Skessuhorn


Skessuhorn - 21.09.2005, Síða 12

Skessuhorn - 21.09.2005, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 shssim©eki Snorrastofa í Reykholti fagnar 10 ára aftnæli Föstudaginn 23. september n.k. verða 10 ár liðin frá stofnun Snorrastofu í Reykholti og verður dagskrá af því tilefni flutt í húsnæði stofnunarinnar. A þessu tímabili hefur starfsemin stöðugt verið að eflast og er vonast til að hún nái að treysta sig enn betur í sessi á kom- andi árum. Snorrastofa er sjálfseignarstofn- un, sem bæði er rekin fyrir framlög hins opnbera og einkaaðila. Skipu- lagsskrá sú sem liggur til grundvall- ar starfseminni var samþykkt af rík- isstjórn Islands 1995 og undirrituð 23. september það ár. Samkvæmt henni er Snorrastofu ætlað að kynna norræna sögu og bókmennt- ir sem tengjast Snorra Sturlusyni. Henni er einnig ætlað að kynna sögu Reykholts og Borgaríjarðar sérstaklega. Þessi atriði voru þróuð nánar í kjölfar niðurstöðu neíndar menntamálaráðuneytis um mið- aldafræði í Reykholti frá 1999, sem lagði til að Snorrastofa kæmi að rannsóknum og almennum fræða- störfum á sviði miðaldafræða. fræðimanna, Egils saga Skalla - Grímssonar. Mikill fjöldi fólks sæk- ir Reykholt heim vegna þessa, ekki hvað síst erlendir gestir. Stóra að- dráttaraflið er hið áþreifanlega, þ.e. afar merkar fornminjar (laug, göng, bæjarrústir og heitavatns- og gufu- stokkar ffá tímum Snorra o.fl.), sem gestamóttaka Snorrastofu sér um að kynna fyrir gestum og gangandi. Og Reykholt er ekki bara Snorri, heldur á staðurinn sér merka sögu allt fram á okkar daga. Helstu bygg- ingar Reykholts endurspegla þetta en á staðnum eru gömul kirkja, byggð 1886-87 og nú hluti af húsa- safni Þjóðminjasafhsins, gamli Hér- aðsskólinn, byggður 1930-31, glæsilegt minnismerki um arki- tektúr Guðjóns Samúelssonar, hús- næði Fosshótels, sem reist var á ár- unum 1965-88 fyrir heimavist og mötuneyti Héraðsskólans og hin nýja og glæsilega bygging Reyk- holtskirkju og Snorrastofu. Þá hef- ur vaxandi starfsemi Snorrastofu, árleg tónlistarhátíð og tónleikahald allt árið í kirkjunni og starfræksla Frœðasetrið Snorrastofa verður að veruleika. Guðlaugur Óskarsson, formaður sóknar- nefiidar Reykholtskirkju og Bjöm Bjamason þáverandi menntamálaráðherra, rita undir skipulagsskrá Snonnstofu 23. septemher 1995. Snorri og fomminjar Eins og flestum er kunnugt er Reykholt einn merkasti sögustaður landsins vegna búsetu Snorra Sturlusonar á staðnum. Hann kom til staðarins árið 1206 sem ungur maður og ritaði þar öll sín verk og byggði um leið upp mikið veldi. Hann bjó þar til dauðadags, en hann var drepinn af fjendum sínum 23. september 1241. Þau verk sem halda munu nafhi hans á lofti í al- þjóðlegu samhengi um ókomna framtíð eru Snorra-Edda, Heimskringla og að mati margra Einar Hilsen, Norðmaður búsettur í Bandaríkjunum, sem árið 1930 kom jyrstur fram með hugmyndina að byggingu sérstaks safns í Reykholti til minningar um Snorra Sturluson. heilsárs hótels, þar sem haldnar hafa verið hvers kyns samkomur, fundir og ráðstefnur, vakið athygli á Reykholti. Uppbygging safnaðarins Árið 1983 hófst mikið uppbygg- ingarskeið í Reykholti, sem ekki sér fyrir endann á. Það ár ákvað söfin- uður Reykholtskirkju að reisa nýja kirkju og í tengslum við hana Snorrastofu í þeim tilgangi að heiðra minningu Snorra Sturluson- ar. Var Garðari Halldórssyni arki- tekt falið að teikna byggingarnar. Hvatinn að þeirri ákvörðun var m.a. sá draumur nokk- urra aðila að geta með sómasamleg- um hætti sinnt þeim fjölmörgu gestum sem sóttu staðinn heim í leit að upplýsingum. I Reykholti var ekk- ert í boði umfram Snorralaug og Snorrastyttu Vig- elands, sem Norð- menn reistu 1947, og viðleitni presta staðarins og ein- stakra kennara við Héraðsskólannn í Reykholti til að sinna gestum stað- arins. Þá hafði ver- ið starfrækt Eddu- hótel í 2-3 mánuði á sumrin í húsnæði Héraðsskólans. Frá upphafi hef- ur þessi mikla framkvæmd með beinum og óbein- Snorrastofa í Reykholti. um hætti skipað stóran sess í dag- legu lífi þeirra, sem mest hefur mætt á í Reykholti, þ.e. prestshjón- anna Dagnýjar Emilsdóttur og séra Geirs Waage, Bjarna Guðráðssonar í Nesi, organista og formanns byggingarnefndar, formanns sókn- arnefndar Guðlaugs Oskarssonar og annars sóknarnefndarfólks. Ekki verður sagt að ákvörðunin hafi alls staðar fallið í góðan jarðveg og mikil vinna, sem krafðist ómælds barátmþreks ofangreindra, var lögð í að koma hugmyndinni á framfæri, afla henni fylgis og koma svo í framkvæmd. Allt frá árinu 1984 hefur þetta fólk tmnið með mjög ó- eigingjörnum hætti sleitulaust að framgangi málsins, kynningu þess og ekki hvað síst að fjármögnun. Athyglisvert er að á fyrstu árun- um voru það fyrst og fremst nor- rænir fjölmiðlamenn sem sýndu málinu áhuga en lítið fór fyrir á- huga þeirra íslensku. Gestamóttaka á staðnum fór oftast fram með þeim hætti að sóknarprestur gekk með gestum í gömlu kirkjuna og ffæddi þá um sögu Reykholts og gerði grein fyrir framtíðaráformum. Margir komu svo við á prestssetr- inu, nutu góðgerða eftir því sem við átti hverju sinni eða nýttu sér þá þjónustu sem í boði var á hótelinu væri það opið. Bygging Reykholts- kirkju - Snorrastofu hófst 1988, hin nýja kirkja var vígð á Olafsmessu 28. júlí 1996 og fyrr í sama mánuði, þann 14. júlí, var opnuð fyrsta sýn- ingin í Safnaðarsal á vegum Snorra- stofu. A sama tíma var stofnað ferðaþjónustufyrirtækið Heimskringla ehf. sem annast skyldi vörslu sýninganna og mót- töku gesta og tónleikahald í Reyk- holtkirkju. Gestamóttaka í Reyk- holti hefur frá upphafi verið undir yfirstjórn Dagnýjar Emilsdóttur, sem nú gegnir stöðu móttökustjóra Snorrastofu. Snorrastofa fékk síðan eigið húsnæði árið 2000, þegar O- lafur Ragnar Grímsson, forseti Is- lands og Haraldur Noregskonung- ur, opnuðu það með formlegum hætti að viðstöddu miklu fjölmenni. Ætlað stórt hlutverk Með ráðningu undirritaðs sem forstöðumanns Snorrastofu 1998 hófst nýr kafli í sögu staðarins. Þar með var lagður grunnur að öflugri starfsemi á vegum Snorrastofu sem m.a. hefur skipulagt rannsóknar- verkefhi, ýmsar ffæðilegar ráðstefn- ur og sýningar í samvinnu við fjöl- marga aðila. Fyrstu árin var ég eini starfsmaðurinn, en síðan 1998 hef- ur velta stofnunarinnar aukist margfalt og er nú svo komið að árs- verk eru 7, en 11 einstaklingar sinna störfum við Snorrastofu, enda sumir í hlutastörfum. Reykholti er ætlað stórt og á- byrgðarmikið hlutverk sem eins af helstu þjóðmenningarstöðum landsins. Markmiðið er að Snorra- stofa geti axlað þessa ábyrgð af reisn, enda stöðugt unnið að efl- ingu staðarins. Verið er að styrkja stoðir einstakra þátta, auk þess sem verið er að leggja staðnum til ný verkefni. Sá mikli áhugi sem að undanförnu hefur verið, bæði inn- anlands og erlendis ffá, á að dvelja í Reykholti vegna rannsókna eða yfirbyggingu yfir þær stórmerku fornleifar, sem komið hafa í ljós í Reykholti undanfarin ár. Fluttar verða fleiri fornminjar úr Þjóð- minjasafhi í Reykholt, en um er að ræða fornminjar sem komið hafa í ljós að undanförnu ásamt nokkrum eldri. Upplýsingar um gang forn- leifarannsókna getur að líta í sýn- ingarsal Snorrastofu í Safhaðarsal kirkjunnar, en gert er ráð fyrir að efla þann þátt, t.d. með því að nota gögn þau, sem uppgröfturinn hefur skilað, við gerð líkana, tilgátu- mynda o.s.ffv. Þá verður stígagerð aukin og merkingum fjölgað, auk þess sem gengið verður frá um- Frá ráðstefim í Snorrastofu þar semjjallað var um viðfangsefnið Reykholt og evrópsk ritmenning. funda er einungis upphafið að því sem koma skal. Oll aðstaða fyrir hvers kyns funda- og ráðstefnuhald er fyrir hendi og stefnt er að því að efla hana enn ffekar og er aðkoma hótelsins að sjálfsögðu lykillinn að þeirri uppbyggingu. I Snorrastofu haldast í hendur rannsóknir og miðlun í allri starf- seminni. Sú hugmyndaffæði, sem á- kveðið var að þróa, hefur gert það að verkum að til liðs við Snorra- stofu hafa komið stofhanir, bæði innlendar og erlendar, og eru því mörg verkefnanna samstarfsverk- efni nokkurra háskólastofnana. Minjagarður í undirbúningi Undirbúningur að uppbyggingu glæsilegs minjagarðs er kominn vel á veg. Forhönnun öflugrar forn- leifa- og margmiðlunarsýningar er lokið, auk þess sem búið er að láta teikna nýja sýningarsali, sem að mestu eru hugsaðir neðanjarðar. Með árunum er síðan gert ráð fyrir hverfi hversins Skriflu. Minjagarður í Reykholti mun vafalítið skapa mörgum atvinnu í héraðinu. Þessi miðstöð myndi fjalla um Snorra Sturluson og sam- tíð hans á breiðum grundvelli, en slík heildstæð kynning á miðöldum yrði nýnæmi á Islandi. Eins og stað- an er í dag geta ferðamenn hvergi komið á einn stað hérlendis, þar sem með heildstæðum hætti er sagt frá rótum íslenskrar menningar, þ.e. samfélagi miðalda, ritmenn- ingu o.fl. Minjagarður myndi vera öflug miðstöð, sem draga myndi að sér stöðugt fleiri ferðamenn, ráð- stefnugesti og fræðimenn. Saga Reykholts, aukinn áhugi ferða- manna á sögu landsins og sagnaarfi ög stórbættar samgöngur á Vestur- landi gera að verkum að von er á umtalsverðri fjölgun ferðamanna í Reykholt á næstu árum. Á Snorra- stofu hefur verið lögð sú ábyrgð að mæta þessum mikla áhuga með þeim hætti að sómi sé að. Bergur Þorgeirsson

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.