í Innri - Akraneshreppi um tæp 14,9%. I stærsta sveitarfélaginu Akranesi var hækkunin 11%. Mest lækkuðu hins vegar launagreiðslur á milli ára í Helgafellssveit eða um 12,5%. Það er Samband íslenskra sveitar- félaga sem tekið hefur þessar tölur saman. Utsvarstekjur em stærsti ein- staki tekjuliður sveitarfélaga og því skiptir þróun launagreiðslna innan hvers sveitarfélags vemlegu máli fyrir afkomuna frá ári til árs. HJ Minkur gerir usla í veiðiám Nýlega varð að fá meindýraeyði til að reyna að ná minkum sem gert höfðu usla við Brynjudalsá í Hval- firði. „Fyrir fáum dögum drap minkur nokkra laxa í ámú, í hylnurn rétt fyrir ofan efri laxastigann,“ sagði Friðrik D. Stefánsson leigutaki ár- innar í samtali við Skessuhorn. Minkurinn hefur verið erfiður við ána í sumar og fyrir skömmu keyrði um þverbak: „Laxarnir höfðu verið að dóla í efri laxastiganum og vom komnir í hylinn fyrir ofan efsta þrep hans, þegar minkurinn lét til skara skríða og drap nokkra laxa. Við svo búið er ekki hægt að una,“ segir Friðrik. Agæt veiði hefur verið í Brynjudalsá í sumar en minkurinn er engu að síður vandamál eins og víða í veiðiám á Vesmrlandi. Við Bomsá og Laxá í Kjós er t.d. einnig töluvert af mink. Veiðimenn sem vom við Laxá í Kjós fyrir skömmu reyndu að grýta mink sem þar var en sá slapp með skrekkinn. „Við reyndtun að hitta helvítið en það tókst ekki,“ sagði veiðimaðurinn við Laxá, sem hitti ekki minkinn, þrátt fyrir margar góðar tilraunir. GB Dauður á stöðinni AKRANES: Lögreglan á Akra- nesi stöðvaði aðfararnótt sunnudags ökumann sem hún granaði sterklega um ölvun við aksmr. Ökumaðurinn reyndist vera svo drukkinn að eftir blóð- sýnatöku læknis á lögreglustöð- inni sofnaði ökumaðurinn á- fengissvefni og rankaði ekki við sér fyrr en í hádeginu daginn eftir í fangaklefa. -mm Tæpur fimmt- ungur línuíviln- unar í þorski VESTURLAND: Á síðasta fiskveiðiári sem lauk um síðusm mánaðamót nýtm bátar á Vest- urlandi um 500 tonn þeirra 2.933 tonna er veitt var til línuívilnunar í þorski. Er það um 17% af heildarkvótanum. Línuívilnun er veitt þeim dag- róðrabátum er gera út með landbeitta línu og er ívilnunin 16% af lönduðum afla. ívilnun- in er einnig veitt f ýsu og stein- bít. Bátar á Vesturlandi nýtm rúm 301 tonn af 1.486 tonna kvóta sem veitt var til ívilnunar á landinu öllu í ýsu eða um 20% og þeir nýtm rúm 52 tonn af steinbít af þeim 550 tonnum sem notuð vom til ívilnunar eðaum9,5%. -hj Rökkurdagar endurteknir GRUNDARFJÖRÐUR: Rósa Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri menn- ingarhátíðarinnar Rökkurdaga í Grandarfirði. Hefur hún hafið störf og er skipulagning Rökkur- daga komin á fullt skrið. Grund- firðingar hafa tekið vel í ffamtak- ið og hafa þegar nokkrir menn- ingaratburðir verið skráðir í dag- skrá Rökkurdaga. Þar má meðal annars nefna Sagnavöku í Sögu- miðstöðinni, kvikmyndahátíð, smttmyndir, myndlistarsýningu gmndfirskra kvenna, glerlista- sýningu, tónlistaratriði og margt fleira. „Rósa vill minna fólk á að hafa samband við sig ef það hef- ur áhuga á að vera með á Rökk- urdögum í síma 869 2701 eða á tölvup. rosa@grundarfjordur.is,“ segir á vef Gmndarfj arðarbæjar. -mm Sauðavefur og sauðalag BORGARNES: Eins og fram hefur komið í Skessuhorni verður hin bráðum árlega Sauðamessa haldin í Borgarnesi þann 8. október n.k. Aðstand- endur Sauðamessu hafa nú opnað sérstakan Sauðavef á netinu á slóðinni: www.sauda.vefurinn.is. Á vefn- um sem hannaður er af Ástríði Einarsdótmr er að finna ýmis konar fróðleik um sauðkindur lífs sem liðnar og þar era einnig fréttir af undirbúningi Sauða- messu 2005. Þá styttist í að einkennislag Sauðamessu verði kynnt en það er nokkurs konar sauðasálmur eða öllu heldur óður til íslensku sauðkindar- innar sem Bjartmar Hannesson hefur prjónað saman úr ís- lenskri ull. -ntm

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.