Skessuhorn - 21.09.2005, Qupperneq 11
^■kusunu^
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005
11
Sveinn Kristinsson, formaður btýarráðs á Akranesi og Eyjólfur Sverrisson vígja völlinn.
I ‘ ' I ' l I
Kristinn Jónasson bæjarstjóri klippir á borðann á Hellissandi. Enn og ajiur er Eyjólfur
aðstoðarmaður.
Tveir nýir sparkvellir
á Vesturlandi
Suimudagsmaturinn
hennar mömmu
Hótel Glymur í Hvalfirði.
Síðastliðinn föstudag voru form-
lega teknir í notkun tveir nýir
sparkvellir á Vesturlandi, á Hell-
issandi og við Grundaskóla á Akra-
nesi. Bygging vallanna er liður í sér-
stöku sparkvallaátaki KSI og sveitar-
félaga víðsvegar um landið með
stuðningi VIS, Olís, KB banka og
Eimskips. Aædar KSI að vellimir
verði alls 60 þegar átakinu lýkur en
nú er búið að taka í notkun 23 þeirra
en þar af era 7 á Vesturlandi.
A Akranesi var á sl. ári vígður
völlur við Brekkubæjarskóla og
hefur hann verið í stöðugri notkun
síðan. Völlurinn við Grundaskóla
er því annar völlurinn á Akranesi.
Eftir að Sveinn Kristínsson, for-
maður bæjarráðs og Eyjólfur
Sverrisson frá KSI klipptu á borða
og vígðu völlinn var blásið til
vígsluleikjar þar sem úrval starfs-
manna Grundaskóla lék gegn úr-
vali nemenda í sérdeilis votviðra-
sömum leik. Skildu leikar jaínir en
dómarinn, Sigurður Amar Sigurðs-
son náði með snarræði að flauta
leikinn af þegar lið starfsmanna var
mitt í harðri sókn að opnu marki
andstæðinganna í stöðunni 2:2.
Síðar um daginn var einnig tekinn
nýr völlur í notkun í landshlutanum,
en nú á Hellissandi. A síðasta ári var
tekinn í notkun völlur í þessu átaki í
Olafcvík og er þetta því annar völl-
urinn í sveitarfélaginu.
Það voru þeir Kristinn Jónasson,
bæjarstjóri í Snæfellsbæ og Eyjólfur
Sverrisson verkefhisstjóri hjá KSI
sem opnuðu völlinn formlega. Við
það tækifæri lýsti Kristinn mikilli á-
nægju með þetta ffamtak KSI og
sagði ljóst að völlur þessi yrði mikið
notaður. Eyjólfur hvatti viðstadda til
dáða á knattspyrnuvellinum og
óskaði iðkendum alls hins besta.
Jafhffamt bað hann unga fólkið sem
tilbúið var til þess að hefja leik á
vellinum tdl þess að passa völlinn vel
því hann væri þeirra. Að vígslunni
lokinni fór ffam fýrsti formlegi leik-
urinn á vellinum. Þrátt fýrir ffekar
risjótt veður fór ekki á milli mála að
völlurinn er kærkominn öllum þeim
sem stunda þessa vinsælu íþrótta-
grein. Að leik loknum var viðstödd-
um boðin hressing.
MM/HJ
Hótel Glymur í Hvalfirði býður
gestum sínum nú alla sunnudaga að
rifja upp sunnudagsmat liðinna ára-
tuga. Undir nafninu „stmnudags-
maturinn hennar mömmu“ verður
fjölskyldufólk leitt inn í unaðsheim
eldamennskunnar þegar húsmæður
einokuðu að mestu eldhússtörfin.
Margar kynslóðir landsmanna
vöknuðu á sunnudögum við mat-
reiðsluilm úr eldhúsinu. Flestir
vöknuðu við það að húsmóðirin á
heimilinu fór fýrst framúr og
kryddaði með salti og pipar lamba-
lærið eða hrygginn sem tekinn
hafði verið úr ffosti kvöldið áður. A
flestum heimilum fór steikin
snemma í ofninn og oftast eigi síð-
ar en klukkan 9 að morgni. Hún
mallaði síðan þar til hádegis. Um
það leyti sem tónar morgun-
messunnar heyrðust frá lampatæk-
inu í stofunni fór að færast fjör í
leikinn í eldhúsinu. Effir að hafa
hellt yfir lærið nokkrum sinnum á
steikingartímanum var nú komið að
því að hella soðinu af og nýta í
sósugerð. Hin óviðjafnanlega
brúna sósa var í uppsiglingu. Þessi
sósa sem allir þekktu af bragðinu en
fáir, nema alvöra húsmæður, kunnu
að matbúa.
Þegar sósugerðinni lauk var haf-
ist handa við að opna niðursuðu-
dósirnar. Engin var sunnudags-
steikin nema með henni væru
grænar baunir eða blandað græn-
meti ásamt rauðkálinu. Allir þekkja
ORA vörurnar, sem ennþá eru ó-
missandi í matargerð landsmanna,
en víða um land þóttu NES grænar
baunir og blandað grænmeti þó
bera af. Ekki má heldur gleyma
rabbarbarasultunni sem auðvitað
var ómissandi meðal þessara kræs-
inga. Hápunkturinn í matseldinni
var síðan þegar kartöflurnar voru
brúnaðar. Ilmurinn var indæll og
bragðið eftir því. Á barnmörgum
heimilum þegar sælgætis var ekki
neytt daglega þótti ekki verra að fá
að sleikja sykurhúðina af sleyfinni
efrir að kartöfhimar höfðu verið
brúnaðar. Að þessu loknu var allt
tilbúið.
Múlinn eða Jóhannes Arason
tóku við á Gufunni að lokinni
morgunmessu og þá var kominn
tími til þess að setjast að veislu-
borði. Stórfjölskyldan sameinaðist
enn einu sinni við borðhald. I þá
daga hét helsta matreiðslubókin
„Unga stúlkan og eldhússtörfin“ en
þegar tímar svokallaðs jafnréttis
fóru í hönd breyttist nafn bókar-
innar skyndilega í „Unga fólkið og
eldhússtörfin.“ I kjölfarið fóru fleiri
en húsmæðurnar að skipta sér af í
eldhúsinu. Hvort að þær þjóðfé-
lagsbreytingar hafa verið til gæfu,
skal ósagt látið. Hins vegar hnign-
aði í kjölfarið þessum matmálstím-
um í hádeginu á sunnudögum.
Á sunnudögum til jóla
Hansína B Einarsdóttir ffam-
kvæmdastjóri Hótel Glyms segir
ætlunina að rifja upp þessa ógleym-
anlegu tíma á sunnudögum í vetur.
„Við munum bjóða upp á skemmti-
legt hlaðborð þar sem hægt verður
að borða þann mat sem þekkrist á
flestum heimilum á sunnudögtm á
8. og 9. áratugnum og jafnvel leng-
ur. A þessum timabili var dæmi-
gerður sunnudagsmatur lambalæri
eða hryggur, kótilettur í raspi,
gúllas og kartöflumús eða hakkað
buff með lauk og spældu eggi. Við
hér í Hótel Glym munum hafa
þetta sem hlaðborð og byrja
snemma á sunnudögum, eða opna
húsið kl 17 og svo geta menn feng-
ið sér allt sem í boði er á hlaðborð-
inu. Verðinu verður stillt mjög í hóf
eða 2.990 krónur á mann og hálft
verð fýrir börn,“ segir Hansína.
Fyrsti sunnudagurinn sem veisla
þessi var í boði var sl. sunnudag og
létu gestir vel af ffamtakinu. HJ
L#PT
BORGARNESI EHF
Tækniteiknari
Óskum eftir að ráða tækniteiknara til starfa á
hönnunarsviði fyrirtækisins sem nýlega hefur verið
sett á laggirnar. Um er að ræða áhugavert starf
sem felur m.a. í sér mótun og uppbyggingu nýs
fagsviðs, hönnun teikninga- og gæðakerfis ásamt
umsjón og viðhaldi þeirra, gerð framleiðsluteikninga
auk umsjónar með teikninga- og gagnabönkum.
Óskað er eftir duglegum og áhugasömum aðila
með áherslu a eftirfarandi þætti :
Góð reynsla og þekking í AutoCAD
Góð reynsla og )ekking á frágangi og
uppsetningu teikninga
Reynsla af gerð burðarþolsteikninga
Sjalfstæð vinnubrögð og skapandi hugsun
Góðir samskiptahæfileikar
Enskukunnátta
Auk verkfræðihönnunar og teikningaframleiðslu er
hönnunarsviði ætlað að vera mótandi í vöruþróun
fýrirtækissins á komandi árum. Starfið er spennandi
og gerir miklar kröfur.
Umsóknir óskast sendar fyrir 4. október 2005 á
skrifstofu fyrirtækisins að Engjaási 1, Borgarnesi
eða í tölvupósti á netfangið loftorka@loftorka.is
Allar nánari upplýsingar veita Andrés
Konráðsson í sima 860-9002 og Magnús
Rannver Rafnsson í síma 860-9040.
Loftorka Borgarnesi ehf.
Engjaás 1 - 310 Borgarnes
Sími 433-9000 fax 433-9013 - www.loftorka.is
IttUÍV
■omm » s“a
f®1
tB i B0t9»,nesl
09Öp'n« "
uadeUd
keppi lekswi
nvía 09
Sóiw*Ka
BUREKSTRARDEILD
BORGARNESI
Sólbakka 8 - 310 Borgarnesi
Afgreiðsla sími 430 5620 - Fax 430 5621