Skessuhorn - 21.09.2005, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005
giEssuMQBKj
Gengur Umhverfisstofimn of
langt í öryggi leiksvæða?
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt að óska eftir því við stjórn
Sambands íslenskra sveitarfélaga að
kannað verði hvort ekki sé gengið
of langt í reglum sem settar hafa
verið til þess að tryggja öryggi leik-
vallatækja og leiksvæða ásamt eftir-
liti með þeim. Þessi ósk kemur í
kjölfar bréfs sem Umhverfisstofaun
ritaði sveitarfélögiun um málið. I
bréfinu kemur ffam að í lok ársins
2002 hafi tekið gildi reglugerð um
öryggi leiksvæða og leikvallatækja
og eftirlit með þeim.
Af bréfinu má ráða að umfangs-
mikið eftirlit hefar verið sett á fót
til þess að tryggja umrætt öryggi og
má í því efai nefaa að tæki og und-
irlag þeirra skuli uppfylla kröfar
sem ffam koma í ákveðnum stöðl-
um sem nefadir eru í bréfinu. Heil-
brigðisnefndir sveitarfélaga veita
starfsleyfi fyrir leiksvæði og skal í
leyfinu gera kröfa um svokallað
innra eftirlit. Því er líst svo: I fyrsta
lagi skal ffamkvæma reglubundna
yfirlitsskoðun daglega eða vikulega
eftir notkun og álagi. I öðru lagi
skal framkvæma rekstrarskoðun á
þriggja mánaða ffesti, „sem felst í
verklegri yfirferð, viðgerð og við-
haldi,“ segir í bréfinu. I þriðja lagi
skal ffamkvæma aðalskoðun sem er
ástandsskoðun sem ætlað er að gera
heildarúttekt á öryggi leikvallatækja
og yfirborðsefna. Þá segir í bréfi
Umhverfisstofaunar: „Frá og með
1. janúar 2006 mega þeir einir
ffamkvæma aðalskoðun sem hlotið
hafa faggildingu til þess. Neytenda-
stofa hefar yfirumsjón með faggild-
ingarmálum á Islandi."
Þá er veittur ffestur til ársloka
2006 til þess að endurgera leik-
svæði sem eru í rekstri en heil-
brigðisnefad getur þó látið fjar-
lægja hættuleg leiktæki ef nauðsyn
ber tdl. Heimilt er þó að veita ffest
til ársloka 2010 „ef ríkar ástæður
eru tdl,“ segir orðrétt í bréfinu. Ekki
kemur ffam í því hverjar þessar ríku
ástæður gætu verið.
Skotveiðihlunnindi
til skoounar hjá BV
Búnaðarsamtök Vesturlands hafa
hrundið af stað verkefai sem miðar
að því að bæta nýtingu skotveiði-
hlunninda. Sigríður Jóhannesdóttir,
búff æðikandídat hefur verið ráðin til
að stjóma verkefainu og verður við
það í hálfa starfi til áramóta. „Nefad
á vegum Búnaðarsamtakanna er að
skoða þessi mál,“ segir Sigríður. „Ég
mun vinna verkefhið í samstarfi við
nefadina, landeigendur, ráðunauta
og búnaðarfélög. Markmiðið er að
kanna aukið gildi skotveiðihlunn-
inda og stuðla að sjálfbærum veið-
um. Við munum kanna ffamboð og
eftirspum og finna í samstarfi við
landeigendur farsælan farveg fyrir
markvissari nýtingu á þessum
hlunnindum. Við stefaum að því að
prufakeyra ákveðnar hugmyndir
strax í haust á afmörkuðu svæði.“
Sigríður segir að nú þegar hafi kom-
ið ffam mikill áhugi á verkefhinu ffá
landeigendum. GE
Séra Sjöfii sett í embætti sóknar-
prests í Reykhólaprestakalli
Reykhólaprestakall hefur nú feng-
ið nýjan sóknarprest. Séra Sjöfa Þór
var sett inn í embætti sóknarprests í
Reykhólaprestakalli í Reykhóla-
kirkju kl. 14 sl. sunnudag. Séra Agn-
es Sigurðardóttir prófastur Vest-
fjarðaprestkalls ffamkvæmdi athöfa-
ina. Fyrsta embættisverk Séra Sjafa-
ar ffamkvæmdi hún við sama tilefai
en það var að skíra líðið stúlkubarn.
Sjöfa Þór útskrifaðist sem guð-
ffæðingur ffá Háskóla Islands árið
2003. Hún hefar starfað að æsku-
lýðsmálum Þjóðkirkjunnar um ára-
bil og verið þjónustufalltrúi Kjalar-
nesprófastsdæmis ffá árinu 2003.
Hún er formaður Æskulýðssam-
bands kirkjunnar í Reykjavíkurpró-
fastsdæmum og á einnig sæti í stjórn
Ecumenical Youth Council of E-
urope, samkirkjulegum samtökum
ungs fólks í Evrópu. Sjöfn tekur við
embættinu af séra Braga Benedikts-
syni. MM
Spilað á Strildnu og víðar í
Kaupmannahöfn
Þjóðlagasveit TónHstarskólans á
Akranesi hélt þann 1. september sl.
í tónleikaferð til Kaupmannahafa-
ar. Sveitin hélt tvenna tónleika og
einnig spilaði hún fyrir gesti og
gangandi á „Gammel Torv“ við
góðar undirtektir. Fyrstu tónleik-
arnir voru haldnir að kvöldi 1. sept-
ember í Jónshúsi. Efai þeirra var „I
takt við lífið,“ sem eru lög og ljóð
er hafa verið gefin út á diski og eru
leikin, sungin og töluð með sér-
stakri tækni sem stjómandi sveitar-
innar, Skúli Ragnar Skúlason hefar
kennt. Flutningi sveitarinnar var
mjög vel tekið.
Daginn eftir var farið í siglingu
frá Nyhavn. Með í för var leiðsögu-
maður sem sagði ffá merkum hús-
um og skipum. Síðdegis var haldið
út á Amager þar sem er Fredriks
Bastían, hús sem reist var árið 1740
sem vopnageymsla hersins. Fyrir
tilstuðlan ffú Vigdísar Finnboga-
dóttur forseta var húsið gert upp og
þjónar nú sem aðsetur norrænu
ráðherranefadarinnar. A efri hæð
þess hélt sveitin sína aðra tónleika.
Hljómburðurinn var ffábær í þessu
gamla húsi og hefar spil, söngur og
tal aldrei notið sín betur að mati
þeirra sem fylgst hafa með ferli
sveitarinnar og hlaut hún mikil lof
fyrir.
I blíðskaparveðri á laugardegi 3.
Hér spilar hljómsveitin á „Gammel Torv“ torginu t Kaupmannaböfn.
Sveitin átti stuttan stans í Krisljantu.
september var
haldið út á
Gammel Torv og
spilað í dágóða
stund fyrir gesti á
torginu við mjög
góðar undirtektir
eins og á tónleik-
unum sjálfam.
Frítími hljóm-
sveitarinnar var
notaður til að fara
í bíó og Tívolí og
einnig var gengið
um Strikið. Ferðin heppnaðist
mjög vel og eru listamennirnir
mjög þakklátir fyrir þær frábæru
móttökur sem þeir fengu í Jónshúsi
og Fredriks Bastion. Einnig eru
þeir þakklátir öllum þeim sem að-
stoðuðu við undirbúining Dan-
merkurferðarinnar að ekki sé
minnst á alla þá sem stutt hafa við
starf sveitarinnar í gegnum tíðina.
HJ
Sœmundur brúarsmiður er til vinstri á myndinni. Öndverðameshólar í baksýn.
Brú á Móðulæk
Merktum gönguleiðum í Þjóð-
garðinum Snæfellsjökli Ijölgar ár
ffá ári. A liðnu sumri var Hólastíg-
urinn merktur. En Hólastígurinn
er gamla gatan eða þjóðleiðin milli
Saxhóls í Beruvík og Gufaskála.
Hún liggur vestan við Stóra-Saxhól
um Brattahratm, yfir Móðulæk og
um Prestahraun. Þessu verkefni
Þjóðgarðsins fylgdi svo það að setja
enn eina brúna á Móðulækinn. Efai
til brúarinnar var fengið ffá Límtré
- Vírneti í Borgarnesi. Sæmundur
Kristjánsson í Rifi sem var land-
vörður í þjógarðinum í sumar setti
brúna saman, lét smíða undirstöður
og handrið og kom brúnni fyrir.
Þetta er fjórða brúin á Móðu-
læknum. Ein er í Eysteinsdal og
auðveldar göngu á Hreggnasa o.fl.,
önnur er við Rauðhól og sú þriðja á
þjóðveginum. Ekki veitir af að brúa
fljót þó að margir séu þeir dagar
sem ekkert vatn sést í farvegi þess.
Því magnað jökulfljót getur það
orðið þá tíma og daga sem það sýn-
ir sig.
Gamla gatan í Hólastígnum er
sumstaðar nokkuð gróin og því
ekki greinileg. Merkingin kemur
því að góðum notum til að fá á
hana umferð og lífga við þessa
fomu leið milli byggða. Þetta er
létt og skemmtileg gönguleið.
Henni er auðvelt að skipta í tvo á-
fanga við þjóðveginn á Móðtmum.
Víða era skemmtilegar jarðmynd-
anir og stmnan við Stóra-Saxhól
má finna nokkrar birkihríslur sem
era að skjóta þar upp kollinum og í
vesturhlíð hólsins eru myndarlegir
nornahringir.
Anna Kristjánsdóttir; formaður Slysavamardeildarinnar afhendir gjöftna.
Slysavamardeild
kvenna á Akranesi
afhendir veglega
peningagjöf
Þegar vígt var nýtt hús og björg-
unarbátur Björgunarfélags Akra-
ness fyrir skömmu, notuðu slysa-
varnarkonur í Slysavarnardeild
kvenna á Akranesi tækifærið og af-
hentu Björgunarfélaginu peninga-
gjöf að upphæð 500 þúsund krónur.
Þau tilmæli fylgdu gjöfinni að
henni yrði skipt að jöfau milli báta-
sjóðs og köfanarhóps félagsins.
Anna Kristjánsdóttir formaður
Slysavarnardeildarinnar segir fé-
lagið halda uppi öflugu félagsstarfi.
I því era í dag um 200 félagar. Þeir
eru misvirkir eins og gengur en
fastur kjarni mjög virkra félags-
kvenna telur um 30 manns. Anna
segir félagið starfa að ýmsum for-
varnarmálum. Meðal annars hefar
félagið gefið endurskinsmerki til
skólabarna um margra ára skeið. Þá
er fjáröflun félagsins í föstum
skorðum og má þar nefaa kaffisölu
á sjómannadaginn. Allt fé sem fé-
lagið safaar er síðan nýtt til björg-
unarstarfa og er félagið því öflugur
bakhjarl þess mikla björgimarstarfs
sem unnið er á Akranesi.
Það mikla starf sem félagið hefar
unnið kom best í ljós þegar hinn
nýi og glæsilegi björgunarbátur
Björgunarfélagins var vígður á
dögunum. Þá var honum gefið
nafaið Margrét Guðbrandsdóttir
eftir hinni kunnu slysavarnarkonu
sem lést á sl. ári. HJ