Skessuhorn


Skessuhorn - 21.09.2005, Page 15

Skessuhorn - 21.09.2005, Page 15
n §SESS1ÍH©BR! MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 15 Frá rektor Viðskiptaháskólcms Bifröst „Ég tel rétt að fangar geti notaé þann tíma semfangavist skapar til menntunar og með slíku stuðlað að aubium þroska sínum íþeirri viðleitni að gera sig að betri mönnum, “ segir Runólfiir meðal annars í grein sinni. Vegna fréttar DV í dag um málefni Sveinbjöms Kristjáns- sonar og aðstöðu fanga til há- skólanáms DV segir í forsíðufrétt dagsins að Sveinbjörn Kristjánsson, fangi á Litla Hrauni stundi bókhaldsnám á Bifröst. Fréttin er röng. Eiríkur Jónsson, blaðamaður á DV hafði samband við skrifstofu háskólans í gær og óskaði eftir upplýsingum um það hvort Sveinbjörn stundaði nám við skólann. Hann fékk sam- band við undirritaðan sem svaraði því til að ekki væru gefnar slíkar upplýsingar um einstaka nemend- ur enda vinnuregla að gefa ekki upplýsingar um námsframvindu, árangur eða aðrar persónulegar upplýsingar um nemendur eða umsækjendur um skólavist, án samráðs við þá. Skólinn hafði nú í morgun sam- band við Sveinbjörn og fékk heim- ild hans til að birta umræddar upp- lýsingar. Sveinbjörn sótti um nám fyrir síðustu vorönn en gat þá ekki stundað það vegna aðstöðuleysis í fangelsinu. Hann endurnýjaði umsókn sína fyrir haustmisseri sem nýlega er hafið. Honum hef- ur verið tilkynnt að hann verði tekinn í nám samkvæmt umsókn að því gefnu að fangelsisvfírvöld trvggi honum og skólanum viðun- andi aðstöðu til að hann geti sinnt sínu námi. Sveinbjörn er iðnrekstrarfræð- ingur frá THI og vantar 30 eining- ar til að geta lokið námi í við- skiptafræði. Þau fög sem hann þarf að taka til að geta lokið fjar- námi frá Bifröst eru eftirfarandi: Aðferðafræði viðskipta, breytinga- stjórnun og stefnumótun, fjármál og fjármálamarkaðir, hagnýt hag- fræði, málstofa um íslenskt at- vinnulíf, markaðsmál og neytenda- hegðun, nýsköpun og frumkvöðla- fræði, samningatækni, samtíma- menning og viðskiptasiðfræði. Auk þess myndi hann samhliða skrifa BS ritgerð undir leiðsögn umsjón- arkennara. Bókhald er ekki á með- al þeirra kennslugreina sem Svein- björn myndi leggja stund á, enda gert ráð fyrir að nemendur á 3. ári í viðskiptafræði hafi tileinkað sér slíkar grunngreinar fyrr í sínu námi. Undirritaður heimsótti Svein- björn á Litla Hraun þann 26. ágást sl. til að kanna aðstæður hans til háskólanáms og ræddi ég um leið við Kristján Stefánsson, fangelsis- stjóra. Gerði ég fangelsisstjóran- um grein fyrir því að í krefjandi háskólanámi, eins og því sem Sveinbjörn vildi stunda í fjarnámi, þyrfti hann að lágmarki netaðgang í 30 klst. á viku og að slíkt væri í raun forsenda þess að Bifröst treysti sér til að taka Sveinbjörn í nám. A fjarnámsvef skólans þyrfti hann að hlusta á fyrirlestra, vinna verkefni, hafa samskipti við sam- nemendur sína og kennara, auk þess að afla gagna úr alþjóðlegum gagnagrunnum til að geta stundað nám á Bifröst með fullnægjandi hætti. I framhaldi af þessum fundi var haft samband við forstjóra Fangelsismálastofnunar og atbeina hans óskað í málinu. Ljóst er að öryggismál varðandi netnotkun fanga eru viðkvæmt atriði en há- skólinn hefur bent fangelsisyfir- völdum á að þau megi leysa með einföldum hætti. Viðskiptaháskólinn á Bifröst telur sig hafa samfélagslegar skyldur. Hluti af þeim skyldum er að stuðla að jöfhum rétti allra til náms við skólann. Fangar eru þar ekki undanskildir, enda er það trú mín að bæði sé eðli- legt og sjálfsagt að skólakerfið, þ.m.t. háskólar, sinni þörfum fanga til náms. Eg tel rétt að fangar geti notað þann tíma sem fangavist skapar til menntunar og með slíku stuðlað að auknum þroska sínum í þeirri viðleitni að gera sig að betri mönnum. I þeim skilningi ætti hið gamla ís- lenska orð, betrunarhús að gilda um þær stofnanir sem sinna refsivist fyrir samfélagið. I Ijósi viðræðna við fangelsis- yfirvöld og fréttar DV hef ég í dag sent Birni Bjarnasyni, dómsmálaráðherra bréf og beð- ið hann að beita sér í málefhum Sveinbjöms Kristjánssonar og tryggja honum og öðmm föng- um aðstöðu til háskólanáms. Viðskiptaháskólinn er tilbúinn til samstarfs við fangelsisyfir- völd í þeim efhum. Bifröst, 20. september 2005 Runólfur Agústsson www.skessuhom.is KYNNINGARFUNDÍR - ÍBÚAFUNDIR Á SNÆFELLSNESI Vegna sameiningarkosninga 8. október nk. skv. tillögum félagsmálaráðuneytis um sameiningu fimm sveitafélaga á Snæfellsnesi. Kynningarfundir fyrir íbúa sveitafélaganna fimm verða haldnir sem hér segir: Eyja- og Miklaholtshreppur Félagsheimilinu Breiðabliki föstudaginn 23. september nk. kl. 20:00 Helgafellssveit og Stykkishólmur Sal Tónlistarskóla Stykkishólms laugardaginn 24. september nk. kl. 11:00 Grundarfjörður Fjölbrautaskóla Snæfellinga laugardaginn 24. september nk. kl. 14:00 Snæfellsbær Félagsheimilinu Klifi laugardaginn 24. september nk. kl. 17:00 ! Athygli er vakin á utankjörfundaratkvæðagreiðslu sem hófst 13. ágúst sl. hjá | sýslumanni Snæfellinga l íbúar eru hvattir til að mæta og kynna sér málin Samstarfsnefnd um sameiningu sveitafélaga á Snæfellsnesi ÁSATRÚARFÓLK! Disablót kl 19.00 íJafnaskardsskógi við Hreðavatn. Asatrúarfólk á Vesturlandi heldur dísablót við Hreðavatn í Jafnaskarðsskógi í Borgarfirði, um haustjafndœgur 23. september 2005. Blótgestir hittast við Hreðavatnsskála kl 18.30 og halda þaðan til blóts. Allir velkomnir. Jónína K. Berg Vestlendingagoði sími 865 2581 Hvanneyrarkirkja 100 ára Hvanneyrarkirkja er 100 ára um Þessar mundir. Af Því tilefni auglÞsir sóknarnefnd og sóknarprestur eftir gömlum myndum af kirkjunni sem fólk kynni aÞ eiga í fórum sínum. SömuleiÞis eftir myndum af athöfnum í kirkjunni.Þ Þ Þeir sem gætu lagt Þessu erindi liÞ eru vinsamlegast beÞnir um, aÞ hafa samband viÞ sóknarprest í sfma 846 2020 eÞa Ingibjörgu Jónasdóttur í síma 437 0078. Vídeóleiga til sðlu! Upplýsingar gefur Hjörtur í síma 892-1884 Istoiin Brúartorgi - Borgarnesi Gæludýrabíllinn Æ er kominn af stadllSppl meö hágæöa hunda / J og kattafóður W Erum einnig meó fóður fyrir önnur gæludýr: Fugla, fiska og nagdýr. Mikió úrval af öórum gæludýravörum Nánari upplýsingar og sérpantanir í síma 848-4649 Getum einuig tekið aó okktir verkefni í sambandi við gæludýr og landbúnað Glóðarsteiktir hamborgarar Nautasteik og lambasteik

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.