Skessuhorn


Skessuhorn - 21.09.2005, Side 22

Skessuhorn - 21.09.2005, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 Besti árangur Víkings frá upphafi Lokaleikur Víkings síðastliöinn föstudag var leikinn í sunnan roki og rigningu. Heldur hafði lægt vind frá því fyrr um daginn og slapp þetta nú allt til. Akureyring- arnir í Þór voru í heimsókn og voru þeir sterkari aðilinn fyrsta hálftímann eða svo. Þeir sköp- uðu sér þó ekki nein færi sem að heitir getur. Víkingar fengu sitt fyrsta færi þegar Eyþór Ásgeirs- son prjónaði sig í gegnum vörn gestanna á 30. mínútu. Hann lék á tvo varnarmenn en var kominn í nokkuð þröngt færi og skotið var ekki gott. Stuttu seinna fékk Slavisa gott skotfæri í teignum en varnarmenn Þórs komust fyrir knöttinn og björguðu. Jafnt var því komið á með liðunum og staðan 0 - 0 í hálfleik. Síðastliðinn þriðjudag hittust um 600 nemendur af mið-Vestur- landi á íþróttamiðstöðvarsvæðinu í Borgarnesi og kepptu í frjálsum íþróttum og sundi. Þrátt fyrir að Það voru ekki liðnar nema u.þ.b. 7 mín. af seinni hálfleik þegar Víkingar áttu góða sókn upp hægri kantinn. Slavisa lagði knöttinn út á Ragnar Mar sem átti góða fyrirgjöf beint yfir á nafna sinn Ragnar Smára sem hitti bolt- ann vel og skaut góðu skoti út undir stöng. Mark, óverjandi og Ragnar Smári skoraði þarna sitt fyrsta mark í sumar. Geysilega þýðingarmikið mark. Eftir markið sóttu Þórsar nokkuð og pressuðu heimamenn stíft undir lokin. En vörnin hélt og Einar markvörður Hjörleifsson sýndi enn á ný góð tilþrif í markvörslunni. Það kom því undirrituðum ekki á óvart að hann skyldi kjörinn besti leikmað- ur sumarsins í lokahófi Víkings kvöldið eftir. Rétt fyrir leikslok kalt væri í veðri var kátt yfir mann- skapnum og gleði skein úr hverju andliti enda var þarna aðalmálið að vera með, hreyfa sig og taka þátt í góðum leik. Árangur móts- komst Slavisa einn í gegn og hefði getað innsiglað sigurinn en eitthvað fataðist honum flugið og því átti markvörðurinn ekki í vandræðum að verja misheppnað skot hans. Fyrir leikinn átti Vík- ingur það á hættu að falla úr deildinni ef illa færi en sigur þýddi að liðið endaði í 5. sæti deildar- innar. Skemmtilegri og jafnri deild er lokið. Væntanlega verða ekki miklar breytingar á leikmanna- hópnum sem mætirtil leiks næsta sumar og etur kappi við lið á borð við Þrótt, Fram og fleiri góð lið. Víkingar eru því 15. besta félags- lið landsins - til hamingju með það. FRF ins má finna inn á heimasíðu Frjálsíþróttasambands íslands á vefslóðinni www.fri.is og velja þar „mótaforrit". MM/ Ljósm: IJ 600 manna skólamót í frjálsum og sundi Vinabæjakeppni GVG og GMS Síðastliðinn laugardag fór fram seinni umferð í svokallaðri „Ryder“ - keppni golfklúbba Grundarfjarðar og Stykkishólms. Fyrri umferðin var leikinn fyrr í sumar á golfvelli Mostra í Stykkis- hólmi þar sem Grundfirðingar höfðu sigur. Þeir voru því í góðri stöðu fyrir seinni umferðina á Bárarvelli. Góð þátttaka var í góðu veðri, leiknir voru þrir leikir og höfðu Grundfirðingarnir í Vest- arr sigur. Þeir unnu því bikarinn í fyrsta sinn því Mostri hafði ávallt unnið fram að þessari viðureign. Það er vel við hæfi því Golfklúbb- urinn Vestarr fagnar um þessar mundir 10 ára afmæli klúbbsins og er af því tilefni sérstakt afmæl- ismót n.k. laugardag. Verður þar eflaust margt um kylfinginn sem tekur þátt og verð- ur fagnaðinum framhaldið um kvöldið á Kaffi 59 þar sem árshá- tíð klúbbsins fer fram. Verður þar sumarið gert upp og minnst 10 ára sögu Vestarr. FRF/ Ljósm: Sverrir Frá vinstri: Jónas Gestur Jónasson formaður meistaraflokks Víkings, Hilmar Hauksson stjórnarmaður, Einar Hjörleifsson leikmaður ársins, Alexsander Linta en hann var kosinn annar besti leikmaður Víkings, Tryggvi Hafsteinsson efnileg- asti leikmaðurinn og Hermann Þórsson markahæsti leikmaður Víkings 2005. Ljósm: PSJ Lokahóf meistara- flokks Víkings í Ólafsvík Lokahóf meistaraflokks Víkings í Ólafsvík var haldið á Hótel Ó- lafsvík sl. laugardagskvöld. Til- efnið var ærið því Víkingur hélt veru sinni í 1. deild árið 2005 með sóma og 5. sætið var staðreynd en liðið komst upp úr annarri deiíd á sl. ári. Alls fékk Víkingur 21 stig í deildinni og síðustu þrjú stigin fengust með sigri á Þór frá Akureyri daginn áður, en leikurinn fór 1-0 í Ólafsvík. Á hófinu flutti Jónas Gestur Jónasson formaður knattspyrnudeildar Víkings yfirlit um starfsemina. Þar þakkaði hann bæði þjálfaranum Eijup Purecvish, leikmönnum og öllum þeim sem komu að þessum glæsilega árangri. Ræðumaður kvöldsins var Kristján Helgason fyrrverandi hafnarvörður og bæjarstjóri Snæ- fellsbæjar, Kristinn Jónasson flutti ávarp. Þá bárust góðar kveðjur frá stuðningsmönnum liðsins. Markahæsti leikmaður Víkings í sumar var Hermann Þór- isson með 5 mörk en alls skoraði liðið fimmtán mörk á leiktíðinni. Efnilegasti leikmaður Víkings var kjörinn Tryggvi Hafsteinsson og þá var leikmaður ársins kjörinn Einar Hjörleifsson en hann er markvörður liðsins. Þessum þremur leikmönnum var öllum veittar viðurkennningar. Það er bæjarbúum mikil á- nægja hve Víkingur hefur staðið sig vel á sl. árum. Greinilegt er að liðið er í góðum gír og eru leik- mönnum og ekki síst góðri stjórn meistaraflokksins þakkað fyrir frábæran árangur. PSJ Skagamenn vörðu titilinn í 2. flokki karla Skagamenn tryggðu sér ís- landsmeistaratitilinn í 2. flokki í knattspyrnu karla í síðustu viku þegar þeir lögðu Valsmenn 4 - 0 á Hlíðarenda í lokaumferðinni. Haf- þór Ægir Vilhjálmsson skoraði tvö marka ÍA en þeir Arnar Már Guð- jónsson og Bjarni H Kristmarsson sitt markið hvor. Valsmenn fengu samt sem áður besta færi leiksins þegar þeir fengu dæmda víta- spyrnu. Guðmundur Hreiðarsson markvörður ÍA gerði sér hinsveg- ar lítið fyrir og varði. Þetta er sem fyrr segir annað árið í röð sem Skagamenn hampa íslandsmeistaratitli í 2. flokki og það sem merkilegra er að þetta er að stórum hluta sami leikmannahópurinn og náði þess- um árangri í fyrra. GE Verðlaunahafar í ratleik Þórðar Það var hress og áhugasamur hópur sem mætti í Gestastofu Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls, laugardaginn 10. september sl. til að taka við viðurkenningarskjöl- um fyrir þátttöku í ratleikjunum undir Jökli. Það voru Hollvina- samtök Þórðar Halldórssonar frá Dagverðará, sem stóðu fyrir rat- leikjunum annars vegar um Dag- verðarárland og hins vegar kring- um Snæfellsjökul. í Gestastofuna voru mættir um 20 þátttakendur sem komu víða að og biðu í eftir- væntingu eftir veglegum vinning- um í þessum leik, en hótelhaldar- ar undir Jökli lögðu þá til. Gistingu á Hótel Hellnum hlaut Kristbjörg Soffía Salvarsdóttir úr Mosfellsbæ fyrir þátttöku í rat- leiknum um Dagverðará. Ársæll Jóhannsson frá Reykjavík vann gistingu á Hótel Eddu á Hell- issandi fyrir þátttöku í ratleiknum kringum Snæfellsjökul og loks hlaut Ragnheiður Eva Guð- mundsdóttir frá Akranesi vinning fyrir þátttöku í báðum ratleikjun- um, en það er gisting á Hótel Búðum. (fréttatilkynning)

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.