Skessuhorn


Skessuhorn - 21.09.2005, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 21.09.2005, Blaðsíða 9
g^jjissnwifMaw MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 9 Vilja kvöld- og helgarþjónustu við aldraða Starfshópur um sameiginlega stýringu félagslegrar heimaþjón- ustu og heimahjúkrun á Akranesi hefir skilað áliti sínu. Hópurinn var skipaður í framhaldi af samþykki í bæjarráði Akraness þann 17. júlí 2003. Hópnum var ætlað að gera tillögur um með hvaða hætti bæta megi þjónustu við eldri íbúar bæj- arins með það að markmiði að gera þjónustuna sem skilvirkasta. Hóp- urinn var skipaður tveimur fúlltrú- um skipuðum af bæjarráði, einum ffá félagsmálaráði, einum fulltrúa ffá Félagi eldri borgara og einum fúlltrúa ffá þjónustuhópi aldraðra. í upphafi var hópnum ætlað að skila tillögum sínum í desember 2003 en af því varð ekki. Formaður hópsins var Sveinn Kristinsson bæjarfull- trúi. I skýrslu hópsins kemur ffam að Akraneskaupstaður veitir heimilis- þjónustu til ellilífeyrisþega 67 ára og eldri og til öryrkja. Dagleg um- sjón er á hendi öldrunarfulltrúa sem er í 100% stöðu ffá 1. apríl. Starfsmenn eru 24 í um það bil 11 stöðugildum. Þann 1. apríl fékk 81 heimili aldraðra heimilisaðstoð og 19 heimili öryrkja. Viðvera starfs- manns gemr verið ffá 2 klukku- stundum aðra hvora viku og upp í daglega þjónustu. Aðstoð frá heimahjúkrun er veitt inn á 25 þessara heimila. Dagvistun sækja 17 einstaklingar af þeim sem fá heimaþjón- ustu. A árinu 2004 var veitt þjónusta inn á 122 heimili. Heimili aldraðra voru 99 og heimili öryrkja 23. Að auki er ýmis önnur þjónusta í boði t.d. heim- sendur matur, félagsstarf auk þeirrar þjónustu sem veitt er á Dvalarheimilinu Höfða. I tillögum hópsins er lagt til að komið verði á fót sameiginlegri stýringu heimaþjónustu á Akranesi án þess að gerðar verði veigamiklar breytingar á því skipulagi sem er til staðar. Þjónustan verði áfram rekin annars vegar af bæjarfélaginu og hins vegar af Heilsugæslunni. Samningur verði gerður á milli þessara aðila um sameiginlega stýr- ingu og skipulag á heimaþjónust- unni. Þá er lagt til að þjónustumat verði unnið af tveimur aðilum, ann- ars vegar deildarstjóri heimahjúkr- unar á SHA og hins vegar öldrun- arfulltrúi Akraneskaupstaðar. Einnig verði komið á sameiginlegu umsóknarferli. Fleiri tillögur gerir hópurinn einnig sem auka eiga hagræði og gera þjónustu við aldr- aða markvissari. I skýrslu hópsins kemur ffam að tillögurnar muni tímabundið hafa í för með sér aukinn kostnað en auk- ið hagræði og markvissari þjónusta muni að einhverju leyti vega upp á móti viðbótarkostnaði. Þá er bent á að með hækkandi aldri þjóðarinnar muni þörf fyrir þjónustu sem þessa aukast. I lok skýrslunnar segir meðal annars: „Athygli er einnig vakin á því að kvöld- og helgarþjónusta hefúr ekki verið í boði á Akranesi ffam að þessu en full þörf er á slíkri þjónustu og spurning hvort ekki sé rétt að skipuleggja hana samfara þeim skipulagsbreytingum sem kynntar eru hér að framan. Ekki er hægt að fara út í skipulagsbreyting- ar nema kostnaður við þær liggi fýrir og fjármagn sé fyrir hendi. Því er lagt til að bæjaryfirvöld leiti sam- vinnu við stjórn SHA um þátttöku í verkefninu.“ HJ Hvaðan kom andvarinn? Minningarhátíð í Reykholti - Aldarafinæli Þorgeirs Sveinbjarn- arsonar frá Efstabæ í Skorradal Þess var minnst þann 14. ágúst í sumar í Reykholtskirkju að þann d'ag árið 1905, fæddist Þor- geir Sveinbjarnarson, ljóðskáld. Sonarsonur hans, Bergur Þor- geirsson, forstöðumaður Snorra- stofu, flutti ítarlega setningar- ræðu og gerði glögga grein fyrir æviferli afa síns, bæði almennum störfum hans í hinu daglega lífi og rakti að nokkru skáldskapar- ferilinn einnig. Jóhann Hjálmarsson ljóðskáld og bókmenntagagnrýnandi fjall- aði um ljóð Þorgeirs og bar er- indi hans heitið: „Hvaðan kom andvarinn?" Þá voru flutt ljóð Þorgeirs af Kristjáni Val Ingólfs- syni og tónlist við þau, m.a. frumflutt nýtt verk Jóns Hlöðvers Askelssonar við Ijóð Þorgeirs, þ.e. á söngvasveignum „Vísur um draum“ fyrir barintón og píanó sem þeir fluttu Michael Jón Clarke, barintón og Richard Simm, píanó. Þá söng Margrét Bóasdóttir, sópran og Blásarak- vintett Reykjavíkur lék. Þá kom fram „Trio i ein fjord,“ frá Harðangursfirði í Noregi en tríó þetta er þekkt fýrir að flétta saman þjóðlagatónlist og sígildri tónlist. Reykholtskirkja var þéttsetin og var stundin afar vel heppnuð. Bergur Þorgeirsson gat þess m.a. að nú er verið að ganga frá heild- arútgáfu á verkum Þorgeirs og mun sú bók koma út á vegum Hörpuútgáfunnar á Akranesi nú á haustmánuðum. Verkið mun bera nafnið: „Vísur fjalldrapans" og mun geyma bækurnar þrjár sem Þorgeir gaf út en þær eru nú allar uppseldar. Þess má geta að hægt er að eignast verkið og heiðra minningu Þorgeirs Svein- bjarnarsonar með því að vera með í Tabula gratualtoria, með því að hafa samband á netfangið; bergur@snorrastofa.is“. Atvinna í boði: Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. óskar eftir aðráða starfsmann til þess að sinna áfyllingum í verslunum í Borgarnesi. Leitaðer aðskilvirkum og ábyrgðarsömum einstaklingi. Viðkomandi þarf aðgeta hafiðstörf fljótlega. Áhugasamir sendi umsóknir til Ölgerðarinnar merkt "Áfylling í Borgarnesi" eða á netfangið mikki@egils.is fyrir 26. september n.k. Laust starf á Skattstofu Vesturlandsumdæmis við skatteftirlit. Starfið: Laust er til umsóknar starfvið skatteftirlit á Skattstofu Vesturlandsumdæmis, Stillholti 16-18, Akranesi. Um er að rœða starfá stofnuninni svo og við skatteftirlitsferðir. Hœfisskilyrði: Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í viðskiptafræði eða hafa þekkingu og menntun á sviði bókhalds og reynslu af skrifstofustörfum. Þá þurfa umsækjendur að verafærir um að tjá sig skýrt og skipulega í rituðu máli, hafa jákvœtt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Umsóknarfrestur er til 1. október 2005. Umsóknum ásamt upplýsingumn um menntun, fyrri störf meðmœlendur og annað sem umsœkjandi vill takafram skal skilað til skattstjóra. Upphaf starfs: Miðað er við að nýr starfsmaður hefji störfsem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. 5 Nánari upplýsingar um starfið veita Stefán Skjaldarson, skattstjóri Vesturlandsumdœmis og Tryggvi Bjarnason • deildarstjóri skatteftirlits, í stma 430-2900. | Skattstjórinn íVesturlandsumdœmi 5 Stillholti 16-18 300 Akranes Þorgeir og Helgi hf. / Smellinn á Akranesi óskar eftir fótki tit framtíðarstarfa. Smiður og verkamaður á trésmiðaverkstæði Markmfð starfsfns: Vinna við móta- og gluggasmíði vegna framfeiðslu forsteyptra eininga Menntun, reynsta og hæfni sem starfið kallttr á.* » Reynsla af byggingarvinnu * Reynsla af lestri teikninga * Áhugi á byggingariðnaði og tengdum sviðum * Góðir samskiptahaefiteikar gagnvart samstarfsfólki og birgjum, Vinnutími: Vinnutími er frá 7:30 á morgnana til 17:00 á daginn mánudag til föstudags. Á vinnustað er mötuneyti þar sem starfsmenn hafa aðgang að heitum mat t hádeginu. Starfsmenn geta fengið far til og frá vinnu sé þess óskað. Um framtidarstarf er að ræða. Góð laun 1 boði. Umsðknum skal skila á skríjstofu fyrirtækisins að Höfðaseli 2. Uppt. veitir Steingrímur M. 3ðnsson framLstj, fslma 433-6003 FORSTEYPT EININGAHUS frá Þorgeiri & Helga fyrirt&kið Pargekog Hégi hf . ver stofnað óiið 1961. Árið 20C Borgarfjarðarsveit Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Borgarfjaröarsveit Borgarfjarbarsýslu. Samkvæmt ákvæbum 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr.75/1997 er hér með auglýst breyting á deiliskipulagi á lóðum vib Asveg Hvanneyri. Breytingin er folgin í ab í stab einnar lóbar og opins svæbis norbvestan Ásvegar er gerb tillaga um tvær íbúbarhúsalóbir. Tillagan ásamt byggingar oc| skipulagsskilmálum liggurframmi á skrifstofu sveitarféiacjsins Reykholti fra 21 .september til 19. október 2005 á venjulegum skrifstofutima. Athugasemdum skal skila fyrir 02. nóvember 2005 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds frests teljast samþykkir tillögunni. Skipulags- og byggingarfulltrúi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.