Skessuhorn


Skessuhorn - 21.09.2005, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 21.09.2005, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 aiiúsunut. F.v. Magnús A. Sigurðsson minjavöröur, formaður sóknamefndar Ingjaldhólskirkjusókn- ar Sigrún Baldursdóttir og sóknarpresturinn á Hetíissandi séra Ragnheiður Karítas Pét- ursdóttir. I hakgrunninum eru legsteinamir en þeim hefur verið komið fyrir í safnaðar- heimili kirkjunnar. Legsteinn Magnúsar lögmanns til vinstri. Ingjaldshóll á menn- ingarminjadegi Evrópu Fornleifavernd ríkisins bauð leiðsögn um fjóra kirkjustaði á landinu í tilefni af Menning- arminjadegi Evrópu 10. september sl. A Vesturlandi var Ingjaldshóls- kirkja við Hellissand í sviðsljósinu. Magnús A. Sigurðsson minjavörð- ur Vesturlands og Vestfjarða kynnti staðinn, kirkjugarð og kirkju. Ingj- aldshóll á sér langa og merka sögu. Sem kirkjustaður er hann líklega einn sá elsti á landinu. I Sturlungu er getið tun Halldór Oddsson prest þar um 1200. Núverandi kirkja var byggð árið 1903 og er elsta stein- steypta kirkja heims. Mikið er af minningarmörkum í kirkjunni og kirkjugarðinum en merkust eru tal- in tveir legsteinar. Annar þeirra er legsteinn Magnúsar Jónssonar (1642-1694) lögmanns en hinn er legsteinn Guðmundar Sigurðsson- ar sýslumanns (1700-1753) en hann var móðurbróðir og tengdafaðir Eggerts Olafssonar. Eggert var einmitt á leið til Ingjaldshóls þegar hann drukknaði og er minnismerki um hann sunnan við kirkjuna. Að lokinni skoðun minja undir leið- sögn minjavarðar bauð sóknar- nefndin upp á veitingar. • /i'ef'Jf/tf/ ff/pfff) f/fff' Marengs með sérrý rúsínum (Uppskrift fyrir 6) Þennan desert er haegt að bera fram sem eftírrétt eða jafrivel setja hann í stærra form og kæta vin- konurnar í saumaklúbbnum. Marengskökur: • 3 eggjahvítur • 150 gr sykur • 2 msk gæðakakó Rústnutjómi: • 3 - 4 dl rúsínur • 1-2 dl sérrí eða líkjör að eigin vali • 2 msk fínsaxaðar móndlur (má sleppa) • 5 dl rjómi • 100 gr suðusúkkulaði Marengskökur: Þeytið eggja- hvítumar þar til þær em hálfstífar, bætið sykrinum saman við smátt og smátt og þeytið kröftuglega þar tíl hvítumar era mjög stífar. Blandið kakóinu varlega út í. Setjið í rjómasprautu og sprautíð litlar doppur á plötu klædda með bökunarpappír. Bakið í 100- 125°C heitum ofrii í einn klukku- tíma. Rúsínurjómi: Látið rúsínumar liggja í sérrýi í a.m.k. klukkutíma (á meðan kökurnar bakast). Þeyt- ið rjómann og blandið rúsínun- um, möndlunum og marengskök- unum (geymið nokkrar til að skreyta með) saman við. Setjið í desertskálar eða stærra mót. Bræðið súkkulaðið í vamsbaði og hellið yfir réttinn. Látið standa í ísskáp í klukkutíma áður en hann er borinn fram. Skreytið með HÚSRAÐ Gott er að geyma lítinn, þurran svamp í grænmetisskúffúnni, hann drekkur í sig raka og kemur í vegfyrir mygluskemmdir SM PÍANÓSTILLINGAR AKRANESI Stefán Magnússon, með Diploma frá American School of Piano Tuning sími: 4312477 netfang: kkogsm@hn.is Stjómsýslukæra enn til umfjölhinar Stjórnsýslukæra sú sem Guðrún Jóna Gunnarsdóttír sendi félags- málaráðuneytinu, vegna þeirrar á- kvörðunar sveitarstjórar Dala- byggðar að veita henni lausn úr sveitarstjóm Dalabyggðar, er enn- þá tíl umfjöllunar í félagsmálaráðu- neytinu. Nú era liðnir fjórir og hálfur mánuður frá því að stjórn- sýslukæran var lögð fram og fékk hún flýtimeðferð í ráðuneytínu. Forsaga málsins er sú að á hreppsnefridafundi þann 19. apríl lagði oddviti Dalabyggðar fram til- lögu um að Guðrúnu Jónu yrði veitt lausn ffá sem í hreppsnefnd, þar sem hún hefði flutt úr sveitarfé- laginu um smndarsakir til að stunda nám og störf í Reykjavík, „þar tíl hún tekur aftur búsem í sveitarfélaginu," eins og sagði í tíl- lögunni. Tillagan var samþykkt með fimm atkvæðum gegn tveimur í hreppsnefnd þrátt fyrir áköf mót- mæli Guðrúnar Jónu. í byrjun maí lagði Guðrún Jóna fram stjórn- sýslukæru til félagsmálaráðuneytis- ins. Samkvæmt heimildum Skessu- horns fékk málið svokallaða flýtí- meðferð í ráðuneytínu en úrskurð- ur hggur ekki ennþá fyrir. Guðrún Þorsteinsdóttir lögfræð- ingur í félagsmálaráðuneytinu sem samkvæmt heimildum blaðsins hef- ur með málið að gera harðneitaði að veita upplýsingar um einstaka þættí þess. Hún neitaði einnig að veita upplýsingar um framgang málsins, hvar það væri statt í kerf- inu og hvenær mætti vænta úr- skurðar í því. Hún vildi ekki svara þeirri spurningu hvort tregða hennar við upplýsingagjöf stæðist ákvæði Upplýsingalaga. Ekki náðist í Guðjón Bragason skrifstofustjóra í félagsmálaráðu- neytisins. HJ Harmonikkusveit Vesturlands. Sveitarómantík í sumarlok Laugardaginn 10. september sl. blómstraði sveitarómantíkin á Akranesi sem aldrei fyrr þegar síð- asti dagskrárliður Viðbttrðarveislu 2005 á Safriasvæðinu, „Sveitaróm- antík,“ fór fram. Margt var um manninn og hafði fólk gaman af þeim atriðum sem í boði vom. Kjötsúpukeppnin var æsispennandi og kepptu 5 lið um títílinn „Kjöt- súpumeistarinn 2005“. Gestir og gangandi komu og smökkuðu á súpunum og gáfu sitt atkvæði sem féllu þannig að Guðný Friðþjófs- dóttír sigraði og fékk að verðlaun- um fagran grip sem Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður og lista- kona í Gallerí Fróðá hafði gert. Glögga lesendur rekur eflaust minni til þess að Guðný sigraði einnig fiskisúpukeppnina á Sjávar- deginum í júní og er því vel að sigrinum komin. Margt annað var til skemmtunar og má þar nefria vattarsaum, ullarvinnslu, spjald- vefnað, smiðjuvinnu, tónlist o.fl. Um kvöldið var síðan slegið upp sveitaballi á Safnasvæðinu þar sem hin frábæra Harmonikkusveit Vest- urlands lék fyrir dansi og tókst sá dansleikur með ágætum. MM Kamar á íjall Á síðasta fundi afréttarnefridar Álftaneshrepps var rætt um fjallskil eins og gefur að skilja. Þá kom fram að keyptar hefa verið talstöðvar fyrir fjallmenn á Mýmm og hey fyrir hross. I lok fundargerðarinnar er síðan bókað: „Leigja á útikamar, var það gert í fyrra, sem var mikið notaður.“ Áhugamönnum um fjallskil hefur væntanlega létt nokkuð við þessi tíðindi því það getur varla talist heppilegt að leitarmenn gangi í hægðum sínum. Það kom hinsveg- ar ekki fram í fundargerð afréttar- nefndarinnar hvort kostnaði við kamarleiguna yrði mætt með sérstækum aðgerðum eða hvort lögð yrðu sérstök fjallskil á það sem fjallmenn skilja eftír sig á fjalli. GE eru bestir? Þær fréttir bárust í vikunni frá Kína að fornleifafræðngar þar í landi hefðu grafið 1.000 m niður í jörðina og fúndið koparvíra. Kínversk stjórn- völd segja að þetta sýni svo ekki verði um villst að Kín- verjar hafi verið búnir að finna upp símann fyrir 1.000 árum. Daginn eftir bárust þær fréttir frá Þýskalandi að forn- leifafræðingar þar hefðu graf- ið 1.000 m niður í jörðina og fundið leifar af ljósleiðara. Stjórnvöld þar í landi segja, og Evrópusambandið líka, að þetta sýni án vafa að þjóðir meginlandsins hafi fundið upp stafrænar símstöðvar fyrir 1000 árum. Og í gær bárust svo þær fréttir firá Islandi að íslenskir fornleifafræðingar hefðu graf- ið 1.000 m ofan í jörðina og fundið ekkert. Islensk stjóm- völd fagna þessu mjög og segja hafið yfir allan vafa að það hafi verið íslenskir land- námsmenn sem fundu upp þráðlausa netið! Kvenmanns- notnin Vitið þið af hverju stærstu fellibylirnir heita kven- mannsnöfrium? Svarið barst okkur: „Því þegar þær koma em þær heit- ar og blautar en þegar þær fara taka þær bílinn og húsið.“ HBGA SKÚR/NGAfATA fykir kelunguna Á HEIMILINU'! VERt> AÐEINS 259 KP fyrir kell- inguna Tilboð í stórmörkuðunum em síbreytileg og oft hægt að gera góð kaup sé fylgst með því sem í boði er hverju sinni. Þessi auglýsing vakti athygli Ijósmyndara í Borgarnesi fyrir skömmu þar sem orðalag hennar bendir eindregið til að karlmaður hafi samið hana. Segir allt sem segja þarf, eða hvað..? Ljósm: HSS

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.